Morgunblaðið - 29.11.2021, Síða 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. NÓVEMBER 2021
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
CHAN MADDEN NANJIANI McHUGH HENRY RIDLOFF
BARRY
KEOGHAN
DON
LEE
WITH KIT
HARINGTON
WITH SALMA
HAYEK
AND ANGELINA
JOLIE
O B S E R V E R E N T E R TA I N M E N T
94%
Frábær ný Fjölskyldumynd frá Disney
sýnd með Íslensku og Ensku tali
L
ára og Ljónsi – Jólasaga
nefnist jólasýning fyrir
yngstu áhorfendurna og
fjölskyldur þeirra sem
nýverið var frumsýnd á Litla sviði
Þjóðleikhússins, sem áður nefndist
Kúlan og staðsett er á neðri hæð í
húsi Jóns Þorsteinssonar við Lindar-
götu. Sagan er eftir Birgittu Haukdal
sem einnig er höfundur tónlistar og
söngtexta, en leikgerðina vann Guð-
jón Davíð Karlsson sem jafnframt
leikstýrir. Birgitta hefur frá árinu
2015 sent frá sér alls 18 bækur um
hina lífsglöðu Láru sem finnst fátt
skemmtilegra en að læra eitthvað
nýtt, hvort heldur það er að baka,
hjóla eða lesa.
Í tæplega klukkustundarlangri
leiksýningu kynnir Lára (Þórey Birg-
isdóttir) leikhúsgesti fyrir hinum
ýmsu töfrabrögðum leikhússins þar
sem klæðaskápur getur lumað á risa-
stóru jólatré, jólaljós kviknað öllum
að óvörum, sokkahrúga umbreyst í
sokkaskrímsli, ósýnilegur jólasveinn
drukkið djús úr glasi og litaður leir
orðið að gómsætum piparkökum.
Besti vinur Láru er leikfanga-
bangsinn Ljónsi (Bjarni Kristbjörns-
son) sem lifnar bókstaflega við þegar
hann er einn með Láru, en er aðeins
mjúkdýr í augum annarra persóna
verksins. Leikurinn gerist á aðvent-
unni, en jólaundirbúningurinn fellur
óneitanlega nokkuð í skuggann þegar
Ljónsi hverfur óvænt eina nóttina og
finnst ekki, sama hversu mikið Lára
leitar. Vafalítið þekkja allir áhorf-
endur þá sorg sem fylgt getur því að
finna ekki uppáhaldsbangsann sinn.
Og sem betur fer finnast bangsarnir
oftast aftur, þótt ólíklegt sé að þeir
hafi lent í sömu ævintýrum og Ljónsi,
sem áhugavert hefði verið að heyra
meira um. En eins og vera ber fer allt
vel að lokum og jólaandinn hellist yfir
persónur, jafnvel þótt möndlugraut-
urinn hafi misheppnast örlítið þetta
árið. Því eins og við vitum öll snúast
jólin ekki um skraut, fullkomna rétti
eða dýrustu pakkana, heldur um
samveruna með þeim sem okkur þyk-
ir vænt um.
Leikmynd og búningar Maríu Th.
Ólafsdóttur kallast sterklega á við
myndheim bókaflokks Birgittu sem
Anahit Aleqsanian skapaði.
Prinsessubleikt herbergi Láru sem
er blómum og ljósum skreytt, geymir
rúm sem gaman er að hoppa í og tvo
glugga með skjám sem með skemmti-
legum hætti geta hæglega sýnt mun
dags og nætur, ýmis veðrabrigði og
nýst sem dagatal þegar síðustu dag-
arnir til jóla eru taldir niður, en
myndbandshöfundur er Signý Rós
Ólafsdóttir.
Þórey Birgisdóttir smellpassar í
hlutverk hinnar brosmildu og lífs-
glöðu Láru. Sjónrænt gervi hennar
minnir ekki aðeins á titilpersónuna
heldur vísar einnig sterklega til höf-
undarins. Bjarni Kristbjörnsson er
kraftmikill Ljónsi og gaman var að
fylgjast með hröðum skiptingum milli
þess sem mjúkdýrið lifnaði við. Það
reyndi ekki síður á Kjartan Darra
Kristjánsson þegar hann oft og tíðum
hafði aðeins örfáar sekúndur til að
skipta um búning til að leika ýmist
pabba Láru eða Atla vin hennar.
Kjartan Darri átti fyndnustu augna-
blik verksins í hlutverki pabbans,
sem þrátt fyrir mikið annríki í að-
draganda jóla, var nánast pollrólegur
samanborið við hinar persónurnar.
Einföld sagan er keyrð áfram af
miklum krafti og fjölda laga þar sem
tilfinningum persóna er iðulega miðl-
að. Þar heppnaðist ýmislegt ágæt-
lega, en heilt yfir var hljóðstyrkurinn
of hár, sem er því miður algengt
vandamál í barnasýningum og um-
hugsunarefni í ljósi þess að börn eru
viðkvæmari fyrir hávaða en full-
orðnir. Þegar persónur ávörpuðu sal-
inn beint var ljóst að leikhúsgestir
áttu auðvelt með að lifa sig inn í sög-
una og þekktu mörg hver augljóslega
Láru og Ljónsa af lestri bókanna.
Þau glöddust eðlilega þegar ljóst var
að þeim stæði til boða að hitta titil-
persónurnar að leik loknum og láta
smella af sér mynd með þeim. Hins
vegar mætti huga betur að greiðri út-
gönguleið fyrir þá gesti sem ekki vilja
eða þora í slíka myndatöku.
Eftir stendur að Lára og Ljónsi –
Jólasaga er sykursæt sýning sem
kynnir ýmis töframeðöl leikhússins
fyrir yngstu áhorfendurna og styttir
biðina eftir jólunum.
Ég hlakka svo til …
Ljósmynd/Jorri
Brosmild „Þórey smellpassar í hlutverk hinnar brosmildu og lífsglöðu Láru,“ segir um Láru og Ljónsa – Jólasögu.
Þjóðleikhúsið
Lára og Ljónsi – Jólasaga bbbnn
Eftir Birgittu Haukdal. Leikstjórn og
leikgerð: Guðjón Davíð Karlsson. Tónlist
og söngtextar: Birgitta Haukdal. Leik-
mynd og búningar: María Th. Ólafs-
dóttir. Lýsing: Jóhann Bjarni Pálmason.
Hljóðhönnun: Elvar Geir Sævarsson.
Myndbandshöfundur: Signý Rós Ólafs-
dóttir. Leikarar: Bjarni Kristbjörnsson,
Kjartan Darri Kristjánsson og Þórey
Birgisdóttir. Frumsýning á Litla sviði
Þjóðleikhússins laugardaginn 13. nóv-
ember 2021, en rýnt í 4. sýningu á sama
stað sunnudaginn 21. nóvember 2021.
SILJA BJÖRK
HULDUDÓTTIR
LEIKLIST
Bítlarnir höfðu hug á að kvikmynda
Hringadróttinssögu árið 1968, en
Tolkien lagðist alfarið gegn því.
Þetta er meðal þess sem kvik-
myndaleikstjórinn Peter Jackson
hefur komist að við vinnslu heim-
ildamyndarinnar Get Back sem að-
gengilegir eru á streymisveitunni
Disney+. Myndefnið byggir á áður
óbirtu efni sem tekið var upp við
upptökur á plötunni Let it Be.
Samkvæmt frétt BBC hugðust
Bítlarnir sjálfir ætla að leika í
myndinni, Paul McCartney átti að
leika Frodo, Ringo Starr Sam, John
Lennon Gollum og George Harri-
son Gandalf, en draumaleikstjóri
þeirra var Stanley Kubrick. Þeir
ætluðu að semja allt að 15 lög fyrir
myndina. „Mér hefði fundist frá-
bært að heyra þá tónlist, en á sama
tíma er ég mjög glaður að hafa
fengið tækifæri til að leikstýra
þessari sögu,“ segir Peter Jackson.
AFP
Bítlarnir John Lennon, Ringo Starr, Paul
McCartney og George Harrison árið 1964.
Tolkien leist ekki á
aðkomu Bítlanna
Breski þingmað-
urinn Nick Flet-
cher telur að
rekja megi
aukna af-
brotahneigð
ungra karl-
manna til þess að
konur séu í aukn-
um mæli farnar
að leika hetjurn-
ar í kvikmyndum
og sjónvarpsþáttum. BBC vitnar til
orða Fletchers þess efnis að með
því að láta konur leika aðalhlut-
verkin í þáttum á borð við Doctor
Who sé búið að svipta unga karl-
menn mikilvægum fyrirmyndum
sem líti í staðinn upp til glæpa-
manna á borð við Tommy Shelby í
Peaky Blinders. Ummælin féllu í
ræðu á Alþjóðlegum degi karla.
Segir karla rænda
fyrirmyndum
Jodie Whittaker
sem Doctor Who.