Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.10.2021, Síða 22
Elsku Vogin mín, það er ekki langt síðan þú gladdist yfir merkilegum at-
burði í lífi þínu og allt virtist leika í lyndi. En þú átt það til að vera fljót að gleyma þeirri
gæfu sem umlykur þig. Þú hefur tilhneigingu til að setja undir þig hausinn og búa til alls
kyns vitleysu í huganum sem þú kvíðir fyrir. Þegar þú ert með huga og haus í framtíðinni, þá
sérðu ekki sólina, því framtíðin skapast með gleðinni sem þú geislar af núna.
Vertu fullkomlega róleg og hafðu þá trú að lífið leysi þetta allt saman, það er nákvæmlega
það sem gerist og þú finnur síðasta púslið í púsluspilinu. Þegar þú ert pirruð út í sjálfa þig er
ekki nokkur leið að vera í kringum þig. Og það er afskaplega skrýtið, þar sem þú ert svo
heppin að vera þú og vildir í raun og veru ekki vera nein önnur. Að þú getir klappað þér á
bakið og sagt við þig upphefjandi orð. Þegar þú breytir því hvernig þú talar við sjálfa þig
breytist allt.
Þú getur skilið við fósturlandið, vinnuna, fjölskylduna, en þú situr uppi með þessa sérstöku
manneskju sem þú valdir að vera áður en þú komst inn í þetta líf. Þú ert rosalega há ljósvera
sem á erfitt stundum með það að vera bara manneskja.
Ekki fara út í neina sérstaka áhættu í sambandi við fjármál, hugsaðu þar eins og hagsýn
húsmóðir og settu peninga til hliðar ef þú getur. Þú ert að fara að rækta sjálfa þig meira,
bæði líkama og anda. Og þegar þú sérð að árangur næst á stuttum tíma og þú geislar eins og
engill, þá fer ástin í þann farveg sem þú vilt. Gefðu með gleði, þá verður allt að gulli sem þú
snertir.
Gefðu með gleði
VOGIN | 23. SEPTEMBER 22. OKTÓBER
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.10. 2021
Elsku Sporðdrekinn minn, það er verið að leggja heilmikið á þig og ef einhver er
góður í að leysa verkefni og fá aðra til liðs við sig, þá ert það þú. Gerðu það sem þú þarft að gera
núna og ekki bíða þangað til þér finnst hlutirnir komnir í óefni. Þú skalt bara vinda þér eins og snjó-
plógur, sem fer allt sem hann þarf að fara, í það sem þú þarft að gera og láta gerast.
Þú hefur efni og ástríðu til þess að leysa þá hnúta sem þarf, hvort sem þeir tengjast sjálfum þér
eða öðrum. Það eina sem þú þarft að hafa á kristaltæru er að þú náir að sofa og hvíla þig vel til þess
að orkan verði eins og þú vilt hafa hana og tímasetja hvenær þú vilt vera búin/n að því sem þér finnst
þú þurfa að gera.
Um leið og þú tímasetur byrjar lífið að senda þér réttar manneskjur og rétta hluti til þess að þú
getir klárað málin. En þú ert svo einstök manneskja að þegar þú efast um sjálfa/n þig hugsarðu í
hringi í stað þess að hrinda því sem þú þarft að gera í framkvæmd. Þú ert alltaf snillingur í sam-
skiptum þegar þú þarft þess.
Í ástamálunum er samskiptahæfni þín ekki alltaf upp á tíu svo leyfðu þeirri manneskju sem er svo
heppin að fá að hafa þig í lífinu að blómstra eins vel og þú mögulega getur hjálpað henni til. Ástin
verður þér góð ef þú gefur henni næringu. Það besta við þig er að þú dæmir ekki aðra og hefur fulla
trú á fólki. Karma er að koma inn í líf þitt og gefa þér til baka, svo heppnin heldur í höndina á þér.
En um leið og þú efast og hugsar að þú sért óheppin/n þá kemst hið jákvæða karma ekki til þín.
Það er nýtt upphaf í kortunum og hvort sem það fer hægt eða hratt af stað verður það þér til
meiri blessunar en þú nokkurn tímann þorðir að vona. Október, nóvember og desember eru mán-
uðirnir sem snúa lífi þínu við.
Ekki bíða
SPORÐDREKINN | 23. OKTÓBER 21. NÓVEMBER
Elsku Steingeitin mín, lífið er oft á meiri hraða heldur en þú vilt. Þá geturðu átt
það til að frjósa og gera sem minnst. Því fylgir vanlíðan sem á vitaskuld ekki heima hjá þér. Ekki
hugsa um allt í einu, því þá fer heilinn þinn í bakkgír. Það sem þú hefur lagt fyrir þig að gerist,
gerist og já, þú stjórnar rosalega mörgu sem gerist. Sú útkoma er að taka meiri tíma af þér en þú
bjóst við, en þegar um það bil 55 dagar eru liðnir muntu uppskera alveg heilmikið. Þú sérð í ást-
inni hvað er rétt og hvers þú þarfnast og ef þú ert svo heppin að vera á lausu, þá skaltu stinga þér
í djúpu laugina, bara láta þig vaða, þú hefur engu að tapa!
Þú virðist fá verðlaun og viðurkenningu þegar líður enn meira á árið. Og færð tilboð um að þú
gætir stækkað orkuna margfalt á framabrautinni, hvað svo sem frami þýðir fyrir þér. Það er svo
misjafnt hvers við óskum og sum ykkar vita ekki hvað þau vilja, og þá veit Alheimsvitundin held-
ur ekki hvað hún á að færa þér.
Leggðu það niður fyrir þig að þú ætlir að vinna eða læra það sem þér þykir gaman. Því að þó að
þú fáir einhvern stóran titil í leiðinlegu námi eða vinnu, þá gerir það ekkert fyrir þig. Þetta er þitt
líf og þú átt það skuldlaust. Og vinir þínir og fjölskylda eru blómin í garðinum þínum. Svo skoð-
aðu garðinn þinn vel, því þú ert sérstaklega heppin hvað það varðar. Og hvað skiptir máli? Ná-
kvæmlega bara það. Grasið er ekki grænna hinum megin við húsið, heldur í hverju skrefi sem þú
ert í, byrja blómin að vaxa og dafna og í því felst hamingjan.
Ég dreg fyrir þig tvö spil og þú færð mynd af kennara og á spilinu er talan fimm, sem táknar
fjölbreytileika. Og undir því stendur: Þín er viskan. Síðan færðu mynd af manneskju í munkaföt-
um, talan tveir fylgir henni. Þar sést að þú ert að loka fortíðinni og ert með þinn einstaka lykil að
lífinu um hálsinn. Og setningin sem fylgir þessu spili er: Innsæi þitt skapar lífið.
Þín er viskan
STEINGEITIN | 22. DESEMBER 19. JANÚAR
Elsku Bogmaðurinn minn, þú ert alltaf að ná því betur og betur að það sem skiptir
mestu máli er að lifa og njóta. Að lifa lífinu svo sannarlega lifandi, meðan þú hefur það. Ekki að sjá eftir
neinu; að hafa móral yfir einhverju, hvort sem það er merkilegt eða ómerkilegt, drepur daginn í dag og
þá lifirðu ekki. Það hafa verið góðar breytingar í kringum þig og þú ert búinn að fá stóra hluti upp í
hendurnar eða þeir eru að sigla til þín. Þú hefur laðað til þín nýja vináttu og betra viðmót frá öðrum.
Svo eru líka til afbrigði af Bogmanninum sem hafa ekki undanfarið né núna farið út úr búbblunni sinni,
en þá minnkar það rými sem þú hefur til að anda og gleðjast, og reiði og pirringur læðist aftan að þér.
Til þess að tengja þig við orkuna sem svo sannarlega hæfir þér og framhaldinu verðurðu sjálfur að
sprengja búbbluna og koma þér út úr krísunni sem þú skapaðir þér, því stjörnurnar og vitund alls eru
að leiða þig í gegnum glimrandi og spennandi kafla í lífssögunni þinni.
Þú færð lausnir við flestu ef þú leyfir anda þínum að vera frjálsum og þú finnur betri leið til að halda lík-
amanum og huganum í því standi sem hann vill senda þér. En þú verður að muna að vorkenna þér ekki
fyrir nokkurn skapaðan hlut því þá ertu að lita drauma þína svarta, en möguleikarnir eru fleiri og nær þér
og breytingar efla orku og þor. Sjálfstæði er þér svo ótrúlega mikilvægt, svo finndu þér maka sem gefur
þér frelsi til að blómstra, því að þinn sérkennilegi heili þarf að framkvæma hugmyndirnar sem hann fær.
Það er heppni yfir þér í sambandi við fjárfestingar eða óvæntan gróða af því sem þú hefur gert. Í eðli
þínu ertu alltaf skrefi á undan meðaljóninum og þinn persónuleiki laðar að sér vini sem hafa mikla trú á
þér. En þú hefur samt val um það hvort þú tjóðrar þig niður eða tengir í vinaskarann sem elskar þig. Það
er mikil ást í kortunum, svo opnaðu þínar hjartans rásir og leyfðu þessari sterku ástarorku að streyma í
gegnum þig. Því eftir því sem þú elskar þig meira magnarðu upp allt sem tengist ást og kærleik. Ég dró úr
spilabunkanum mínum til þín þessa setningu: Gerðu meira en þú þorir, þá verður ævisagan betri.
Að lifa og njóta
BOGMAÐURINN | 22. NÓVEMBER 21. DESEMBER
Elsku Vatnsberinn minn, þú býrð yfir þeim góða hæfileika að þora að taka góða
áhættu í lífinu. Þú stendur einum of oft á bjargbrúninni og það eina sem getur stefnt þér fram af
henni er ef þú lætur álit og skoðanir annarra fara inn í hjarta þitt. Þú nýtur nefnilega verndar
yfirnáttúrulegra afla, og stundum hefur þér fundist að röð sérkennilegra tilviljana hafi hjálpað
þér út úr ólíklegustu aðstæðum. Það verður nefnilega allt sem þú snertir að gulli þegar þú forðar
þér frá því að láta misviturt fólk búa í huga þínum. Þegar þú sérð að allar þær hliðar sem þú getur
sýnt sjálfum þér eru góðar og þú sættist við huga þinn í öllu, þá halda þér engin bönd, því að yfir-
náttúruleg öfl eru þér innan handar.
Þú hefur í gegnum tíðina rétt öðrum hjálparhönd án þess að þurfa eitthvað í staðinn. Og þú átt
eftir að sjá að óvenjulegasta fólk mun fara úr yfirhöfninni og leggja hana yfir pollinn fyrir framan
þig svo þú getir verið þurr í fæturna.
Leyfðu þér meira að hlakka til þess sem er að koma, því að það hefur verið visst spennufall í
kringum þig. Þetta er eins þegar maður hlakkar til að taka við nýja heimilinu sínu, en þegar mað-
ur flytur þangað verður visst spennufall. Ekki eins gaman og maður hélt, svona eins og að hlakka
til jólanna. En aðfangadagskvöld er oft ekki eins og þú bjóst við. Svo núna eru stjörnurnar í þínu
korti að færa þér vegvísi að nýju tilefni til þess að mega hlakka til.
Vissir aðilar öfunda þig og ef öfund yrði virkjuð á Íslandi þyrftum við ekki rafmagn. Það öfund-
ar enginn allslausan mann, þú hefur mikið svo farðu vel með það.
Það blasir við þér nýtt heimili eða ný verkefni, það er eins bjart yfir þeim og friðarljósi Vatns-
berans Yoko Ono sem lýsir í Viðey.
Leyfðu þér að hlakka til
VATNSBERINN | 20. JANÚAR 18. FEBRÚAR
Október
Elsku Fiskurinn minn, þínar tilfinningar eru búnar að vera eins og Fagradals-
gosið. Yfirleitt ertu að skína svo ofboðslega skært, svo inn á milli finnurðu tímabil þar sem þér finnst
vonleysið læðast að þér og þú færð hnút í magann. Til þess að ná þessu dásamlega jafnvægi sem þú
vilt hafa, þarftu að skoða betur hið andlega. Að láta ekki dót og drasl skipta þig öllu máli, heldur að
finna að hamingjan og lífið býr innra með þér. Þú ert nýbúinn eða ert að fara í nýja vegferð sem eflir
huga þinn og gefur þér lítinn sem engan tíma til að hafa áhyggjur af því sem skiptir engu máli. Þar
sem þú ert í Fiskamerkinu þá veistu það að fiskar eru á stöðugri hreyfingu og þegar þú finnur mest
til og borðar áhyggjur í morgunmat, er það vegna þess að þú hefur ekki nóg fyrir stafni.
Þú finnur að kyrrð og hamingjan í hjartanu þínu eflist með nýjum athöfnum. Vináttan verður
skýrari og tærari ef þú tekur bara ákvörðun um að treysta meira en þú hefur gert. Það verða ferða-
lög í kringum þig sem skipta þig miklu máli og fá þig til að finna að þú slakar á og leyfir þér að njóta.
Ef þú ert á lausu eða í erfiðu sambandi, láttu þá ekki gamlar minningar eða erfiðleika fortíðar í
ástamálum eitra fyrir þér daginn. Þú færð það sem þig vantar og það sem þú vilt. En passaðu þig
bara á því að vera ekki að stjórna þeim sem þú elskar, heldur að treysta, því þá færðu gátuna leysta.
Þú ert eins og gangandi kærleiksbjörn, sendir ástarorkuna í allar áttir því ástríða þín er svo djúp að
fólk grípur andann á lofti.
Þú ættir að skoða hvort þú getir ekki séð betur hversu hæfileikaríkur þú ert. Og taka sénsinn til
að þróa með þér einhvers konar list og þora að standa fyrir framan fólk og tala. Þetta tímabil gefur
þér svo marga möguleika, svo taktu áhættu með sjálfan þig, segðu já við áskorunum og saltaðu
áhyggjurnar. Ég dreg fyrir þig úr spilastokknum mínum og þar segir að ástin sé að óska eftir þér.
Ástarorka í allar áttir
FISKARNIR | 19. FEBRÚAR 20. MARS