Morgunblaðið - 29.11.2021, Qupperneq 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. NÓVEMBER 2021
England
Arsenal – Newcastle ................................ 2:0
Crystal Palace – Aston Villa.................... 1:2
Liverpool – Southampton........................ 4:0
Norwich – Wolves..................................... 0:0
Brighton – Leeds...................................... 0:0
Brentford – Everton ................................ 1:0
Leicester – Watford ................................. 4:2
Manchester City – West Ham................. 2:1
Chelsea – Manchester United................. 1:1
Staðan:
Chelsea 13 9 3 1 31:5 30
Manch. City 13 9 2 2 27:7 29
Liverpool 13 8 4 1 39:11 28
West Ham 13 7 2 4 24:16 23
Arsenal 13 7 2 4 15:17 23
Wolves 13 6 2 5 12:12 20
Tottenham 12 6 1 5 11:17 19
Manch. Utd 13 5 3 5 21:22 18
Brighton 13 4 6 3 12:14 18
Leicester 13 5 3 5 20:23 18
Crystal Palace 13 3 7 3 19:19 16
Brentford 13 4 4 5 17:17 16
Aston Villa 13 5 1 7 18:21 16
Everton 13 4 3 6 16:20 15
Southampton 13 3 5 5 11:18 14
Watford 13 4 1 8 18:24 13
Leeds 13 2 6 5 12:20 12
Burnley 12 1 6 5 14:20 9
Norwich City 13 2 3 8 7:27 9
Newcastle 13 0 6 7 15:29 6
Þýskaland
B-deild:
Schalke – Sandhausen ............................ 5:2
- Guðlaugur Victor Pálsson kom inn á sem
varamaður hjá Schalke á 84. mínútu.
Holstein Kiel – Werder Bremen ............ 2:1
- Hólmbert Aron Friðjónsson var ónotað-
ur varamaður hjá Holsten Kiel.
Ítalía
Venezia – Inter Mílanó............................ 0:2
- Arnór Sigurðsson var ónotaður vara-
maður hjá Venezia. Bjarki Steinn Bjarka-
son var ekki í hópi.
B-deild:
Brescia – Pisa........................................... 0:1
- Hjörtur Hermannsson kom inn á sem
varamaður hjá Pisa á 90. mínútu.
Holland
Vitesse – AZ Alkmaar............................. 0:0
- Albert Guðmundsson kom inn á sem
varamaður hjá AZ Alkmaar á 68. mínútu.
Belgía
B-deild:
Lommel – Westerlo ................................. 1:0
- Kolbeinn Þórðarson lék allan leikinn
með Lommel.
Grikkland
PAOK – Aris............................................. 0:1
- Sverrir Ingi Ingason var ónotaður vara-
maður hjá PAOK.
Danmörk
AaB – Köbenhavn.................................... 1:3
- Hákon Arnar Haraldsson kom inn á sem
varamaður hjá Köbenhavn á 72. mínútu,
Ísak B. Jóhannesson kom inn á á 80. mín-
útu, Andri Fannar Baldursson var ekki í
hóp.
OB – Nordsjælland .................................. 2:0
- Aron Elís Þrándarson lék allan leikinn
með OB.
Viborg – SönderjyskE ............................ 1:1
- Kristófer Ingi Kristinsson lék fyrstu 74.
mínúturnar með SönderjyskE.
B-deild:
Esbjerg – Nyköbing ................................ 3:0
- Ísak Óli Ólafsson lék allan leikinn með
Esbjerg en Andri Rúnar Bjarnason var
ekki í hóp.
Horsens – Hobro...................................... 2:1
- Aron Sigurðarson lék fyrstu 63. mínút-
urnar með Horsens en Ágúst Eðvald
Hlynsson var ekki í hóp.
Svíþjóð
B-deild:
Öster – Akropolis .................................... 2:1
- Alex Þór Hauksson lék allan leikinn með
Öster.
Noregur
Kristiansund – Viking............................. 2:3
- Brynjólfur Willumsson kom inn á sem
varamaður hjá Kristiansund á 85. mínútu.
- Patrik Sigurður Gunnarsson varði mark
Viking en Samúel Kári Friðjónsson var
ekki í hópi.
Rosenborg – Bodö/Glimt........................ 0:0
- Hólmar Örn Eyjólfsson lék allan leikinn
með Rosenborg.
- Alfons Sampsted lék allan leikinn með
Bodö/Glimt.
Haugesund – Sandefjord........................ 1:2
- Viðar Ari Jónsson lék allan leikinn með
Sandefjord.
Lilleström – Strömsgodset..................... 4:1
- Ari Leifsson lék fyrstu 68. mínúturnar
með Strömsgodset, Valdimar Þór Ingi-
mundarson var ónotaður varamaður.
Undankeppni HM kvenna
C-RIÐILL:
Tékkland – Holland.................................. 2:2
Staðan:
Holland 5 3 2 0 15:3 11
Ísland 3 2 0 1 9:2 6
Tékkland 4 1 2 1 11:7 5
Hvíta-Rússland 3 1 1 1 5:4 4
Kýpur 5 0 1 4 2:26 1
50$99(/:+0$
HANDBOLTINN
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Egill Magnússon átti stórleik fyrir
FH þegar liðið vann öruggan sigur
gegn Aftureldingu í úrvalsdeild
karla í handknattleik, Olísdeildinni,
að Varmá í Mosfellsbæ í 10. umferð
deildarinnar í gær.
Egill skoraði tólf mörk og var
markahæstur Hafnfirðinga en leikn-
um lauk með 31:26-sigri FH.
FH leiddi með þremur mörkum í
hálfleik, 14:11, og FH stjórnaði ferð-
inni af miklu öryggi í síðari hálfleik.
Ásbjörn Þórðarson skoraði ellefu
mörk fyrir FH og Phil Döhler varði
14 skot í markinu. Guðmundur Bragi
Ástþórsson var markahæstur í liði
Aftureldingar með 10 mörk.
FH er með 15 stig í öðru sæti
deildarinnar en Afturelding er i
sjötta sætinu með 10 stig.
Ótrúlegir yfirburðir á Nesinu
Þá skoraði Birgir Steinn Jónsson
ellefu mörk fyrir Gróttu þegar liðið
vann afar óvæntan tíu marka sigur
gegn ÍBV í Hertz-höllinni á Sel-
tjarnarnesi. Grótta leiddi 20:10 í
hálfleik og Eyjamenn komust aldrei
í takt við leikinn.
Einar Baldvin Baldvinsson átti
stórleik í marki Gróttu og varði 17
skot. Kári Kristján Kristjánsson var
markahæstur Eyjamanna með átta
mörk.
ÍBV er með 14 stig í fjórða sætinu
en Grótta er í 9. sæti með 7 stig.
Björgvin bjargaði Stjörnunni
Björgvin Hólmgeirsson reyndist
hetja Stjörnunnar þegar liðið gerði
jafntefli við Fram í TM-höllinni í
Garðabæ.
Leiknum lauk með 31:31-jafntefli
en Björgvin skoraði jöfnunarmark
Garðbæinga þegar nokkrar sek-
úndur voru eftir af leiknum.
Framarar leiddu 27:22 þegar
fimmtán mínútur voru til leiksoka.
Garðbæingum tókst hins vegar að
jafna metin með ótrúlegum loka-
spretti.
Björgvin fór á kostum í liði
Stjörnunnar og skoraði ellefu mörk.
Rógvi Dal Christiansen og Breki
Dagsson skorðu sjö mörk hvor fyrir
Fram.
Stjarnan er með 13 stig í fimmta
sætinu en Framarar eru með 9 stig í
áttunda sætinu.
Allt í járnum á Selfossi
Þá vann Selfoss KA með minnsta
mun þegar liðin mættust í Set-
höllinni á Selfossi en leiknum lauk
með 25:24-sigri Selfyssinga.
Leikurinn var í járnum allan
tímnn en Einar Sverrisson kom Sel-
fyssingum 25:23-yfir þegar þrettán
sekúndur voru til leiksloka og
reyndist það sigurmark leiksins.
Guðmundur Hólmar Helgason var
markahæstur Selfyssinga með sjö
mörk og Vilius Rasimas varði fjór-
tán skot í markinu. Óðinn Þór Rík-
harðsson skoraði átta mörk í liði KA
og Nicolas Satchwell varði fimmtán
skot í markinu.
Selfoss er með 10 stig í 7. sæti en
KA er með 6 stig í tíunda sæti.
Þriðji sigurinn
í röð hjá FH
- Afar óvænt úrslit á Seltjarnarnesi
Morgunblaðið/Óttar Geirsson
Horn Hafnfirðingurinn Gytis Smantauskan sækir að Aftureldingu úr horn-
inu að Varmá í Mosfellsbæ en hann skoraði eitt mark í leiknum í gær.
_ Valgerður Guðsteinsdóttir, fyrsta
og eina atvinnuhnefaleikakona lands-
ins, hafði betur gegn hinni maltnesku
Claire Sammut á boxkvöldi í Jönköping
í Svíþjóð á laugardagskvöld. Valgerður
var að keppa sinn fyrsta bardaga í að
verða þrjú ár, eða síðan í mars árið
2019, og hafði sigur í gærkvöldi eftir
einróma dómaraákvörðun.
Samkvæmt dómurunum þremur vann
hún fimm af sex lotum hjá tveimur
dómurum en fjórar af sex hjá þriðja
dómaranum. Sigurinn var sérlega sæt-
ur fyrir Valgerði
þar sem hún fór úr
lið á þumalfingri á
hægri hönd strax í
fyrstu lotu. Val-
gerður þurfti því
að reiða sig meira
á vinstri höndina
en hún hafði lagt
upp með. Í sjö at-
vinnumannabardögum er Valgerður nú
búin að vinna fimm og tapa tveimur.
_ Adam Ingi Benediktsson stóð á
milli stanganna í sínum fyrsta leik fyrir
Gautaborg þegar liðið vann öruggan
heimasigur gegn Östersund í sænsku
úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gær.
Leiknum lauk með 4:0-sigri Gauta-
borgar en Adam Ingi, sem er einungis
19 ára gamall, skrifaði á dögunum und-
ir þriggja ára samning við félagið.
Gautaborg er með 38 stig í áttunda
sæti deildarinnar. Þá kom hinn 16 ára
gamli Jóhannes Kristinn Bjarnason
inn á hjá Norrköping í sínum fyrsta leik
fyrir félagið þegar liðið tapaði 1:4 á úti-
velli gegn Degerfors. Norrköping er
með 44 stig í sjöunda sætinu.
_ Allir leikmenn og þjálfarar karlaliðs
Hattar í körfuknattleik eru komnir í
sóttkví eftir að kórónuveirusmit
greindist í leikmannahópi liðsins. Af
þeim sökum var leik Hattar og Fjölnis,
sem fara átti fram í 1. deild karla á
Egilsstöðum í gær, frestað. Í frétta-
tilkynningu Hattar kom fram að smit-
aðir leikmenn liðsins væru við góða
heilsu og með væg einkenni. Höttur er
í öðru sæti 1.
deildarinnar
með 16 stig eft-
ir níu leiki.
_ Helsingborg
tryggði sér sæti
í umspili um
sæti í efstu
deild Svíþjóðar í
knattspyrnu með 2:2-jafntefli á
heimavelli gegn Västerås í lokaumferð
B-deildarinnar á laugardag. Böðvar
Böðvarsson lék allan leikinn með
Helsingborg en bakvörðurinn hefur
leikið 27 leiki með liðinu á leiktíðinni.
Þá lék Bjarni Mark Antonsson allan
leikinn með Brage er liðið vann 2:1-
útisigur á Falkenberg. Með úrslitunum
gulltryggði Brage sér sæti í deildinni
Eitt
ogannað
Darri Aronsson var markahæstur í
liði Hauka þegar liðið tapaði með
tveggja marka mun gegn Foscani í
32-liða úrslitum Evrópubikars
karla í handknattleik í Vrancea í
Rúmeníu á laugardaginn.
Darri skoraði sjö mörk í leiknum
sem lauk með 28:26-sigri Foscani
en staðan í hálfleik var 16:14, Fosc-
ani í vil.
Haukar leiddu lengst af í fyrri
hálfleik og náðu mest þriggja
marka forskot, 8:5. Staðan var
26:26 þegar skammt var eftir af
leiknum en rúmenska liðið skorað
tvö síðustu mörkin í leiknum.
Brynjólfur Snær Brynjólfsson
skoraði sex mörk fyrir Hauka og
þeir Ólafur Ægir Ólafsson og Jón
Karl Einarsson fjögur mörk hvor.
Stefán Huldar Stefánsson varði
sjö skot í marki Hauka en Aron
Rafn Eðvarsson, aðalmarkvörður
Hauka, fékk að líta beint rautt
spjald í hálfleik fyrir að opna hurð í
íþróttahúsinu í Vrancea á harka-
legan hátt.
Síðari leikur liðanna fer fram á
Ásvöllum í Hafnarfirði um næstu
helgi.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
7 Darri Aronsson fór mikinn í liði Hauka í Rúmeníu en það dugði ekki til og
þurfa Hafnfirðingar því að vinna upp tveggja marka tap um næstu helgi.
Haukar þurfa sigur
Sandra Erlingsdóttir var marka-
hæst í íslenska kvennalandsliðinu í
handknattleik þegar liðið tapaði
með tveggja marka mun gegn
Tékklandi í þriðja og síðast leik sín-
um í æfingamóti í Cheb í Tékklandi
á laugardaginn.
Leiknum lauk með 27:25-sigri
tékkneska liðsins en Sandra skor-
aði sex mörk í leiknum, þar af fjög-
ur af vítalínunni.
Tékkar byrjuðu leikinn betur og
leiddu 15:12 í hálfleik. Íslenska liðið
byrjaði síðari hálfleikinn af krafti
og leiddi með eins til tveggja marka
mun stóran hluta síðari hálfleiks.
Tékkar voru hins vegar sterkari á
lokamínútunum og fögnuðu sigri.
Díana Dögg Magnúsdóttir og
Andrea Jacobsen skoruðu fjögur
mörk hvor, og Þórey Rósa Stef-
ánsdóttir þrjú mörk. Hafdís Re-
nötudóttir varði níu skot í marki ís-
lenska liðsins.
Íslenska liðið vann einn leik á
mótinu, gegn Sviss, en tapaði fyrir
Noregi og Tékklandi.
Þá vann íslenska B-landslið
kvenna 35:18-stórsigur gegn U21-
árs landsliðið Tékklands á sama
móti á laugardaginn.
Ísland var sterkari aðilinn allan
tímann og leiddi 15:9 í hálfleik.
Auður Ester Gestsdóttir var
markahæst í íslenska liðinu með sjö
mörk, Maram Eradze og Elín Rósa
Magnúsdóttir skoruðu fimm mörk
hvor og Sara Dögg Hjaltadóttir
fjögur mörk. Sara Sif Helgadóttir
og Saga Sif Gísladóttir vörðu hvor
um sig fimm skot í marki íslenska
liðsins.
Líkt og hjá A-liðinu vann B-liðið
einn leik á mótinu, gegn Tékklandi,
en tapaði fyrir Noregi og Sviss.
Landsliðin unnu
einn leik hvort
Ljósmynd/Óttar Geirsson
6 Sandra Erlingsdóttir skoraði sex
mörk í lokaleiknum gegn Tékkum.