Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.10.2021, Blaðsíða 18
Þ
að er vel tekið á móti
blaðamanni í ljós-
myndastúdíói Arnaldar
Halldórssonar ljós-
myndara niðri við sund-
in blá. Hann drífur fram rjúkandi
heitt kaffi og snúða og við komum
okkur vel fyrir. Arnaldur hefur ver-
ið með myndavélina um hálsinn síð-
an hann man eftir sér. Hann hefur
komið víða við á sínum ferli; í aug-
lýsingum, tísku, kvikmyndum og á
Morgunblaðinu, svo eitthvað sé
nefnt. Í dag skiptist vinna hans á
milli þess að vinna hefðbundin ljós-
myndastörf fyrir fyrirtæki og stofn-
anir og að þeysast um landið með
stórstjörnum.
Á Mogganum á sumrin
Klassísk spurning; ætlaðir þú alltaf
að verða ljósmyndari?
„Já, þegar ég var lítill átti pabbi
myndavélatösku með Canon-vél og
nokkrum linsum og þetta fannst
mér spennandi. Þegar ég var aðeins
eldri fékk ég vélina lánaða og þegar
ég var í Hagaskóla var ég að taka
svarthvítt og stækka myndir. Þann-
ig byrjaði þetta allt saman,“ segir
Arnaldur en faðir hans, Halldór
Guðmundsson, rak auglýsingastof-
una Hvíta húsið í hálfa öld.
„Þess vegna átti hann svona fínar
græjur sem ég fékk að leika mér
með,“ segir Arnaldur sem byrjaði
ungur að vinna við ljósmyndum í fé-
lagi við Brynjólf Jónsson, Lárus
Karl Ingason og Sigurgeir Sigur-
jónsson.
„Ég sá fljótt að áhuginn lá þarna
og fór þá til Englands í nám í tvö ár
og þaðan til Parísar í tvö ár í ljós-
myndanám. Ég hafði þá áður verið í
starfskynningu í tvígang á Mogg-
anum, þegar hann var í Aðalstræti,
og hafði kynnst ljósmyndurunum
þar, Árna Sæberg, Raxa, Júlla, Kela
og Emilíu. Þegar ég kom heim frá
París byrjaði ég að harka og hélt
meðal annars sýningu. Einar Falur,
sem var yfir ljósmyndadeild Mogg-
ans, sá sýninguna og bauð mér
vinnu við sumarafleysingar á Mogg-
anum. Ég var eitthvað að reyna að
vera svalur og tók boðinu ekki strax;
sagðist hugsa málið. Ég hringdi svo
strax daginn eftir og þáði starfið,“
segir Arnaldur sposkur á svip.
„Ég vann svo sjö, átta sumur eftir
þetta á Mogganum; kom snemma á
vorin og fór út á haustin. Á veturna
var ég svo í harkinu; í auglýsinga-
tökum, að mynda fundi og ráð-
stefnur. Þetta gekk ágætlega upp,“
segir hann og segir að fyrir vikið
hafi verið lítið um sumarfrí þessi
árin.
„Þetta starf er lífsstílll.“
Man ekki nöfn stórstjarna
Mikið vatn er runnið til sjávar frá
þessum árum á tíunda áratug síð-
ustu aldar þegar Arnaldur var að
stíga sín fyrstu skref í faginu. Nú
hefur Arnaldur stimplað sig heldur
betur inn sem ljósmyndari sem sér-
hæfir sig í vinnu í kringum stórar
leiknar auglýsingar, kvikmyndir og
sjónvarpsefni, auk þess sem hann er
enn að mynda viðburði og fleira fyr-
ir fyrirtæki.
Ísland hefur verið vinsælt land
fyrir kvikmyndatökur nú í um tutt-
ugu ár, vegna landslagsins og ým-
issa þæginda hér á landi í fámenn-
inu og víðáttunni.
„Í kringum árið 2007 fór ég að
vinna fyrir íslensku framleiðslu-
fyrirtækin eins og Frost Film,
Pegasus og True North. Það vantaði
oft það sem kallast „location scout“,
eða manneskju sem finnur tökustaði
fyrir verkefni, bíómyndir, seríur og
ljósmyndatökur. Þau vildu gjarnan
ráða einhvern sem hefði bakgrunn í
ljósmyndun í þessa vinnu. Ég fer þá
á stjá og finn flotta staði sem henta
hverju verkefni. Ég tek myndir sem
sendar eru á viðskiptavini og út frá
því velja þeir staðina sem þeir vilja
nota þegar þeir koma til landsins.
Þannig kynntist ég bransanum og
fólkinu í kvikmyndaheiminum hér.
Svo þarf oft ljósmyndara á setti og
ég hef oft verið í því líka,“ segir
Arnaldur og segist hafa verið á
mörgum settum frægra þátta og
kvikmynda.
„Ég var á settinu á Game of
Thrones og mörgum stórum Holly-
wood-myndum sem hafa verið
myndaðar hér á landi, eins og
Prometheus og Oblivion með Tom
Cruise. Eins hef ég verið með í tök-
um á seríum fyrir Netflix, til dæmis
Black Mirror og Vikings. Það er
rosa gaman að vera hluti af þessum
hópi og fara saman út á land í ein-
hverjar vikur. Við vöknum snemma
á morgnana og það er oft farið út í
alls konar veðrum með fullt af tækj-
um og græjum og drónum,“ segir
Arnaldur og segist hafa hitt marga
stórstjörnuna en man sjaldnast nöfn
þeirra eða þekkir þær ekki.
„Ég er kannski ekki í beinum
samskiptum við stórstjörnur; maður
er meira til hliðar að vinna vinnuna
sína. Íslendingar verða ekkert mjög
„starstruck“. Auðvitað var stundum
setið á kvöldin á barnum og spjallað
saman. En á daginn er fólk í karakt-
er að vinna vinnuna sína.“
Leikstjórinn niður um vök
Vinna Arnaldar í þessum kvik-
myndabransa er fjölbreytt; hann sér
um tökusvæðið, að mynda stillur úr
kvikmyndum, taka myndir bak við
tjöldin og aðstoða kvikmyndagerð-
arfólk eða heimsfræga ljósmyndara.
„Mér finnst mjög gaman að taka
myndir á bak við tjöldin, það er eig-
inlega skemmtilegast,“ segir hann.
„Þetta hefur þróast þannig að
stundum er ég ekkert að mynda
heldur ráðinn sem „location man-
ager“ og hef þá yfirumsjón með
tökustöðunum; tala við landeig-
endur, fæ leyfi og vinn með teymi
sem sér um praktíska hluti eins og
að smíða brýr, setja upp vinnuljós
eða farga rusli. Þá er maður fyrstur
út á morgnana og síðastur heim á
kvöldin. Þetta er tarnavinna.“
Hefur eitthvað farið úrskeiðis á
setti, eða hefurðu klúðrað ein-
hverju?
„Nei, ekki beint. Ég myndi segja
að veðrið væri það helsta sem getur
gert okkur lífið leitt. Það kemur
kannski brjálað veður og tjöld og
vagnar fjúka á hliðina. Það getur
verið vesen,“ segir hann.
„Það hefur enginn dáið, minnir
mig,“ segir Arnaldur og hlær.
Blaðamaður spyr í bríaríi:
Hefur enginn dottið niður um
vök?
„Jú! Einu sinni,“ segir Arnaldur
og skellihlær.
„Það er vinsælt að koma hingað
og mynda bílaauglýsingar. Við vor-
um að mynda auglýsingu fyrir Land
Rover Defender og vorum á lóni við
Höfn. Ísinn hafði eitthvað þiðnað en
leikstjórinn gekk út á og segir: „Sjá-
ið, þetta er alveg traust!“ Svo fór
hann niður um ísinn, með símann
sinn, passann og allt. Við drógum
hann svo upp og færðum hann inn í
bíl. Hann var alveg frosinn.“
Annað sem rifjast upp hjá Arnaldi
eru atvik þegar drónar hafa
skemmst eða týnst.
„Það var við tökur á Game of
Thrones að einn dróninn, sem kost-
aði ábyggilega tugi milljóna, stakk
af og flaug beint inn í klettavegg.
Ég horfði á þetta gerast. Hann fór í
döðlur,“ segir Arnaldur og segist
sjálfur hafa tapað nokkrum drónum.
Margar bílaauglýsingar eru teknar upp hér á landi. Leikstjórinn á þessari Land
Rover-auglýsingu fór niður um vök en varð ekki meint af.
Oft þarf að nota þyrlur sem ferðamáta í tökunum.
Leikarar Vikings eru hér myndaðir undir klettaskör.
Annie Leibovitz sést hér með módeli sem var klætt í stíl við umhverfið.
Margar stórmyndir og auglýsingar hafa verið teknar upp hér á landi.
„Það hefur
enginn dáið“
Ljósmyndarinn Arnaldur Halldórsson vinnur
oft úti á landi við gerð auglýsinga, sjónvarps-
þátta, kvikmynda og erlendra tískugreina.
Hann segir ljósmyndun vera lífsstíl.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Ljósmyndir: Arnaldur Halldórsson og úr einkasafni hans.
Ljósmyndarinn Arnaldur Hall-
dórsson veit fátt skemmti-
legra en að ferðast um landið
með kvikmyndateymi.
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10.10. 2021
LJÓSMYNDIR