Morgunblaðið - 03.11.2021, Qupperneq 8
8 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 2021VIÐTÖL
Tannlæknastofan Helvetic Clinics í
Búdapest er nokkur hundruð metra
frá dómkirkju heilags Stefáns.
Hún var stofnuð af bræðrunum
Peter og Laszlo Lukacs og hét þá
Lukacs Dental Center á ensku.
Nafninu var breytt árið 2012 í
Helvetic Clinics og var stefnan sett á
að verða alþjóðleg tannlæknastofa
sem þjónustaði fyrst og fremst
frönskumælandi markaði.
Árið 2014 hóf hún markaðs-
setningu í Bretlandi, Þýskalandi,
Danmörku og Noregi og bauð upp á
aðgerðir í Búdapest. Ári síðar var
núverandi húsnæði tekið í notkun en
það er 4.000 fermetra bygging í mið-
borginni sem er með tannlækna-
stofur, tannsmíðaverkstæði og hót-
elið 12 Revay hotel á efstu hæðum.
Valin sú besta í heiminum
Að sögn Virag Kiss, sölustjóra
Helvetic Clinics, var stofan valin sú
besta í heiminum árin 2015, 2016 og
2017 af Global Clinic Rating.
Nafnið vísar til þess að Helvetia
er latneskt heiti á Sviss en fjár-
festarnir Pierre Chaker og Jean
Francois Empain, sem komu að
rekstrinum árið 2012, eru frá Sviss.
Kiss tók á móti blaðamanni í
höfuðstöðvunum en hún baðst undan
myndatöku. Kiss hefur m.a. stýrt
sölustarfi á Íslandi, í Frakklandi,
Þýskalandi, Austurríki, Sviss, Bret-
landi, Noregi og í Danmörku.
Stofan hafi frá árinu 2012 tekið á
móti yfir 30 þúsund sjúklingum frá
32 löndum. Þjónustan sé að jafnaði
30-70% ódýrari en í heimalandinu.
Þótt verðið sé lægra sé hvergi slegið
af gæðakröfum í öllu ferlinu.
Eigendurnir hafi skapað umgjörð
sem feli í sér að öll þjónusta sé undir
einu þaki. Viðskiptavinir geti þannig
fengið alla meðferðina og gistingu á
sama stað. Hótelið, 12 Revay hotel,
er þriggja stjarna og með 53 her-
bergjum og þremur íbúðum.
Fjöldinn er trúnaðarmál
Helvetic Clinics hóf að bjóða Ís-
lendingum þjónustu árið 2018.
Að sögn Kiss er fjöldi íslenskra
viðskiptavina trúnaðarmál en hún
staðfestir að 10-20% viðskiptavina
komi frá Norðurlöndum.
Stofan er í samstarfi við HEI –
Medical Travel á Íslandi.
Á stofunni eru tólf tannlækna-
stólar, þar af þrír sem eru ætlaðir
undir skurðaðgerðir. Þá er þar
meðal annars búnaður til að mynda
tennur í þrívídd.
Að sögn Kiss vinna tannlæknarnir
með tannsmiðunum að því að
tryggja sem besta útkomu. Þetta
séu ólík vinnubrögð en tíðkist víða í
Evrópu, þ.m.t. Frakklandi, þar sem
tannsmíðavinnan fari ósjaldan fram
utan stofu, t.d. í Kína eða á Indlandi.
Allt að lífstíðarábyrgð
„Við notum hágæðavörur. Þar
með talið tannplanta frá Sviss. Við
notum ekki efni frá Kína eða slíkum
löndum heldur eingöngu vel þekkt
vörumerki. Komi upp vandamál hjá
sjúklingnum getur hann fengið við-
gerð innan ábyrgðartímans sem er
mislangur eftir aðgerðum. Að jafn-
aði er hann fimm ár en tannplönt-
unum fylgir hins vegar lífstíðar-
ábyrgð. Við munum greiða fyrir flug
og gistingu á hótelinu og bjóða upp á
viðgerð án endurgjalds,“ segir Kiss
og bendir á að viðskiptavinir njóti
leiðsagnar á móðurmáli og sé ekið til
og frá flugvellinum.
Eftir að kórónuveirufaraldurinn
hófst hafi stofan hafið sókn á nýjan
markað með því að höfða til Kín-
verja sem eru búsettir í Búdapest.
Boðin sé þjónusta á kínversku.
Ljósmyndir/Helvetic Clinics
Gestum Helvetic Clinic stendur til boða að gista á hóteli í sömu byggingu.
Sérfræðingur hjá Helvetic að störfum. Tölvutæknin nýtist tannlæknum.
Hóf kynningu á
Íslandi árið 2018
Tannlæknastofan Helvetic
Clinics hefur á áratug
þróast úr lítilli stofu yfir í
alþjóðlega stofu sem sækir
m.a. fram á Íslandi.
mæri í Evrópu, þar af 80 þúsund í
Ungverjalandi sem sé í fararbroddi
á þessu sviði í álfunni. Með sama
áframhaldi kunni þessi fjöldi að fjór-
faldast í 800 þúsund viðskiptavini á
ári en það verði eftir sem áður innan
við 0,5 % af íbúafjölda þessara ríkja.
Austurríkismenn riðu á vaðið
Fyrst hafi Austurríkismenn kom-
ið yfir landamærin og keypt tann-
læknaþjónustu í Ungverjalandi en
svo hafi Þjóðverjar og Svisslend-
ingar fylgt í kjölfarið. Framboð á
lággjaldaflugi til nýrra markaða hafi
styrkt markaðssóknina enn frekar
en Wizz Air flýgur nú tvisvar í viku
milli Keflavíkur og Búdapest.
Horváth tekur fram að markaðs-
starfið sé alfarið unnið af einka-
aðilum, ólíkt til dæmis Tyrklandi, en
þar styðji stjórnvöld sókn heilbrigð-
isgeirans á erlenda markaði.
Horváth segir aðspurður ekki
bera á andstöðu vinstrimanna við
þessa þjónustu við erlenda
viðskiptavini. Bendir svo á að þótt
Ungverjar hafi verið undir hæl
kommúnismans hafi frjálsræði þar
verið meira en almennt austan
tjalds.
Ungverska ríkið tryggi grunn-
þjónustu í tannlækningum. Greiði til
dæmis fyrir góm með gervitönnum.
Hins vegar þurfi að greiða fyrir dýr-
ari aðgerðir og nýjustu tækni. Ung-
verjar leiti þá gjarnan heldur á
einkareknu stofurnar, enda séu gæði
þjónustunnar jafnan meiri en hjá
ríkisreknum tannlæknastofum.
Samkeppnin milli einkareknu
stofanna sé mikil og það þrýsti á
góða þjónustu og nýjungar.
Sjö til tíu þúsund evrur
Erika Orosz segir aðspurð að ís-
lenskir gestir stofunnar verji að
jafnaði sjö til tíu þúsund evrum í að-
gerðir. Það sé að jafnaði tvöfalt til
þrefalt lægri upphæð en samsvar-
andi aðgerðir kosti á Íslandi. Því
geti íslenskir viðskiptavinir vel spar-
að sér 15 til 20 þúsund evrur.
Algeng aðgerð er að koma fyrir
tannplanta og festa í hann krónu.
Við slíka aðgerð er byrjað á að
draga úr tönn. Tannholdið þarf síðan
að jafna sig og getur sá tími tekið
þrjá til fjóra mánuði, að sögn Hor-
váths. Sjúklingurinn komi síðan aft-
ur og þá sé tannplantanum komið
fyrir. Loks komi sjúklingurinn í
þriðja sinn og eru þá meðal annars
settar upp brýr við lokafrágang.
Stundum er þessi aðgerð gerð í
tveimur heimsóknum og í sumum til-
fellum hefur tannbeinið eyðst svo
mikið að ekki er hægt að koma fyrir
tannplanta en festingin þarf að jafn-
aði sex millimetra bein til að halda.
Þarf þá að byggja upp tannbeinið.
Allt að þrefalt ódýrari
Þrátt fyrir að slík meðferð geti út-
heimt þrjár utanferðir er hún að
sögn Horváths tvöfalt til þrefalt
ódýrari en á Íslandi, og taki jafnan
mun skemmri tíma, en flug, hótel og
akstur til og frá flugvelli í Búdapest
sé innifalinn. Horváth segir verð-
muninn skýrast af lægri launum,
lægri sköttum og húsaleigu í Ung-
verjalandi en á Íslandi. Notast sé við
sama efni og sömu tæki og á bestu
tannlæknastofum í Evrópu.
Algengt sé að nýútskrifaðir tann-
læknar í Ungverjalandi hafi 1.500
evrur í mánaðarlaun eftir skatt, eða
225 þúsund krónur, en sérfræðingar
um og yfir 10 þúsund evrur, eða um
1.500 þúsund krónur. Horfa beri til
þess að vegna fjölda aðgerða öðlist
sérfræðingar í Ungverjalandi gjarn-
an meiri reynslu en erlendir sér-
fræðingar. Það birtist meðal annars
í því að þeir ungversku taki að sér
aðgerðir sem álitnar eru of flóknar í
heimalandi viðkomandi sjúklinga.
Gómur skannaður í þrívídd.
Búnaður fyrir myndatöku á stofunni
er sagður vera af fullkomnustu gerð.
Morgunblaðið/Baldur
Einn af tannlæknastólum Madenta við Madách Imre-torgið í Búdapest.
Greið leið
– til fram
Við ráðum í 100 stöðu
a
r