Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.10.2021, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.10. 2021
LESBÓK
SJÓNVARP Maid kallast nýir dramaþættir sem komu
inn á efnisveituna Netflix fyrir helgina en þeir byggjast
á hinum vinsælu endurminningum Stephanie Land
Maid: Hard Work, Low Pay, and a Mother’s Will to Sur-
vive. Um er að ræða sama framleiðsluteymi og stóð á
bak við hina vinsælu þætti Shameless og líkt og þar ber-
um við niður í lægsta þrepi þjóðfélagsstigans. Margaret
Qualley fer með hlutverk Alex, ungrar konu sem flýr úr
ofbeldisfullu sambandi vegna ungrar dóttur sinnar en
kemur alls staðar að luktum dyrum. Sumsé ameríski
draumurinn með öfugum formerkjum; slæmt húsnæði,
illa launað starf og bældar vonir. Af öðrum leikendum í
Maid má nefna móður Qualley, Andie MacDowell, Nick
Robinson og Aniku Noni Rose.
Í brekku lífsins
Maragret Qualley
leikur aðalhlutverkið.
AFP
DEPURÐ Bandaríska söngkonan Tori Amos við-
urkennir í viðtali við breska blaðið The Independent
að hún hafi tilfinningalega verið komin að fótum
fram þegar þriðja útgöngubannið skall á vegna
heimsfaraldursins. Hún hafði komist nokkuð
örugglega gegnum tvö þau fyrri en nú þyrmdi yfir
hana. Ein ástæðan var sú að hún hafði ekki náð að
syrgja móður sína almennilega en hún féll frá
2019 og nú var engin leið að hringja í hana, eins
og Amos var vön að gera þegar eitthvað
bjátaði á. Loks var það tónlistin sem hífði
Amos upp og hún fór að semja lög á plöt-
una Ocean to Ocean sem kemur út í lok
mánaðar.
Var komin að fótum fram tilfinningalega
Ocean to
Ocean er 16.
breiðskífa
Tori Amos.
AFP
Corey Taylor hefur það fínt í dag.
Þakklátur fyrir
bóluefnið
VEIKINDI Corey Taylor, söngvari
málmbandsins Slipknot, kveðst
ekki í annan tíma hafa orðið eins
veikur og þegar hann greindist
með kórónuveirusjúkdóminn í sum-
ar. Í samtali við útvarpsþáttinn
SiriusXM vestur í Bandaríkjunum
viðurkenndi hann að hafa stein-
legið í tvo daga en strax á þriðja
degi hafi hann verið orðinn miklu
skárri. Á fjórða degi var hann
reiðubúinn að mæta í ræktina en
hélt að sjálfsögðu í sér enda í ein-
angrun. Taylor er fullbólusettur og
þakkar það öðru fremur þennan
skjóta viðsnúning. „Hlustið ekki á
[Nicki] Minajur þessa heims. Bólu-
efnið virkar. Það virkaði fyrir mig
og mun virka fyrir þig.“
T
veir feðgar festast uppi á há-
lendi Íslands í hríðarbyl þeg-
ar bíllinn þeirra gefur sig.
Þeir neyðast til að fara fótgangandi í
leit að skjóli og finna fjallakofa sem
þeir geta komið sér fyrir í. Dagarnir
líða og illviðrið heldur áfram að geisa
svo feðgarnir þurfa að dúsa í þessum
litla fjallakofa í dágóðan tíma sem
reynist þrautin þyngri þar sem sam-
band þeirra er afar stirt og erfitt.
Þannig liggur landið í stuttmynd-
inni Bylur sem kvikmyndagerðar-
mennirnir Fannar Smári Birgisson
og Óttar Ingi Þorbergsson vinna nú
að. Flakkað er milli nútíðar og for-
tíðar. Sonurinn er orðinn tvítugur í
nútímanum en við skyggnumst líka
inn í líf persónanna rúmum áratugi
fyrr. Þannig fáum við smátt og smátt
að sjá hvað hefur mótað samband
feðganna og gert það að því sem það
er þegar við hittum þá fyrir uppi á
hálendinu. „Segja má að rauði þráð-
urinn í þessari mynd sé eitruð karl-
mennska,“ upplýsir Fannar Smári.
Þeir Óttar eru báðir útskrifaðir úr
Kvikmyndaskóla Íslands og hafa
unnið mikið saman, gert eina aðra
stuttmynd, tónlistarmyndbönd, aug-
lýsingar og fleira. Fyrir utan kvik-
myndagerðina vinna þeir báðir sem
stuðningsfulltrúar hjá Reykjavíkur-
borg. „Okkur fellur mjög vel að
vinna saman enda eins gott, við verj-
um miklum tíma saman,“ segir
Veðrið eins og
í handritinu
Kvikmyndaleikstjórarnir Fannar Smári Birgisson
og Óttar Ingi Þorbergsson vinna nú að stuttmynd-
inni Bylur. Þeir viðurkenna að það sé slagur að
koma sér á framfæri en um leið mjög hvetjandi.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Fannar Smári Birgisson og Óttar Ingi Þorbergsson við tökur á Byl í vikunni.
Fannar Smári leiðbeinir leikkonunni ungu Emmu Júlíu Ólafsdóttur.
Það geta allir fundið eitthvað
girnilegt við sitt hæfi
Freistaðu
bragðlaukanna
... stærsti uppskriftarvefur landsins!