Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.10.2021, Qupperneq 29
Hún hefur jú aldrei verið barin; bara
þurft að tína glerbrot úr hári dóttur
sinnar.
Ekki auðvelt á að horfa
Hún er ekki gæfuleg staðan sem
blasir við Alex Russell í Maid, glæ-
nýjum þáttum í tíu hlutum á efnis-
veitunni Netflix. Þættirnir byggjast
á endurminningum Stephanie Land,
Maid: Hard Work, Low Pay, and a
Mother’s Will to Survive, og hafa
fengið glimrandi dóma. Konan á bak
við þættina er Molly Smith Metzler
en meðal framleiðenda er Holly-
woodstjarnan Margot Robbie. Maid
þykir fara einkar vel með viðkvæmt
efni sem „ekki er alltaf auðvelt að
horfa á en sannarlega áhrifamikið“,
eins og stendur í umsögn vefsíð-
unnar Rotten Tomatoes.
Það er ekki síst stjörnuleikur aðal-
leikonunnar Margaret Qualley sem
vakið hefur óskipta athygli. Hún hef-
ur fram að þessu verið þekktust fyr-
ir að vera dóttir leikkonunnar Andie
MacDowell, sem fólk kannast við úr
vinsælum myndum á borð við Four
Weddings and a Funeral og Ground-
hog Day. Það er einmitt MacDowell
sem leikur móður Qualley í Maid,
sveimhugann Paulu Langley.
Vildi sjálf fá móður sína
Í samtali við vefmiðilinn Collider
kveðst Qualley þakklát fyrir að hafa
verið trúað fyrir hlutverki Alex
Russell; það hafi verið mikil áskorun
enda sé hún ekki móðir sjálf og hafi
ekki í annan tíma leikið móður.
Hún kveðst hafa tengst stúlkunni
sem leikur Maddie dóttur hennar,
Rylea Nevaeh Whittet, traustum
böndum og þær hafi varið miklum
frítíma saman. „Ég varð besta vin-
kona hennar á settinu. Ekkert fjög-
urra ára barn ætti að vera að vinna
þannig að galdurinn fólst í því að láta
eins og þetta væri ekki vinna. Hún er
yndisleg.“
Spurð hvað hafi komið henni mest
á óvart við hlutverkið svarar Qualley
því til hversu erfitt það sé í reynd að
vera staddur í neðsta þrepi þjóð-
félagsstigans. „Það er allt eitthvað
svo bókstaflega ómögulegt. Sen-
urnar sem ég leik í og við erum að
ræða um matarmiða eða húsnæðis-
mál og allar hindranirnar á leiðinni
til að eiga rétt á þessu eru til
skammar. Síðan er það eins og að
vinna í lottóinu að vera valinn í eitt-
hvað sem er alls ekkert merkilegt.
Það er galið hversu mikla vinnu hún
þarf að leggja á sig.“
Í viðtalinu lýsir Qualley aðdáun
sinni á Alex sem sé í senn harðdug-
leg og heiðarleg. „Ég hef mikla trú á
henni, hver myndi ekki hafa það?
Hún er sterk, metnaðarfull og hlý en
því miður búa ekki allir í hennar
sporum við sömu heppni. Það er ekki
nóg að vera duglegur og klár, heppn-
in skiptir ekki minna máli í svona al-
varlegum aðstæðum.“
Qualley átti sjálf hugmyndina að
því að fá móður sína til liðs við verk-
efnið. Fannst það blasa við eftir að
hafa lesið handritið og sló í fram-
haldinu á þráðinn til Margot Robbie
sem var henni sammála. Þetta er í
fyrsta skipti sem mæðgurnar leika
saman og Qualley segir það hafa ver-
ið dásamlega reynslu.
„Það var algjör draumur að fá að
vinna með henni,“ segir hún við
Collider, „en um leið einhver súr-
realískasta upplifun lífs míns. Það
var gott að hafa mömmu mér við hlið
í miðjum heimsfaraldri þegar maður
er að heiman í níu mánuði en á móti
kemur að hún hefur gert svo marga
stórkostlega hluti sem ég dáist að og
gæti ekki litið meira upp til hennar.
Það breytir líka jöfnunni að ganga í
salinn og móðir þín er að leika móður
þína. Þá þurfti ég á öllu mínu að
halda.“
Þekkir brotnar manneskjur
Paula Langley er langt frá per-
sónum MacDowell í Groundhog Day
og Four Weddings and a Funeral og
í samtali við blaðið USA Today
kveðst MacDowell vera dóttur sinni
þakklát fyrir að veðja á sig í hlut-
verkið. Móðir hennar sjálfrar var
drykkfelld og glímdi við geðsjúk-
dóm, þannig að hún þekkir vel
hvernig brotnar manneskjur haga
sér. „En maður veit ekki hvort mað-
ur getur leikið þær fyrr en á það
reynir.“
Hún naut þess líka út í ystu æsar
að leika á móti dóttur sinni. „Hvert
augnablik var mér dýrmætt og ég
var staðráðin í að standa mig vel
enda með öllu óvíst að við fáum tæki-
færi til að gera þetta aftur.“
Margaret Qualley er á
hraðri uppleið í heimi
sjónvarps og kvikmynda.
AFP
10.10. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
ÓLATILBOÐ
Malika125
með
setu
verð
. vsk.
20
óll
erð
vsk.
05
aðri setu
verð
m. vsk.
Malika1
Staflast
Tilboðsv
14.648 m.
Malika1
Með bólstr
Tilboðs
18.907
Staflastóll
bólstraðri
Tilboðs
20.269 m
ST
Malika100
Tilboðsverð
13.664 m. vsk.
ÁHÆTTA Breska ríkissjónvarpið,
BBC, hóf á dögunum sýningar á
nýju períóðudrama í fjórum hlut-
um, Ridley Road. Sagan gerist á
sjöunda áratugnum í Englandi þeg-
ar fasismi þrífst á ný og andúð á
gyðingum fer stigvaxandi. Ung
hárgreiðslukona flytur frá Man-
chester til Lundúna og smyglar sér
inn í hóp nýnasista til að afla upp-
lýsinga og freista þess að brjóta
hann niður innan frá eftir að unn-
usti hennar særist illa. Hennar bíða
að vonum hættur í hverju horni.
Hættir lífi sínu og limum
Vivien Epstein leikur aðalhlutverkið.
BBC
BÓKSALA 29. SEPT.-5. OKT.
Listinn er tekinn saman af Eymundsson
1
Heimskautsbaugur
Liza Marklund
2
Hringavitleysa
Sigurrós Jóna Oddsdóttir
3
Ætli Adólf hafi grátið
Evu sína
Friðvin Berndsen
4
Bréfið
Kathryn Hughes
5
Hjálp!
Fritz Már Jörgensson
6
Út að drepa túrista
Þórarinn Leifsson
7 Sagas Of The Icelanders
8
Tunglið, tunglið taktu mig
Þorgrímur Þráinsson
9
Þögla ekkjan
Sara Blædel
10
Verstu foreldrar í heimi
David Walliams
1
Ætli Adólf hafi grátið
Evu sína
Friðvin Berndsen
2
Glerflísakliður
Ragnheiður Lárusdóttir
3
Klettur – ljóð úr sprungum
Ólafur Sveinn Jóhannesson
4
PTSD
Ragnheiður Guðmundsdóttir
5
Hjartað mitt
Jo Witek/Christine Roussey
6
Réttindabréf í byggingu skýja
Eyþór Árnason
7
Passíusálmar
Hallgrímur Pétursson
8
Tanntaka
Þórdís Helgadóttir
9
Ég brotna 100% niður
Eydís Blöndal
10
Ekki var það illa meint
Hjálmar Freysteinsson
Allar bækur
Ljóðabækur
Ég lauk á dögunum bókinni Stol
eftir Björn Halldórsson sem
kom út fyrr á þessu ári. Látlaus
en hjartnæm
saga sem lýsir
sambandi feðga á
síðustu vikum
föðurins sem er
með illkynja æxli
í höfði. Mér
finnst Birni tak-
ast vel að tefla
saman hversdagslegum gjörðum
og hugsunum í yfirþyrmandi ná-
vist dauðans. Bókin nær vel utan
um þær flóknu tilfinningar sem
fylgja þessum óhjákvæmilegu
áföllum sem veikindi ástvina
eru.
Önnur nýleg bók sem er á
náttborðinu er ljóðabókin Menn
sem elska menn
eftir Hauk Ingv-
arsson. Ljóð
Hauks eru sam-
tímis afar hnyttin
og tilfinningarík
þannig að í einni
línu skelli ég upp
úr en í næstu línu
hellist angurværðin yfir. Bók-
menntalegar vísanir eru á hverju
horni þannig að heimur þessara
hnitmiðuðu ljóða er víðfeðmari
en virðist við fyrstu sýn.
Ég les almennt margar sögu-
legar skáldsögur og kláraði fyrir
skemmstu tvær
slíkar. Önnur
heitir The Van-
ishing Half eftir
Brit Bennett og
segir sögu tví-
burasystra sem
fæddust í suður-
ríkjum Bandaríkj-
anna á sjötta áratugnum. Þær
alast upp í samfélagi svartra en
eru hins vegar mjög ljósar á hör-
und og á fullorðinsárum segir
önnur þeirra skilið við fyrra líf
sitt, lifir sem hvít kona og segir
engum af fortíð sinni. Saga
þeirra varpar góðu ljósi á afleið-
ingar aðskilnaðarstefnunnar. Hin
bókin heitir The Rose Code eftir
Kate Quinn. Hún
hefur skrifað
nokkrar mjög
grípandi sögur
sem segja frá ör-
lögum kvenna í
heimsstyrjöldinni
síðari og í þess-
ari segir frá vin-
konum sem ráða dulmál á hinu
fræga Bletchley Park í Englandi
og flækjast í vef tortryggni og
efasemda vegna mögulegra
njósna innan veggja Bletchley.
Að lokum langar mig að nefna
allt annars konar bók sem rak
nýverið á fjörur
mínar, Bad Blood
eftir blaðamann-
inn John Carr-
eyrou. John lýsir
ótrúlegu flugi og
falli Theranos,
sprotafyrirtækis
sem ung kona,
Elizabeth Holmes, stofnaði í Kís-
ildalnum 2003. Elizabeth var af-
ar klók í fjármögnun og fyrir-
tækið óx á ógnarhraða en allt
var það byggt á sandi. Bókina
skrifar John líkt og spennusögu
þannig að erfitt er að leggja
hana frá sér. Hann lýsir ekki að-
eins sögu þessa fyrirtækis heldur
um leið óskiljanlegum og firrt-
um heimi peninga og valds.
ÞÓRDÍS EDDA ER AÐ LESA
Í návist dauðans
Þórdís Edda
Jóhannesdóttir
er íslensku-
fræðingur.