Morgunblaðið - 29.11.2021, Side 25

Morgunblaðið - 29.11.2021, Side 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. NÓVEMBER 2021 Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „VILL EINHVER ANNAR BOLLAKÖKU?“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... allt boltafólkið í lífi þínu. „UPPTEKINN“ HJÁ KÖTTUM ER ANNAÐ EN HJÁ MÖNNUM HÆ, GRETTIR HÆ HVAÐ ERTU AÐ GERA? SÉRÐU EKKI AÐ ÉG ER UPPTEKINN? „SEM FORMAÐUR ER ÞAÐ MITT VERK AÐ SJÁ TIL ÞESS AÐ ÞÚ SÉRT HÆFUR TIL AÐ SITJA Í STJÓRN.“ STAN S! mikið upp úr handleiðslu í sann- reyndum aðferðum á vettvangi.“ Þar skiptir samvinna miklu máli og hún segist mjög ánægð með að teym- iskennsla sé orðin talsvert algengari í kennslu í dag. Anna-Lind og fjölskyldan er mikið fyrir útivist og ferðalög. „Við höfum gaman af að fara ótroðnar slóðir og kynnast einhverju nýju. Það eru svo ótal fallegir staðir á Íslandi og enda- laust hægt að upplifa eitthvað nýtt og spennandi. Á sama tíma eru það forréttindi að geta ferðast í sólina í skammdeginu, en eitt það skemmti- legasta sem ég geri er að setja sam- an hagstæðar ferðir á framandi staði.“ Á afmælisdaginn verður fjöl- skyldan einmitt komin í eina slíka, til Egyptalands, til að halda upp á áfangann. Fjölskylda Eiginmaður Önnu-Lindar er Skúli Helgason borgarfulltrúi, f. 15.4. 1965. Foreldrar hans eru Helgi Skúlason leikari, f. 4.9. 1933, d. 30.9. 1996 og Helga Bachmann leikkona, f. 24.7. 1931, d. 7.1. 2011. Anna-Lind og Skúli eiga börnin 1) Teit Helga, f. 9.5. 1995, hljóðtæknifræðing og há- skólanema, kvæntan Áshildi Jóns- dóttur, f. 27.5. 1998, stærðfræðingi og háskólanema; 2) Berg Mána, f. 25.4. 1999; slökkviliðs- og sjúkra- flutningamann; og 3) Pétur Glóa, f. 15.3. 2009. Fósturdóttir þeirra er Jóna, f. 2.1. 2014. Elsti sonur Skúla er Darri kvikmyndafræðingur, f. 24.11. 1988. Systkini Önnu-Lindar eru Jón Stefán verkfræðingur f. 27.9. 1964 og Markús Hermann verkefnastjóri, f. 19.8. 1968. Foreldrar Önnu-Lindar eru hjónin Pétur Bjarnason, verkfræðingur og hafnarstjóri á Akureyri, f. 4.1. 1939, d. 21.4. 1976, og Gisela Rabe- Stephan, framhaldsskólakennari, f. 6.2. 1943. Anna-Lind Geirþrúður Pétursdóttir AnnaWeber húsfreyja í Bernburg, Þýskalandi Hermann Stephan járnsmiður í Bernburg, Þýskalandi Hermann Stephan efnafræðingur Gertrud Helberg húsfreyja Gisela Rabe-Stephan framhaldsskólakennari á Akureyri Marie Katharine Auguste Gildehaus húsfreyja,Walsrode, Þýskalandi Dietrich Friedrich Heinrich Helberg bankamaður og gistihúsaeigandi, Fallingbostel, Þýskalandi Guðrún Björnsdóttir ljósmóðir og húsfreyja í húsi Guðm. Guðmundssonar, Þingeyri Guðmundur Guðmundsson bóndi og sjómaður/skipstjóri í húsi Guðm. Guðmundssonar, Þingeyri Ólöf Guðmundsdóttir húsfreyja á Akureyri Bjarni Jónsson úrsmiður á Akureyri Rósa Stefánsdóttir húsfreyja í Gröf í Víðidal, V-Hún. Jón Bjarnason bóndi í Gröf í Víðidal, V-Hún. Ætt Önnu-Lindar Geirþrúðar Pétursdóttur Pétur Bjarnason verkfræðingur og hafnarstjóri á Akureyri Helgi R. Einarsson sendi mér góðan tölvupóst: „Þar sem fengitíðin nálgast til sveita sendi ég þér tvær limrur af því tilefni“: Árangur Sigga varð ólétt af Óla um aftan í Hólaskóla. Ekki neitt kák hún eignaðist strák, alltaf á Óla má stóla. Me too! (léttir) Ólánið Hallberu elti í eilífðar karlmanns svelti uns einn fram hjá gekk, sem gistingu fékk, þá gildnaði’ ún loks undir belti. Á dögunum birtist mynd af Skag- firðingnum Jónasi Sigurjónssyni í Einholti við snjómokstur á hlaðinu og undir henni stóð: „Mokstur stendur yfir í Einholti!“ Guðmundur Sveinsson á Sauð- árkróki orðaði þetta svo: Mundar skóflu mikið vel margt er vetrar bölið. Brattur Jónas brýtur skel burtu ríkur fölið. Ég fékk góðan póst þar sem segir m.a.: Geirmundur Valtýsson var heiðraður sérstaklega sunnudaginn 14. nóv. sl. í Kakalaskálanum á Kringlumýri í Skagafirði. Guðni Ágústsson ávarpaði Geirmund og Mínervu konu hans og sagði að nú yrði honum færð konungleg gjöf, fyrstuverðlaunahryssa. Þeir Bjarni Maronsson og sonur hans Kolbeinn leiddu inn á gólf Kakalaskálans hryssuna Sóleyju Glaumsdóttur frá Búðardal en Glaumur er úr ræktun Geirmundar. Hann þreytist ei böll á að bruna bestur með harmonikuna og hefur með drift síðpylsum svipt lengur en elstu menn muna. Við hrifumst af hljómþýðum dyni frá heiðruðum félaga og vini. Hún er glæst þessi höll hér gleðjumst við öll með Geirmundi Valtýssyni. Friðrik Steingrímsson kveður: Landið hregg og hríðar skaka, Hrafn af vana spáir því. Mér finnst að hann mætti taka margra vikna jólafrí. Gömul vísa í lokin: Utan langt úr gráum geim geysist kaldur vindur. Hert er nú á hnútum þeim sem himnakóngurinn bindur. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af snjómokstri og hryssunni Sóleyju Hólshraun 3 · 220Hafnarfjörður · Símar: 555-1810, 565-1810 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is Skútan Sjá verð og verðdæmi á heimasíðu okkar www.veislulist.is Fagnaðir Næst þegar þið þurfið pinnamat, smurt brauð eða tertur fyrir útskriftina eða annan mannfagnað, hafðu þá samband og fáðu tilboð í sal okkar og veitingarnar þínar. PINNAMATUR Veislur eru okkar list! Bjóðum uppá fjölda tegundapinnamats og tapasrétta Pinna- og tapasréttir eru afgreiddir á einnota fötum, klárt fyrir veisluborðið.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.