Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.10.2021, Síða 32

Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.10.2021, Síða 32
SUNNUDAGUR 31. OKTÓBER 2021 Skeifan 8 | Kringlunni | Glerártorgi | Sími 588 0640 | casa.is STAR CUT NÝ glasalína frá R I T Z ENHOFF ðvínsglös 2. stk. ð 3.290,- Hvítvínsglös Verð 3. Vatnsglös 2 stk. Verð 3.290,- 9 Viðburðurinn er liður í viðburðaröðinni Hljóðkirkjan & áhorfendur sem fram fer á Húrra fyrsta fimmtudag í hverjum mánuði. Haukur Viðar Alfreðsson, Arnar Eggert Thoroddsen og Baldur Ragnarsson ætla þá að fara yfir sögu Soundgarden og komast að því í eitt skipti fyrir öll hver hápunktur ferils bandsins er í raun og veru. „Sem stendur hefur enginn gefið út sína skoðun og allt í lausu lofti. Þetta verður allt krufið á sviðinu með hjálp frá áhorfendum, tóndæmum og almennum rök- ræðum,“ segir í kynningu frá aðstandendum. Þar segir einnig að hlaðvarpsþátturinn Besta platan sé orðinn einn af hornsteinunum í íslenskri tónlistar- umfjöllun. „Yfir 100 plötur á jafnmörgum vikum og hatrammar umræður í viku hverri, bæði við hljóðnem- ana sem og í umræðugrúppunni hjá hlustendum á Facebook. Með þessu fyrirkomulagi býðst hlustendum að taka beinan þátt og því er þetta tilhlökkunarefni.“ Viðburðurinn byrjar stundvíslega klukkan 20:00. Húsið verður þó opnað klukkan 19:00 og þá verða græjurnar notaðar til þess að hita upp – að sjálfsögðu með Soundgarden. Miðasalan fer fram á Tix.is. Arnar Eggert og Haukur Við- ar munu kryfja Soundgarden ásamt Baldri Ragnarssyni. Soundgarden krufin Annar viðburður Hljóðkirkjunnar á skemmtistaðnum Húrra á fimmtudaginn kemur snýst um bestu plötuna með Soundgarden. Tillaga til þingsályktunar um af- stöðu þjóðkirkjunnar til nýtrúar- hreyfinga var samþykkt á kirkju- þingi í endaðan október 1991. Þar hvatti kirkjuþing presta og safnaðarstjórnir til að efla fræðslu í söfnuðunum með tilliti til þeirra kenninga nýtrúarhópa, sem gengju gegn grundvallar- atriðum kristinnar trúar. Kirkjuþing vakti í tillögunni at- hygli á að margt af því sem boð- ið væri upp á væri villuljós, sem ekki leiddi til sannleikans. Kenn- ingar um sálnaflakk og end- urholdgun samrýmdust ekki boðskap kristinnar kirkju. Jafn- framt var ítrekað að skorað væri á presta og safnaðarstjórnir að efla fræðslu í söfnuðunum og auðga og dýpka trúarlíf og guðs- þjónustu. Í samtali við Morgunblaðið sagði dr. Einar Sigurbjörnsson, sem sat á kirkjuþingi, hugtakið nýtrúarhreyfing vera mjög rúmt, og að kirkjan væri alls ekki að vara við öllum nýjungum. Dr. Gunnar Kristjánsson, sem sat hjá í kosningu um tillöguna, sagði tillöguna hins vegar bera neikvæðan tón í garð nýtrúar- hreyfinga þar sem talað væri um villuljós. „Þegar kirkjan er að fjalla um trúarskoðanir og lífs- viðhorf, sem eru ekki af sama toga og hennar eigin, þá á fyrsta reglan að vera umburðarlyndi og virðing fyrir skoðunum ann- arra,“ sagði Gunnar. GAMLA FRÉTTIN Varað við villuljósi Kenningar um sálnaflakk þóttu ekki samrýmast boðskap kristinnar kirkju. Morgunblaðið/Eggert ÞRÍFARAR VIKUNNAR Scarlett Johansson leikkona Farrah Fawcett feikkona Andrea Sigurðardóttir flugfreyja

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.