Morgunblaðið - 29.11.2021, Qupperneq 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. NÓVEMBER 2021
30 ÁRA Guðrún Helga fæddist í Hafnarfirði.
Hún gekk í MH og fór þaðan í japönskunám í Há-
skóla Íslands. „Amma mín var í Íslensk-japanska
félaginu, þar sem ég er formaður núna og hún fór
mikið með mig á japanskar uppákomur, bæði
kvikmyndir og fleira.“ Guðrún útskrifaðist með
BA-gráðu í japönsku máli og menningu árið 2015,
en tók síðasta árið úti í Japan. „Þar kynntist ég
manninum mínum, Bang An, f. 18.11. 1989, en
hann var nemi frá Kína. Það var mjög strangt
tungumálanám í skólanum svo lærdómurinn
gekk vonum framar. Svo eignaðist ég svo marga
vini sem ég gat talað við.“ Guðrún og Bang An
voru í Japan alveg til 2018, en Guðrún fór í meist-
aranám í alþjóðasamskiptum og menningar-
fræðum og svo fór hún að vinna í Japan. „Það var
mjög skrautlegt og mikill lærdómur, sérstaklega hvað varðar alls konar siði
sem þarf að þekkja í viðskiptaháttum. Við vorum að koma Søstrene Grene á
markað í Japan og ég var að vinna með Dönum og Japönum og þetta var
skemmtilegt að vinna með þessum tveimur menningarheimum.“
Þau komu til Íslands árið 2018 og giftu sig hér, en Guðrún fór að vinna fyr-
ir Søstrene Grene og svo reka þau litla búð á netinu, www.nakano.is, sem sel-
ur vörur frá Japan. Þau eiga soninn Ágúst Yi An Guðrúnarson , f. 2020.
Guðrún Helga Halldórsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Umburðarlyndi er undirstaða sam-
bands fólks í millum. Reyndu að halda ró
þinni, hvað sem á dynur.
20. apríl - 20. maí +
Naut Þú ert að vinna að stóru og tímafreku
verkefni. Mundu að hlutirnir gerast ekki
sjálfkrafa og þú þarft að hafa fyrir þeim.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Sættu þig við að aðrir eigi sín
leyndarmál og virtu það þótt þú fáir ekki að
eiga hlutdeild í þeim. Taktu tillit til þess sem
vinir þínir segja.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Nú skaltu taka þér tak og fylgja öll-
um reglum út í æsar. Sýndu skoðunum ann-
arra þá virðingu sem þú vilt að menn sýni
þér.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Þótt þú viljir rétta einhverjum hjálp-
arhönd er ekki þar með sagt að hann geti
gleypt þig með húð og hári. Forðastu mik-
ilvægar ákvarðanir í dag og á morgun.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Meiri háttar breytingar liggja í loftinu
svo þú þarft að undirbúa þig vel. Farðu eftir
sannfæringu þinni því svo mikið veistu um
málin að þú þarft ekki að elta fjöldann.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Varastu að lenda í árekstrum við aðra
því þeir gera ekkert annað en að taka frá þér
tíma og orku. Gaumgæfðu alla málavexti og
hugsaðu þig svo vel um áður en þú kveður
upp þinn dóm.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Þú ert í góðu jafnvægi andlega
sem líkamlega og mátt ekki láta neitt verða
til að trufla það. Það er farsælla að segja hug
sinn en að byrgja hlutina inni.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Þú ættir að taka meira tillit til
annarra því þú græðir ekkert á því að gera
hlutina upp á þitt eindæmi. Gættu þín að
falla ekki fyrir freistni sjálfselskunnar.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Það er ekki nóg að ýta hlutunum
úr vör, heldur verður þú líka að vaka yfir
þeim og hafa forystu um að koma þeim í
höfn. Góður málstaður er alltaf gulls ígildi.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Ef þú finnur til óánægju skaltu
ekki byrgja hana innra með þér. Einhver sem
þú þekkir tekur upp á einhverju óvæntu.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Það er engin ástæða til þess að láta
hugfallast, þótt á móti blási um stund. Haltu
þig til hlés og fylgstu með áður en þú mynd-
ar þér skoðun á málunum.
nám og líðan barna með sérþarfir í
skólakerfinu, og í raun lífsgæði
þeirra almennt,“ segir Anna-Lind.
Þegar heim var komið vann Anna-
Lind á menntasviði Reykjavík-
urborgar í tvö ár áður en hún var
ráðin til Háskóla Íslands þar sem
hún varð prófessor árið 2018. Hún
hefur unnið að því að auka þekkingu
háskólanema og fagfólks skóla á
sannreyndum aðferðum og meðal
annars handleitt mikinn fjölda teyma
í að draga úr langvarandi hegð-
unarvanda. „Hugmyndin um skóla
án aðgreiningar gengur út á að skól-
inn sé speglun á því þjóðfélagi sem
við viljum hafa, þar sem allir fá tæki-
færi til að nýta hæfileika sína til fulls.
Til þess er mikilvægt að nota
kennsluaðferðir og stuðning sem
hefur reynst skila góðum árangri.
Kennarar og starfsfólk skóla eru yf-
isþjálfi fyrir börn með einhverfu árið
1995 og þá sá hún hvað rétt vinnu-
brögð skipta miklu máli. „Ég var að
vinna með fyrsta barnið sem fékk at-
ferlisþjálfun á Íslandi. Það var
þriggja og hálfs árs og hafði ekkert
mál en eftir nokkurra mánaða þjálf-
un var það farið að segja heilar setn-
ingar. Ég fékk strax brennandi
áhuga á því hvernig væri hægt auka
þekkingu á sannreyndum aðferðum í
starfi með börnum og bæta lífsgæði
þeirra.“ Hún útskrifaðist með meist-
arapróf í sálfræði árið 2001 og starf-
aði sem sálfræðingur í tvö ár áður en
fjölskyldan lagði í víking vestur um
haf til Minnesota þar sem hún fór í
doktorsnám í sérkennslufræðum og
útskrifaðist árið 2006. „Ég vildi brúa
þetta bil milli sálfræðinnar og
kennslufræðinnar. Það er svo mik-
ilvægt að vinna vel saman til að bæta
A
nna-Lind Pétursdóttir
fæddist 29.11. 1971 á
Akureyri og ólst þar
upp til 5 ára aldurs.
„Pabbi deyr þegar ég er
fjögurra ára og mamma ákvað að
fara með okkur börnin til Þýska-
lands í nám í Münster, þar sem við
bjuggum hjá afasystur minni og
nöfnu.“ Þegar Anna-Lind var að
verða 10 ára flutti fjölskyldan aftur
til Akureyrar, en þá þurfti hún hrein-
lega sérkennslu til að læra íslensku.
„Ég man vel eftir að vera hjá
ömmu Ólöfu á Byggðaveginum þar
sem hún lét mig lesa á íslensku þeg-
ar ég var nýkomin frá Þýskalandi.
Mér þykir vænt um þá minningu, og
man eftir lyktinni af þessum gömlu
bókum, sem hún hafði örugglega
notað til að kenna pabba mínum. Það
var alltaf gott að vera hjá ömmu og
hún kenndi mér að baka kleinur og
pönnukökur. Uppáhaldið mitt var
svo að fara í bústaðinn hennar og
skóginn sem hún gróðursetti á Sval-
barðseyri, þar var algjör ævintýra-
veröld.“
Anna-Lind gekk í Menntaskólann
á Akureyri, en þar kenndi Gisela
móðir hennar þýsku. Hún flutti til Ís-
lands frekar ung, bara rúmlega tví-
tug, en var þá búin að læra íslensku
því henni hafði verið sagt að það
þýddi ekkert að koma hingað án
tungumálsins. „Ég hitti ósjaldan
fyrrum nemendur hennar og gaman
hvað þeir tala alltaf hlýlega um
hana.“
Eftir að útskrifast úr MA af nátt-
úrufræðibraut árið 1991 fór Anna-
Lind til Reykjavíkur í sálfræði í Há-
skóla Íslands. „Ég ætlaði fyrst að
verða arkitekt, en það var ekki kennt
á Íslandi og svo komst ég að því að
ég hafði eiginlega meiri áhuga á fólk-
inu í húsunum en húsunum sjálfum.“
Anna-Lind kynntist eiginmanninum,
Skúla, árið 1994. „Það varð ást við
fyrstu sýn og við höfum verið saman
frá þeim degi, í 27 ár, og eigum fimm
börn. Ég fékk Darra í forgjöf en svo
eignuðumst við þrjá stráka til við-
bótar, Teit Helga, Berg Mána og
Pétur Glóa. Svo fengum við óska-
dótturina Jónu í fóstur sem hefur
fullkomnað fjölskylduna.“
Anna-Lind fór að vinna sem atferl-
irleitt mjög opnir og jákvæðir gagn-
vart fjölbreytileikanum, en skortir
oft tól og tæki til að mæta ólíkum
þörfum með markvissum hætti. Því
fyrr sem tekist er á við vanda í námi,
samskiptum eða öðru, þeim mun bet-
ur virka aðferðirnar og það getur
sparað fólki heilmikla þjáningu.“
Það er greinilegt að Anna-Lind
hefur brennandi áhuga á sínu starfi
og hún segir, að það að verða vitni að
jákvæðum breytingum hjá nem-
endum sé mjög gefandi fyrir alla sem
eiga hlut að máli. Hún segist líka
leggja höfuðáherslu á jákvæðar og
uppbyggilegar aðferðir í sinni nálg-
un.
„Við vorum að bæta við nýrri
námsleið í samstarfi við sálfræði-
deildina. Þverfaglegt nám fyrir at-
ferlisfræðinga til að vinna með börn-
um með sérþarfir og við leggjum
Anna-Lind Pétursdóttir prófessor í sálfræði, sérkennslu og atferlisgreiningu – 50 ára
Fjölskyldan Hér er öll fjölskyldan á ferðalagi í Esvatiní í sunnanverðri Afríku árið 2019.
Brennandi áhugi á velferð nemenda
Oddur Friðrik Helgason er áttræður í dag. Hann
fæddist á Akureyri og ólst þar upp. Hann var sjó-
maður og stofnaði síðan Ættfræðiþjónustuna ORG
sem er til húsa í Skeljanesi í Skerjafirði. Kona
Odds er Unnur Björg Pálsdóttir. „Það verður opið
hús í dag í Skerjafirði frá kl. 15. Boðið verður upp á
Bragakaffi og mola frá Nóa/Síríusi sem allir fyrir
norðan ólust upp á.“
Árnað heilla
80 ára
Til hamingju með daginn
DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is
GÆÐI OG ÞÆGINDI
SÍÐAN 1926
DUX 6006 - SVÆÐISMEÐFERÐ
Í örfáum einföldum skrefum geturðu sett upp rúmið þitt til að mæta þörfum þínum.