Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.10.2021, Síða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10.10. 2021
LESBÓK
BARÁTTA EFNISVEITAN Netflix frumsýnir í lok mán-
aðarins nýja leikna þætti um æsku ruðningskappans og
aktivistans Colins Kaepernicks sem frægastur er fyrir
að hafa fyrstur manna „tekið hnéð“ á ruðningsleik í
Bandaríkjunum til að mótmæla fordómum og mismunun
í garð þeldökkra þar í landi. Hann missti í framhaldinu
vinnuna en þúsundir íþróttamanna hafa síðan leikið
þetta eftir. Það er Jaden Michael sem leikur hinn unga
Colin. „Þegar við erum ung er okkur sagt að heimurinn
sé okkar,“ segir Kaepernick í stiklunni en hann er sjálf-
ur sögumaður og þulur í þáttunum. „Að við eigum að
finna okkar farveg og reyna okkar besta. Dag einn áttar
maður sig hins vegar á því að leikurinn sem maður er að
leika er leikur einhvers annars.“
Leikur einhvers annars
Colin Kaepernick er
öðrum innblástur.
AFP
HÆTTUR David Lee Roth, sem þekktastur er sem söngv-
ari rokkbandsins Van Halen, hefur tilkynnt að hann hafi í
hyggju að setjast í helgan stein eftir röð fimm tónleika í
Las Vegas í janúar næstkomandi. Í samtali við Las Vegas
Review-Journal kvaðst hann ekki vilja útskýra hvers
vegna hann væri að hætta en gaf í skyn að heilsan væri
ekki sem best. Félagi hans, Eddie Van Halen, lést í
fyrra og Roth er undrandi á því að hafa ekki
farið á undan. „Ég hélt að ég færi fyrstur
[þeirra Van Halen-liða]; að Marlboro-
maðurinn myndi ná í skottið á mér. Við höf-
um ekki ótakmarkaðan tíma og ég á minni
tíma eftir en margur,“ sagði Roth sem ein-
mitt á afmæli í dag, 67 ára.
David Lee Roth
hefur gefið allt
sem hann á.
AFP
Chloe Trujillo er með nýja plötu.
Út úr þæginda-
rammanum
NÝTT EFNI Tónlistarkonan Chloe
Trujillo hefur sent frá sér sína aðra
breiðskífu, Mothers Of A New Nat-
ion, og hefur hún þegar mælst vel
fyrir í tímaritum eins og Rolling
Stone og Metal Hammer. Upptöku-
stjóri var hinn gamalreyndi Tommy
Daughtery. Trujillo er í grunninn
myndlistarmaður og hönnuður en
hefur látið til sín taka á tónlistar-
sviðinu undanfarin ár. Á málmsíð-
unni Blabbermouth.com er haft eft-
ir henni að hún hafi samið lög árum
saman en verið smeyk að deila þeim
með öðrum. Meðal þeirra sem koma
fram á plötunni eru sonur Chloe og
eiginmanns hennar, Robs Trujillos
bassaleikara Metallica, Tye, sem
leikur á gítar í tveimur lögum.
H
ún laumast út í skjóli nætur
með tæplega þriggja ára
gamla dóttur sína hálfsof-
andi í fanginu meðan drykkfelldur
og ofbeldishneigður barnsfaðir
hennar sefur úr sér vímuna. Hann
rumskar og fer á eftir henni en hún
sleppur út í myrkrið. En hvert á hún
að fara? Vinir hennar eru líka vinir
hans. Hún er í litlu sambandi við föð-
ur sinn, sem er kominn með nýja
fjölskyldu og vill sem minnst af
henni vita, og móðir hennar er í slitr-
óttu sambandi við veruleikann. Svíf-
ur um eins og fiðrildi og málar
myndir á striga. Þá er ungur sam-
býlismaður móðurinnar með falska
ástralska hreiminn búinn að leigja út
heimili þeirra gegnum Airbnb. Ein-
hver húðflúraður gaur búinn að
koma sér þar makindalega fyrir og
þau hjónaleysin sest að í hjólhýsi í
þar til gerðum garði. Það er enginn
staður til að ala upp barn.
Fyrir vikið endar hún hjá félags-
þjónustunni sem hefur takmarkaðan
áhuga á að hlaupa undir bagga með
henni. Útvegar henni þó með sem-
ingi vinnu í tilraunaskyni við þrif á
heimilum. Það fer eins og það fer. Til
þess að eiga möguleika á þaki yfir
höfuðið þarf hún að hafa vinnu. Þá er
ekkert nema neyðarúrræðið eftir –
kvennaathvarfið. Okkar kona er treg
að fara þangað enda finnst henni að
aðrar konur eigi að hafa forgang.
Mæðgur eru
mæðgur
Nýstirnið Margaret Qualley fær glimrandi dóma
fyrir frammistöðu sína í þáttunum Maid á efnis-
veitunni Netflix, þar sem hún leikur meðal
annars á móti móður sinni, Andie MacDowell.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Margaret Qualley ásamt móður sinni, Andie MacDowell, og systur, Rainey.
AFP
Margaret Qualley fæddist árið 1994. Hún ólst upp fyrstu árin á bú-
garði foreldra sinna í Montana en eftir að þau skildu þegar hún var
fimm ára var hún hjá þeim til skiptis. Í æsku átti ballett hug hennar
allan en hún lagði tátiljurnar á hilluna sextán ára gömul. Var búin
að fá nóg. Genin þykja góð á þessum bænum en foreldrar Qualley
og eldri systir, Rainey, hafa öll unnið fyrir sér sem fyrirsætur. Quall-
ey reyndi líka fyrir sér á því sviði en sneri sér fljótt að leiklistinni.
Hún birtist fyrst á hvíta tjaldinu í litlu hlutverki í kvikmyndinni
Palo Alto eftir Giu Coppola árið 2013 og fékk eftir það burðar-
hlutverk í sjónvarpsþáttunum The Leftovers frá 2014 til 2017. Hún
vakti líka athygli fyrir framgöngu sína í smáseríunni Fosse/Verdon
árið 2019.
Af kvikmyndahlutverkum má nefna Novitiate frá 2017, sem ein-
mitt var á dagskrá RÚV um liðna helgi. Þar leikur Qualley unga
stúlku sem afræður að gerast nunna. Þá fékk hún stórt tækifæri í
litlu en eftirminnilegu hlutverki sem tápmikla hippastelpan sem
reynir að táldraga Cliff gamla Booth í Tarantino-myndinni Once
Upon a Time in Hollywood. Loks var Qualley í stóru hlutverki í
mynd Philippes Falardeaus, My Salinger Year, á síðasta ári.
Reyndi að táldraga Cliff Booth
Marlboro-maðurinn ætti að hafa náð mér
Innri & ytri fegurð!
NÝTT FRÁ NEW NORDIC
Hárlínan hentar öllum
gerðum hárs, hún er
sérstaklega hönnað til
auka viðgerðarhæfni
hársins ásamt því að
styrkja og þétta hárið.
Án
allra auka
efna
Útsölustaðir: Apótek, Heimkaup.is og Hagkaup