Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.10.2021, Síða 19
„Á tímabili átti ég margar fjar-
stýringar en engan dróna,“ segir
hann og hlær.
Leibovitz algjör nagli
Arnaldur hefur oft farið út á land og
aðstoðað fræga ljósmyndara á borð
við Annie Leibovitz sem hefur kom-
ið hingað að mynda fjórum sinnum á
síðustu árum.
„Þá er ég ráðinn sem aðstoðar-
maður ljósmyndara, en þessar
stjörnur koma með kannski tvo að-
stoðarmenn með sér og ég er þá
þriðji aðstoðarmaðurinn og stund-
um er einnig sá fjórði,“ segir hann
og segist kunna ágætlega við Annie.
„Hún er ákveðin og veit hvað hún
vill. Hún er mikil fagmanneskja og
vinnur mikið. Áður en hún kemur er
hún búin að undirbúa sig vel; skoða
allt um land, þjóð og staði, allt er út-
hugsað. Hún er algjör nagli; fer eld-
snemma af stað og kemur síðust
heim. Það er myndað allan daginn.“
Af hverju þarf svona marga að-
stoðarmenn með einum ljósmynd-
ara?
„Oft er umfangið í kringum eina
tískuljósmyndatöku svipað og fyrir
íslenska bíómynd, þetta er svo stórt.
Það getur verið áttatíu manna teymi
í einni svona myndatöku. Kannski
fimmtán til tuttugu manns í leik-
munadeild, sem sjá um „effekta“,
reyk, snjó, eld og vind. Það eru oft
notuð dýr sem þarf að sjá um eins
og hundar, hestar eða krummar.
Það þarf að sjá um veitingar, það
eru bílstjórar, módel og aðstoðar-
fólk. Það eru lagðir miklir fjármunir
í svona verkefni,“ segir hann.
„Fyrst þegar Annie kom hingað
var hún að mynda Leonardo
DiCaprio fyrir forsíðugrein í Vanity
Fair árið 2007. Svo kom hún aftur
árið 2015 og myndaði herferð fyrir
Moncler sem er ítalskt tískumerki.
Svo kom hún 2017, aftur fyrir
Moncler, og núna nýlega kom hún
að mynda fyrir Vogue. Ég er þá að
sækja tæki og dót og hjálpa til að
allt gangi upp.“
Arnaldur segir afar misjafnt
hvernig þessi stóru nöfn í heimi
tískuljósmyndara vinna. Sumir, eins
og Leibovitz, koma með fjölda að-
stoðarmanna og mikið af græjum,
en aðrir, eins og Juergen Teller,
mætir bara með eina litla vél.
„Ég er oft spenntur fyrir tækja-
búnaðinum en Juergen mætti bara
með eina vél og 35 mm linsu. Ekkert
annað og notar enga „reflektara“
eða ljós eða neitt. Hann nær líka
flottum myndum,“ segir hann og
brosir.
Á gígantískum skala
Hvað er þetta stór hluti af þínu
starfi, að fara á tökustaði úti á
landi?
„Þótt ég sé hér með stúdíó er ég
minnst að mynda í stúdíói. Flest
verkefnin sem ég er að vinna að eru
úti í bæ eða úti á landi. Ég mynda
mikið fundi, ráðstefnur og ýmsar
uppákomur fyrir fyrirtæki og stofn-
anir. Á þessum litla markaði þarf
maður að vera í öllu. Grenjandi börn
og bílar og allt þar á milli,“ segir
hann.
Arnaldur segist hafa haft alveg
nóg að gera á meðan kórónuveiran
geisaði því á meðan allt var lokað er-
lendis í kvikmyndaframleiðslu var
oft hægt að mynda hér á landi.
„Ég var til dæmis í hundrað daga
í tökum úti á landi fyrir raunveru-
leikaþætti sem heita The Challenge,
en þeir eru eins konar bland af
Survivor og Love Island. Þetta var
risaverkefni. Það voru smíðaðar
leikmyndir og þrautir á gígantískum
skala út um allt land. Það unnu um
tvö hundruð manns við þetta, um
helmingur þeirra Íslendingar. Við
höfðum ekkert heyrt talað um þessa
seríu áður, en það hafa verið gerðar
37 seríur síðan 1998,“ segir Arn-
aldur, en hann hefur séð mikið af Ís-
landi í ferðum sínum og oft komið á
staði sem eru utan alfaraleiða, enda
gjarnan farið með þyrlum og lent á
afskekktum stöðum.
Hvað stendur upp úr af þessum
kvikmyndaverkefnum?
„Game of Thrones var mjög
skemmtilegt og eins verkefni með
Jackie Chan. Þá vorum við í tvær
vikur úti á landi í janúar og fengum
sól og blíðu alla daga. Þá var verið
að taka mynd sem heitir Kung Fu
Yoga sem er stór bíómynd. Jackie
er mjög fínn og hress, gekk á milli
manna og bauð upp á mjög sérstakt
kínverskt sælgæti,“ segir Arnaldur
og segist einnig muna vel eftir
skemmtilegu dönsku verkefni þar
sem verið var að mynda fyrir heim-
ildamynd um sögu Danmerkur, með
Lars Mikkelsen.
Á einkaþotu um Ameríku
Hvað er á döfinni?
„Íslenski markaðurinn er að taka
við sér í myndatökum. Ég er svo að
fara í október með erlendum ljós-
myndurum í túr um landið, en ég
hef tekið að mér að vera fararstjóri
fyrir ljósmyndara sem hingað vilja
koma að mynda landslag. Oft eru
þetta áhugamenn sem hafa brenn-
andi áhuga á ljósmyndun. Ég fór
fyrir nokkrum árum með svona hóp
um landið og þeir vildu svo endilega
fá mig út. Það er eins og oft er þeg-
ar fólk er að kveðjast að menn segja
að maður ætti endilega að koma í
heimsókn. Maður segir alltaf bara
„já auðvitað“ og svo verður aldrei
neitt úr neinu. En þessir gæjar gáf-
ust ekkert upp og enduðu á að segja
mér að koma, þeir ætluðu með mig í
tíu daga túr um Ameríku. Ég ákvað
að drífa mig og hitti þá. Þeir reynd-
ust eiga einkaþotu sem við ferð-
uðumst á um Ameríku,“ segir hann
og hlær.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
mynda?
„Mér finnst gaman að mynda sög-
ur; heimildaljósmyndun. Fólk í ein-
hverjum aðstæðum. Mannlífið.“
Það fór vel á með Arnaldi og Jackie Chan sem var hér við tökur á kvikmyndinni Kung Fu Yoga.
Heilt víkingaskip var notað við tökurnar á Vikings, sem sýnt er á Netflix.
10.10. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19