Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.10.2021, Síða 16

Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.10.2021, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10.10. 2021 V ið erum sjálfsagt mörg sek um að leggja meira upp úr skoðanakönn- unum en þær eiga endilega skilið. Þó vitum við innst inni vel að þær eru ekki gallalausar. Enda leyna vönduð fyrirtæki því hvergi að taka verði niðurstöðunum með fyrirvara og það jafn- vel út fyrir birt frávik. Ekki með réttu stjórnlagaráði En svo koma farandriddararnir á borð við þá sem veifa „þjóðaratkvæði“ um það, hversu margir hafi stutt „nýju stjórnarskrána“, sem er reyndar orðin þreytt og gömul og var haldin myglu frá fyrsta degi. Sú er sögð frá „stjórnlagaráði“ sem gerði sig ómerkt á byrjunarreit með því að hundsa afgerandi nið- urstöðu Hæstaréttar landsins. Engin stjórnarskrá í heiminum leyfir slíkt. En þar á undan var sjálft tilefnið sem gefið var falskt. Það var látið eins og stjórnarskráin sem þjóð- in samþykkti nær samhljóða og staðfesti ásamt þing- heimi á Þingvöllum 1944 hefði haft eitthvað með það að gera að alþjóðlegt bankahrun og framganga glannalegra stórfyrirtækja, sem Samfylkingin ákvað að leggjast í fóstbræðralag við árið 2003, hefðu eitt- hvað haft með íslensku stjórnarskrána að gera. Þeir sem gleyptu þessa snautlegu og fölsku kenn- ingu sýndu einnig á skömmum ferli varðandi smærri atriði, að þarna fór úrvalshópur óhæfra hvar sem á var litið, að minnsta kosti þegar horft var til þeirra og stjórnarskrárinnar. Hann staðhæfði þannig hvað eftir annað að óburðugt uppkast hópsins, sem reyndist sjaldnast standast lágmarksskoðun, hefði verið samþykkt í þjóðaratkvæði. Í því gáleysistali gleymdist viljandi að sú kosning var ekki bindandi og borin höfðu verið fram eins konar sýnishorn af hugsanlegum ákvæðum enda fór ekki fram nein skiljanleg eða heildstæð kynning, sem hægt var að taka alvarlega. Varla hefur nokkur aðili, sem telst hafa lágmarks- getu, lagt á sig að setja sig inn í þetta furðuverk og lesa úr því samhengi og í framhaldinu treyst sér til þess að tala máli þess. Einhverjir af smáflokkunum sem tóku þátt í kosningum nú síðast, með takmörk- uðum árangri, virtust gera „stjórnarskrá stjórnlag- aráðs“ að sínu máli, en það reyndist þeim hvorki til fylgis né vegsauka þar. Ekki var því hægt að lesa það úr seinustu kosn- ingum að marktækan stuðning væri að finna við hinn ólögmæta samtíning. Er því sennilega óhætt að segja nú að þær kosningar hafi orðið lokapunktur tilveru hans. Kristrún Heimisdóttir lögfræðingur sýndi með vandaðri nálgun sinni og efnistökum að málatilbún- aður um „nýja stjórnarskrá“ stóðst illa málefnalega og fræðilega skoðun og til þeirrar niðurstöðu verður horft í framtíðinni. Næsta fár á dagskrá? Kosningarnar í síðasta mánuði fóru óneitanlega að nokkru fram í andrúmslofti veirufárs, þótt almenn- ingur hljóti að trúa því að vígstaða hans hafi breyst verulega í krafti bólusetningarátaks, þótt enn sé mis- jafnt hvar einstakar þjóðir eru staddar þar, sem deyfir heildarmyndina óneitanlega mjög. Og því er ekki að neita að óþægilega margir fróð- leiksmenn í þessum efnum hafa glutrað niður nokkru af fræðilegu trausti sínu og er þá ekki síst verið að horfa á mannskap í fjölmennum löndum sem notið hafa virðingar, sem í upphafi nálgaðist helst heilag- leika óskeikulan. Mjög hefur óneitanlega fallið á marga þeirra, en þarf ekki að koma að sömu sök, nú þegar veiran virð- ist loks á varanlegu undahaldi. Ekki er þó dregin fjöður yfir það, að hér sé sennilega talað í nafni þess meirihluta sem minnst veit allra og sem engum vís- indum geti slett um það, hvernig eða hvenær loka- punkturinn stóri verði settur. Sláandi ábending Það er þó eitt ótvírætt merki, sem segir sína sögu, og styrkist nú með hverri viku. Það sýnir að þeir sem hafa kosið sér það hlutverk að hræða líftóruna úr ungum sem öldnum og helst heimsbyggðinni allri og alltaf, þora ekki að draga það lengur í trausti veir- unnar sem var, og setja nú allt á fulla ferð um að veð- ur veraldar sé nú manngert í fyrsta sinn í milljarða tíð ára. Karlálftin sem fann upp hjólið og fólið, hálfbróðir hans, sem kveikti eld fyrstur manna, náði ekki að gera það tjón sem sjálfsagt hefur legið í undirvitund hans og þeirra beggja. En bjálfi sem hann var hefur hann ekki gert sér ljóst að hjólunum myndi fjölga og yrðu illa viðráðanleg eftir að þau yrðu fjögur og þeir bræður sífiktandi hefðu komið sér upp vélarrúmi og veitt eldinum sem lakari bróðirnn fann upp þar inn- undir. En í þessari gömlu sögu felst auðvitað viðurkenn- ing á upphafi hins manngerða veðurs, þótt efasemd- armenn hafi lengi talið að sólin sem skein ofan í skallann á þessum stórskaðlegu uppfinningarbræðr- um, hafi hugsanlega haft sitt að segja, sem gæti auð- vitað verið ein af þessum samsæriskenningum sem rétt er að varast. En eins og áður sagði þá biðu menn ekki boðanna eftir að þeir töldu sig vera um það bil að missa veir- una, að hefja á ný tryllinginn um veðrið af manna völdum, svo fólk fari ekki að halda að það geti andað léttara. Engri þjóð er gott að anda léttara eins og það lítur út með manngerða veðrið, sögðu þeir í kór. Könnun segir sögu Auðvitað má viðurkenna að það er aðeins ógnarsmár léttir að vera laus við stjórnlagaóráðið og sull- umbullið sem var upphaf og endir þess. En það er betra en ekkert. Og algjörlega er óumdeilt að sú skelfing var örugglega manngerð frá fyrstu stundu til þeirrar síðustu. En svo litið sé á ný til mælinga könnunarfyr- irtækja á viðhorfum í landinu, þá sagði „RÚV“ frá könnun Maskínu um mælt traust eða vantraust kjós- enda á öryggi kosninga. Mælingin er sjálfsagt gerð í tilefni af fréttum um talningu í einu kjördæmi og endurtalningu þar, sem kjörstjórnin ákvað eins og algengt er. Það var augljóslega ekkert að ákvörðuninni um endurtalninguna. Slík ákvörðun gat aldrei verið fallin til annars en að eyða efasemdum á þeim bæ. En nú hafa nokkrir frambjóðendur klagað þá ákvörðun. Þeir telja að hefði ekki verið endurtalið og talningin fengið að standa áfram röng, þá gætu kærendur enn átt von um að verða þingmenn. Sumir þeirra virðast halda að þeir hafi verið orðnir þingmenn með til- kynningu Knoll og Tott í sjónvarpssalnum. Það er fyrst með útgefnu kjörbréfi sem sá veruleiki rennur upp. Við, úti í bæ, vitum það núna, að hefði ekki verið Traustið mest í Norður-Vest ’ Við, úti í bæ, vitum það núna, að hefði ekki verið endurtalið þá væru kærendur á leiðinni að verða þingmenn, án þess að eiga það skilið samkvæmt þeim reglum sem um kosninguna gilda. Eru þeir virkilega að krefjast þess? Reykjavíkurbréf08.10.21

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.