Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.10.2021, Síða 20
M
yndlistarsýning Guðnýjar
Ragnarsdóttur er unnin
upp úr dagbók sem hún
hélt í máli og myndum þegar hún var
í krabbameinslyfjameðferð.
„Ég er læknuð af krabbameini í
dag,“ segir Guðný en hún barðist við
Hodgkins-eitlakrabba á árunum
2016-2017, þá um 35 ára gömul.
Guðný hefur alla tíð teiknað, mál-
að, ljósmyndað og búið til keramík en
valdi að mennta sig í hjúkrunarfræði
þótt myndlistin sé aldrei langt undan.
„Ég var í ár í lyfjagjöfum og fór í
stofnfrumuskipti og háskammta-
meðferð. Ég upplifði nánast að ég
hefði dáið í tvo sólarhringa í þessari
meðferð líkamlega, en ég var mjög
hætt komin. Manni er gefinn ban-
vænn skammtur af krabbameins-
lyfjum þannig að að allar stofnfrumur
í beinmergnum eru drepnar. Svo eru
manni gefnar manns eigin stofn-
frumur til baka. Þetta var hörku-
meðferð,“ segir hún en þeirri meðferð
lauk í janúar 2017.
Fann þessa köllun
„Í meðferðinni fór ég fyrst í ellefu
lyfjagjafir og svo var meðferðin hert
og þá var mér allri lokið og fer þá að
átta mig á að ég færi ekkert auðveld-
lega út úr þessu. Það var þá sem ég
fór að teikna. Þá stóð ég fyrir framan
spegilinn með blýantinn og teiknaði
sjálfa mig, og úr varð eins konar dag-
bók eftir því sem myndunum fjölgaði.
Ég var einn og hálfan tíma að teikna
fyrstu myndina en tíu mínútur að
teikna síðustu en það var miklu meiri
orka sem fór í að teikna hana,“ segir
Guðný en hún varð veikari og veikari
eftir því sem leið á meðferðina.
„Ég þekkti ekki neitt af þessu sem
ég var að teikna; nef og útlínur and-
lits sem ég sá í speglinum. Ég þurfti
að fara nær speglinum til að sjá að
bláu augun voru enn til staðar,“ segir
Guðný.
„En það var nánast það eina sem
var orðið eftir því þarna var ég í ein-
angrun og hafði ekki borðað í marga
daga og var hálfrænulaus. Ég upplifði
að ég væri óþekkjanleg. Ég skalf öll
að innan og rétt náði að pára á blað.
Ég fann þessa köllun og ég teiknaði
líka til að átta mig á stöðunni. Þetta
var mín tenging við þetta ferli.“
Fólk grét á opnuninni
„Ég hélt sýningu á þessum myndum í
A4-stærð í Ljósinu á sínum tíma og
strax þá dreymdi mig um að fá
stærra rými fyrir myndirnar,“ segir
Guðný og segist hafa stokkið á tæki-
færið þegar henni bauðst að sýna í
Gallerí 16 á Vitastíg 16, en sýningin
stendur til þriðja nóvember.
„Ég tók þá ákvörðun um að stækka
myndirnar upp eins og ég gæti.
Myndirnar eru það stórar og salurinn
lítill að fólk kemst ekkert undan og
það verður fyrir hughrifum,“ segir
Guðný en hún sýnir fimm stórar
myndir auk átta minni og eins mál-
verks.
Guðný bjóst ekki við þeim við-
brögðum sem gestir sýndu á opn-
uninni.
„Það var ótrúlegt að upplifa þetta.
Fólk fór bara hreinlega að gráta um
leið og það kom upp tröppurnar. Ég
var með fólk í faðmlögum, hvort sem
ég þekkti það eða ekki, og margir
fengu tár í augun,“ segir Guðný og
segist sjálf hafa náð að loka á þennan
erfiða kafla í lífi sínu með þessari sýn-
ingu.
„Nú get ég svolítið sleppt þessu.
Nú finnst mér þetta vera búið,“ segir
hún og segir um teikningarnar:
„Þetta er ekki ég; ég er ekki krabba-
meinið. Þetta eru andlit sem ég hef
átt en er ekki ég í dag.“
Andlit sem ég hef átt
Andlitsmyndir teikn-
aðar í miðri krabba-
meinsmeðferð eru nú
sýndar í Gallerí 16 á
Vitastíg. Guðný Ragn-
arsdóttir skrásetti veik-
indin sín með því að
teikna sjálfa sig.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
„Þetta er ekki ég; ég er ekki krabba-
meinið. Þetta eru andlit sem ég hef
átt en er ekki ég í dag,“ segir Guðný
um teikningar sínar í Gallerí 16.
Ljósmynd/Þórdís Reynis
Guðný teiknaði andlit sitt þegar
hún var í krabbameinsmeðferð.
Guðný var hrærð
yfir viðbrögðum
gesta sem komu á
sýninguna.
Guðný var heilt ár að
berjast við eitla-
krabba og hafði betur.
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31.10. 2021
MYNDLIST