Morgunblaðið - 06.11.2021, Side 24
24 FRÉTTIR
Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. NÓVEMBER 2021
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is
Komdu í BÍLÓ!
Nýskráður 01/2021, ekinn 7 Þ.km, bensín & rafmagn (plug in hybrid, 69 km
drægni), sjálfskiptur. Night pack (Næturpakki) - AMG line innan
og utan - Edition pakki innan og utan - Leðurklætt mælaborð
og hurðaspjöld. Raðnúmer 253247
M.BENZ A 250E AMG LINE EDITION AUDI A3 40 TFSIE NEW
Nýskráður 11/2020, ekinn aðeins, 4 Þ.km, bensín & rafmagn (plug in
hybrid), sjálfskiptur. Stafrænt mælaborð, leiðsögukerfi, S-line, 18“ álfelgur,
S-line sportsæti og stýri, NMI Navigation plus MMI touch. Raðnúmer 253126
0
Þessir síungu strákar eru klárir
í að selja bílinn þinn
Kíktu við, hringd
eða sendu okkur
skilaboð!
Hlökkum til!
Indriði Jónsson
og Árni Sveinsson
u
SKODA Superb iv style +
Nýskráður 07/2020, ekinn 27 þ.km, bensín & rafmagn (plug in hybrid),
sjálfskiptur. Leðursæti, glerþak, Matrix LED ökuljós, sólargardínur afturí,
skynvæddur hraðastillir, stafrænt mælaborð, blindsvæðisvörn, bakkmynda-
vél, hiti í framrúðu og öllum sætum. Raðnúmer 253312
0
áherslu á almannavarnir í Norður-Atlantshafi og á
norðurslóðum. Segir í drögum hans að Norð-
urlöndin séu of lítil hvert um sig til að standa að öfl-
ugum almannavarnabúnaði og hagsmunagæslu
með hliðsjón af þeim miklu breytingum sem nú eiga
sér stað í Norður-Atlantshafi og á norðurslóðum.
Enestam leggur því til að spár um strauma og
stefnur, greiningar, sviðsmyndagreiningar og al-
mannavarnir í Norður-Atlantshafi og á norð-
urslóðum verði langtímaverkefni norræns sam-
starfs, með því markmiði að Norðurlöndin geti í
sameiningu aukið árangursríkar almannavarnir og
hagsmunagæslu á þessu svæði.
Ferðavottorð og vinnulöggjöf
Enestam leggur einnig til að innleitt verði sam-
norrænt ferðavottorð, en slíkt vottorð myndi veita
fólki sem uppfyllir ákveðin skilyrði rétt til að
ferðast á milli Norðurlandanna þegar ferðafrelsi er
takmarkað af ófrávíkjanlegum aðstæðum.
Önnur tillaga Enestams snýr að því að löggjöf og
tvíhliða samningar milli Norðurlandanna verði nú-
tímavæddir. Bendir hann á að á sumum landa-
mærasvæðunum séu engir samningar í gildi á þess-
um sviðum, og þeir samningar sem fyrir eru hafi
ekki verið aðlagaðir að vinnumenningu nútímans.
Norðurlandabúar sem búi í einu landi en starfi í
öðru geti því lent í vandræðum ef þeir ætli að vinna
heiman frá sér í stað þess að fara til vinnu.
Nútímavæðingu löggjafarinnar væri þá ætlað að
koma til móts við þarfir íbúa og atvinnurekenda í
vinnumenningu nútímans með sveigjanlegri sam-
setningu ferða yfir landamæri og fjarvinnu og um
leið að taka tillit til nútímalegra lífshátta þegar íbú-
ar og fjölskyldur geta búið í tveimur eða fleiri nor-
rænum löndum.
Sameiginleg innkaup á bóluefni
Tvær af tillögum Enestams snúa að viðbúnaði
gegn faröldrum, en hann leggur annars vegar til að
Norðurlöndin hefji tilraunaverkefni um sameig-
inleg innkaup á bóluefni gegn inflúensu, en tilgang-
urinn væri að undirbúa sameiginleg innkaup
ríkjanna á öðrum bóluefnum, ásamt öðrum lækn-
ingatækjum og búnaði, til að búa í haginn fyrir heil-
brigðisvá framtíðarinnar. Ástæða þessa er sú að
Norðurlöndin séu lítil hvert um sig á heimsmarkaði
á sviði lækningatækja og búnaðar og megi sín lítils
við samningaborðið.
Enestam leggur einnig til að Norðurlöndin kanni
möguleika á að koma sér upp sameiginlegum við-
búnaðarbirgðum af lækningatækjum og búnaði
ásamt vörum sem mikil þörf yrði á með stuttum
fyrirvara samkvæmt sviðsmynd um hættuástand.
Ástæða þessa er sú að í faraldrinum hafi komið í
ljós að birgðastaða ríkjanna á ýmsum vörum hafi
ekki verið eins góð og menn héldu, og heimsmark-
aðurinn fyrir hluti eins og hlífðarbúnað hafi „hitnað
um of“. Þá hafi norrænu ríkin mátt sín lítils við
samningaborðið, hvert í sínu lagi.
Reynt að bregðast við veikleikunum
AFP
Brúin Sænskur landamæravörður á Eyrarsundsbrúnni gætir þess að enginn komist yfir í desember
2020. Lokanir á landamærum norrænu ríkjanna voru mikið ræddar á þingi Norðurlandaráðs í vikunni.
- Viðbrögð við faraldrinum rædd á þingi Norðurlandaráðs - Einn af hverjum
tíu telur að ríkin hafi unnið vel saman - Tillögur Enestams kynntar fyrir ráðinu
NORRÆNT SAMSTARF
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Eitt af því sem helst var rætt á þingi Norður-
landaráðs, sem haldið var í Kaupmannahöfn í vik-
unni, var hvernig norrænu ríkin hefðu brugðist við
heimsfaraldrinum, og hvernig mætti bæta úr þeim
veikleikum á norrænu samstarfi sem þar hefðu
komið í ljós.
Þar má meðal annars nefna skort á samhæfðum
viðbrögðum, auk þess sem margir lentu í vanda,
þegar ríkin fóru eitt af öðru að loka landamærum
sínum, og skipti þá engu þó að viðkomandi væri t.d.
búsettur í Malmö í Svíþjóð og þyrfti að sækja vinnu
til Kaupmannahafnar í Danmörku eða öfugt.
Bertel Haarder, fráfarandi forseti ráðsins, sagði
að Norðurlöndin hefðu almennt séð staðið sig vel og
tekið margar réttar ákvarðanir, en þó hefðu sumar
verið ekki „eins réttar“ eða jafnvel slæmar. Vísaði
Haarder m.a. til nýlegrar skoðanakönnunar, á veg-
um ráðsins, sem sýndi að aðeins einn af hverjum tíu
íbúum norrænu ríkjanna teldu að löndin hefðu unn-
ið vel saman í faraldrinum.
Almannavarnir til ráðherranna
Norræna ráðherranefndin fékk Jan-Erik Enes-
tam, fyrrverandi varnarmálaráðherra Finnlands,
til þess að skoða þau mál, og kynnti hann drög að
tillögum sínum á þinginu, en endanlegar tillögur
verða lagðar fram síðar í þessum mánuði.
Enestam leggur þar meðal annars til að sam-
starfsráðherrum Norðurlanda verði falin ábyrgð á
norrænu samstarfi um almannavarnir. Segir í
drögunum að skortur sé á skýrri og árangursríki
pólitískri stjórnun norræns samstarfs um almanna-
varnir, og að sést hafi í faraldrinum að pólitískar
ákvarðanir hafi verið teknar að „miklu leyti án
nokkurs samráðs eða samhæfingar milli norrænna
stjórnvalda“. Þar mætti því bæta úr, annars vegar
með því að stofna sérstaka ráðherranefnd, og hins
vegar með því að veita samstarfsráðherrunum
óskoraða ábyrgð á málaflokknum, og mælir Enes-
tam með þeirri leið.
Enestam leggur einnig til að stofnuð verði nor-
ræn almannavarnasveit, en verkefni hennar yrði
m.a. að „þróa samstarf um viðvaranir, greiningar
og bráðabirgðasviðsmyndir víða um heim sem
gætu leitt til ýmiss konar hættu“, sem og „að skil-
greina og uppfæra stöðugt sviðsmyndir fyrir al-
mannavá, til að mynda heimsfaraldra, óveður, flóð,
skógarelda, stórfellda fólksflutninga og strauma
flóttafólks“, á sama tíma og sveitin myndi einnig
uppfæra áætlanir og handbækur fyrir þær sviðs-
myndir.
Enestam leggur einnig til að Norðurlöndin auki
Sænski umhverf-
issinninn Greta
Thunberg sagði í
gær að loftslags-
ráðstefna Sam-
einuðu þjóðanna,
COP26, sem nú
fer fram í Glas-
gow væri mis-
lukkuð.
Thunberg
flutti ræðu á mótmælum í Glasgow í
gær þar sem þúsundir ungra um-
hverfissinna kvörtuðu undan hæga-
gangi í aðgerðum gegn loftslags-
vánni.
Sagði Thunberg að loforð sumra
ríkja á ráðstefnunni um að hraða
aðgerðum sínum væru einungis
kattarþvottur, og að ráðstefnan
snerist meira um að „grænþvo“ sig
en að finna lausnir.
Gert er ráð fyrir enn stærri mót-
mælum í dag, en aðstandendur
þeirra eiga von á allt að 50.000
manns til Glasgow.
Segir ráðstefnuna
vera mislukkaða
Greta Thunberg
SKOTLAND
Forsvarsmenn
bandaríska lyfja-
risans Pfizer
lýstu því yfir í
gær að lyfjapróf-
anir á nýju veiru-
lyfi, paxlovid,
gegn kórónuveir-
unni hefðu sýnt
fram á mikla
virkni þess. Lyfið er í pilluformi,
sem gæti einfaldað meðferð Co-
vid-19-sjúkdómsins til mikilla muna,
en samkvæmt prófununum voru 89%
minni líkur á því að sjúklingur sem
tók inn lyfið myndi þurfa að leita á
sjúkrahús eða deyja af völdum veir-
unnar. Ætlar Pfizer að sækja um
neyðarheimild til bandarísku mat-
væla- og lyfjastofnunarinnar FDA
fyrir lok þessa mánaðar.
Lyfjafyrirtækið Merck varð fyrst
til þess að þróa lyf gegn kórónu-
veirunni í töfluformi, molnupiravir,
en breska lyfjaeftirlitið samþykkti í
fyrradag notkun þess í Bretlandi,
fyrst allra ríkja.
Nýtt veirulyf lofar
góðu gegn Covid-19
Kórónuveirupillur
BANDARÍKIN
Der Spiegel greindi frá því í gær að
rússneskur sendiráðsfulltrúi hefði
fundist látinn við sendiráð Rúss-
lands í Berlín hinn 19. október síð-
astliðinn. Virtist sem maðurinn
hefði dottið úr glugga á sendiráðs-
byggingunni.
Þýska utanríkisráðuneytið stað-
festi í gær að málið væri „á vitorði“
þess, en gaf engar frekari skýr-
ingar. Þá sagði rússneska sendiráð-
ið að andlát mannsins hefði verið
sorglegt slys. Búið væri að senda
lík mannsins aftur heim til Rúss-
lands í samráði við þýsk yfirvöld.
Þá tók sendiráðið sérstaklega fram
að „vangaveltur“ sem hefðu birst í
nokkrum vestrænum fjölmiðlum
um það hvernig andlát mannsins
bar að höndum væru algjörlega
rangar.
Í frétt Der Spiegel kom fram að
maðurinn hefði verið næstráðandi
skrifstofustjóra sendiráðsins. Hins
vegar sagði í grein tímaritsins að
þýsk yfirvöld teldu að maðurinn
hefði einnig verið útsendari fyrir
FSB, rússnesku leyniþjónustuna.
AFP
Berlín Sendiráð Rússa sagði að andlát mannsins hefði verið hörmulegt slys.
Féll út um glugga
sendiráðsins í Berlín