Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.10.2021, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.10.2021, Blaðsíða 32
SUNNUDAGUR 10. OKTÓBER 2021 Suðurlandsbraut 24 108 Reykjavík Sími 554 6969 lur@lur.is • lur.is Verið velkomin í heimsókn Mikið úrval hvíldarstóla fyrir alla Hvíldin byrjar í LÚR LÁTTU ÞÉR LÍÐA VEL Bandaríska rokksveitin Kiss er sem kunnugt er á mikilli þeysireið um byggð ból þessa heims á túr sem hún kallar End Of The Road eða Leiðarlok. Hefur hann staðið all- lengi. Flest þekkjum við menn sem spóluðu utan til Kaupmannahafnar, Lundúna eða annarra stórborga fyr- ir tíu til fimmtán árum til að sjá átrúnaðargoð sín í hinsta sinn á sviði. Lokatúrinn stendur sumsé enn og er ábyggi- lega orðinn sá lengsti í rokksögunni. Einhverjir voru farnir að trúa því að honum myndi aldrei ljúka. Nú gæti þó farið að styttast í annan endann. Áform voru um að ljúka túrnum á þessu ári en það tafðist vegna heimsfaraldursins. Nú er komin ný tímasetning að miða við en Paul Stanley, söngvari og gítarleikari, trúði miðl- inum Ultimate Classic Rock fyrir því að hann hefði trú á því að bandið myndi rifa seglin í byrjun árs 2023. Vel fer á því en þá verða fimmtíu ár liðin frá stofnun bandsins. Lokatónleikarnir verða í New York en þar kom Kiss fyrst fram. „Við byrjuðum í samkvæmum og klúbbum, þar sem kannski tíu manns voru að horfa og hlusta,“ seg- ir Stanley. „Þannig lokum við hringnum.“ Kiss-liðar hress- ir sem aldrei fyrr á Tribeca- kvikmyndahá- tíðinni í sumar. AFP Kiss, kiss, bless, bless Kveðjutúr glyströllanna í Kiss tekur væntanlega enda á árinu 2023. Greint var frá því í Morgun- blaðinu fyrir níutíu árum, 10. október 1931, að sýslumað- urinn í Granada í Minnesota, Gustav Jörgensen að nafni, hefði verið skotinn til bana við skyldustörf sín. Mögulega hefur það greitt leið fréttarinnar inn í blaðið að Jörgensen sýslumaður var norskur, ættaður frá Aust- fold. Forsaga málsins var sú að sýslumaður ætlaði að taka fast- an mexíkóskan verkamann, sem Rodriques hét, og hafði verið dæmdur í fangelsi fyrir óspektir. „En þegar hann kom til bóndabæjar þess, þar sem Rodriques vann og hitti hann, gerði Mexíkaninn sjer lítið fyrir og skaut sýslumann,“ stóð í frétt blaðsins. „Síðan leitaði hann vígis í kofa nokkrum skamt frá bænum og varðist þaðan með skotum, þótt 200 menn sækti að. En að lokum var skotið táragaskúlum inn í kofann, og þá kom morðinginn æðandi út, blindur á báðum augum. Hermennirnir skutu hann, eins og hann hefði verið grimmur hundur, og voru 30 kúlur í líkinu, er það var skoð- að,“ stóð þar enn fremur. GAMLA FRÉTTIN Sýslumað- ur myrtur Um 400 manns bjuggu í Granada, Minnesota, árið 1931. Jafnt og þétt hefur fækkað í þorpinu seinustu áratugi og 2019 bjuggu þar aðeins 285 manns. ÞRÍFARAR VIKUNNAR Adam Driver leikari Pavel Ermolinskij körfuboltaleikmaður Herbert Nordrum leikari

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.