Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.10.2021, Síða 19
3.10. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19
Verð og vöruupplýsingar í auglýsingunni
eru birtar með fyrirvara um prentvillur.
Yfirstrikað verð sýnir fullt verð vöru.
www.husgagnahollin.is
V
E
F
V E R S L
U
N
* Taxfree tilboðið gildir af öllum sófum og sófaborðum nema sérpöntunum
og jafngildir 19,35% afslætti. Að sjálfsögðu fær ríkissjóður virðisaukaskatt af
söluverði. Afslátturinn er alfarið á kostnað Húsgagnahallarinnar.
SCOTT
3ja sæta. 212 × 97 × 85 cm
161.292 kr. 199.990 kr.
bónda og sagði þjóðinni lítil viðing að slíkri hegðun sem því mið-
ur væri alltof algeng. Ófært væri að blóðsugur sætu fyrir ferða-
mönnum og reyndu að flá þá sem allra mest. „Bóndann á Laug
veit eg þann manna, er leiðinlegast hefir komið fram gagnvart
erlendum ferðamönnum hér á landi. Fór saman hjá honum
ágirnd, ósanngirni og framkoma sem eg veit að til þessa hefir
verið talin ósæmileg hverjum íslenzkum bónda.“
Fram kom í máli Árna að aðalhluti myndarinnar yrði tekinn í
Reykholti – sá er gerist á Borg. Bærinn þótti ekki nógu stór og
þess vegna var sóttur trjáviður til Borgarness og reist timbur-
stofa með gafli fram á hlaðið og skemmuþil sett upp á öðrum
stað. Síðan voru öll þilin máluð og var nú staðarlegt að horfa
heim að bænum, að sögn Árna.
Einnig var leikið í kotinu Kolslæk í Hálsaveit, sem haft var
fyrir Bolla í sögunni. „Verður sennilega leikið þar í tvo daga, en
síðan tekið til við Borg. Ef góð verður tíð, er búist við því, að
öllu verður þar lokið á hálfum mánuði. Verður þá farið til Borg-
arness og þar leikin þau atriði sögunnar, er gerast í kaup-
staðnum. Munu þá flestir halda til Reykjavíkur, en þó verður
eitthvað leikið hjá Geysi og á Þingvöllum á eftir.
Þangað fara þó líklega ekki aðrir en Gestur eineygði, Ormarr
Örlygsson og ef til vill Páll á Seyru.“
Ung stúlka á blábrúninni
Í fimmta pistli sínum fjallaði Árni um það þegar leikendurnir
lögðu leið sína upp með Rauðsgili og upp að háum fossi, er Bæj-
arfoss nefnist. Þar var svo leikið lengi dags og gerðust mörg at-
riði leiksins á blábrúninni, þar sem fossinn fellur fram af.
„Meðal leikendanna var lítil telpa frá Akranesi. Hún er ann-
aðhvort á fjórða ári eða fjögra ára gömul og heitir Sigurdís
Kaprasíusdóttir. Móðir hennar var í sumar í kaupavinnu í
Breiðabólstað í Reykholtsdal og hafði hana þar hjá sér. Þessi
litla stúlka var látin leika Rúnu, meðan hún er hjá Páli á Seyru.
Er Páll ræfill og getur ekki séð sér og barninu farborða og ætl-
ar því að fyrirfara sér og því í fossinum. Var dásamlegt að sjá
það, hvað telpan lék vel og eðlilega og hvað hún var óhrædd
þarna fram í hengifluginu yfir fossinum. En eg er hræddur um,
að mamma hennar hefði aldrei gefið samþykki sitt til þess að
telpan léki, ef hún hefði vitað að hún ætti að leika á svona ægi-
legum stað.“
Hið forna byggingarlag
Lokapistill Árna birtist 24. september eða fjórum vikum á eftir
þeim fyrsta. Á sömu blaðsíðu, sem var forsíða Morgunblaðsins,
var einnig auglýst eftir aukaleikurum vegna kvikmyndarinnar
og tekið fram að þóknun yrði greidd fyrir. Pistil sinn notaði
Árni til að lýsa bæjunum þremur þar sem myndin var að mestu
tekin, Keldum, Reykholti og Kollslæk, og sendi skýr skilaboð.
„Eins og kunnugt er, var seilst til þess að finna þá bæi, þar sem
er hið forna íslenzka byggingarlag og tókst það vonum fremur,
þegar þess er gætt, að hið fagra og hentuga byggingarlag er
víðast að hverfa úr sögunni og í stað bæjanna að rísa upp timb-
urhús og steinhús, sem gnapa einstæðingsleg og framandi á
grænum bæjarhólum. Það er að vísu talið til framfara hér á
landi, að húsakynni hafi batnað mjög síðustu áratugi, en þau
hefði getað batnað þrátt fyrir það þó eigi hefði verið lagður nið-
ur hinn forni byggingarstíll.“
Ljósmyndir/Dansk Film Institut
Gunnar skáld í hlutverki læknisins ásamt mæðgunum í Bolla sem
Guðrún Indriðadóttir og Elisabeth Jacobsen leika.
Gunnar Sommerfeldt leikstjóri í hlutverki sr. Ketils og Frederik
Jacobsen sem faðir hans, Örlygur á Borg. Tekið á Keldum og í
baksýn sést fjallið Þríhyrningur.
Muggur og Guðrún Indriða-
dóttir í hlutverkum sínum fyrir
framan bæinn á Kollslæk.
Kýr betri leikarar en hundar
Okkar maður var enn í Reykholti viku síðar, en þangað hafði
fólki úr sveitinni verið stefnt vegna fjölmennari atriða mynd-
arinnar. Kom þá líkfylgd Örlygs gamla heim að Borg. „Var
fjöldi manna með í líkfylgdinni og margir fleiri en beðið var um.
Var svo að sjá, sem ýmsum þætti „sport“ í því að koma með á
kvikmyndina,“ skrifaði Árni. Ekki var hægt að ljúka tökum
þann dag vegna veðurs og voru líkmennirnir, aldraðir bændur
úr sveitinni, því boðaðir aftur í Reykholt daginn eftir.
Árni gat þess að íslensk húsdýr kæmu talsvert við sögu í
myndinni, að kettinum undanskildum enda lætur hann sem
kunnugt er afleitlega að stjórn. Einn daginn hafði 30 kúm verið
smalað saman og þær filmaðar sunnan við túngarðinn. Þótti
leikur þeirra einkennast af fumleysi. Hestarnir þóttu líka hafa
sýnt prýðileg tilþrif og voru upp til hópa þægir.
Hundarnir voru erfiðari og áttu menn gjarnan í stímabraki
við þá. Einn átti að hafa það hlutverk á Bolla að hlaupa geltandi
í móti Gesti eineygða, sem kemur þangað fótgangandi. En
seppi var ófáanlegur til þess, hvernig sem að honum var farið
og þótt honum væri sigað á Gest. Kom það að lokum í ljós að
hundurinn var lafhræddur við þennan töfradúða. Varð því að
mynda þá Gest og hundinn hvorn í sínu lagi.