Morgunblaðið - 06.11.2021, Qupperneq 33
Takk fyrir allar góðu minn-
ingarnar sem þú hefur gefið
mér.
Takk fyrir alla ísana, það
klikkaði ekki þegar þú komst
inn í Brekkuna og ég sat þar að
dunda mér meðan ég beið eftir
mömmu eða pabba, þá komst
þú til mín og spurðir mig hvort
ég vildi velja mér ís, það skipti
ekki máli þó ég væri með ein-
hverri vinkonu minni, þá
bauðstu okkur bara báðum ís.
Þó ísunum hafa fækkað í gegn-
um árin fannst mér alltaf jafn
gaman að fá ís frá ömmu.
Takk fyrir að leyfa mér að
gista hjá ykkur afa þegar
mamma og pabbi fóru til Te-
nerife og allar góðu minning-
arnar sem við áttum saman
þegar við vorum bara við tvær
og fórum að vinna á gámavell-
inum á laugardögum. Mér
fannst alltaf gaman að fá að
koma með þér, sérstaklega að
opna gámana og fá að kíkja of-
an í.
Takk fyrir öll góðu og upp-
byggjandi samtölin sem við höf-
um átt í gegnum árin.
Takk fyrir að hafa verið
amma mín.
Ég elska þig.
Kveðja Dísin þín.
Hanna Dís.
Elsku besta Dagga mín.
Ég tel mig mjög heppna að
hafa haft þig í mínu lífi. Börnin
mín heppin að eiga þig fyrir
ömmu. Þú óðst eld og brenni-
stein fyrir okkur öll.
Langar að segja smá sögu úr
lífi okkar frá því við vorum
tengdamæðgur, þetta var ca.
árið 2008. Þú kemur í Brekkuna
og við erum að spjalla, svo fer
ég að spá hvort ég hafi átt að
gera eitthvað fyrir þig, en nei,
þú komst bara til að hitta mig
og spjalla. Þá var ég agalega
fyndin og segi „…já, auðvitað
komst þú bara til að hitta uppá-
haldstengdadóttur þína, ha ha,
ha. Æ, nei, ég er eina tengda-
dóttir þín.“ Eftir þennan brand-
ara talaðir þú alltaf um mig sem
uppáhaldstengdadóttur þína,
líka þó svo að við sonur þinn
værum skilin. Þú tilkynntir mér
eftir skilnaðinn að þú og Jón
þinn væruð ekki að skilja við
mig og mikið var (og er) ég feg-
in að eiga ykkur hjónin að vin-
um, já, og áframhaldandi auka-
foreldra.
Takk fyrir öll samtölin, hjálp-
ina, þessi rúmu 30 ár af vináttu
og minningum sem ég mun bera
í hjarta mínu um alla framtíð.
Þín
Rósmarý.
Elsku frænka. Alltaf hafðir
þú tíma, alltaf var pláss fyrir
mann hvort sem það var að fá
að gista eða við matarborðið.
Öllu var reddað, man þegar ég
var hjá þér yfir páska sem var
oftar en ekki og sparifötin voru
ekki með og það var veisla
framundan, þá var því snarlega
reddað og oftar en ekki þá fór-
um við frænkurnar svo til eins í
veisluna. Já, elsku móðursystir,
takk fyrir allt sem þú kenndir
mér, allt sem þú leiðbeindir mér
með. Ég er þér ævinlega þakk-
lát fyrir að hafa sagt mér frá
nöfnu þinni hérna í eyjum en
eina sem þú baðst mig um í
sambandi við hana að ég myndi
heimsækja hana fyrst ég væri
nú að fara til eyja. Nafna þín
var einstök eins og þú sjálf. Þó
svo að við hefðum ekki átt
margar samverustundirnar síð-
ustu ár þá veit ég að þú fylgdist
vel með okkur hérna í eyjum.
Elsku Jón, Sverrir, Valborg,
Björgólfur, Guðlaugur, Sunna
Karen og fjölskyldur, mínar
dýpstu samúðarkveðjur til ykk-
ar allra.
Elsku Dagga hafðu þökk fyr-
ir allt og allt. Hvíldu í friði mín
kæra.
Þín
María S. Sigurbjörnsdóttir.
MINNINGAR 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. NÓVEMBER 2021
✝
Skúli Lýðsson
fæddist á Keld-
um á Rangárvöll-
um 7. ágúst 1947.
Hann lést á Hjúkr-
unarheimilinu
Lundi á Hellu 19.
október 2021. Móð-
ir hans var Jónína
Jónsdóttir, ljós-
móðir á Keldum.
Faðir Skúla var
Lýður Skúlason
bóndi á Keldum. Systkini Skúla
eru: Svanborg Lýðsdóttir og
Jóna Þórunn Lýðsdóttir.
24. ágúst 1969 kvæntist Skúli
Drífu Hjartardóttur, f. 1. febr-
úar 1950, fyrrum alþingismanni
og bónda. Drífa er dóttir Hjart-
ar Hjartarsonar og Jensínu
Guðmundsdóttur kaupmanna.
Börn Skúla og Drífu eru: 1)
Lýður Skúlason, m. Una Guð-
laugsdóttir, börn þeirra eru:
Viktor Berg og
Drífa. 2) Hjörtur
Skúlason, m.
Ragna Sól V.
Steinmüller. 3)
Skúli Skúlason, m.
Melkorka Mjöll
Kristinsdóttir,
börn þeirra eru:
Guðmundur og Jón
Ari.
Skúli var bóndi
á Keldum í 53 ár
og rak þar stórbú til haustsins
2021 er hann brá búi. Skúli á
langt starf skógræktar og land-
græðslu að baki og hlaut land-
græðsluverðlaunin 2009, stofn-
aði kornfélagið Ax og var þar
lengstum stjórnarformaður,
Skúli var til dánardags í sókn-
arnefnd Keldnakirkju.
Útförin fer fram frá Keldna-
kirkju í dag, 6. nóvember 2021,
klukkan 14.
Afi hafði alltaf sögur að segja,
segja sonarsynirnir. Afi var með
hjarta úr gulli, bæta þeir við. Þeg-
ar afi hló þá komu tár. Við munum
eftir að hafa farið með honum í
traktorinn, ná í rúllu og gefa kvíg-
unum, þegar hann hafði enn
heilsu til.
Þetta voru stórar holdakvígur.
Þær áttu sviðið fyrir framan eld-
húsgluggann, en þar var áður
svartur sandur sem Skúli og Drífa
græddu upp á sinni búskapartíð.
Á hverjum degi bæði vakti
Hekla yfir þeim og ógnaði öllu
þeirra striti við að verjast sand-
inum.
Moðið úr fjósinu var keyrt,
einni traktorsskúffu á dag, út í
hraunið, sem grænkaði á heilli
mannsævi.
Þar biðu kvígurnar eftir afa og
strákunum, sleiktu út um, mjök-
uðu sér og stóðu alltaf fyrir gjafa-
grindinni.
Hann tók við búinu sem barn
og skilaði því í ellinni. Hann mætti
alltaf snemma en gerði ekki sömu
kröfur til annarra. En þó að hann
ynni stanslaust, stoppaði aldrei
við og hafði oft á orði að hann hefði
ekki tíma til að snúa sér við, þá var
hann alltaf til staðar. Hann fékk
oft tár í augun þegar hann talaði
við barnabörnin og var afar stolt-
ur af konunni sinni henni Drífu.
En afi gamli, þú sem hafðir allt-
af sögur að segja, hér eru sögur af
þér.
Skúli hafði óþrjótandi þolin-
mæði fyrir öllu lífi. Til dæmis fékk
hann eitt árið hund sem var mikið
óargadýr. „Það verður að lóga
honum!“ sagði fólk. En Skúli sagði
„þetta eldist af honum“. Og árin
liðu. Á endanum hafði Skúli rétt
fyrir sér. Þegar hundurinn var
orðinn örkumla af elli, þá róaðist
hann skyndilega, hætti að nenna
að ganga og dó.
Hann gerði það sem aðrir
sögðu að væri ekki hægt. Það var
til dæmis almenn skoðun að það
væri ekki hægt að rækta sex raða
bygg á Suðurlandi. Skúli lét ekki
segja sér það, sáði sex raða byggi
og fékk toppuppskeru.
Hann fór oft með syni sína til að
kveikja í sinu og hélt því áfram
eftir að þeir voru flognir úr hreiðr-
inu. Hann sagðist vera að kveikja í
fyrir grasið. Þessu linnti ekki fyrr
en bæði lögreglan og slökkviliðið
mættu á svæðið. Þá sagði hann
svellkaldur að hann hafi verið að
fá sér vindil og misst hann í sin-
una. Drífa var ekki par ánægð
með þetta.
Hann hafði gríðarlegan vilja-
styrk og þolinmæði og lætur nú
eftir sig uppgrætt land, stóran
landgræðsluskóg og fjölskyldu
sem veit að hún hefur misst mikið.
...
bóndi er bústólpi,
bú er landstólpi,
því skal hann virður vel.
(Jónas Hallgrímsson)
Skúli Skúlason, Melkorka Mjöll
Kristinsdóttir, Guðmundur
Skúlason og Jón Ari Skúlason.
Ég hitti afa allt of sjaldan og er
það ávallt á stundu sem þessari
sem maður hugsar til baka og vildi
óska þess að maður hefði gert eitt-
hvað öðruvísi. Hringt eitt símtal í
viðbót, farið í eina heimsókn enn.
Ég er full eftirsjár að hafa ekki
hitt elsku afa minn oftar og fyllist
söknuðar.
Afi var frábær maður. Þegar ég
hugsa til baka finnst mér eins og
ég og hann höfum átt okkar ómeð-
vitaða einkahúmor sem var sjald-
gæfur en dýrmætur. Ein ástkær
minning sem ég á um elsku afa er
þegar við sátum í kaffitímanum í
sveitinni að snæða góðgæti sem
amma hafði bakað. Afi tók upp
smjörhnífinn, smurði sér brauð en
setti hnífinn síðan ofan í sultu-
krukkuna og tók hann sjálfur ekki
eftir því. Skrýtin minning eflaust,
en hún lýsir þeim afa sem ég
þekkti. Fyndinn maður sem hann
var. Eitt það skemmtilegasta sem
við afi gerðum saman var að
smala. Við smöluðum fénu í sveit-
inni ótal sinnum og var hann alltaf
að passa upp á það að ég hlypi
ekki í gilið. Hann sagði mér sögur
og röbbuðum við saman um margt
og mikið.
Ég elskaði afa minn og ég veit
að það var gagnkvæmt. Afi var
ekki mikið að tjá tilfinningar sínar
en amma var dugleg að segja mér
hvað hann talaði fallega um mig
og þótti mér mjög vænt um að
heyra það. Ég vildi óska þess að
ég gæti fengið að hitta afa bara
einu sinni enn þar sem langt er
síðan ég sá hann og náði ég ekki
að kveðja. Þetta er víst gangur
lífsins og ég veit að afi er eflaust
strax farinn að smala fé og keyra
um alla sveitina á traktornum.
Takk fyrir allt elsku afi, ég elska
þig.
Drífa Lýðsdóttir.
Af bæjarhlaði Keldna sér hátt
og vítt um veg. Í hlaðinu er eitt
helsta sýnilega djásn Íslandssög-
unnar, Keldnabærinn og aðrar
fornmenjar. Um miðja mynd sjást
annars vegar varnargarðar fram-
sækinna forfeðra, grjóthleðslur,
til að verjast sandfoki aldanna en
hins vegar gleður augað glæsileg-
ur árangur af sóknarleikjum ábú-
enda, grænar grundir og stækk-
andi skógur. Lengra upp af ber
Heklu við himin og minnir á að
stundum má sín lítils vörn okkar. Í
austri rís röðull og roðar ský loft-
hjúpsins, vermir huga og hönd
bóndans og gefur döggvuðum
gróðri jarðar fjörlausn. Ráðs-
mennska í þessari tignu veröld er
frátekin fyrir þá eina sem eru til-
búnir að vernda og verja það sem
er huganum heilagt og hjartanu
næst. Slíkir samverkamenn skap-
arans helga ættjörðina með striti
sínu og sinna.
Drifkraftur þeirra var náð sem
fékkst fyrir trúnað við sköpunar-
verkið. Verkfæri þeirra voru arf-
bornir eiginleikar, eljulund, áræði
og seigla. Þetta skýrir hvers
vegna liðnar kynslóðir komust í
gegnum reglubundnar hamfarir.
Að launum uppskáru þær þolin-
mæði og fyrirheitaþrungnar vor-
nætur og að vakna til verka við
hanagal og að njóta sólfagurra
daga, sem ilmuðu af töðu og mó-
reyk úr hlóðum bæjanna. Þarna
var Skúli Lýðsson. Laun hans
voru ekki þessa heims.
Í Skúla kynntist ég fulltrúa
veraldar sem var. Hann hafði óbil-
andi trú og þolinmæði gagnvart
landinu, fólkinu og dýrunum.
Hann var ekki orðmargur en þeim
mun viskuríkari í því sem hann
varpaði fram. Til að annast um fé-
lagsleg tengsl og áhrif hafði hann
heilan þingmann, eiginkonu sína,
Drífu Hjartardóttur, sem ítrekað
hefur verið valin til forystu um
málefni samtíðarinnar, nú síðast
er henni var skipað til forsætis í
æðstu stjórn þjóðkirkjunnar.
Skúli hafði langtímahugsun og
sá landgræðslu sem viðvarandi
vinnusemi. Hann var geðgóður og
jafnvel þegar hann var orðinn
veikur hló hann oft innilega og
naut samfélags við fjölskylduna.
Hann var mjög vinnusamur en
hafði samt nægan tíma fyrir aðra.
Þrjóskan var innra með honum og
birtist að íslenskum hætti í verk-
um hans. Hann var enginn dipló-
mat. Hann vissi hvað hann vildi og
framkvæmdi það án mikillar um-
ræðu. Hann vildi þó öllum gott og
allt fyrir alla gera og gerði mörg-
um til góða án þess að tala um það
eða miklast af.
Í veikindum sínum fylgdist
hann vel með því sem efst var á
baugi. Fyrst og fremst dvaldi hug-
urinn við Keldur, fjölskylduna og
náttúru landsins. Drífa reyndist
honum alla tíð ómetanleg hjástoð
og þegar þyngra varð undir fæti
gat hann í öllu treyst á hana. Það
reyndist honum líkn með þraut.
Sumir kjósa sér byggð í
brekkuskjóli, aðrir vilja sjá vítt til
og lifa sem lengstan dag í ljósi sól-
ar. Og ekki mun Þorkell máni einn
um það íslenskra manna, að vilja
að leiðarlokum fela önd sína þeim
guði sem sólina skóp. Þeim guði
felum við Skúla Lýðsson og minn-
umst hendingar bóndans Guð-
mundar Inga Kristjánssonar sem
hefði getað verið lífsjátning Skúla.
Þú átt að vernda og verja,
þó virðist það ekki fært,
allt, sem er hug þínum heilagt
og hjarta þínu kært.
Kristinn Ágúst Friðfinnsson
og Anna Margrét Guðmunds-
dóttir.
Kær vinur, félagi og nágranni
er látinn.
Margs er að minnast þegar litið
er yfir farinn veg samskipta okkar
Skúla á Keldum. Að leiðarlokum
er okkur efst í huga söknuður og
þakklæti fyrir áratuga langa vin-
áttu og heilladrjúgt samstarf og
samskipti.
Skúli var gæddur miklum
mannkostum, góðum gáfum, ein-
staklega hógvær og vinafastur,
sannur Íslendingur. Hann kom til
dyranna nákvæmlega eins og
hann var klæddur og tjáði skoð-
anir sínar umbúðalaust. Líf og
störf Skúla tengdust með afger-
andi hætti landbúnaði og búskap
með kýr og kindur og sannur
bóndi og bústólpi. Hann var haf-
sjór af fróðleik um sögu Keldna og
Rangárvalla og var stálminnugur.
Það var hrein upplifun að fá að
koma til hans með innlenda og er-
lenda gesti og nema af visku-
brunni hans um gömlu húsin á
Keldum og sögu jarðarinnar.
Það var mikil gæfa fyrir Skúla
þegar Drífa Hjartardóttir kom til
sumardvalar á Keldum ung að ár-
um. Þau felldu hugi saman og
deildu æviveginum um áratuga
skeið. Þau voru miklir höfðingjar
heim að sækja og gaman að ræða
við þau um þjóðmálin og landið
okkar. Þau voru einstaklega dug-
leg við að rækta Keldnajörðina
sem var einstaklega illa leikin af
uppblæstri og gróðureyðingu.
Saman græddu þau upp og stuðl-
uðu að uppgræðslu í samvinnu við
Landgræðsluna þúsundir hektara
af örfoka landi og fylgdu því eftir
með plöntun á rúmlega tveimur
milljónum trjáplantna í hluta af
uppgræðslusvæðunum. Segja má
að Skúli hafi lifað fyrir jörðina
sína og þau hjónin skila henni
margfalt betri en þau tóku við
henni. Okkur hjónunum er minn-
isstætt þegar Oddný var eitt sinn
að ræða við Jónínu móður Skúla
um dugnaðinn og eljuna í syni
hennar og þá svaraði hún að
bragði. „Drífa er nú líka dugleg.“
Á síðustu árum hefur Skúli bar-
ist við illvígan taugasjúkdóm og
sýnt einstakt æðruleysi og Drífa
hefur barist með honum af ástúð
og umhyggju. Skúli var einn minn-
isstæðasti persónuleiki sem við
höfum kynnst og það var okkur
heiður að fá að starfa með honum
og eiga við hann samskipti. Öll
voru þau á einn veg, hann var
traustur félagi, hreinn og beinn.
Það voru forréttindi að kynnast
honum og minningin um góðan
dreng lifir.
Drífa, börn og fjölskyldur, aðr-
ir ættingjar og vinir kveðja nú
mikilhæfan mann með söknuði og
þakklæti fyrir að hafa fengið að
njóta samvistanna við hann. Við
biðjum þeim Guðs blessunar og
vottum þeim okkar dýpstu samúð.
Megi almættið, sem leiðir okkur
og alla þá er hjarta þitt sló fyrir,
leiða þig í sólina kæri vinur.
Oddný Sæmundsdóttir,
Sveinn Runólfsson.
Með vinsemd og virðingu vil ég
minnast Skúla Lýðssonar
Skúli er einn af áhrifavöldum í
mínu lífi og minningarnar um
Skúla á Keldum eru svo margar
ljúfar og góðar, en Skúla kynntist
ég fyrst þegar ég réði mig í sum-
arvinnu á Keldum aðeins 13 ára
gamall.
Þrátt fyrir ungan aldur þá sá ég
og fann hversu mikill og góður
maður Skúli var strax við fyrstu
kynni, handartakið þétt og hlýtt,
brosið beint frá hjartanu og ein-
stök nærvera.
Fyrir óharðnaðan unglinginn
með lítið sem ekkert verksvit þá
kenndi Skúli mér réttu handtökin
með sinni einstæðu þolinmæði og
rólyndi. Eitt af því sem Skúli lagði
mikla áherslu á var að öll störf
skipta jafn miklu máli, stór eða
smá, og að öll verk skuli inna af
hendi með natni og virðingu og
hef ég búið að þessum auði alla
mína ævi.
Frá dvöl minni á Keldum á ég
mínar bestu æskuminningar og er
ekki hægt að minnast Skúla án
þess að hafa Drífu með, því fyrir
mér voru þau hjón ein heild.
Hver dagur á Keldum var
skemmtilegt ævintýri og leið tím-
inn þar alltof hratt fyrir borgar-
barnið sem vildi helst ekki fara
aftur í stórborgina, því á Keldum
leið mér alltaf eins og heima.
Eftir þrjú sumur á Keldum tók
við ný framtíð, nám og ný vinna,
en vinskapurinn sem ég hafði
eignast við þau heiðurshjón
breyttist aldrei í mínum huga og í
hvert skipti sem ég heimsótti
Keldur var tilhlökkunin alltaf jafn
mikil að hitta Skúla og Drífu.
Þrátt fyrir að samskiptin hefðu
minnkað með árunum þá líður
vart sá dagur að hugurinn leitaði
ekki til Keldna og dvalarinnar þar
á bæ og hafa minningarnar frá
Keldum ávallt veitt mér jafn
mikla gleði og yl í hjarta.
Með þakklæti í huga, vinsemd
og virðingu kveð ég Skúla úr þess-
ari jarðvist, en minningarnar um
góðan vin geymi ég í hjarta mínu
um ókomna tíð.
Elsku Drífa og fjölskylda, votta
ykkur mínar allra dýpstu samúð.
Ólafur (Óli) Geir.
Skúli Lýðsson
Útför í kirkju
Stuðningur
og sálgæsla
þegar á reynir
utforikirkju.is
Minningarkort á
hjartaheill.is
eða í síma 552 5744
Sálm. 86.7
biblian.is
Þegar ég er í
nauðum staddur
ákalla ég þig
því að þú
bænheyrir mig.
Við aðstoðum þig við gerð viljayfirlýsingar
um útför þína af nærgætni og virðingu
– hefjum samtalið.
Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is
Hinsta óskin