Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.10.2021, Qupperneq 14

Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.10.2021, Qupperneq 14
dálki sínum: „Háskólabíó er ein fegursta bygg- ing, sem við Íslendingar eigum, ekki aðeins ut- an, heldur og ekki síður að innan. Ég fór í heim- sókn í þetta veglega hús á miðvikudagskvöld og satt að segja varð ég undrandi. Þó virðist mér þar ekki vera um neitt tildur að ræða. Þetta er öruggt hús, solitt, hreinlegt í línum og litum, þægilegt og fagurt. Þarna má segja að stræti sé innandyra.“ Nafnið Háskólabíó var þó ekki öllum að skapi – enda orðið „bíó“ ekki af íslenskum stofni – og spunnust um það heitar umræður í fjölmiðlum. Morgunblaðið lýsti til að mynda vonbrigðum sínum í forystugrein. „Á það hefur verið bent hér í blaðinu, að auðvelt hefði verið að finna ís- lenzkt heiti á þessa stofnun. Hefur í því sam- bandi verið bent á ýmis nöfn af rammíslenzkum og norrænum uppruna. Vill ekki háskólaráð taka þetta til nánari athugunar?“ Vísir bar þetta undir Friðfinn Ólafsson, fyrsta forstjóra hússins. „Já, það verður látið heita það enn um sinn,“ svaraði hann, „þangað til annað verður ákveðið, og það hefir ekki ann- að komið til tals, hvað svo sem verða kann, hvort tekið verður tillit til óánægjuradda í blöðum, að seinni parturinn, „bíó“, sé ekki nógu sæmandi fyrir þess konar hús, sem rekið er af hinni virðulegu stofnun.“ Menn stóðu hins vegar í ístaðið og nafnið lifir enn, sex áratugum síðar. Mikill viðburður í músíklífinu Salurinn var tekinn í notkun við hátíðlegt tilefni á 50 ára afmæli Háskóla Íslands 6. október 1961 og stjórnaði dr. Páll Ísólfsson þá flutningi á eig- in tónverki við háskólaljóð Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi. Páll var hátt uppi að flutningi loknum. „Salurinn í Háskólabíóinu nýja er tví- mælalaust langbezti hljómleikasalur, sem við höfum átt,“ sagði hann við Morgunblaðið, „og ég tel það mikinn viðburð í íslenzku músíklífi, að slíkur glæsisalur með svo fullkomnum hljóm- burði skuli nú loks vera fyrir hendi. Okkur er óhætt að óska hvert öðru til hamingju með þann merka áfanga.“ Blaðamaður sveif því næst á Árna Krist- jánsson píanóleikara sem var meðal áheyrenda. „Jú, heyrðin í salnum er framúrskarandi góð,“ sagði Árni. – Hvað, heyrðin? hváði blaðamaðurinn. „Já, heyrð er nýyrði, sem verkfræðingarnir eru farnir að nota um „akústík“ eða hljómburð, sem er fyrri tilraun til íslenzkunar á hugtakinu. Mér finnst þetta ágætt orð, og vel viðeigandi að koma því á framfæri í sambandi við fyrsta tón- flutninginn í Háskólabíóinu, sem hefir hina beztu eiginleika í þessu efni. – Hér höfum við í fyrsta skipti fengið hús, sem fullnægir ýtrustu kröfum um flutning tónlistar.“ Gott orð, heyrð, en hefur því miður ekki náð að festa sig í sessi. Kannski við reynum að afla því fylgis aftur nú, sextíu árum síðar? Árni sagði húsið hvalreka fyrir Sinfóníu- hljómsveit Íslands, auk þess sem framvegis yrði mun skemmtilegra að bjóða hingað til lands er- lendum tónlistarmönnum. Almenn ánægja ríkti í salnum við vígsluna og mál manna að Háskólabíó hlyti að teljast glæsi- legt hús og til menningarauka í hvaða stórborg sem væri. Einleikarinn enn í loftinu Fyrstu tónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Háskólabíói fóru fram fimmtudagskvöldið 12. október 1961. Stjórnandi var Tékkinn Jindrik Rohan en einleikari bandaríski fiðlusnilling- urinn Michael Rabin. Það gekk þó ekki þrauta- laust fyrir sig en flugvél Rabins bilaði ytra og tafðist hann úr hömlu fyrir vikið. Ákveðið var að fresta tónleikunum um tvær klukkustundir, til kl. 23, en þegar tónsprotinn fór á loft var Rabin enn á sveimi yfir borginni; lenti ekki fyrr en 23.05. Brunað var með kappann á Hótel Borg, þar sem hann dustaði af sér ferðarykið, áður en rokið var með hann í Háskólabíó, þar sem hann náði að stíga á svið og leika einleik í lokaverkinu á efnisskránni, fiðlukonsert Mendelssohns, frammi fyrir fullum sal, 1.000 manns. Háskólabíó var heimili Sinfóníuhljómsveitar Íslands í hálfa öld, eða þar til tónlistarhúsið Harpa var tekið í notkun 2011. „Melabandið“, eins og gárungarnir kölluðu það gjarnan, vann þar hvern sigurinn af öðrum undir stjórn manna á borð við Vladimir Ashkenazy, Petri Sakari og Osmo Vänskä og skipaði sér á bekk með fremstu sinfóníuhljómsveitum á Norðurlöndum. Það væri að æra óstöðugan að telja upp alla þá tónlistarmenn sem troðið hafa upp í Háskóla- bíói gegnum tíðina; Þorri og Margrét eru sam- mála um að allir íslenskir tónlistarmenn, sem eitthvað hefur kveðið að, hafi komið þar fram síðustu sextíu árin. Nægir þar að nefna Ragga Bjarna, Bubba Morthens, Björgvin Halldórs- son, Björk, Sigur Rós og Emilíönu Torrini. Bítl- ið hreiðraði þar snemma um sig og Hljómar stigu fyrst á svið 1964. Af erlendum tónlistar- mönnum má nefna Ellu Fitzgerald (1966), Dizzie Gillespie (1979), Yoko Ono, Sean Ono Lennon, Ringo Starr og The Plastic Ono Band (2010), David Byrne (1994 og 2013) og Jeff Beck (2013). Nú síðast sat á sviðinu Debbie Harry úr Blondie um liðna helgi en brast að vísu ekki í söng. Brjóstsykur sparaði milljónir Fyrsta kvikmyndasýningin fór fram í hinu nýja Háskólabíói 9. október 1961. Sýnd var biblíu- kvikmyndin „Fiskimaðurinn frá Galileu“, sem Morgunblaðið sagði ameríska stórmynd, tekna í litum. „Fiskimaðurinn frá Galileu var frumsýnd í Bandaríkjunum 1. október árið 1958 og var þá langstærsta kvikmynd sinnar tegundar,“ stóð í fréttinni. „Kvikmyndatakan fór fram í sér- stökum dal, San Fernandodalnum, sem er skammt frá Hollywood, og voru þar reistar 42 stórbyggingar, þar með taldar hallir og hof. Kostnaður við kvikmyndatökuna nam mörgum milljónum dollara.“ Skemmtileg saga fékk að fljóta með en einn tökudaginn mun krónubrjóstsykur hafa bjargað vinnu hundraða manna heilan morg- un. „15 mánaða gamall telpuhnokki, Betty Alonzo, sem leikur Föru prinsessu þegar hún var barn, fór að háskæla, þegar allt var tilbúið undir kvikmyndatökuna. Hópur manna reyndi að hugga barnið, en árangurslaust, og leik- stjórinn sá fram á að allt morgunverk þeirra hefði verið árangurslaust. Að lokum greip að- stoðarleikstjórinn til þess ráðs að gefa barninu brjóstsykur og það hreif; barnið hætti að gráta og hægt var að ljúka kvikmynda- Mikhaíl Gorbatsjov, fyrr- verandi leiðtogi Sovétríkj- anna, með fyrirlestur í Háskólabíói árið 2006. Morgunblaðið/ÞÖK ’ Það er enginn orðrómur; hér er reimt. Það hef ég vitað lengi. Bæði hef ég séð hér skugga sem ég get ekki út- skýrt og orðið var við hljóð og umgang. Morgunblaðið/Golli Jeff Beck í essinu sínu á tónleikum í Háskólabíói 2013. Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Háskólabíó var heimili Sin- fóníuhljómsveitar Íslands í hálfa öld. Hér er sveitin á æfingu í húsinu árið 1976. Morgunblaðið/Eggert Skálmöld hefur nokkrum sinnum troðið upp í Háskólabíói. Hér er Snæbjörn Ragn- arsson bassaleikari á útgáfutónleikum vegna Vögguvísna Yggdrasils árið 2017. AFMÆLI 14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10.10. 2021

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.