Morgunblaðið - 29.11.2021, Qupperneq 10
10
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. NÓVEMBER 2021
Rafstilling ehf
Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is
Opið mán.-fim. kl. 8-17, fös. kl. 8-14
Hröð og góð þjónusta um allt land
Áratuga
reynsla
Startar bíllinn ekki?
Við hjá Rafstillingu leysum málið
Ónægju gætir meðal sjálfstæðis-
manna í Suðurkjördæmi vegna ráð-
herraskipanar en í gær varð ljóst að
oddviti Suðurkjördæmis, Guðrún
Hafsteinsdóttir, fær ekki að gegna
embætti innanríkisráðherra fyrr en
eftir 18 mánuði hið mesta. Enginn
annar úr kjördæminu fær ráðherra-
stöðu.
Stjórnir fulltrúaráða sjálfstæðis-
félaganna í Reykjanesbæ, Vest-
mannaeyjum, Árnessýslu, Austur-
Skaftafellssýslu, Gullbringusýslu og
Grindavík sendu í gær frá sér sam-
eiginlega yfirlýsingu. „Vægi lands-
byggðarinnar er vægast sagt fyrir
borð borið með úthlutun ráðherra-
stóla í komandi ríkisstjórn. Sjálf-
stæðisflokkurinn gefur sig út fyrir
að vera flokkur allra landsmanna og
ætti að sýna það í gjörðum sínum.“
Segir þar einnig að það að veita
Guðrúnu Hafsteinsdóttur ráðuneyti
einungis hluta kjörtímabilsins hafi
verið eins og blaut tuska í andlitið á
þeim þúsundum kjósenda Sjálfstæð-
isflokksins í Suðurkjördæmi og öll-
um þeim hundruðum sjálfboðaliða
sem tóku þátt í að tryggja glæst
gengi flokksins.
Þá sendu formenn félaga ungra
sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi
frá sér ályktun í gær þar sem tekið
var í sama streng og minnst á að í
síðastliðnum kosningum hafi listi
Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjör-
dæmi hlotið gífurlegan stuðnings og
eignast þar fyrsta þingmann kjör-
dæmisins en þess megi geta að odd-
viti sjálfstæðisflokksins hafi fengið
meiri stuðning en formaður Fram-
sóknarflokksins.
Óánægja í
Suðurkjördæmi
Veronika Steinunn Magnúsdóttir
Ari Páll Karlsson
Heiðrún Lind Marteinsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í
sjávarútvegi, ætlar að leyfa sér að
vera bjartsýn fyrir hönd sjávarút-
vegsins. Í stjórnarsáttmála nýrrar
ríkisstjórnar er kveðið á um nefnd
sem mun fjalla um framtíð sjávarút-
vegsins og m.a. fjalla um hvernig
hægt sé að auka gagnsæi í rekstri
fyrirtækja í sjávarútvegi og þá sér-
staklega meðal stærstu fyrirtækja
landsins. Svandís Svavarsdóttir tek-
ur við stjórnartaumunum í sjávarút-
veginum, sem og landbúnaðar- og
matvælamálum. Spurð hvort hún
sjái breytingar á fiskveiðistjórnun-
arkerfinu í sjónmáli segir Heiðrún:
„Í aðdraganda kosninga töluðu all-
ir flokkarnir þrír um að íslenska fisk-
veiðistjórnunarkerfið hafi borið góð-
an ávöxt og í samanburði við aðrar
þjóðir værum við með eitt besta fisk-
veiðistjórnunarkerfi í heimi,“ segir
hún en að því leytinu til finnist henni
minna máli skipta hvaða ráðherra
skipast í embættiið, sé ríkisstjórnin
einhuga um þessa afstöðu, enda fel-
ist í henni heilbrigð skynsemi.
Hún óttast þá að beðið verði með
að skapa heildstæða framtíðarsýn
fyrir sjávarútveginn með skipun
nefndar, sem fær það verkefni að
kortleggja áskoranir og tækifæri í
sjávarútvegi, og meta þjóðhagslegan
ávinning fiskveiðistjórnunarkerfis-
ins.
„Áherslan virðist vera á að auka
samkeppnishæfni og leita leiða til að
ná frekari árangari með fiskveiði-
stjórnunarkerfið,“ segir hún en að
því leytinu til sé sleginn jákvæður og
uppbyggilegur tónn í stjórnarsátt-
málanum.
Halldór Benjamín Þorbergsson,
framkvæmdastjóri Samtaka at-
vinnulífsins, segir ánægjulegt að hafi
ákvæði um að efla embætti ríkissátt-
arsemjara, hafi loks verið sett í
stjórnarsáttmálann. Kjaramálin
verði í brennidepli á næstunni og því
mikilvægt að huga að þessum þætti.
„Síðan eru fleiri þættir í stjórn-
arsáttmálanum sem vekja athygli og
eftirtekt, til að mynda ákvæði um
lögfestingu 15,5% iðgjalda í lífeyris-
sjóði. Nokkur þing hafa ekki klárað
það mál,“ segir hann. Komið verður
á fót standandi gerðardómi, sem
mun auka fyrirsjáanlega og bæta
verklag embættisins.
Margt loðið í sáttmálanum
Drífa Snædal, formaður ASÍ, seg-
ist fagna því að komið hafi á fót nýr
ráðherra vinnumarkaðsmála. „Þó að
ég geri mér ekki alveg grein fyrir
hverju það breytir. Annars finnst
mér mjög margt loðið í stjórnarsátt-
málanum, sem þarfnast frekari skýr-
inga,“ segir Drífa í samtali við Morg-
unblaðið. Það sé aðallega það sem
snýr að vinnumarkaðnum og hús-
næðismálum.
„Margt af þessu eru endurunnin
loforð frá yfirlýsingum stjórnvalda í
tengslum við kjarasamningana 2019,
og í raun útvötnuð loforð frá þeim
tíma,“ segir hún og bætir við að enn
sé nokkuð óljóst hverjir fara með
hvaða ráðuneyti og hvaða mála-
flokka.„Þannig mér finnst þetta
vekja upp fleiri spurningar heldur en
svör,“ segir Drífa að lokum.
Skiptar skoðanir á stjórnar-
sáttmála ríkisstjórnarinnar
- Heiðrún Lind leyfir sér að vera bjartsýn- Drífa Snædal segir margt loðið
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ríkisstjórnin Í stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar eru ýmsar breytingar
boðaðar og sitt sýnist hverjum um þær. Fyrsti ríkisráðsfundur fór fram í gær.
Þóra Birna Ingvarsdóttir
thorab@mbl.is
Stjórnarsáttmálinn rímar vel við
áherslur flokkanna í kosningabarátt-
unni að mati Stefaníu Óskarsdóttur
stjórnmálafræðings. Heilt yfir þykir
henni sáttmálinn einkennast af bjart-
sýni og sóknarhug. Samhljómur sé
um mikilvægi orkuskipta, þess að
draga úr losun og styrkja nýsköpun
til þess að auka fjölbreytni atvinnu-
lífsins. Þá sé áhersla á samráð ein-
kennandi fyrir stjórnarsáttmálann.
Sérfræðinganefnd
í stjórnarskrármálið
Það vakti athygli Stefaníu að í þeim
hluta sem fjallar um vinnu við breyt-
ingar á stjórnarskrá, sé talað um að
skipa þurfi nefnd sérfræðinga, sem
ekki var kveðið á um í fyrri stjórn-
arsáttmála þess-
ara flokka.
Í fyrri stjórn-
arsamstörfum
hafi verið talað
um nefndir með
fulltrúum þing-
flokkanna eða þá
vísað til almanna-
samráðs en nú sé
fyrst talað um
sérfræðinga.
Þá tók hún einnig eftir því að út-
lendingamál flytjast úr dóms-
málaráðuneytinu yfir í félagsmála-
ráðuneytið og að áhersla sé lögð á
mikilvægi þess að taka vel á móti út-
lendingum og efla íslenskukennslu.
Talsverð uppstokkun varð á ráðu-
neytum og málefnum milli þeirra.
Stefanía telur þessa endurskipulagn-
ingu sýna sóknarhug. Það kunni þó
að verða hausverkur að færa verk-
efnin milli ráðuneyta. „Þetta eru ekki
bara verkefni heldur líka fólkið sem
vinnur þau.“
VG ekki raddlaus
Stefanía tekur ekki undir með for-
mönnum stjórnarandstöðunnar, að
Vinstri græn séu raddlaus í hinni
nýju ríkisstjórn. Hlutverk þeirra sé
ekki síður stórt en áður þó að heil-
brigðisráðuneytið færist yfir til
Framsóknarflokksins.
Sjávarútvegs- og landbún-
aðarráðuneytin séu burðarráðuneyti,
sérstaklega ef ráðast á í endurskoðun
á lögum um stjórn fiskveiða. Þá sé
einnig búið að efla félagsmálaráðu-
neytið með því að færa útlendinga-
málin og vinnumarkaðsmálin þangað.
„Svo er auðvitað Katrín forsætisráð-
herra,“ segir Stefanía að lokum.
Morgunblaðið/Eggert
Uppstokkun Katrín Jakobsdóttir og Bjarni Benediktsson eru þau einu sem halda sama titli og á fyrra kjörtímabili.
Bjartsýni og sóknarhugur
- Samráðsáhersla - Flutningur útlendingamála til félags-
málaráðuneytisins - VG beri ekki skarðan hlut frá borði
Dr. Stefanía
Óskarsdóttir
Ný ríkisstjórn tekur við
Þingmennirnir Óli Björn Kárason,
þingmaður Sjálfstæðisflokks í Suð-
vesturkjördæmi, og Ingibjörg Ólöf
Isaksen, þingmaður Framsókn-
arflokks í Norðausturkjördæmi,
voru í gær valin af þingflokkum sín-
um til þess að gegna stöðu þing-
flokksformanna á kjörtímabilinu
sem nú er að hefjast.
Óli Björn tekur við formennsk-
unni í þingflokki Sjálfstæðismanna
af Birgi Ármannssyni, sem verður
næsti forseti Alþingis.Ekki var kjör-
ið í stöðu varaformanns eða ritara
þingflokksins á fundi hans í gær-
morgun, en gengið verður frá þeim
stöðum á næstunni samkvæmt heim-
ildum blaðsins. Óli Björn hefur setið
á þingi frá árinu 2016, en hann sett-
ist fyrst á þing sem varaþingmaður
árið 2010.
Ingibjörg Ólöf er oddviti Fram-
sóknarflokksins í Norðaust-
urkjördæmi en hún er ný á þingi.
Þórunn Egilsdóttir heitin var for-
maður þingflokks framsóknarmanna
á síðasta kjörtímabili.
Óli Björn
Kárason
Ingibjörg Ólöf
Isaksen
Óli Björn og
Ingibjörg ný-
ir formenn