Morgunblaðið - 06.11.2021, Blaðsíða 22
22 FRÉTTIR
Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. NÓVEMBER 2021
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
STUTT
« Nýjar bráða-
birgðatölur Hag-
stofunnar yfir út-
flutningsverðmæti
sjávarafurða sýna
að fluttar voru út
afurðir fyrir 26,6
milljarða króna í
októbermánuði. Er
það svipað verð-
mæti og fékkst fyr-
ir afurðir í október í fyrra. Á föstu gengi
er hins vegar um 6% aukningu að ræða.
Útflutningsverðmæti á lýsi tvöfald-
ast og nemur 2,5 milljörðum. Eins jókst
verðmæti á útfluttu fiskimjöli milli ára
um 45% og nam það 2 milljörðum á
föstu verðlagi. Aukning varð einnig á út-
flutningsverðmæti á frystum heilum
fiski, eða sem nemur 35%. Þá aukningu
má þó rekja helst til þess að óvenjulítið
var flutt út af frystum heilum fiski í
október í fyrra.
Lýsið og mjölið að gera
góða hluti í útflutningi
Löndun Krónan
hefur styrkst.
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Flugfélagið Play tapaði 10,8 milljón-
um dollara, jafnvirði 1,4 milljarða
króna, á þriðja ársfjórðungi. Þetta
kemur fram í afkomutilkynningu
fyrirtækisins sem birt var í gær. Þar
kom fram að
tekjur fyrirtækis-
ins á fjórðungn-
um hefðu numið
6,71 milljón doll-
ara, jafnvirði 875
milljóna króna.
Benti Birgir
Jónsson, forstjóri
félagsins, á það á
kynningarfundi
sem haldinn var í
Kaupmannahöfn
að uppgjörið væri litað af aukinni út-
breiðslu kórónuveirunnar og að ef
ekki hefði orðið bakslag í þeim efn-
um væri félagið að skila betra upp-
gjöri en raun varð á.
Mun betri sætanýting
Hann benti á að sætanýting fé-
lagsins færi batnandi og að í októ-
bermánuði hefði hún reynst 67,7%,
samanborið við 52,1% í september.
„Þurfum að vera með laser-fókus
á kostnaðinum. Ein lykilmælieining-
in sem við erum að horfa á þegar
kemur að því er fjöldi starfsmanna á
bak við hverja flugvél. Við erum með
46 starfsmenn á hverja flugvél. Þetta
er breyta sem við viljum hafa sem
lægsta og að fari aldrei yfir 50,“
benti Birgir á. Í dag er félagið með
þrjár flugvélar í förum milli Íslands
og áfangastaða vítt og breitt um
Evrópu.
Á komandi misserum mun félagið
taka við nýjum Airbus-vélum beint
frá framleiðanda og segir Birgir að
þau kjör sem Play hafi boðist á þeim
séu mun hagstæðari en gert hafði
verið ráð fyrir í áætlunum fyrir-
tækisins.
„Með því læsum við inni sparnað
til 10 til 12 ára.“ Staða Play er sterk
að sögn stjórnenda fyrirtækisins.
Lausafjárstaðan var 62,7 milljónir
dollara í lok þriðja ársfjórðungs,
jafnvirði 8,2 milljarða, og fyrirtækið
er ekki með nein vaxtaberandi
bankalán. Eiginfjárhlutfall fyrir-
tækisins var 29,2% í lok ársfjórð-
ungsins.
67.600 farþegar tekið sér
far með Play það sem af er
Birgir
Jónsson
- Tap félagsins nemur 1,4 milljörðum á þriðja fjórðungi
Morgunblaðið/Eggert
Af stað Play flaug jómfrúarflugið til Lundúna 24. júní síðastliðinn.
„Þá blöndum við aðallega kísil út í
álið til að styrkja og breyta eiginleik-
um álsins. Þetta ál, eða melmi, er síð-
an til dæmis notað til að framleiða ál-
felgur og ýmsa íhluti í bíla. Þegar
steypuskálinn er kominn í notkun
verðum við með 80-100% af okkar
framleiðslu í virðisaukandi fram-
leiðslu, sem er mjög gott enda er allt-
af verið að kalla eftir því hér heima
að auka verðmæti framleiðslunnar
hér heima,“ segir Gunnar og bendir á
annars konar ávinning.
„Uppbygging steypuskálans
breytir miklu fyrir Norðurál á
Grundartanga sem tekur næsta
skref í framleiðslukeðjunni. Það
gerir álverið samkeppnishæfara og
dreifir áhættunni enda helst verð-
myndun á álsívalningum ekki endi-
lega í hendur við verðmyndun á áli.“
Varð framkvæmdastjóri 2009
Gunnar hóf störf hjá Grundar-
tanga árið 2008 og varð fram-
kvæmdastjóri álversins 2009.
Árið 2019 varð hann forstjóri
Norðuráls og snemma á þessu ári
varð hann yfirmaður allra álvera
Century Aluminum fyrirtækisins um
heim allan.
Þeim umskiptum hafa fylgt tíð
ferðalög og hefur Gunnar verið er-
lendis stærstan hluta tímabilsins síð-
an hann tók við stöðunni í febrúar,
þar af lengstum í Kentucky, en Cent-
ury Aluminum rekur þar tvö álver.
Hefur stækkað í áföngum
Norðurál framleiddi til að byrja
með 60 þúsund tonn af áli í einum
kerskála en síðan hefur framleiðslan
verið aukin í áföngum. Fyrsti ker-
skálinn var lengdur og jókst fram-
leiðslan þá í 90 þúsund tonn. Síðan
var önnur kerlína reist árin 2005 til
2007 og jókst framleiðslan þá í 180
þúsund tonn og síðar í 260 þúsund
tonn. Hún var síðar aukin í 320 þús-
und tonn með því að auka skilvirkni
og orkunýtni álversins.
Verða alls 640 starfsmenn
Samhliða þessum vexti hefur
starfsmönnum fjölgað úr 480, þegar
framleiðslan var 260 þúsund tonn, í
um 600 nú. Til viðbótar verða fjörutíu
starfsmenn ráðnir í steypuskálann
og verða starfsmennirnir þá samtals
640 talsins. Að sögn Gunnars verða
hlutfallslega færri starfsmenn í fyr-
irhuguðum steypuskála en gengur og
gerist í eldri steypuskálum í Evrópu.
Eins og sjá má á grafinu hér fyrir
ofan verður steypuskálinn í miðhluta
álversins á Grundartanga sem var
gangsett í júnímánuði árið 1998.
Eykur hagkvæmni álversins
Nýr steypuskáli á Grundartanga
Orkunýting:
40% betri orku-
nýting
Störf:
80-90 störf á
fram-
kvæmdatíma í tvö ár og síðan
40 varanleg
störf
Nýr steypuskáli
Kostnaður:
15 milljarðar
króna
Kr.
Útflutningstekjur:
Eykur útflutningstekjur
Íslands um
3-4 milljarða
króna á ári
Raforkunotkun:
10MW aukin raf-
orkunotkun
Heimild/þrívíddarteikning: Norðurál- Steypuskáli byggður á Grundartanga
- Nýjar afurðir dreifa áhættunni betur
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Í forystu Gunnar Guðlaugsson stýrir álverum Century um heim allan.
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Gunnar Guðlaugsson, yfirmaður ál-
vera Century Aluminum um heim
allan, segir fyrirhugaðan steypu-
skála auka hagkvæmni álvers Norð-
uráls á Grundartanga og hafa jákvæð
umhverfisáhrif í för með sér.
Uppbygging skálans hefst síðar í
þessum mánuði og er áformað að
taka hann í notkun í byrjun árs 2024.
„Við teljum þetta áhugaverða og
góða framkvæmd og kannski sér-
staklega í ljósi umræðunnar um
loftslagsmál. Því þarna erum við að
taka viðbótarskref í framleiðslunni
heima. Við vinnum álið fljótandi og
með því þarf ekki að bræða álið aftur
í Evrópu og það sparar orku. Sú orka
í Evrópu yrði að stærstum hluta
framleidd með jarðefnaeldsneyti en
reiknað hefur verið út að þessu fylgi
40% orkusparnaður. Þannig að þetta
er grænt verkefni sem uppfyllir skil-
yrði Arion banka um græna fjár-
mögnun,“ segir Gunnar.
Eins og kom fram í Morgun-
blaðinu í fyrradag hafa Norðurál og
Arion banki undirritað samning um
fjármögnun framkvæmdarinnar.
Fara meðal annars í íhluti í bíla
Að sögn Gunnars verða álstangir
steyptar í steypuskálanum en þær
séu notaðar við framleiðslu á ýmsum
vörum. Meðal annars verði stangirn-
ar seldar til framleiðenda á íhlutum
fyrir bílaiðnaðinn í Evrópu. Stang-
irnar séu í raun sívalningar úr áli sem
mótaðir eru með þrýstimótun.
Þá muni steypuskálinn gera ál-
verinu kleift að framleiða meira af
melmi, álblöndum sem eru sniðnar að
óskum viðskiptavina, en sú fram-
leiðsla hófst hjá Norðuráli árið 2014.
6. nóvember 2021
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 129.81
Sterlingspund 176.04
Kanadadalur 104.55
Dönsk króna 20.195
Norsk króna 15.236
Sænsk króna 15.162
Svissn. franki 142.32
Japanskt jen 1.1396
SDR 183.04
Evra 150.2
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 183.3954