Morgunblaðið - 06.11.2021, Page 56
Nærmynd er yfirskrift tónleika Kammersveitar Reykja-
víkur sem haldnir verða í Víðistaðakirkju í Hafnarfirði í
dag, laugardag, kl. 16. Eru þeir helgaðir tónskáldinu
Huga Guðmundssyni en kammersveitin hefur átt í far-
sælu samstarfi við hann til nokkurra ára og sóst eftir
því að flytja verk hans. Sveitin er þessa dagana að
hljóðrita plötu með verkum eftir Huga sem nefnist
Windbells og verður gefin út af bandaríska fyrirtækinu
Sono Luminus. Á tónleikunum í dag verða flutt sömu
verk og verða á plötunni.
Kammersveit Reykjavíkur flytur
verk eftir Huga Guðmundsson
LAUGARDAGUR 6. NÓVEMBER 310. DAGUR ÁRSINS 2021
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í lausasölu 1.268 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
„Allt í einu var okkur tilkynnt þetta á æfingu og það
vissi enginn neitt. Svona er bara handboltaheimurinn.
Stundum er hann harður og þá geta svona hlutir gerst.
Maður veit aldrei hvað getur komið upp á,“ segir Elvar
Örn Jónsson, landsliðsmaður í handknattleik og leik-
maður Melsungen í Þýskalandi, en Guðmundi Þ. Guð-
mundssyni, þjálfara liðsins, var sagt upp störfum í
haust. »49
Allt í einu tilkynnt á æfingu
ÍÞRÓTTIR MENNING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Dr. Irvin Hjálmar Ólafsson, fyrr-
verandi verkfræðingur og tann-
læknir og áhrifamaður í íslenska
samfélaginu í Manitoba í Kanada,
verður níræður í dag en að öðru
leyti verður dagurinn hjá honum
eins og hver annar. Sem fyrr er
stefnan að fara í þrjá tæplega
klukkutíma hjólatúra um Gimli,
heimabæ sinn, spjalla við mann og
annan á leiðinni, kíkja í bók á milli
ferða og kannski setja staf á blað.
„Ég hef ekki verið mikið fyrir það
að halda upp á afmælið, en börnin,
makar þeirra og barnabörn komu
mér á óvart og gerðu sér glaðan
dag með mér hérna í Nóatúni á
þakkargjörðarhátíðinni í október,“
segir kappinn síkáti, sem er alltaf
að.
Valdi frændi og gulur hús
Hjónin frá Riverton, Irvin og Lo-
is Lillian (áður Sigurðsson), sem
lést 2015, reistu sér hús á Gimli fyr-
ir nokkrum áratugum og kölluðu
það Nóatún. Það er við Winnipeg-
vatn, skammt suður af nýja vík-
ingagarðinum. Þar var áður sumar-
hús Valdimars Lárussonar,
prófessors við Manitoba-háskóla í
Winnipeg. Í fyrstu af fjölmörgum
heimsóknum blaðamanns til Valda á
áttunda og níunda áratug liðinnar
aldar var hann nýbúinn að mála
húsið í hlýlegum gulum lit og þegar
litnum var hrósað útskýrði hann
ákvörðunina. Eftir heimsókn frá
ættingjum á Íslandi hafði hann
fengið póstkort frá ungum frænda.
Þar hafði einfaldlega staðið „Valdi
frændi, Gulur hús, Gimli, Kanada“,
pósturinn hafði komið því til skila
og því yrði litnum ekki breytt. „Nú
er ég hissa en þetta er gott að
heyra, góði minn,“ segir Irvin á ís-
lensku, en hann er nýbúinn að mála
Nóatún í sérstökum gráum lit. „Ég
dytta að húsinu og sé um garðinn,
en lifi annars rólegu lífi. Það gengur
svona.“
Irvin hefur oft verið fljótur að til-
einka sér nýjustu tækni, var til
dæmis með fyrstu mönnum til að fá
sér þráðlausan kjöthitamæli til að
geta fylgst með stöðunni á grillinu.
Hann á tvö um 40 ára gömul reið-
hjól og ætlaði sér að nota annað í
varahluti, en Eric, sonur hans, gaf
honum nýtt hjól á feðradaginn í júní
sl. og það hefur komið sér vel. „Ég
bjóst aldrei við því að eignast svona
flottan grip,“ segir afmælisbarnið
og þakkar fyrir að hafa ekki fengið
rafmagnshjól. „Ég þarf að reyna á
mig til að halda lífi og var kominn
út, þegar þú hringdir.“ Þagnar en
heldur svo áfram: „Ég gat svarað
því ég er að sjálfsögðu með snjall-
úr.“
Hjónin voru oft á Flórída á vet-
urna en Irvin fór hvergi í fyrravetur
vegna kórónuveirufaraldursins og
var það í fyrsta sinn í mörg ár. „Ég
hélt mig bara hér á stað goðanna og
hugsaði um sál og líkama, gat farið í
göngutúra á hverjum degi og hitt
kunningja og vini. Það var allt í fín-
asta lagi, góði minn.“ Hann bætir
við að heilsan sé mjög góð, hann
taki engin lyf og noti gleraugu að-
eins við lestur. „Ég þakka hreystina
góðu vali mínu á foreldrum!“
Irvin var atkvæðamikill í mál-
efnum Vestur-Íslendinga. Hann
stóð meðal annars að byggingu
menningarmiðstöðvarinnar á Gimli,
þar sem Safn íslenskrar menningar-
arfleifðar á Nýja-Íslandi er á jarð-
hæðinni, og var í forystuliði átaks-
ins „Fálkarnir um alla framtíð“ sem
tryggði ólympíumeisturunum verð-
ugan sess í íshokkísögu Kanada.
„Ég er stoltur af verkum mínum og
stoltastur af því að hafa verið
sæmdur fálkaorðunni,“ segir Irvin,
sem hefur heimsótt Ísland, móður-
landið, eins og hann kallar það,
nokkrum sinnum, meðal annars í
boði íslenskra stjórnvalda. Hann á
ættir að rekja til Austfjarða en á
enn eftir að fara þangað. „Kannski
get ég talað Eirík, son minn, inn á
að fara með mér. Þakka þér kær-
lega fyrir að benda mér á það, góði
minn.“
Með tæknina á takteinum
- Irvin Hjálmar Ólafsson er níræður og sprækur sem lækur
Óvæntur hittingur Í afmælisveislunni í Nóatúni, frá vinstri: Victoria
Sparks, James Langridge, Marno Olafson, Eric Olafson, Irvin Hjálmar Olaf-
son, Jaye Olafson, Brent Jervis, Laurie Jervis-Olafson, Nils Broadhurst,
Reyna Jenkyns, Kris Jenkyns-Olafson og Steven Olafson.
Við Winnipeg-vatn Irvin Hjálmar
fer í hjólaferðir þrisvar á dag.