Morgunblaðið - 29.11.2021, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 29.11.2021, Blaðsíða 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. NÓVEMBER 2021 ✝ Bergþóra Jónsdóttir fæddist á Akureyri þann 28. júní 1929. Hún lést á Hjúkr- unarheimilinu Lög- mannshlíð 18. nóv- ember 2021. Foreldrar Berg- þóru voru Jón Pálsson trésmiður frá Hallgilsstöðum Arnarneshreppi, f. 29. mars 1885, d. 20. desember 1972, og Kristín Eiríksína Ólafsdóttir, fædd í Nef- staðakoti í Fljótum 6. júlí 1901, d. 3. ágúst 2002. Bróðir Berg- þóru var síra Arngrímur Jóns- son, f. 3. mars 1923, d. 25. febrúar 2014. Bergþóra fæddist og ólst upp í Aðalstræti 32 í Fjörunni á Akureyri. Hún gekk í Barna- skóla Akureyrar og Gagn- fræðaskólann, þaðan sem hún lauk gagnfræðaprófi og síðar Húsmæðraskólanámi. Hún stundaði ýmis störf meðfram Ólöfu Sæmundsdóttur mynd- listarkonu, þau skildu. Þeirra synir: a) Ólafur f. 12. febrúar 1981, d. 29. október 2001. b) Eyjólfur f. 16. janúar 1991. 2) Kristinn rafiðnfræðingur á Ak- ureyri f. 28. maí 1959, kvæntur Eddu Sigrúnu Friðgeirsdóttur verslunarmanni, f. 2. apríl 1958. Þeirra synir eru: a) Björn, f. 16. september 1979, kvæntur Elisu Paloni, f. 8. júní 1976, þeirra börn: a1) Aurora f. 6. apríl 2011. a2) Arturo f. 14. nóvember 2012. b) Einar, f. 6. febrúar 1982, kvæntur Matt- hildi Birnu Benediktsdóttur, f. 19. nóvember 1984. Þau eiga einn son, Matthias Nóa, f. 26. janúar 2015. Fyrri eiginkona Einars er Rannveig Eliasdóttir, f. 9. ágúst 1982, þau skildu. Þeirra synir eru: b1) Víkingur, f. 30. desember 2002. b2) Ró- bert, f. 27. nóvember 2005. c) Andri, f. 31. maí 1989. Útförin fer fram frá Ak- ureyrarkirkju í dag, 29. nóv- ember 2021,kl. 13 með nánustu aðstandendum og vinum. Streymt verður frá atöfninni á Facebook-síðunni Jarðarfarir í Akureyrarkirkju - beinar út- sendingar. Hlekk á streymi má finna á: https://www.mbl.is/andlat því aðallega verslunarstörf. Hún starfaði á Skattstofu Norður- landsumdæmis eystra frá 1969 til starfsloka 1999. Bergþóra giftist 1953 Birni Sig- urðssyni trésmið frá Seyðisfirði f. 24. júlí 1926, d. 6. apríl 1967. Þau byggðu sér hús við Fjólugötu 20 á Akureyri og Bergþóra bjó þar allt til hún fluttist að Lög- mannshlíð í júlí 2020. For- eldrar Björns voru Sigurður Björnsson trésmiður frá Sels- stöðum í Seyðisfirði f. 11. mars 1880, d. 27. ágúst 1966, og kona hans Þorbjörg Björns- dóttir fædd að Dallandi í Húsa- vík í N-Múlasýslu, f. 7. nóv- ember 1887, d. 23. ágúst 1975. Synir Bergþóru og Björns eru: 1) Sigurður Jón húsasmið- ur í Reykjavík f. 7. apríl 1957. Sigurður Jón var kvæntur Elsku mamma, þá er komið að kveðjustund sem ég hef alltaf kviðið fyrir. Að geta ekki komið til þín er svo óraunverulegt og hug- urinn fullur af öllum góðum minn- ingunum um þig. Sorgin er þung, en ég veit að það er vegna liðinna gleðistunda. Í Fjólugötunni voru tvær íbúðir og bjuggu pabbi og mamma í ann- arri með okkur bræðurna, en föð- urafi og amma í hinni og var inn- angengt á milli. Þetta var afskaplega gott fyrirkomulag að alast upp við. Mamma var heima- vinnandi fyrstu ár okkar en fór að vinna hlutavinnu utan heimilis þegar pabbi veiktist og fulla vinnu eftir að hann féll frá langt fyrir aldur fram. Þá var gott að hafa ömmu í húsinu að leita til ef maður hafði barið á fingur með hamri eða stigið á nagla, nú eða bara að fá mjólk og köku. Mamma var heilsteypt og traust manneskja sem bar hag annarra fyrir brjósti umfram sinn eigin og var alltaf reiðubúin að leggja á sig það sem þurfti, til að létta undir með öðrum. Þannig sá hún um að amma gat búið í Fjólu- götunni til dauðadags og síðar um móður sína sem hún heimsótti og leit til með á hverjum degi eftir vinnu. Hún var límið í fjölskyld- unni sem hélt öllu saman. Mamma var gestrisin og tók vel á móti fólki og Fjólugatan var sjálfsagður án- ingastaður fyrir ættingja og góða vini til lengri eða skemmri heim- sókna. Svo var hún með eindæm- um ættfróð og gat tengt fólk sam- an. Ævisögur og frásagnir af lífi fólks voru hennar uppáhalds bók- menntir. Ég man ekki eftir að mamma skammaði mig nokkurn tíma en hún talaði þannig að maður skildi hvað var rétt og fann ef maður hafði gert eitthvað rangt og varð leiður að hafa brugðist trausti. Eina skiptið sem ég man eftir að hún hafi hækkað röddina var þeg- ar ég á gelgjunni uppástóð að fá mér hring í eyra, það fannst henni ekki alveg í karakter. Hún lagði ríka áherslu á að bera virðingu fyrir öðrum og allir væru jafnir og við skyldum ekki stríða eða níðast á minni máttar. Mamma var list- feng og málaði bæði með olíu og vatnslitum fór á námskeið bæði í því og einnig postulínsmálningu. Hún hafði gott auga fyrir fegurð og formum og tók góðar ljós- myndir sem gjarna tengdust ferðalögum sem hún fór í innan- lands. Hún kveikti áhuga á okkar fagra landi og að njóta og þekkja bæði það stórbrotna í fjarska en ekki síður gróðurinn sem var við tærnar á manni. Þegar við fjöl- skyldan ferðuðumst saman var hún betri en nokkur ferðahandbók og þekkti bæði til staða og sagna af svæðinu. Hún naut þess að ferðast, ekki síst um hálendið. Ég man eftir ferð sem hún fór með vinnufélögunum á Skattstofunni 1970 um suðurland, að hún færði okkur hraunmola úr Skjólkvíagos- inu í Heklu. Einnig ferðaðist hún með Ferðafélagi Akureyrar og síðar með Félagi aldraðra á Ak- ureyri. Þá er komið að kveðjustund, þakka þér fyrir að hafa alltaf verið hvetjandi og stutt mig og verið sá klettur sem þú varst. Hvíl í friði elsku mamma þín verður sárt saknað. Kristinn. Nú er komið að kveðjustund, löngu og farsælu lífshlaupi yndis- legrar og ástríkrar móður er lokið. Óhætt er að segja að mamma hafi hafi sjaldan sett sjálfa sig í fyrsta sæti í lífinu, en hlúði þeim mun betur að okkur bræðrunum og fjölskyldunni allri, alla tíð. Hún var mikil og góð húsmóðir sem gat komið miklu í verk á skömmum tíma, laghent og skipulögð, skaust heim í hádeginu og græjaði há- degismatinn fyrir okkur og síðan var skotist í vinnuna aftur. Mamma hjálpaði ömmu Krist- ínu í Aðalstrætinu með húsverk og innkaup og fleira árum saman þannig hún gæti búið á sínu eigin heimili til 101 árs aldurs. Mörg voru sporin hennar móður okkar á lífsleiðinni. Það var góður andi í Fjólugötunni, mikið grínast, við bjuggum til okkar einka heimilis- húmor sem óspart var notaður og sem móðir okkar tók virkan þátt í allt fram undir þennan dag. Móðir okkar fór ekki varhluta af áföllum í lífinu. Pabbi lést að- eins fertugur að aldri, eftir ára- löng veikindi auk þess að missa sonarson og unnustu hans af slys- förum. Afi Sigurður og amma Þor- björg bjuggu í sinni eigin íbúð í Fjólugötunni. Þau voru falleg hjón sem voru ástfanginn upp fyrir haus alla sína tíð. Áhugamál móð- ur okkar voru af ýmsum toga, hún saumaði út, málaði postulín og fleira og þegar henni fannst vanta málverk á veggina, nýlega innflutt í húsið, fékk hún sér tilsögn í myndlist og málaði þessi fínu olí- málverk eins og ekkert væri. Hún gerði hins vegar lítið úr þessum málverkum sínum. Mamma hafði gaman af ferðalögum bæði um sveitir og hálendið. Ekki síst í hóp- ferðum með Ferðafélaginu og Fé- lagi eldri borgara, Kristni og Eddu o.fl. Hún tók mikið af ljós- myndum og var prýðisljósmynd- ari. Ég kveð þig með þakklæti og söknuði elsku mamma. Sigurður Jón. Elsku Bebba mín, mikið er það skrýtið að hugsa til þess að ég geti ekki litið til þín í heimsókn eða að þú komir til okkar í sunnudags- kaffi á gamla heimilið þitt í Að- alstræti 32. Mikið ég á eftir að sakna þín. Það sem einkenndi þig var dugn- aður og trygglyndi. Þú gerðir allt til að drengirnir þínir ælust upp við öryggi og fallegt heimili og þér tókst það svo vel. Þú svona lítil og nett en hafðir fulla stjórn á öllu. Ég kom í fjöl- skylduna 1977, ég man að þú sagð- ir að það væri gott að fá mig inn á heimilið, þá jafnaðist kynjamun- urinn. Þú þyrftir þá ekki ein að eiga við þessa stráka. Þetta gekk allt vel hjá okkur. Svo stækkaði fjölskyldan, Olla kom og þú varðst amma fimm stráka svo það fór að halla á okkur stelpurnar en það var allt í lagi því við réðum alveg við þá. Og þú varst kölluð amma Bebba, ekki bara af ömmustrák- unum þínum fimm, líka af systk- inabörnum mínum og börnum vina okkar. Það er til góð saga þegar Óli sendi ömmu Bebbu sinni bréf frá Reykjavík og skrifaði á umslagið „Amma Bebba Akureyri Íslandi“, þá komst það til skila, all- ir þekkja ömmu Bebbu. Svo komu langömmubörnin og þau eru fimm og þá kom loksins ein stúlka og á milli ykkar stelpnanna eru 82 ár. Það er ekki hægt að minnast þín án þess að minnast mömmu þinn- ar. Samband ykkar var svo ein- stakt, svo fallegt og þið báruð mikla virðingu fyrir hvor annarri. Það eru forréttindi að hafa átt ykkur að og ég er svo þakklát fyrir það. Jesús er mér í minni, mig á hans vald ég gef, hvort ég er úti’ eða inni, eins þá ég vaki’ og sef. Hann er mín hjálp og hreysti, hann er mitt rétta líf, honum af hjarta’ eg treysti, hann mýkir dauðans kíf. (Hallgr. Pétursson) Elsku Bebba mín, takk fyrir allt og sofðu rótt. Þín Edda. Nú þegar amma Bebba er farin er mér ómögulegt annað en að muna allar góðu stundirnar þessi 32 ár sem ég þekkti hana. Öll skiptin í æsku sem ég kom til hennar í pössun og hún gaf mér kjötbollur og bláberjagraut sem hún vissi að væri í miklu uppáhaldi hjá mér. Hún fór með mig í strætó á sumrin, bara til að rúnta, en fannst svo tilvalið að fara í göngu- túra í desember gegn stormi og hríð til að skoða jólaskreytingarn- ar í búðargluggunum í miðbæn- um. En það var ekki bara í æsku minni sem við áttum góðar stundir saman, það var alla tíð. Ég man þegar ég var rúmlega tvítugur og kom til hennar nær alla föstudaga eftir vinnu og fékk kaffi og bakk- elsi. Það voru ánægjulegir tímar þar sem við töluðum um allt og ekkert. Þá var ekki nóg með að hún væri amma mín, við vorum einnig góðir vinir. Vertu sæl amma. Þinn Andri. Hið algerlega ómögulega en á sama tíma óumflýjanlega og eðli- lega hefur gerst, amma Bebba er dáin. Amma sem fyrir mér hefur alltaf verið til og verið órjúfanleg- ur hluti af lífi mínu þau tæpu 40 ár sem ég hef lifað. Í fyrstu settist ég niður og reyndi að grípa í allt sem ég gat svo hún hyrfi mér ekki. Ég kallaði fram minningar um allt það sem gerði ömmu að þeirri manneskju sem hún var fyrir mér, samtölin okkar, samverustundirnar, ráð- leggingarnar, hjálpina, matinn, húmorinn og hlýjuna en ég náði ekki að henda reiður á minning- unum og þær hrukku undan um leið og ég reyndi að nálgast þær, hurfu þegar ég reyndi að teygja mig í áttina að þeim og sjá þær skýrar, fylla þær af litum, hljóðum og lykt. Það hræddi mig. Eftir því sem frá líður hafa þó minningarnar tekið að skýrast og ég geri mér grein fyrir að á ein- hvern hátt er amma hér enn – og ég fyllist ró. Hún stendur mér ljóslifandi fyrir hugskotssjónum þar sem hún gengur rösklega til verks í eldhúsinu, svuntuklædd og með sunnudagsmessuna á hæsta styrk í útvarpinu eða þá klædd lopapeysu og gulum hönskum úti á lóð í stöðugri baráttu við fallandi lauf stóru asparinnar á lóðinni. Vanafestan, kaldhæðnin og stríðnisglampinn í augunum eru dýrmæt smáatriði sem ég mun ekki gleyma, en fyrst og fremst er það vináttan og óbilandi áhuginn og væntumþykjan til barna- barnanna sem ég mun minnast með bæði þakklæti og söknuði. „Sá sem deyr kemur aldrei aft- ur, við höfum misst af honum, eng- inn máttur alheimsins megnar að færa okkur hitann af horfnu lífi, málróminn, handarhreyfinguna, smáfyndnina. Öll þau smáatriði sem lífið er sett saman úr og gefa því gildi eru horfin að eilífu, horfin en skilja eftir sig opið sár í hjart- anu sem tíminn breytir smám saman í þrútið ör. Sá sem deyr fer þó aldrei alveg frá okkur, og það er mótsögnin sem huggar og kvel- ur í senn, sá sem deyr er bæði ná- lægur og fjarlægur.“ (Jón Kalman Stefánsson, 2011) Elsku amma, takk fyrir alla hjálpina og stuðninginn, takk fyrir áhugann sem þú sýndir öllu því sem ég tók mér fyrir hendur, takk fyrir lambalærin, bakkelsið, húsa- skjólið og instant-kaffið. Þín verður saknað, takk fyrir mig. Einar. Amma Bebba er farin. Mér verður hugsað til þess hversu stóran þátt hún átti í heimsóknum okkar fjölskyldunnar til Akureyr- ar. Að koma í Fjólugötuna og finna ilminn af sunnudagssteik- inni, að fara úr skónum og finna mjúkt teppið undir sokkaleistun- um og fá síðan faðmlagið og koss- ana frá ömmu Bebbu var ómet- anleg festi við heimahagana. Börnin mín fundu sig líka heima hjá langömmu sinni, vissu vel hvar dótaskúffuna góðu var að finna, og léku sér á eldhúsgólfinu með sömu leikföngin og við bræður þegar við vorum börn. Gestrisni hennar og hlýju verður sárt saknað. Hvíl í friði, elsku amma. Björn, Elisa og börn. Bebba frænka, eins og við köll- uðum hana alltaf, var lífsglöð kona, létt í lund, hugmikil og naut lífsins eins og amma, Kristín Ólafsdóttir, sem bjó í Aðalstræti 32 á Akureyri. Þær mæðgur voru býsna líkar. Báðum þótti þeim mikilsvert að laga sig að því sem forsjónin færði fólki í hendur. „Eftir því eigum við að lifa. Það er mikilvægt að sætta sig við hlutina og hafa létta lund,“ sögðu þær. Bebba var mikil húsmóðir og gest- risin fram í fingurgóma. Það var alltaf fallegt á heimili hennar við Fjólugötu. Hún gaf aldrei afslátt af kröfum til sjálfrar sín, var ósér- hlífin og rausnarleg, – glaðvær, hláturmild og uppörvandi en jafn- framt röggsöm og með ákveðnar skoðanir sem einkenndust af sterkri meðfæddri réttlætis- kennd. Frænka tók alltaf einstak- lega vel á móti okkur og faðmur hennar var hlýr og stór af svo smávaxinni konu að vera. Þreyttir foreldrar á ferð norður í land, með börnin mislúin í aft- ursætinu, þekkja tilfinninguna þegar styttist í stopp. Ekkert venjulegt stopp beið okkar hjá Bebbu frænku á Akureyri og til- hlökkun í huga allra að hitta hana enn og aftur og dást að því hvernig hún hljóp upp og niður teppalagð- an stigann á heimilinu sínu, eins og ung stúlka. Frænka tók við hlutverki móð- ur sinnar, ömmu minnar, og opn- aði heimili og hjarta fyrir okkur fjölskyldunni. Akureyri varð um leið að heimabæ og kynslóðir runnu saman yfir kaffi og fjöl- breyttu heimabakkelsi af bestu gerð. Gisting fyrir alla, börnin okkar og stjúpbörn, á fótboltamót- um og öðrum merkisviðburðum. Aldrei nein vandamál. Aldrei ann- að í fari hennar en vandvirkni og hlýja og allt gert af óútskýranlegri sístreymandi orku. Hún gleymdi engum afmælum, var alltaf með á nótunum þótt fjölskyldumeðlim- um fjölgaði hratt. Hún fylgdist með framförum og skólagöngu. Spurði um alla sem bjuggu í út- löndum eða ferðuðust vegna vinnu. Bebba frænka var merkiskona fyrir það sem hún var. Við minn- umst hennar sem tignarlegrar konu, einstaklega fínlegrar og brosmildrar, sem nýtti hvert tæki- færi til að forvitnast um hagi okk- ar og hvatti okkur óspart áfram með ómótstæðilegri hlýju. Henn- ar er sárt saknað. Við vottum sonum hennar tveimur, öllum afkomendum og öðrum nákomnum innilega samúð og erum ævarandi þakklát fyrir að hafa átt hana að samferðamanni. Hafliði Arngrímsson og fjölskylda. Mig langar að minnast Berg- þóru, eða ömmu Bebbu, í örfáum orðum. Bebbu kynntist ég þegar ég og Einar, barnabarn hennar, hófum sambúð þá 17 ára krakkar. Hún var húsmóðir af bestu gerð og vildi helst allaf hafa gesti og bjóða upp á veitingar. Aldrei hafði ég bragðað eins góðar lambasteik- ur og hjá Bebbu með öllu tilheyr- andi á gamla mátann. Hún átti alltaf eitthvað gott með kaffinu og gerði ótrúlega góða kindakæfu. Hún var ekki bara listakokkur, hún var dugleg í öllu sem hún tók sér fyrir hendur og vildi ávallt veita hjálparhönd. Hún prjónaði og málaði og hafði gaman af ýmis konar handverki og gerði það mjög vel. Við Einar hófum okkar sambúð í lítilli íbúð hjá henni og þegar við eignuðum eldri son okkar fannst henni ekki leiðinlegt að hafa lítinn langömmukút sem hún gat hitt daglega. Hún var snör í snúning- um og var nánast hlaupandi um allan bæ fram eftir öllum aldri, enda hafði hún ekki bílpróf. Við Einar slitum síðar samvistum en þrátt fyrir það hef ég alltaf litið á fjölskylduna hans og þar á meðal Bebbu sem mína, enda langamma tveggja sona minna. Ég minnist hennar með mikilli hlýju og þakk- læti. Hvíl í friði elsku Bebba, Rannveig. Bergþóra Jónsdóttir uðust hana sem væri hún ein af stórfjölskyldunni hennar Ellenar ömmu. Hún Ellen, þessi fallega og bjartleita kona, bar með sér manngæskuna og gleðina við fyrstu kynni og fór vel á með okk- ur strax í upphafi og æ síðan. Samskiptin voru alltaf ánægju- leg, og ætíð jafn indælt að koma í Blöndubakkann og eiga spjall við Ellen í lok vinnudags. Oftar en ekki var rætt um barnanna upp- eldi og gefin góð ráð og hvað væri börnum fyrir bestu í lífinu. Um- hyggjusemi hennar, alúð og elska umvafði Auði ekki síður en eigin börn og barnabörn og aðra fjöl- skyldumeðlimi og voru engin tak- mörk fyrir því sem Ellen gerði fyrir fólkið sitt. Allir samferða- menn hennar nutu góðs af hjálp- semi hennar og höfðingsskap, sem lýsti sér ekki síst í því hve vel hún tók á móti fólki á heimili sínu; hana var sannarlega gott heim að sækja. Hvenær sem var sólar- hrings og árstíma var heimili hennar opið fyrir ættingja og vini. Alltaf var gestunum tekið opnum örmum með gleðibragði og þeir látnir finna að þeir væru sannar- lega aufúsugestir. Kynslóðabil eða manngreinarálit var ekki til í huga Ellenar og öllum tekið sem jafningjum. Hún var alin upp af þeirri kynslóð sem mat mikilvægi þess að hafa atvinnu og taldi því iðni og vinnusemi æðstar dyggða. Þessi gildi tók Ellen í arf og var sjálf verðugur fulltrúi þeirrar stéttar sem nú er að hverfa, þ.e. hinnar heimavinnandi húsmóður, sem þó náði líka „að vinna úti“ á tímabili. Ekkert verk var talið ómerkilegt og öll unnin af alúð og vandvirkni. Og ekki tilheyrði að gera mikið úr verkunum, eða eins og segir í ljóðinu: „Hún fer að engu óð, er öllum mönnum góð, og vinnur verk sín hljóð…“ Þrátt fyrir að dregið hafi úr þrekinu á síðustu árum, héldust allt til enda hennar góðu eigin- leikar; húmor, kraftur og seigla, sem svo margir höfðu notið góðs af fyrr og síðar á hennar lífsleið. Henni verður seint fullþökkuð umönnun allra þeirra barna sem hún gætti gegnum tíðina, sem nú sitja eftir með söknuðinn, en einnig góðar minningar. Að liðnum ævidögum Ellenar ömmu er efst í huga gleði og þakklæti yfir því að hafa kynnst slíkri öðlingskonu, sem átti engan sinn líka. Innilegar þakkir fyrir umhyggjuna, samfylgdina, vin- áttuna og gleðistundirnar. Auður og Hrafnhildur. Í dag kveðjum við Ellen æsku- vinkonu okkar af Ránargötunni í Vesturbænum. Við kynntumst þegar við ólumst þar upp á fjórða og fimmta áratug síðustu aldar og hélst vináttan til hinstu stundar. Vinkonuhópurinn voru frænk- urnar og uppeldissysturnar Ellen og Guðný, systurnar Hulda og Únna, sem lést árið 2013, og Katrín. Ellen var trygg vinkona og var margt brallað á Ránargötunni á uppvaxtarárunum. Ellen bjó á Ránargötunni þar til hún hóf sambúð með eiginmanni sínum honum Jóa. Þau bjuggu sér og dætrum sínum fallegt heimili í Blesugróf. Heimili Ellenar var ávallt fullt af börnum enda starf- aði hún sem dagmamma lengst af. Í seinni tíð höfum við átt ógleymanlegar samverustundir í afmælisveislum hvert ár. Síðustu ár hafði heilsan verið að gefa sig hjá Ellen en hún gerði sitt besta til að koma og hitta vinkonuhóp- inn þegar tilefni gafst. Skemmst er að minnast afmælisboðs Huldu hinn 13. september síðastliðinn þar sem við vinkonurnar áttum góða samverustund. Á kveðjustund sendum við ást- vinum hennar hjartanlegar sam- úðarkveðjur. Blessuð sé minning hennar. Hulda og Katrín.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.