Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.10.2021, Síða 22

Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.10.2021, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10.10. 2021 SKÁK Á næsta ári eru liðin 50 ár frá því að skákein- vígi aldarinnar var haldið í Laugardals- höll. Einvígið marg- fræga kom Íslandi á heimskortið og þær tæpu 200 milljónir á núvirði, sem keppendurnir fengu í verðlaunafé, slógu öll met. Þrátt fyrir að skrifaðar hafi verið yfir 150 bækur um skák- einvígið hefur fjárhagshlið þess aldr- ei verið brotin til mergjar svo ég viti. Undirritaður bjó á Akureyri á þessum tíma og flaug suður til að vera viðstaddur eina skák. Það var upplifun sem aldrei gleymist, and- rúmsloftið í höllinni var rafmagnað og einstakt. Ég hef horft á marga spennandi handboltaleiki í höllinni en aldrei upplifað neitt þessu líkt. Í ferð minni hafði ég tækifæri til að kynn- ast ýmsu því sem í gangi var því bróðir minn, Hilmar Viggósson, var í stjórn Skáksambands Íslands og gjaldkeri þess 1970 til 1973 eða þar til að hann fór um tíma til náms og starfa erlendis. Nú á tímum kórónuveirunnar höf- um við bræður rifjað upp þennan skemmtilega atburð með syni Hilm- ars, Viggó Einari, skákáhugamanni og starfandi stjórnarformanni bygg- ingafyrirtækisins MótX ehf. Við fengum ársskýrslur Skáksambands- ins lánaðar hjá Fishersetrinu á Sel- fossi og núverandi forseti Skák- sambandsins, Gunnar Björnsson, var svo vinsamlegur að lána okkur fund- argerðabækur stjórnarinnar frá þessum tíma. Rafmagnað andrúmsloft Viðureign Bobby Fischers og Boris Spasskís hófst formlega í Laug- ardalshöll 1. júlí 1972 í baráttu sem dagblaðið New York Times kallaði „einvígi aldarinnar“. Á skákborði stórveldanna var um heiður að tefla og þessir tveir skákmenn háðu ein- staka orrustu á Íslandi sem um leið varð einn af hápunktum kalda stríðs- ins en það er hugtak sem notað er um tímabilið á milli áranna 1947-1991 sem einkenndist af efnahagslegri, vísindalegri, listrænni og hern- aðarlegri samkeppni á milli Banda- ríkjanna og Sovétríkjanna og banda- manna þeirra. Víetnamstríðið stóð sem hæst, Watergate-málið skók bandarísk stjórnmál og á íþróttasvið- inu stóð heimsbyggðin á öndinni þeg- ar hryðjuverkasamtökin Svarti sept- ember réðust inn í Ólympíuþorpið í München þar sem 11 ísraelskir íþróttamenn létu lífið. Rússar höfðu haldið heimsmeist- aratitlinum í skák samfleytt í 24 ár og töldu það sanna vitsmuna- og hug- myndafræðilega yfirburði sína. Þetta var í fyrsta skipti síðan 1948 sem skákmaður utan Sovétríkjanna hafði unnið sér rétt til að tefla um heims- meistaratitilinn. Það var því allt í húfi fyrir Bandaríkjamenn og gríðarleg pressa var lögð á herðar hins unga sérvitrings. Bobby Fischer varð fyrsti Banda- ríkjamaðurinn til að vinna heims- meistaratitilinn í skák frá upphafi keppninnar 1866, aðeins 29 ára gam- all. Hann var undrabarn í skák, byrj- aði að tefla sem atvinnumaður átta ára, sigraði á Opna bandaríska meist- aramótinu 14 ára og varð yngsti al- þjóðlegi stórmeistari heims 15 ára að aldri. Snilli Fischers, aldur og hroka- full framkoma gerði hann að fyr- irbæri poppmenningar. Hann varð viðfangsefni í bókum, kvikmyndum og meira að segja innblástur fyrir lagið „The Ballad of Bobby Fischer“. Fischer sakaði Sovétmenn um að hafa breytt mótakerfinu þeim í hag og sagði að viðureignin væri „í raun barátta frjálsa heimsins gegn lygum, svindli og hræsnisfullum Rússum“. Fischer missti af opnunarhátíð keppninnar 1. júlí eftir að hafa krafist meiri peninga, 30% af öllum aðgangs- eyri auk niðurskurðar á sjónvarps- og kvikmyndarétti. Eftir tveggja daga töf og tvöföldun breska millj- ónamæringsins Jim Slater á verð- launafénu mætti Fischer loksins. „Fischer er þekktur fyrir að vera klunnalegur, dónalegur og hugsan- lega geðveikur,“ sagði Slater eitt sinn. „Mér er sama um það því mín von er að hann ögri yfirráðum Rússa sem er gott fyrir skákina.“ Símtal frá Henry Kissinger, að- stoðarmanni þjóðaröryggisráðs Nix- ons forseta, gæti hafa hjálpað til við að sannfæra hann um að keppa. „Ameríka vill að þú farir þangað til að berja á Rússum,“ sagði hann að sögn Fischers. Tæpar 200 milljónir í verðlaunafé Eftir ævintýralegt einvígi stóð Fischer uppi sem sigurvegari með 12,5 vinninga gegn 8,5. Fischer fékk 156.250 dollara í verðlaunafé en sovéski stórmeist- arinn Spasskı́, sem var 35 ára og ríkjandi heimsmeistari, fékk 93.750 dollara. Áður hafði Spasskí mest unnið 5.000 dollara á alþjóðlegum mótum. Skákin hafði notið alþjóð- legrar virðingar og var verðlaunafé eftir því. Samkvæmt www.chess.com Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Boris Spasskí veitir eig- inhandaráritanir fyrir utan Hótel Sögu. Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Einvígi aldarinnar 1972 Ísland komst á heimskortið þegar Bobby Fischer og Boris Spasskí mættust við skákborðið í Laugardalshöll til að tefla um heimsmeistaratitilinn. Skáksamband Íslands hafði ekki mikið bolmagn en með sölu minjagripa tókst að lyfta Grettistaki. Björn Viggósson Bobby Fischer arkar fram og til baka á sviði Laugardalshallar- innar á meðan Boris Spasskí situr hugsi yfir næsta leik. Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Fjölmiðlamenn með myndavélar á lofti sækja að Bobby Fischer á leið inn í Laugardalshöllina.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.