Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.10.2021, Page 29

Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.10.2021, Page 29
oft talað um að músisera saman en ekkert orðið úr því enda báðir mjög uppteknir með Sólstöfum og Dimmu. Þegar riffin hlóðust upp hugsaði Addi hins vegar með sér: „Núna er tæki- færið!“ Og Birgir var klár í slaginn. Hann var þá nýhættur í Dimmu og orðinn „póstmeistari Íslands“, eins og Addi orðar það. „Hann hætti ekki í Dimmu fyrir Bastarð,“ upplýsir hann hlæjandi. Ólympíuleikar gítarsins Addi nær að fullnægja ýmsum tón- listarlegum þörfum í Bastarði sem hann nær ekki að gera í Sólstöfum; svo sem að henda í fimm „ógeðslega hröð“ gítarsóló í röð. Um þá hlið mála sjá Hanneman og King Íslands, eins og hann kallar þá, Ragnar Sólberg og Þráinn Árni Baldvinsson. Þeir sem ekki kveikja á þeirri líkingu eru pott- þétt ekki að lesa þessa grein, þannig að útskýringa þarf ekki við. „Þeir eru rosalegir, báðir tveir; hafa ekkert fyrir þessu.“ – Ólympíuleikarar gítarsins? „Já, heldur betur. Ég er búinn að stilla fleirum upp, það komust ekki allir fyrir á þessari plötu. Geymi þá þangað til næst. Synd að Gulli vinur minn Falk sé farinn, ann- ars hefði hann tekið öll þessi sóló. Ótrúlegur músíkant og yndisleg sál. Eddie Van Halen Íslands. Gulli bauð okkur strákunum oft heim að drekka landa og hlusta á Pantera.“ Addi spilar sjálfur á bassa á plöt- unni enda vanur maður úr gömlum dauðarokks- og pönksveitum. „Einn af mínum uppáhaldsbassaleikurum, Flosi Þorgeirsson úr Ham, spilar á bassann í einu lagi sem skýrir hvers vegna Tom Araya víkur fyrir Cliff Burton um stund,“ segir hann sposk- ur. „Flosi tekur líka eitt mergjað sóló.“ Þeir voru á sínum tíma saman í pönksveitinni Bölvun en þar spilaði Addi á trommur. „Pönkið hefur fylgt mér lengi – undir radarnum.“ Eitt lag á Satan’s Loss of Son er einmitt frá þeim tíma, Afturhalds kommatittir. Höfundar þess eru Ingi Þór Pálsson og Vilhelm Vilhelmsson. Önnur lög eru eftir Adda og flestir textarnir. Fleiri góðir gestir koma við sögu á plötunni. Alan Averill úr Primordial syngur í einu lagi og á þess utan tvo texta og Marc Grewe úr Morgoth syngur í einu lagi. Báðir eru þeir ágætir vinir Adda. „Ég kynntist Alan hérna heima en Marc þegar Sólstafir voru að spila á skemmtiferðaskipi í Bandaríkjunum fyrir tíu árum. Það var mikil veisla enda elska ég Mor- goth, sem er aðaldauðarokkssveitin frá Þýskalandi. Ég sagði honum strax að ég elskaði bandið hans og hann svaraði: Ég elska bandið þitt líka. Hann var meira en til í að syngja með Bastarði og það var þvílíkt „fan boy moment“ fyrir mig að heyra hann syngja lag eftir mig.“ Það eru heldur engir aukvisar í bakröddum. „Við vorum að mixa plöt- una með Jóhanni Rúnari Þorgeirs- syni í Hljóðrita og vantaði öskurkór fyrir Afturhalds kommatitti og bönk- uðum upp á í næsta herbergi. Þar voru Ásgeir Trausti, Júlli T, sem vinnur mikið með honum, og Steini Hjálmur. Þeir sögðu strax já. Ætli þetta séu ekki dýrustu bakraddir Ís- landssögunnar?“ segir Addi og skellir upp úr. „Ég held að þeir hafi aldrei fengið eins mikla útrás.“ Hressilega er keyrt á Satan’s Loss of Son en þess má geta að hún er 29 mínútur að lengd, eins og Reign in Blood með Slayer. „Hér er alls ekki verið að finna upp hjólið; þvert á móti eru þetta tilvísanir í tónlistarsöguna, breskt pönk, sænskt dauðarokk og ís- lenska pólitík. Þetta er virðingar- vottur við þá sem hafa haft áhrif á mig gegnum tíðina.“ Umslag plötunnar er augljóslega líka óð- ur til kröstsins og eit- ís-tímans, Napalm Death og slíkra sveita, en það er hannað af Fannari Inga. Nafnið Bastarður vísar líka í fræga sveit en Motörhead átti upp- haflega að heita Bastard. – En hvaðan kemur sonarmissir Satans? „Ég hætti að drekka fyrir nokkrum árum eftir að hafa verið um tíma í myrkrinu. Við það varð Satan einum syni fátækari. Svo einfalt er það. Þetta snýst um að sigrast á einhverju slæmu og snúa aftur í ljósið.“ Tónleikar á næsta ári Addi og Birgir hafa sett saman „live“- útgáfu af Bastarði og stefna á tón- leikahald á nýju ári. Engar dagsetn- ingar liggja þó enn fyrir. „Það er eng- inn á Dillon að bíða eftir Bastarði og enginn að fara að meikaða með þessu bandi. Þetta er enginn Born to be Wild-fílingur, heldur talsvert meira neistaflug,“ segir Addi kankvís en í hópnum eru téður Þráinn Árni og Snæbjörn Ragnarsson, félagi hans úr Skálmöld, á gítar og Gísli Sigmunds- son úr Sororicide á bassa. Addi kann að vonum öllum þeim mönnum sem hér hafa verið nefndir bestu þakkir fyrir þeirra framlag. „Það hefur aldeilis stækkað, litla bandið okkar Bigga. Annars lítum við á þetta sem hvert annað áhuga- mannafélag, þar sem við gegnum for- mennsku. Allir eru til í að vera með og skemmta sér með okkur. Þetta eru regnbogar og ostar, það er tær skemmtun – enda þótt harðbannað sé að brosa. Það hæfir ekki tónlistinni.“ Hafandi sagt það er full alvara á bak við Bastarð. „Við gerum þetta af ástríðu og samkvæmt læknisráði; all- ir menn þurfa að fá útrás.“ ’ Það er enginn á Dillon að bíða eftir Bastarði og eng- inn að fara að meik- aða með þessu bandi. 31.10. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29 ÓLATILBOÐ Malika125 með setu verð . vsk. 20 óll erð vsk. 05 aðri setu verð m. vsk. Malika1 Staflast Tilboðsv 14.648 m. Malika1 Með bólstr Tilboðs 18.907 Staflastóll bólstraðri Tilboðs 20.269 m ST Malika100 Tilboðsverð 13.664 m. vsk. REIMLEIKAR Systkinin Jack og Kelly Osbourne ólust sem kunnugt er að hluta upp í sjónvarpi. Enn eru þau komin á kreik í þáttunum Jack & Kelly Osbourne: Night of Terror á sjónvarpsstöðinni Discovery+, þar sem þau rannsaka meinta reimleika um borð í skipinu RMS Queen Mary. Það hefur verið lokað frá því að heimsfarald- urinn skall á og spurning hvort það hafi hleypt illu blóði í draugana. Hver eru betur til þess fallin að komast að því en vinir okkar Jack og Kelly. Rannsaka meintan draugagang Kelly Osbo- urne hress að vanda. AFP BÓKSALA 20.-26. OKTÓBER Listinn er tekinn saman af Eymundsson 1 Úti Ragnar Jónasson 2 Allir fuglar fljúga í ljósið Auður Jónsdóttir 3 Bærinn brennur Þórunn JarlaValdimarsdóttir 4 Stúlka, kona, annað Bernardine Evaristo 5 Kynjadýr í Buckinghamhöll David Walliams 6 Horfnar Stefán Máni 7 Bréfið Kathryn Hughes 8 Systu megin Steinunn Sigurðardóttir 9 Bannað að eyðileggja Gunnar Helgason 10 Fagurt galaði fuglinn sá Helgi Jónsson/Anna Margrét Marinósdóttir 1 Kynjadýr í Buckinghamhöll David Walliams 2 Bannað að eyðileggja Gunnar Helgason 3 Fagurt galaði fuglinn sá Helgi Jónsson/Anna Margrét Marinósdóttir 4 Einkaspæjarastofa Suðurgötusystranna Anna Cabeza 5 Meira pönk, meiri hamingja Gerður Kristný 6 Jólasvínið J.K. Rowling 7 Dreki í Múmíndal Cecilia Davidsson 8 Furðufjall – nornaseiður Gunnar Theodór Eggertsson 9 Sólkerfið okkar – vísindalæsi Sævar Helgi Bragason 10 Hvar er Mikki? Walt Disney Allar bækur Barnabækur Nýverið hafa komið út bækur eftir tvo af uppáhaldsrithöfundunum mínum sem ég hef beðið spennt eftir. Önnur þeirra er Naomi No- vik, sem hefur verið einn af mín- um uppáhaldshöfunum alveg síð- an ég las Temeraire-bálkinn eftir hana. Það er níu bóka sería sem rekur sögu breska offisérans Willi- ams Laurence í Napólensstyrjöld- unum. Það er samt varla hægt að kalla þetta sögulegar skáldsögur, þótt margt í þeim sé byggt á raun- verulegum atburðum, því það eru líka drekar. Og Laurence er kapt- einn drekans Temeraire. Temer- aire er hluti af hernum og berst fyrir England, sem og fleiri drekar, en þeir eru frekar sérlundaðir og stórir upp á sig. Novik er að skrifa nýjan þríleik þessa dagana, sem heitir The Scholomance og önnur bókin í þeim þríleik, The Last Graduate, er nýkomin út. Scholomance- þríleikurinn er innblásinn af Harry Potter, nema Novik finnst að gjaldið sem þurfi að greiða fyrir galdramáttinn í HP-heiminum sé ekki nógu hátt. Þannig að hún er að skrifa um galdraskóla sem fæstir nemendur lifa af dvölina í. Önnur bók sem ég hef beðið mjög spennt eftir er The Witness for The Dead eftir Katherine Add- ison. The Goblin Emperor, sem hún gaf út fyrir nokkrum árum, er með bestu bókum sem ég hef les- ið. Heimurinn sem hún skapar er svo heillandi, það er flókin pólitík, mikið af baktjaldamakki og næst- um því enginn meinar það sem hann segir. The Witness for The Dead er óbeint framhald, og fylgir aukapersónu í The Goblin Emper- or. Hún er ekki næstum því jafn góð og sú fyrri, en ég mæli samt með henni – og hinni auðvitað líka. Þriðja bókin sem ég hef verið hrifin af undanfarið er Project Hail Mary eftir Andy Weir. Hann varð fyrst frægur fyrir bókina The Martian, sem var fín, og var gerð mjög fín mynd eftir, en Project Hail Mary er enn betri. Hún er fyndin og spennandi, gerist í geimnum og það eru geimverur. Hvað meira getur maður beðið um? Ég hlustaði á hana á hljóðbók á Audible og les- arinn er frábær. Í lokin verð ég svo að mæla með Lady Astronaut- seríunni eftir Mary Robinette Kowal, þar sem höfundur ímyndar sér að geimferðir hefðu hafist á sjötta áratugnum, og smásagnasafninu Stories of Your Life and Others eftir Ted Chiang. Báðir höfundar eru súper- stjörnur í Bandaríkjunum og þau eru gestir á íslensku bókmennta- hátíðinni IceCon sem verður hald- in næstu helgi hér í Reykjavík! HILDUR KNÚTSDÓTTIR ER AÐ LESA Sérlundaðir drekar Hildur Knúts- dóttir er rit- höfundur.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.