Morgunblaðið - 06.11.2021, Page 36
36 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. NÓVEMBER 2021
✝
Bjarni Guð-
ráðsson fædd-
ist 13. janúar 1935
á Skáney í Reyk-
holtsdal. Hann lést
á Landspítalanum
í Reykjavík 31.
október 2021.
Foreldrar hans
voru Guðráður
Davíðsson og Vig-
dís Bjarnadóttir
búendur á Skáney.
Byggðu þau síðar nýbýlið Nes
úr Skáneyjarjörð og ólst
Bjarni þar upp frá níu ára
aldri.
Bjarni var annar í röð
þriggja systkina. Bragi var
elstur, f. 1932, d. 2011, og
Helga, f. 1936, gift Eyjólfi Sig-
urjónssyni og eru þau búsett í
Reykholtsdal.
Bjarni giftist Sigrúnu Ein-
arsdóttur, f. 1935, d. 2017, frá
Kletti í Reykholtsdal árið
1956. Börn þeirra eru: 1. Sig-
urður, f. 1955, kvæntur Vöku
Kristjánsdóttur. 2. Einar, f.
1958, 3. Sigrún, f. 1959. 4. Sig-
ríður, f. 1960. 5. Helga Björk,
f. 1969, sambýlismaður Birgir
Hlíðar Guðmundsson. Barna-
börn Bjarna og Sigrúnar eru
fimmtán og barnabarnabörnin
eru orðin tuttugu og sjö.
Bjarni og Sig-
rún hófu búskap
1955 í Gróf í Reyk-
holtsdal en fluttu
að Nesi 1957 og
bjuggu þar sína
búskapartíð, voru
með kúabúskap en
síðar ferðaþjón-
ustu og golfvöll.
Bjarni lauk
landsprófi frá Hér-
aðsskólanum í
Reykholti árið 1951. Síðar fór
hann í tónlistarnám og starfaði
sem kórstjórnandi og organisti
í Reykholtskirkju til fjölda ára.
Bjarni vann ötullega að félags-
málum sveitarinnar og héraðs-
ins. Hann sat í hreppsnefnd,
var í forystu Búnaðarsam-
bands Borgarfjarðar og vann
þar að stóru ritverki, Byggðir
Borgarfjarðar, sem kom fyrst
út 1989. Bjarni stýrði bygging-
arnefndum bæði fyrir félags-
heimilið Logaland og síðar fyr-
ir Reykholtskirkju og Snorra-
stofu. Hann lagði allan sinn
metnað í uppbyggingu nýrrar
Reykholtskirkju og Snorra-
stofu og bar mikinn hlýhug til
staðarins allt til dauðadags.
Útför Bjarna fer fram frá
Reykholtskirkju í dag, 6. nóv-
ember 2021, klukkan 11.
Hvað ungur nemur gamall temur
einkennir þig með okkur þremur.
Verkvit og vinnusemi okkur kenndi,
vináttan þín hafði engan endi.
Með tónlist og traktor í túnfæti,
tölum við um þig með þakklæti.
Biðjum að heilsa ömmu heitinni
hvíldu í friði, afi okkar í sveitinni.
Þín barnabarnabörn,
Tómas Breki, Helga Jara
og Salka Karen.
Það var erfitt að frétta af
skyndilegu andláti Bjarna, því
hann var hress og kátur þegar
við sáumst síðast í september sl.
Bjarni var afskaplega hlýr og
góður. Hann var listrænn, hæfi-
leikaríkur, metnaðarfullur og
atorkusamur.
Allt það sem hann afrekaði á
sinni ævi munu aðrir eflaust telja
upp.
Ég þakka kærlega fyrir ljúfa
viðkynningu og að hafa átt hann
að vini.
Ég er viss um að Sigrún hans
hefur tekið vel á móti honum.
Börnum, öðru skyldfólki og
vinum votta ég innilega samúð
mína.
Hulda Kolbrún Guðjóns-
dóttir.
Með Bjarna Guðráðssyni
bónda og organista í Nesi í
Reykholtsdal er genginn merkur
forystumaður. Við kynntumst á
öndverðum vetri árið 1978 er eg
tók við Reykholtsprestakalli.
Það var ómetanlegt fyrir ungan
og óreyndan prest að njóta leið-
sagnar hans um tón og kirkju-
söng. Þar var hann allt í senn:
Framsækinn, kröfuharður og um
leið íhaldssamur á stíl og fag-
urfræði. Líklega „moduleraði“
hann að hætti afa sín og fermöt-
urnar hans endurómuðu grall-
arasönginn sem við innleiddum á
ný í Reykholti.
Hann varð organisti Reyk-
holtskirkju eftir Kjartan Sigur-
jónsson. Þar sem sýnt var að tor-
velt yrði að fylla skarð hans tók
Bjarni að nema organleik og
söngfræði hjá Hauki Guðlaugs-
syni á Akranesi.
Í bernsku ólst hann upp hjá
afa sínum og ömmu á Skáney,
Bjarna Bjarnasyni og Helgu
Hannesdóttur, en þau voru sam-
valið menningarfólk: Bjarni
fyrsti organisti við Reykholts-
kirkju eftir nám við Dómkirkj-
una í Reykjavík. Hann kom með
frá þeirri námsdvöl árið 1901
fyrsta harmonium kirkjunnar.
Hann starfaði við kirkjur presta-
kallsins næstu 70 árin. Auk
kirkjusöngsins þjálfaði Bjarni
karlakórinn Bræðurna sem
sungu saman á Skáney dögum
saman. Þegar Bjarni stálpaðist
og var meira með foreldrum sín-
um í Nesi, mótaðist hann við bú-
skaparáhuga og elju Guðráðs,
föður síns og mennt Vigdísar,
móður sinnar, sem alla ævi
ávaxtaði heimanfylgju sína frá
Skáney, hugsjónina um ræktun
lands og lýðs. Þegar Bjarni tók
síðan við búi þar hafði hann sjer
við hlið konu sína, Sigrúnu Ein-
arsdóttur. Þau voru samvalin um
dugnað, framtakssemi og mynd-
arskap á stórbúi sínu í Nesi. Bú-
skapur var mjög á hendi Sigrún-
ar eftir því sem fjelagsstörf og
menningarmál hlóðust á Bjarna.
Bjarni tók við Hvanneyrar-
kirkju árið 1985. Kórar Reyk-
holts- og Hvanneyrarkirkna
undir stjórn Bjarna voru kvaddir
að ýmsum menningarviðburðum
í hjeraði. Var góð undirstaða og
gömul rækt í kórunum sem und-
ir handarjaðri hans urðu að
Reykholtskórnum, sem fyrir
löngu er orðin hjeraðsprýði.
Bjarni tók við Söngbræðrum eft-
ir Sigurð á Kirkjubóli og leiddi
Freyjukórinn á leið.
Hann var formaður bygging-
arnefndar Reykholtskirkju –
Snorrastofu og oddviti sóknar-
nefndar um hríð; vakti yfir öllum
verkþáttum til hins ýtrasta, enda
sjálfur reyndur framkvæmda-
maður; afburða verkmaður, jafn
hagur á trje, járn og grjót, að-
gætinn, nákvæmur og vandvirk-
ur. Svo fylgdi hann Snorrastofu
úr hlaði og var þar fyrsti stjórn-
arformaður. Eftir hann liggja í
Reykholti margvísleg handar-
verk: Stjettar, hleðsla við sálu-
hlið og uppsetning listaverka í
kirkjugarði og framan við kirkju
og er þá fátt eitt nefnt.
Það var hamingja Bjarna að
njóta eiginkonu og fjölskyldu,
sem reyndist honum bakjarl í
trúnaðarstörfum í þágu samfje-
lagsins. Óeigingirni þeirra og
þolinmæði báru uppi verkin hans
sem eru mikil og fjölbreyttari en
flestra samtíðarmanna. Var hann
þó af kynslóð sem skilur eftir sig
stórvirki. Þau hjónin skipa önd-
vegi meðal afbragðsmanna í
stjett bænda og búaliða um sína
daga.
Við Dagný og fjölskylda okkar
þökkum þeim farsæla samfylgd
og trausta vináttu og biðjum
minningu þeirra blessunar um
leið og við felum niðja Bjarna og
Bjarni Guðráðsson Sigrúnar og aðra ástvini Guði.
Honum sje þökkin tjáð.
Geir Waage, pastor
emeritus í Reykholti.
Kveðja frá Reykholts-
kórnum
Bjarni Guðráðsson bóndi í
Nesi er fallinn frá. Hann var
einnig organisti við Reykholts-
kirkju sem og fleiri kirkjur í
Borgarfirði og stjórnaði kórum í
héraði.
Á níunda áratug síðustu aldar
leiddi hann kóra Hvanneyrar- og
Reykholtssókna til samstarfs.
Undir hans stjórn hafa þessir
kórar sungið við mörg hátíðleg
tækifæri. Þar má nefna heim-
sóknir erlendra þjóðhöfðingja og
sendiherra sem og íslenskra fyr-
irmanna. Þá hefur kórinn sungið
við mjög margar útfarir. Nafnið
Reykholtskórinn kom síðar.
Bjarni hóf nám í orgelleik
þegar hann var kominn á fer-
tugsaldur og náði þar góðum ár-
angri enda áhuginn brennandi,
kjarkurinn og þrautseigjan óbil-
andi.
Hann hafði til að bera frábæra
tónheyrn, smekkvísi og vand-
virkni við kórstjórn sem og ótrú-
lega eljusemi. Ekki hikaði hann
við að ráðast í flutning á erfiðum
kórverkum og bar ávallt óbilandi
traust til okkar kórfélaganna í
þeim efnum. Hann ferðaðist með
kórnum til Færeyja 2002. Til
Noregs 2004 og svo til Banda-
ríkjanna og Kanada árið 2007.
Hann lét af kórstjórn árið 2011
þá 76 ára að aldri og taldi að nú
væri nóg að gert við kórstjórn.
Við kórfélagarnir í Reykholts-
kórnum viljum að leiðarlokum
færa Bjarna hugheilar þakkir
fyrir allt hans óeigingjarna starf
með okkur. Hvíli hann í friði.
Minningarnar lifa.
F.h. Reykholtskórsins,
Þorvaldur Jónsson.
Með fáeinum orðum vil ég
minnast Bjarna Guðráðssonar í
Nesi sem andaðist á lokadegi síð-
asta mánaðar. Ég hef stundum
lýst Bjarna með þeim hætti að
hann hafi verið eins og jarðýta í
lægsta gír og lága drifinu, að þá
stæðist engin hindrun sem fram
undan væri. Þannig beitti hann
sér af fylgni þegar þess þurfti
með, en án fyrirgangs. Um ára-
bil, fyrir og eftir 1980, áttum við
samleið í stjórn Búnaðarsam-
bands Borgarfjarðar þar sem
hann gegndi formennsku. Níundi
áratugurinn og raunar lengur
var umbrotatími í íslenzkum
landbúnaði sem og í þjóðlífinu yf-
irleitt. Komið var á takmarkandi
framleiðslustjórnun í mjólkur-
og sauðfjárframleiðslu, kallað
var eftir nýjum búgreinum, hvatt
til nýsköpunar og búháttabreyt-
inga. Í þessum efnum kom mjög
til kasta búnaðarsambandanna.
M.a. beitti Bjarni sér fyrir stofn-
un Búnaðarsamtaka Vesturlands
sem höfðu það að markmiði að
bændur á Vesturlandi gætu átt
kost á sérhæfðari ráðgjöf með
tilliti til nýbúgreina. Segja má að
þarna hafi orðið til vísir að því
sem síðar varð með stofnun Ráð-
gjafarmiðstöðvar landbúnaðar-
ins sem í dag veitir bændum sér-
hæfða ráðgjöf eftir búgreinum á
landsvísu. Sjálfur var Bjarni
frumkvöðull og hafði byggt nýtt
fjós löngu fyrr með nýju fyrir-
komulagi sem bændum víða að
þótti forvitnilegt að gera sér ferð
til að skoða. Síðar, eftir að eig-
inlegu ævistarfi við kúabúskap
lauk, breytti hann túnunum í
golfvöll. Það er ekki ofsagt að
hann hafi verið framtakssamur.
Um það leyti sem Bjarni kom
að Búnaðarsambandinu var
ákveðið að ráðast í ritun bún-
aðar- og byggðasögu héraðsins
undir heitinu Byggðir Borgar-
fjarðar. Leitað var til Bjarkar
Ingimundardóttur með ritstjórn
en Bjarni tók að sér umsjón með
verkinu að öðru leyti. Margir
aðrir komu þar við sögu einnig,
við ritun efnis og fleira, héraðs-
menn vítt og breitt sem og
starfsfólk Búnaðarsambandsins.
Ég hygg að það hafi verið á ög-
urstundu að í þetta verk var ráð-
izt og að framlag Bjarna hafi
reynzt gifturíkt. Hafandi verið
formaður ritnefndarinnar tel ég
mér það skylt að minna á þetta
og árétta sérstaklega þakkir fyr-
ir óeigingjarnt framlag Bjarna
til útgáfunnar.
Ég get ekki látið ógert að
minnast á þátt Bjarna og sam-
vinnu þeirra sr. Geirs Waage við
endurreisn Reykholtsstaðar sem
fræðaseturs og sem „staðar“.
Þar hygg ég að einnig hafi verið
komið að ögurstundu með að
hefjast handa; réttir menn á
réttum stað á réttum tíma. Mikið
lán það. Það mun sannast æ bet-
ur eftir því sem tíminn líður. En
það verður jafnframt áskorun
eftirkomenda að halda merkinu á
lofti.
Hér verður látið staðar numið
þótt fjölmargt sé ótalið af því
sem Bjarni fékkst við á sinni
ævigöngu. Hann kom víða við.
En hann gekk götuna ekki ein-
samall. Hans lífsförunautur,
samverkamaður og bakhjarl var
Sigrún Einarsdóttir. Hún var
ekki sótt yfir lækinn. Þau voru
sveitungar. Þeirra ganga saman
tók meira en sextíu ár en Sigrún
lézt árið 2017. Blessuð sé minn-
ing þeirra beggja. Afkomendum
þeirra öllum sendum við Guðrún
Ása okkar innilegustu samúðar-
kveðjur.
Jón G. Guðbjörnsson.
Við fráfall góðs vinar setur
mann jafnan hljóðan og minning-
arnar hrannast upp. Ég kynntist
heiðursmanninum og öðlingnum
Bjarna þegar ég fluttist að
Reykholti og gerðist kennari við
héraðsskólann. Sá kunnings-
skapur hófst þá og varð fljótt að
vináttu sem entist alla stund síð-
an.
Bjarni var trygglyndur maður
og við ræddum margt saman
þótt leiðir skildu er ég fluttist frá
Reykholti 1975. Samstarf okkar
á Reykholtsárunum var á tónlist-
arsviðinu í Reykdælakórnum og
í Reykholtskirkju. Hann gerðist
nemandi minn í orgelleik og hélt
áfram því námi hjá Hauki Guð-
laussyni. Hann varð síðan eft-
irmaður minn við Reykholts-
kirkju sem organisti og
söngstjóri og gegndi því starfi
lengi.
Bjarni var á margan hátt eld-
hugi og lyfti mörgu Grettistaki,
var forgöngumaður margra
framfaramála í dalnum og studdi
af alefli allt sem horfði til þroska
og betri menningar.
Þegar menn vildu selja gamla
Dómkirkjuorgelið gekk Bjarni
frá kaupum á því, gamla Frobe-
nius-orgelinu sem var hljóðfæri
Páls Ísólfssonar. Hann kom því í
geymslu heima í Nesi og gekk
síðan í að byggja nýja kirkju í
Reykholti. Allt tókst þetta með
ágætum og orgelið var sett upp í
nýju kirkjunni sem reynst hefur
ágætasta hljómhús þar sem
gamla orgelið nýtur sín. Fyrir
okkur sem á þetta orgel lærðum
er þetta hið mesta ævintýri að
leika á það, nú er það farið að
hljóma miklu betur en þar sem
það áður var.
Afi hans, Bjarni Bjarnason í
Skáney, hafði verið organisti
Reykholtskirkju í 70 ár.
Bjarni Guðráðsson réðist sem
organisti Reykholtskirkju og
gegndi því starfi með prýði.
Það var jafnan gott að koma
að Nesi, bæði heimilin Guðráðs
og Vigdísar og Bjarna og Sig-
rúnar.
Fjölskyldunni votta ég mína
dýpstu samúð og okkar hjóná
Blessuð sé minning Bjarna
Guðráðssonar.
Kjartan Sigurjónsson.
- Fleiri minningargreinar
um Bjarna Guðráðsson bíða
birtingar og munu birtast í
blaðinu næstu daga.
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
ESTHER KRISTÍN RAGNARSDÓTTIR,
Austurvegi 41b,
lést á HSU Selfossi fimmtudaginn
14. október. Útförin hefur farið fram í
kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og kveðjur.
Sérstaklega þökkum við starfsfólki HSU fyrir einstaka umönnun
og hlýhug.
Páll Kristinsson
Kristinn Pálsson Kristín Þorfinnsdóttir
Soffía Ragna Pálsdóttir Ásgeir Vilhjálmsson
Elísabet Pálsdóttir Lárus Gestsson
Ragnar Pálsson Herborg Anna Magnúsdóttir
ömmubörn, makar og langömmubörn
Innilegar þakkir færum við vinum,
vandamönnum og öðrum sem sýndu
okkur samhug og hlýju og veittu okkur
aðstoð er móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
ELÍNBORG BERNÓDUSDÓTTIR,
Miðstræti 11, Vestmannaeyjum,
lést aðfaranótt sunnudagsins 17. október, svo og þeim sem
komu til útfarar hennar í Landakirkju í Vestmannaeyjum
fimmtudaginn 28. október. Sérstakar þakkir færum við
starfsfólki Sjúkrahússins í Vestmannaeyjum fyrir umönnun,
þolinmæði og nærfærni við hana í veikindum hennar. Systkinum
hennar þökkum við ræktarsemi og vinkonum fyrir að sinna
henni með kærkomnum heimsóknum.
Alla þá hluttekningu og vináttu, sem við nutum meðan Ella var á
sjúkrahúsinu, munum við varðveita og geyma.
Ölver Jónsson Svanhildur I. Ólafsdóttir
Hinrik Jónsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
INGA HELGA JÓNSDÓTTIR,
Gullsmára 11,
Kópavogi,
lést á Landspítalanum miðvikudaginn
3. nóvember. Útför fer fram í Hjallakirkju í Kópavogi
miðvikudaginn 10. nóvember klukkan 15.
Blóm og kransar afþakkaðir. Fjölskyldan þakkar starfsfólki
krabbameinsdeildar fyrir hlýhug og umhyggju.
Jóhann Albert Finnbogason Sigríður Helga Sigfúsdóttir
Linda Björg Finnbogadóttir Hörður Kristgeirsson
Jón Páll Finnbogason Hildur Kjartansdóttir
Rakel Huld Ingudóttir
ömmubörn og langömmubörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
ÓMAR ÖRN ÞORBJÖRNSSON
húsasmíðameistari,
Efstasundi 31,
lést á Landspítalanum 30. október.
Hann verður jarðsunginn frá Áskirkju miðvikudaginn
10. nóvember klukkan 11.
Sigríður Elísabet Sturlaugsdóttir
Auður Berglind Ómarsdóttir Guðmundur Ingi Jónsson
Sturlaugur Aron Ómarsson Auðbjörg Njálsdóttir
Hákon Örn Ómarsson
Elísa Karen, Helena Bríet, Eydís Klara, Diljá og Freyr
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
ÓLAFUR BERGSVEINSSON,
fyrrverandi bóndi Stafafelli í Lóni,
lést föstudaginn 29. október
á Hjúkrunarheimilinu Skjólgarði.
Útförin fer fram frá Hafnarkirkju
mánudaginn 8. nóvember klukkan 13.
Streymt verður frá útförinni á hafnarkirkja.is
Sigurður Ólafsson Helga Davids
Bergsveinn Ólafsson
Gunnlaugur B. Ólafsson
og barnabörn