Morgunblaðið - 06.11.2021, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 06.11.2021, Blaðsíða 56
Nærmynd er yfirskrift tónleika Kammersveitar Reykja- víkur sem haldnir verða í Víðistaðakirkju í Hafnarfirði í dag, laugardag, kl. 16. Eru þeir helgaðir tónskáldinu Huga Guðmundssyni en kammersveitin hefur átt í far- sælu samstarfi við hann til nokkurra ára og sóst eftir því að flytja verk hans. Sveitin er þessa dagana að hljóðrita plötu með verkum eftir Huga sem nefnist Windbells og verður gefin út af bandaríska fyrirtækinu Sono Luminus. Á tónleikunum í dag verða flutt sömu verk og verða á plötunni. Kammersveit Reykjavíkur flytur verk eftir Huga Guðmundsson LAUGARDAGUR 6. NÓVEMBER 310. DAGUR ÁRSINS 2021 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í lausasölu 1.268 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is „Allt í einu var okkur tilkynnt þetta á æfingu og það vissi enginn neitt. Svona er bara handboltaheimurinn. Stundum er hann harður og þá geta svona hlutir gerst. Maður veit aldrei hvað getur komið upp á,“ segir Elvar Örn Jónsson, landsliðsmaður í handknattleik og leik- maður Melsungen í Þýskalandi, en Guðmundi Þ. Guð- mundssyni, þjálfara liðsins, var sagt upp störfum í haust. »49 Allt í einu tilkynnt á æfingu ÍÞRÓTTIR MENNING Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Dr. Irvin Hjálmar Ólafsson, fyrr- verandi verkfræðingur og tann- læknir og áhrifamaður í íslenska samfélaginu í Manitoba í Kanada, verður níræður í dag en að öðru leyti verður dagurinn hjá honum eins og hver annar. Sem fyrr er stefnan að fara í þrjá tæplega klukkutíma hjólatúra um Gimli, heimabæ sinn, spjalla við mann og annan á leiðinni, kíkja í bók á milli ferða og kannski setja staf á blað. „Ég hef ekki verið mikið fyrir það að halda upp á afmælið, en börnin, makar þeirra og barnabörn komu mér á óvart og gerðu sér glaðan dag með mér hérna í Nóatúni á þakkargjörðarhátíðinni í október,“ segir kappinn síkáti, sem er alltaf að. Valdi frændi og gulur hús Hjónin frá Riverton, Irvin og Lo- is Lillian (áður Sigurðsson), sem lést 2015, reistu sér hús á Gimli fyr- ir nokkrum áratugum og kölluðu það Nóatún. Það er við Winnipeg- vatn, skammt suður af nýja vík- ingagarðinum. Þar var áður sumar- hús Valdimars Lárussonar, prófessors við Manitoba-háskóla í Winnipeg. Í fyrstu af fjölmörgum heimsóknum blaðamanns til Valda á áttunda og níunda áratug liðinnar aldar var hann nýbúinn að mála húsið í hlýlegum gulum lit og þegar litnum var hrósað útskýrði hann ákvörðunina. Eftir heimsókn frá ættingjum á Íslandi hafði hann fengið póstkort frá ungum frænda. Þar hafði einfaldlega staðið „Valdi frændi, Gulur hús, Gimli, Kanada“, pósturinn hafði komið því til skila og því yrði litnum ekki breytt. „Nú er ég hissa en þetta er gott að heyra, góði minn,“ segir Irvin á ís- lensku, en hann er nýbúinn að mála Nóatún í sérstökum gráum lit. „Ég dytta að húsinu og sé um garðinn, en lifi annars rólegu lífi. Það gengur svona.“ Irvin hefur oft verið fljótur að til- einka sér nýjustu tækni, var til dæmis með fyrstu mönnum til að fá sér þráðlausan kjöthitamæli til að geta fylgst með stöðunni á grillinu. Hann á tvö um 40 ára gömul reið- hjól og ætlaði sér að nota annað í varahluti, en Eric, sonur hans, gaf honum nýtt hjól á feðradaginn í júní sl. og það hefur komið sér vel. „Ég bjóst aldrei við því að eignast svona flottan grip,“ segir afmælisbarnið og þakkar fyrir að hafa ekki fengið rafmagnshjól. „Ég þarf að reyna á mig til að halda lífi og var kominn út, þegar þú hringdir.“ Þagnar en heldur svo áfram: „Ég gat svarað því ég er að sjálfsögðu með snjall- úr.“ Hjónin voru oft á Flórída á vet- urna en Irvin fór hvergi í fyrravetur vegna kórónuveirufaraldursins og var það í fyrsta sinn í mörg ár. „Ég hélt mig bara hér á stað goðanna og hugsaði um sál og líkama, gat farið í göngutúra á hverjum degi og hitt kunningja og vini. Það var allt í fín- asta lagi, góði minn.“ Hann bætir við að heilsan sé mjög góð, hann taki engin lyf og noti gleraugu að- eins við lestur. „Ég þakka hreystina góðu vali mínu á foreldrum!“ Irvin var atkvæðamikill í mál- efnum Vestur-Íslendinga. Hann stóð meðal annars að byggingu menningarmiðstöðvarinnar á Gimli, þar sem Safn íslenskrar menningar- arfleifðar á Nýja-Íslandi er á jarð- hæðinni, og var í forystuliði átaks- ins „Fálkarnir um alla framtíð“ sem tryggði ólympíumeisturunum verð- ugan sess í íshokkísögu Kanada. „Ég er stoltur af verkum mínum og stoltastur af því að hafa verið sæmdur fálkaorðunni,“ segir Irvin, sem hefur heimsótt Ísland, móður- landið, eins og hann kallar það, nokkrum sinnum, meðal annars í boði íslenskra stjórnvalda. Hann á ættir að rekja til Austfjarða en á enn eftir að fara þangað. „Kannski get ég talað Eirík, son minn, inn á að fara með mér. Þakka þér kær- lega fyrir að benda mér á það, góði minn.“ Með tæknina á takteinum - Irvin Hjálmar Ólafsson er níræður og sprækur sem lækur Óvæntur hittingur Í afmælisveislunni í Nóatúni, frá vinstri: Victoria Sparks, James Langridge, Marno Olafson, Eric Olafson, Irvin Hjálmar Olaf- son, Jaye Olafson, Brent Jervis, Laurie Jervis-Olafson, Nils Broadhurst, Reyna Jenkyns, Kris Jenkyns-Olafson og Steven Olafson. Við Winnipeg-vatn Irvin Hjálmar fer í hjólaferðir þrisvar á dag.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.