Morgunblaðið - 06.11.2021, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 06.11.2021, Blaðsíða 36
36 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. NÓVEMBER 2021 ✝ Bjarni Guð- ráðsson fædd- ist 13. janúar 1935 á Skáney í Reyk- holtsdal. Hann lést á Landspítalanum í Reykjavík 31. október 2021. Foreldrar hans voru Guðráður Davíðsson og Vig- dís Bjarnadóttir búendur á Skáney. Byggðu þau síðar nýbýlið Nes úr Skáneyjarjörð og ólst Bjarni þar upp frá níu ára aldri. Bjarni var annar í röð þriggja systkina. Bragi var elstur, f. 1932, d. 2011, og Helga, f. 1936, gift Eyjólfi Sig- urjónssyni og eru þau búsett í Reykholtsdal. Bjarni giftist Sigrúnu Ein- arsdóttur, f. 1935, d. 2017, frá Kletti í Reykholtsdal árið 1956. Börn þeirra eru: 1. Sig- urður, f. 1955, kvæntur Vöku Kristjánsdóttur. 2. Einar, f. 1958, 3. Sigrún, f. 1959. 4. Sig- ríður, f. 1960. 5. Helga Björk, f. 1969, sambýlismaður Birgir Hlíðar Guðmundsson. Barna- börn Bjarna og Sigrúnar eru fimmtán og barnabarnabörnin eru orðin tuttugu og sjö. Bjarni og Sig- rún hófu búskap 1955 í Gróf í Reyk- holtsdal en fluttu að Nesi 1957 og bjuggu þar sína búskapartíð, voru með kúabúskap en síðar ferðaþjón- ustu og golfvöll. Bjarni lauk landsprófi frá Hér- aðsskólanum í Reykholti árið 1951. Síðar fór hann í tónlistarnám og starfaði sem kórstjórnandi og organisti í Reykholtskirkju til fjölda ára. Bjarni vann ötullega að félags- málum sveitarinnar og héraðs- ins. Hann sat í hreppsnefnd, var í forystu Búnaðarsam- bands Borgarfjarðar og vann þar að stóru ritverki, Byggðir Borgarfjarðar, sem kom fyrst út 1989. Bjarni stýrði bygging- arnefndum bæði fyrir félags- heimilið Logaland og síðar fyr- ir Reykholtskirkju og Snorra- stofu. Hann lagði allan sinn metnað í uppbyggingu nýrrar Reykholtskirkju og Snorra- stofu og bar mikinn hlýhug til staðarins allt til dauðadags. Útför Bjarna fer fram frá Reykholtskirkju í dag, 6. nóv- ember 2021, klukkan 11. Hvað ungur nemur gamall temur einkennir þig með okkur þremur. Verkvit og vinnusemi okkur kenndi, vináttan þín hafði engan endi. Með tónlist og traktor í túnfæti, tölum við um þig með þakklæti. Biðjum að heilsa ömmu heitinni hvíldu í friði, afi okkar í sveitinni. Þín barnabarnabörn, Tómas Breki, Helga Jara og Salka Karen. Það var erfitt að frétta af skyndilegu andláti Bjarna, því hann var hress og kátur þegar við sáumst síðast í september sl. Bjarni var afskaplega hlýr og góður. Hann var listrænn, hæfi- leikaríkur, metnaðarfullur og atorkusamur. Allt það sem hann afrekaði á sinni ævi munu aðrir eflaust telja upp. Ég þakka kærlega fyrir ljúfa viðkynningu og að hafa átt hann að vini. Ég er viss um að Sigrún hans hefur tekið vel á móti honum. Börnum, öðru skyldfólki og vinum votta ég innilega samúð mína. Hulda Kolbrún Guðjóns- dóttir. Með Bjarna Guðráðssyni bónda og organista í Nesi í Reykholtsdal er genginn merkur forystumaður. Við kynntumst á öndverðum vetri árið 1978 er eg tók við Reykholtsprestakalli. Það var ómetanlegt fyrir ungan og óreyndan prest að njóta leið- sagnar hans um tón og kirkju- söng. Þar var hann allt í senn: Framsækinn, kröfuharður og um leið íhaldssamur á stíl og fag- urfræði. Líklega „moduleraði“ hann að hætti afa sín og fermöt- urnar hans endurómuðu grall- arasönginn sem við innleiddum á ný í Reykholti. Hann varð organisti Reyk- holtskirkju eftir Kjartan Sigur- jónsson. Þar sem sýnt var að tor- velt yrði að fylla skarð hans tók Bjarni að nema organleik og söngfræði hjá Hauki Guðlaugs- syni á Akranesi. Í bernsku ólst hann upp hjá afa sínum og ömmu á Skáney, Bjarna Bjarnasyni og Helgu Hannesdóttur, en þau voru sam- valið menningarfólk: Bjarni fyrsti organisti við Reykholts- kirkju eftir nám við Dómkirkj- una í Reykjavík. Hann kom með frá þeirri námsdvöl árið 1901 fyrsta harmonium kirkjunnar. Hann starfaði við kirkjur presta- kallsins næstu 70 árin. Auk kirkjusöngsins þjálfaði Bjarni karlakórinn Bræðurna sem sungu saman á Skáney dögum saman. Þegar Bjarni stálpaðist og var meira með foreldrum sín- um í Nesi, mótaðist hann við bú- skaparáhuga og elju Guðráðs, föður síns og mennt Vigdísar, móður sinnar, sem alla ævi ávaxtaði heimanfylgju sína frá Skáney, hugsjónina um ræktun lands og lýðs. Þegar Bjarni tók síðan við búi þar hafði hann sjer við hlið konu sína, Sigrúnu Ein- arsdóttur. Þau voru samvalin um dugnað, framtakssemi og mynd- arskap á stórbúi sínu í Nesi. Bú- skapur var mjög á hendi Sigrún- ar eftir því sem fjelagsstörf og menningarmál hlóðust á Bjarna. Bjarni tók við Hvanneyrar- kirkju árið 1985. Kórar Reyk- holts- og Hvanneyrarkirkna undir stjórn Bjarna voru kvaddir að ýmsum menningarviðburðum í hjeraði. Var góð undirstaða og gömul rækt í kórunum sem und- ir handarjaðri hans urðu að Reykholtskórnum, sem fyrir löngu er orðin hjeraðsprýði. Bjarni tók við Söngbræðrum eft- ir Sigurð á Kirkjubóli og leiddi Freyjukórinn á leið. Hann var formaður bygging- arnefndar Reykholtskirkju – Snorrastofu og oddviti sóknar- nefndar um hríð; vakti yfir öllum verkþáttum til hins ýtrasta, enda sjálfur reyndur framkvæmda- maður; afburða verkmaður, jafn hagur á trje, járn og grjót, að- gætinn, nákvæmur og vandvirk- ur. Svo fylgdi hann Snorrastofu úr hlaði og var þar fyrsti stjórn- arformaður. Eftir hann liggja í Reykholti margvísleg handar- verk: Stjettar, hleðsla við sálu- hlið og uppsetning listaverka í kirkjugarði og framan við kirkju og er þá fátt eitt nefnt. Það var hamingja Bjarna að njóta eiginkonu og fjölskyldu, sem reyndist honum bakjarl í trúnaðarstörfum í þágu samfje- lagsins. Óeigingirni þeirra og þolinmæði báru uppi verkin hans sem eru mikil og fjölbreyttari en flestra samtíðarmanna. Var hann þó af kynslóð sem skilur eftir sig stórvirki. Þau hjónin skipa önd- vegi meðal afbragðsmanna í stjett bænda og búaliða um sína daga. Við Dagný og fjölskylda okkar þökkum þeim farsæla samfylgd og trausta vináttu og biðjum minningu þeirra blessunar um leið og við felum niðja Bjarna og Bjarni Guðráðsson Sigrúnar og aðra ástvini Guði. Honum sje þökkin tjáð. Geir Waage, pastor emeritus í Reykholti. Kveðja frá Reykholts- kórnum Bjarni Guðráðsson bóndi í Nesi er fallinn frá. Hann var einnig organisti við Reykholts- kirkju sem og fleiri kirkjur í Borgarfirði og stjórnaði kórum í héraði. Á níunda áratug síðustu aldar leiddi hann kóra Hvanneyrar- og Reykholtssókna til samstarfs. Undir hans stjórn hafa þessir kórar sungið við mörg hátíðleg tækifæri. Þar má nefna heim- sóknir erlendra þjóðhöfðingja og sendiherra sem og íslenskra fyr- irmanna. Þá hefur kórinn sungið við mjög margar útfarir. Nafnið Reykholtskórinn kom síðar. Bjarni hóf nám í orgelleik þegar hann var kominn á fer- tugsaldur og náði þar góðum ár- angri enda áhuginn brennandi, kjarkurinn og þrautseigjan óbil- andi. Hann hafði til að bera frábæra tónheyrn, smekkvísi og vand- virkni við kórstjórn sem og ótrú- lega eljusemi. Ekki hikaði hann við að ráðast í flutning á erfiðum kórverkum og bar ávallt óbilandi traust til okkar kórfélaganna í þeim efnum. Hann ferðaðist með kórnum til Færeyja 2002. Til Noregs 2004 og svo til Banda- ríkjanna og Kanada árið 2007. Hann lét af kórstjórn árið 2011 þá 76 ára að aldri og taldi að nú væri nóg að gert við kórstjórn. Við kórfélagarnir í Reykholts- kórnum viljum að leiðarlokum færa Bjarna hugheilar þakkir fyrir allt hans óeigingjarna starf með okkur. Hvíli hann í friði. Minningarnar lifa. F.h. Reykholtskórsins, Þorvaldur Jónsson. Með fáeinum orðum vil ég minnast Bjarna Guðráðssonar í Nesi sem andaðist á lokadegi síð- asta mánaðar. Ég hef stundum lýst Bjarna með þeim hætti að hann hafi verið eins og jarðýta í lægsta gír og lága drifinu, að þá stæðist engin hindrun sem fram undan væri. Þannig beitti hann sér af fylgni þegar þess þurfti með, en án fyrirgangs. Um ára- bil, fyrir og eftir 1980, áttum við samleið í stjórn Búnaðarsam- bands Borgarfjarðar þar sem hann gegndi formennsku. Níundi áratugurinn og raunar lengur var umbrotatími í íslenzkum landbúnaði sem og í þjóðlífinu yf- irleitt. Komið var á takmarkandi framleiðslustjórnun í mjólkur- og sauðfjárframleiðslu, kallað var eftir nýjum búgreinum, hvatt til nýsköpunar og búháttabreyt- inga. Í þessum efnum kom mjög til kasta búnaðarsambandanna. M.a. beitti Bjarni sér fyrir stofn- un Búnaðarsamtaka Vesturlands sem höfðu það að markmiði að bændur á Vesturlandi gætu átt kost á sérhæfðari ráðgjöf með tilliti til nýbúgreina. Segja má að þarna hafi orðið til vísir að því sem síðar varð með stofnun Ráð- gjafarmiðstöðvar landbúnaðar- ins sem í dag veitir bændum sér- hæfða ráðgjöf eftir búgreinum á landsvísu. Sjálfur var Bjarni frumkvöðull og hafði byggt nýtt fjós löngu fyrr með nýju fyrir- komulagi sem bændum víða að þótti forvitnilegt að gera sér ferð til að skoða. Síðar, eftir að eig- inlegu ævistarfi við kúabúskap lauk, breytti hann túnunum í golfvöll. Það er ekki ofsagt að hann hafi verið framtakssamur. Um það leyti sem Bjarni kom að Búnaðarsambandinu var ákveðið að ráðast í ritun bún- aðar- og byggðasögu héraðsins undir heitinu Byggðir Borgar- fjarðar. Leitað var til Bjarkar Ingimundardóttur með ritstjórn en Bjarni tók að sér umsjón með verkinu að öðru leyti. Margir aðrir komu þar við sögu einnig, við ritun efnis og fleira, héraðs- menn vítt og breitt sem og starfsfólk Búnaðarsambandsins. Ég hygg að það hafi verið á ög- urstundu að í þetta verk var ráð- izt og að framlag Bjarna hafi reynzt gifturíkt. Hafandi verið formaður ritnefndarinnar tel ég mér það skylt að minna á þetta og árétta sérstaklega þakkir fyr- ir óeigingjarnt framlag Bjarna til útgáfunnar. Ég get ekki látið ógert að minnast á þátt Bjarna og sam- vinnu þeirra sr. Geirs Waage við endurreisn Reykholtsstaðar sem fræðaseturs og sem „staðar“. Þar hygg ég að einnig hafi verið komið að ögurstundu með að hefjast handa; réttir menn á réttum stað á réttum tíma. Mikið lán það. Það mun sannast æ bet- ur eftir því sem tíminn líður. En það verður jafnframt áskorun eftirkomenda að halda merkinu á lofti. Hér verður látið staðar numið þótt fjölmargt sé ótalið af því sem Bjarni fékkst við á sinni ævigöngu. Hann kom víða við. En hann gekk götuna ekki ein- samall. Hans lífsförunautur, samverkamaður og bakhjarl var Sigrún Einarsdóttir. Hún var ekki sótt yfir lækinn. Þau voru sveitungar. Þeirra ganga saman tók meira en sextíu ár en Sigrún lézt árið 2017. Blessuð sé minn- ing þeirra beggja. Afkomendum þeirra öllum sendum við Guðrún Ása okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Jón G. Guðbjörnsson. Við fráfall góðs vinar setur mann jafnan hljóðan og minning- arnar hrannast upp. Ég kynntist heiðursmanninum og öðlingnum Bjarna þegar ég fluttist að Reykholti og gerðist kennari við héraðsskólann. Sá kunnings- skapur hófst þá og varð fljótt að vináttu sem entist alla stund síð- an. Bjarni var trygglyndur maður og við ræddum margt saman þótt leiðir skildu er ég fluttist frá Reykholti 1975. Samstarf okkar á Reykholtsárunum var á tónlist- arsviðinu í Reykdælakórnum og í Reykholtskirkju. Hann gerðist nemandi minn í orgelleik og hélt áfram því námi hjá Hauki Guð- laussyni. Hann varð síðan eft- irmaður minn við Reykholts- kirkju sem organisti og söngstjóri og gegndi því starfi lengi. Bjarni var á margan hátt eld- hugi og lyfti mörgu Grettistaki, var forgöngumaður margra framfaramála í dalnum og studdi af alefli allt sem horfði til þroska og betri menningar. Þegar menn vildu selja gamla Dómkirkjuorgelið gekk Bjarni frá kaupum á því, gamla Frobe- nius-orgelinu sem var hljóðfæri Páls Ísólfssonar. Hann kom því í geymslu heima í Nesi og gekk síðan í að byggja nýja kirkju í Reykholti. Allt tókst þetta með ágætum og orgelið var sett upp í nýju kirkjunni sem reynst hefur ágætasta hljómhús þar sem gamla orgelið nýtur sín. Fyrir okkur sem á þetta orgel lærðum er þetta hið mesta ævintýri að leika á það, nú er það farið að hljóma miklu betur en þar sem það áður var. Afi hans, Bjarni Bjarnason í Skáney, hafði verið organisti Reykholtskirkju í 70 ár. Bjarni Guðráðsson réðist sem organisti Reykholtskirkju og gegndi því starfi með prýði. Það var jafnan gott að koma að Nesi, bæði heimilin Guðráðs og Vigdísar og Bjarna og Sig- rúnar. Fjölskyldunni votta ég mína dýpstu samúð og okkar hjóná Blessuð sé minning Bjarna Guðráðssonar. Kjartan Sigurjónsson. - Fleiri minningargreinar um Bjarna Guðráðsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, ESTHER KRISTÍN RAGNARSDÓTTIR, Austurvegi 41b, lést á HSU Selfossi fimmtudaginn 14. október. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og kveðjur. Sérstaklega þökkum við starfsfólki HSU fyrir einstaka umönnun og hlýhug. Páll Kristinsson Kristinn Pálsson Kristín Þorfinnsdóttir Soffía Ragna Pálsdóttir Ásgeir Vilhjálmsson Elísabet Pálsdóttir Lárus Gestsson Ragnar Pálsson Herborg Anna Magnúsdóttir ömmubörn, makar og langömmubörn Innilegar þakkir færum við vinum, vandamönnum og öðrum sem sýndu okkur samhug og hlýju og veittu okkur aðstoð er móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ELÍNBORG BERNÓDUSDÓTTIR, Miðstræti 11, Vestmannaeyjum, lést aðfaranótt sunnudagsins 17. október, svo og þeim sem komu til útfarar hennar í Landakirkju í Vestmannaeyjum fimmtudaginn 28. október. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Sjúkrahússins í Vestmannaeyjum fyrir umönnun, þolinmæði og nærfærni við hana í veikindum hennar. Systkinum hennar þökkum við ræktarsemi og vinkonum fyrir að sinna henni með kærkomnum heimsóknum. Alla þá hluttekningu og vináttu, sem við nutum meðan Ella var á sjúkrahúsinu, munum við varðveita og geyma. Ölver Jónsson Svanhildur I. Ólafsdóttir Hinrik Jónsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, INGA HELGA JÓNSDÓTTIR, Gullsmára 11, Kópavogi, lést á Landspítalanum miðvikudaginn 3. nóvember. Útför fer fram í Hjallakirkju í Kópavogi miðvikudaginn 10. nóvember klukkan 15. Blóm og kransar afþakkaðir. Fjölskyldan þakkar starfsfólki krabbameinsdeildar fyrir hlýhug og umhyggju. Jóhann Albert Finnbogason Sigríður Helga Sigfúsdóttir Linda Björg Finnbogadóttir Hörður Kristgeirsson Jón Páll Finnbogason Hildur Kjartansdóttir Rakel Huld Ingudóttir ömmubörn og langömmubörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÓMAR ÖRN ÞORBJÖRNSSON húsasmíðameistari, Efstasundi 31, lést á Landspítalanum 30. október. Hann verður jarðsunginn frá Áskirkju miðvikudaginn 10. nóvember klukkan 11. Sigríður Elísabet Sturlaugsdóttir Auður Berglind Ómarsdóttir Guðmundur Ingi Jónsson Sturlaugur Aron Ómarsson Auðbjörg Njálsdóttir Hákon Örn Ómarsson Elísa Karen, Helena Bríet, Eydís Klara, Diljá og Freyr Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÓLAFUR BERGSVEINSSON, fyrrverandi bóndi Stafafelli í Lóni, lést föstudaginn 29. október á Hjúkrunarheimilinu Skjólgarði. Útförin fer fram frá Hafnarkirkju mánudaginn 8. nóvember klukkan 13. Streymt verður frá útförinni á hafnarkirkja.is Sigurður Ólafsson Helga Davids Bergsveinn Ólafsson Gunnlaugur B. Ólafsson og barnabörn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.