Morgunblaðið - 06.11.2021, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. NÓVEMBER 2021
www.kofaroghus.is - Sími 553 1545
TIL Á LAGER
Ítarlegarupplýsingarog teikningarásamtýmsumöðrumfróðleik
máfinnaávefokkar
NAUST - 14,44 fm
Tilboðsverð
449.400kr.
30%
afsláttur
VANTAR
ÞIGPLÁSS?
Afar einfalt er að reisa húsin okkar.
Uppsetning tekur aðeins einn dag
TILBOÐÁGARÐHÚSUM!
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
„Rangá er hverfisbúð með fjöl-
breytt vöruúrval, langan af-
greiðslutíma og hátt þjónustustig.
Þessu er oft líkt við kaupfélag úti á
landi, sem eru mikil meðmæli,“
segir Bjarni Þór Logason, kaup-
maður í Rangá við Skipasund í
Reykjavík. Verslunin varð 90 ára í
gær og að sjálfsögðu var haldið
upp á þau tímamót.
Rangá er elsta starfandi mat-
vöruverslunin í Reykjavík, stofnuð
árið 1931 af Jóni Jónssyni frá Ekru
á Rangárvöllum. Reksturinn var
fyrstu 17 árin á Hverfisgötu 71 en
var fluttur árið 1948 á núverandi
stað, Skipasund 56 í Langholts-
hverfi.
Árið 1971 keyptu Agnar Árna-
son og Sigrún Magnúsdóttir,
seinna borgarfulltrúi og ráðherra,
Rangá og gerðu að sjálfs-
afgreiðslubúð með mjólkursölu.
Þannig varð Rangá fyrsta almenna
verslunin með mjólkurvörur en
fram að því hafði Mjólkursamsalan
rekið sínar eigin verslanir.
Saman ráku Agnar og Sigrún
Rangá í 20 ár, eða þar til Sigrún
dró sig út úr starfseminni. Árið
2010 tók dóttir Agnars, Kristbjörg
Agnarsdóttir, við keflinu og rak
verslunina til 2019. Það ár keyptu
reksturinn hjónin Bjarni Þór Loga-
son og Rakel Ólafsdóttir, sem eru á
myndinni hér til hliðar, og hafa
staðið vaktina síðan.
Sækja daglegar nauðsynjar
„Ég hafði starfað lengi í mat-
vöruverslunum og vissi að hverju
var gengið. Okkur hjónin langaði
líka alltaf út í eigin atvinnurekst-
ur. Hér í Langholtshverfi er Rangá
mjög mikilvæg stofnun. Við eigum
marga fasta viðskiptavini sem
sækja hingað daglega nauðsynjar.
Margir koma hingað gangandi eða
á hlaupahjólum sem kannski eru
tímanna tákn,“ segir Bjarni Þór.
Ýmsar vörur sem fást í Rangá
segir hann bjóðast óvíða annars
staðar og nefnir þar m.a. gas-
brennda sviðahausa frá Fjallalambi
á Kópaskeri. Fleira góðgæti mætti
tiltaka. Stóru heildsölurnar kunni
síðan afar vel að meta 90 ára við-
skiptasögu. Þess njóti Rangá með
ýmsu móti í góðum kjörum.
„Mikilvægt er að mæta
viðskiptavinunum og meta að-
stæður þeirra. Nærsamfélagið
kann að meta þetta og hve margir
samfögnuðu okkur á afmælisdegi
var ánægjulegt,“ segir kaupmað-
urinn í Rangá. sbs@mbl.is
Haldið upp á 90 ára afmæli verslunarinnar Rangár við Skipasund í Reykjavík í gær
Morgunblaðið/Unnur Karen
Hverfisbúðinni oft líkt
við kaupfélag úti á landi
Ragnheiður Birgisdóttir
ragnheidurb@mbl.is
Vel yfir hundrað manns eru með
staðfest virk smit á Akranesi og tæp-
lega 400 manns eru í sóttkví. Þetta
sagði Þórir Bergmannsson, sótt-
varnalæknir Vesturlands, í samtali
við Morgunblaðið síðdegis í gær.
„Staðan er býsna snúin því við er-
um að sjá fleiri smit á Akranesi en
við höfum séð nokkurn tímann í far-
aldrinum,“ sagði hann.
Samkvæmt síðustu tölum sem
hann hafði fengið voru 92 smitaðir á
Akranesi auk 10 Akurnesinga sem
dvelja annars staðar. Í fyrradag
hafði fjöldi smitaðra á Akranesi ver-
ið 75 svo gera má ráð fyrir að um
þrjátíu hafi greinst í gær.
Auk þessa gríðarlega fjölda fólks í
sóttkví minnti Þórir á að einnig væri
stór hópur í smitgát. Hann hafði ekki
upplýsingar um þann fjölda en gerði
ráð fyrir að það væri stór hópur mið-
að við sýnatökufjöldann. Sennilega
hefðu verið tekin yfir fimm hundruð
sýni í gær og þau höfðu verið yfir
þrjú hundruð daginn þar áður.
Skólastarf hefur legið niðri
Þetta hefur haft mikil áhrif á
starfsemi í bænum. Skólastarf hafði
legið niðri í gær og stóran hluta
fimmtudags. Um helgina munu stór-
ir hópar fólks gangast undir skimun,
bæði starfsmenn skóla og leikskóla
og starfsmenn stjórnsýslunnar.
„Það verða fleiri hundrað manns
skimaðir núna um helgina og þess er
auðvitað vænst að skólastarf geti
hafist sem fyrst í næstu viku og þessi
skimun er gerð til þess að það verði
engir starfsmenn sem komi til vinnu
með virkt smit eftir helgi,“ segir
hann.
„Það er enn sem komið er lítið vit-
að um teljandi veikindi en það er
frekar stutt liðið á þennan faraldur
núna svo það er allt of snemmt að
segja til um það. Hingað til hafa þeir
sem eru smitaðir og þurfa á sjúkra-
húsvist að halda verið fluttir á Land-
spítala og við vinnum samkvæmt
því,“ segir Þórir.
Ef leggja á sjúklinga inn á sjúkra-
húsið á Akranesi eru þeir skimaðir
með hraðprófi á heimilum sínum eða
í sjúkrabíl og sendir til Reykjavíkur
ef smit kemur í ljós.
„Býsna snúin“ staða
komin upp á Akranesi
- Yfir hundrað Covid-smit og tæplega 400 manns í sóttkví
Undirbúningsnefnd fyrir rann-
sókn kjörbréfa hefur í þessari viku
lagt áherslu á að fara yfir þau
gögn sem
nefndin hefur
safnað og átta
sig á því hvort
frekari upplýs-
inga er þörf.
Birgir Ár-
mannsson, for-
maður nefndar-
innar, telur að
uppýsingarnar
liggi að mestu
leyti fyrir þannig að hægt sé að
meta gögnin og komast að nið-
urstöðu.
Samhliða því hefur nefndin ver-
ið að skrifa texta til að vinna með.
Birgir tekur fram að það séu skjöl
á vinnslustigi og nefndin eigi þó
nokkra fundi eftir til að geta skilað
af sér áliti. Eftir sé að ræða betur
ákveðin matskennd atriði og kom-
ast að niðurstöðu um þau.
Skýrist í komandi viku
Birgir treystir sér ekki til að
áætla hvenær nefndin lýkur vinnu
sinni en telur að málið muni skýr-
ast í komandi viku.
Nefndin fundaði síðast í gær og
Birgir segir að nefndarmenn vinni
að málinu heima um helgina.
helgi@mbl.is
Eftir að komast að niður-
stöðu um matskennd atriði
- Hillir undir lok starfs hjá undirbúningsnefnd kjörbréfa
Morgunblaðið/Hari
Alþingi Ekki hefur verið ákveðið
hvenær þing verður kallað saman.
Birgir
Ármannsson
Landsréttur þyngdi í gær refsingu
yfir Jóhannesi Tryggva Svein-
björnssyni. Jóhannes, sem var jafn-
an kenndur við meðhöndlunarstöð-
ina Postura, hafði áður verið
dæmdur í héraðsdómi í fimm ára
fangelsi fyrir að hafa nauðgað fjór-
um konum á meðferðarstofu sinni.
Landsréttur þyngdi dóminn í sex
ár.
Eins og áður segir var Jóhannes
þá dæmdur til fimm ára fangels-
isvistar auk þess sem honum var
gert að greiða konunum miskabæt-
ur. Einni konunni var honum gert
að greiða 1,8 milljónir króna, ann-
arri 1,5 milljónir króna og hinum
tveimur eina milljón króna. Lands-
réttur lét miskabæturnar standa
óbreyttar í dómi sínum í dag.
Jóhannes var dæmdur snemma í
janúar í Héraðsdómi Reykjaness en
Jóhannes var sagður hafa haft sam-
ræði við konurnar án þeirra sam-
þykkis og þá var hann talinn hafa
beitt konurnar ólögmætri nauðung.
Málin nokkuð gömul
Málin eru tiltölulega gömul, en
brotin eru talin hafa átt sér stað á
árunum 2009-2015. Á þeim árum
rak Jóhannes Postura en þar með-
höndlaði hann fólk sem glímdi við
stoðkerfisvanda. Var Jóhannes þá
nokkuð þekktur fyrir störf sín sem
nuddari og meðhöndlari.
Um fimmtán konur kærðu Jó-
hannes upprunalega en rannsókn
lögreglu leiddi til ákæru í fjórum
tilvikum.
Þyngdu refs-
ingu nuddara
- Sex ára dómur fyrir fjögur brot