Morgunblaðið - 03.11.2021, Síða 10

Morgunblaðið - 03.11.2021, Síða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 2021FRÉTTASKÝRING Fyrr í vetur átti ég erindi til Banda- ríkjanna og ætlaði að nota tækifærið til að fjárfesta í nýrri tölvu. En þegar ég var búinn að finna fartölvuna sem mig langaði í, og ekkert var eftir nema að gefa framleiðandanum upp kortanúmerið mitt, tók ég eftir því að tölvan yrði ekki tilbúin til afhend- ingar fyrr en eftir margar vikur og útilokað að hún bærist á hótelið mitt í tæka tíð. Ástæðan var augljós: vöru- flutningar á milli Kína og Bandaríkj- anna voru komnir í hnút og tölvan væntanlega föst um borð í gámaskipi einhvers staðar undan ströndum Kaliforníu. Svipaða sögu heyrði ég frá góðum kunningja sem leigir út íbúð í Flórída. Sófinn í íbúðinni hafði skemmst svo að þurfti að skipta honum út fyrir nýjan, en kom þá í ljós að það yrði margra mánaða bið eftir þessari vöru sem seljendur eiga alla jafna tilbúna á lager. Er ekki skrítið að bandarískir neytendur og framleiðendur séu óró- legir, enda ekkert grín þegar fín- stilltar aðfanga- og vöruflutninga- keðjur fara úr skorðum. Minnstu merki um vöruskort geta haft merkileg sálræn áhrif á mann- fólkið. Í mínu tilviki blossar upp löng- un til að vera við öllu búinn og eiga bjálkakofa einhvers staðar úti í óbyggðum þar sem ég gæti hreiðrað um mig með birgðir af mat, klósett- pappír, og hrúgu af bókum og hag- fræðiritum til að stytta mér stundir. Í fantasíunni stendur stór stafli af eldiviði á bak við kofann, notalegur heitur pottur úti á veröndinni, í eld- húsinu frystir fullur af nautalundum og reyktum laxi, og inni á miðju stofu- gólfinu heil palletta af viskíi, kampa- víni, franskri gæsalifrarkæfu, harð- fiski og hundamat. Hann Youssef minn gæti látið fara vel um sig á bjarnarfeldi fyrir framan arininn, og reynt að ranghvolfa ekki augunum á meðan ég útskýrði fyrir honum hvernig kenningar Karls Pol- anyi hjálpa okkur að skilja hvers vegna margra áratuga kverkahald stéttarfélaga á bandarískum gáma- höfnum varð til þess að allt fór í hönk og hillur verslana tæmdust. Betra seint en aldrei Í ágúst fjallaði ég um ófremdar- ástandið í bandarískum gámahöfnum og hefur vandinn bara aukist síðan þá. Mikið álag er á gámahöfnum um allan heim en ástandið áberandi verst í Bandaríkjunum Í lok október biðu rösklega 150 flutningaskip undan ströndum Los Angeles og Long Beach í Kaliforníu en þar fara í gegn u.þ.b. 40% af öllum gámum sem berast til Bandaríkj- anna. Vandinn teygir sig langt inn í land því það gengur illa að finna nógu marga flutningabíla til að koma gám- unum á endastöð, og heljarinnar teppa hefur myndast á afgreiðslu- svæðum hafnanna. Bandarísk stjórnvöld gripu loksins til aðgerða í október og hefur ríkis- stjórn Bidens tilkynnt að reynt verði að leysa vandann m.a. með því að leggja dagsektir á eigendur gáma sem sitja of lengi á hafnarbakkanum. Fá flutningsaðilar þriggja daga frest til að koma gámum sínum á lestar- vagn, en níu daga til að senda gáma af stað með flutningabíl, ellegar greiða dagsektir sem byrja í 100 dölum fyrsta daginn, hækka upp í 200 dali þann næsta, og þannig koll af kolli. Þá verður afgreiðslutími stóru gáma- hafnanna tveggja lengdur svo ryðja megi fleiri gámum í gegn. Pete Buttigieg samgönguráðherra kom loksins úr felum í október en hann tók sér tveggja mánaða barn- eignarfrí í haust, eftir að hann og eig- inmaður hans eignuðust tvíbura með aðstoð staðgöngumóður. Það er ósköp fallegt að Buttigieg skyldi ákveða að láta fjölskylduna hafa for- gang, en tímasetningin hefði varla getað verið óheppilegri enda sjaldan sem samgönguráðherra hefur tæki- færi til að koma samlöndum sínum til bjargar og baða sig í sviðsljósinu. Herma nýjustu fréttir að ráðuneytið ætli að reyna að liðka fyrir útgáfu ökuskírteina fyrir nýja vörubílstjóra og slaka á reglum um vinnutíma bíl- stjóra með það fyrir augum að gera flutningakerfið skilvirkara. Betri gámahafnir að finna í fátækum Afríkuríkjum Eins og ég útskýrði í ágúst hefur teppan í bandarískum gámahöfnum einkum verið rakin til þess að kippur hefur orðið í gámaumferð til Banda- ríkjanna. Á fyrri helmingi þessa árs fóru rösklega 40% fleiri gámar í gegn- um hafnirnar í Los Angeles og Long Beach en á sama tíma í fyrra og hefur gengið illa að bregðast við þessari aukningu. Gantaðist Buttigieg með það í viðtölum við bandarískar sjón- varpsstöðvar að vöruflutningavandinn væri til marks um það hvað örvunar- aðgerðir Bidens hefðu heppnast vel. Kjánaprikið. En aukin gámaumferð segir bara hálfa söguna og eflaust að glöggir les- endur hafa staldrað við það ofar í text- anum að núna fyrst skuli vera gripið til þess ráðs að lengja afgreiðslutíma stóru hafnanna í Kaliforníu. Kemur það örugglega mörgum á óvart að tvær mikilvægustu gámahafnir Bandaríkjanna skuli ekki vera opnar allan sólarhringinn, allan ársins hring, heldur standa gámarnir óhreyfðir ut- an venjulegs dagvinnutíma. Segir það sína sögu um tregðuna í kerfinu að það skuli gerast núna fyrst að reynt er að laga vandann með því að nýta sólar- hringinn betur. Í nýlegri grein á vef Cato-stofnun- arinnar útskýrir lagaprófessorinn Scott Lincicome vel hvar rót vandans liggur. Þar bendir hann á að banda- rískar gámahafnir hafi dregist langt aftur úr gámahöfnum í öðrum löndum svo þær eru núna með þeim óskilvirk- ustu sem finna má í víðri veröld. Sást þetta skýrt á samantekt Alþjóðabank- ans og IHS Markit á síðasta ári þar sem hafnirnar í Los Angeles og Long Beach lentu í sætum 328 og 333 á lista yfir skilvirkustu gámahafnir heims. Höfnin í Philadelphiu kom best út af öllum bandarískum höfnum en hafnaði samt bara í 83. sæti. Ástæðan fyrir óskilvirkni banda- rískra gámahafna er að þær hafa ekki tæknivæðst að sama marki og hafnir í Asíu og Evrópu. Og ástæðan fyrir þessari tregðu til að nýta sjálfvirkar og liprar lausnir er ósköp einföld: stéttarfélögin taka það ekki í mál. Vildu stöðva gámavæðinguna Tvö öflug stéttarfélög gæta hags- muna hafnarstarfsmanna í Bandaríkj- unum: ILWU ræður ríkjum á vestur- ströndinni en ILA sér um hagsmunabaráttuna í öðrum lands- hlutum. Hafa þessi stéttarfélög fengið að komast í þá aðstöðu að geta lamað skipaflutninga, og þannig hafa þau staðið að kjarabaráttunni í marga ára- tugi. Reyndu þessi stéttarfélög meira að segja að koma í veg fyrir gámavæð- ingu skipaflutninga á 7. áratugnum, og vildu halda aftur af tölvuvæðingu greinarinnar til að reyna að verja störf sinna félagsmanna. Þau gáfu ekkert eftir fyrr en samið var um ríflegar launahækkanir og rausnarlegar bætur til þeirra sem misstu vinnuna vegna nýju tækninnar. Útkoman er sú að á meðan mikil- vægar gámahafnir í Evrópu og Asíu iða af lífi allan sólarhringinn eru skip fermd og affermd í Los Angeles og Long Beach að hámarki 16 tíma á dag, eða 112 klukkustundir á viku. Af- greiðsluhliðin inn og út úr höfninni eru opin 88 tíma á viku. Stjórnvöld taka þátt í vitleysunni og er tollafgreiðsla í höfnunum tveimur aðeins í boði milli 8 og 16.30 á virkum dögum. Eru meðallaun félagsmanna ILWU um 171.000 dalir eða jafnvirði 22 milljóna á ári, og eru þá ekki talin með rausnarleg fríðindi sem þeir njóta. Er því rándýrt að ætla að auka afköstin með því að fjölga starfsfólki og vinna á sólarhringsvöktum, og þar sem tæknivæðingin er mörgum ára- tugum á eftir höfnum í öðrum löndum þarf fleira fólk til að koma hverjum gámi á réttan stað. Lincicome ber saman afköst á hvern gámakrana í Okland annars vegar og hátækni- höfninni í Rotterdam hins vegar og fær það út að hollenski kraninn af- kastar næstum tvöfalt á við þann bandaríska. Það má líka sjá muninn vel með því að skoða stöðuna hjá vöruflutninga- höfninni í Virginíu þar sem hefur þó tekist að tæknivæða til hálfs. Þar hef- ur aldrei verið meira að gera en tæknin hjálpar starfsfólkinu að láta allt ganga smurt fyrir sig. Í Virginíu hrannast gámarnir ekki upp, og skip- in þurfa ekki að bíða í löngum röðum. Rauða spjaldið frá Polanyi Karl Polanyi freistaði þess að greina þá krafta sem toga í ólíkar átt- ir þegar samfélög iðn- og tæknivæð- ast. Annars vegar höfum við krafta markaðarins sem keppast við að auka skilvirkni og afköst; lágmarka aðföng og hámarka framleiðslu, en valda um leið viðvarandi röskun þar sem eng- inn veit hvaða vörur eða hráefni verða einskis virði á morgun, eða hvaða störf hverfa með nýrri uppfinn- ingu. Úr hinni áttinni toga félagslegir og pólitískir kraftar: fólk er hrætt við að falla milli þilja í þessu kerfi og beit- ir fyrir sig stéttarfélögum og stjórn- málamönnum sem nota atvinnulög- gjöf, verndartolla og önnur inngrip til að milda neikvæðu hliðar framfar- anna. Kúnstin er, að mati þeirra sem samþykkja greiningu Polanyi, að finna rétta jafnvægið: þar sem mark- aðurinn er ekki svo óheftur að hann fái að bryðja í sig heilu þjóðfélagshóp- ana, en markaðinum heldur ekki sett- ar svo miklar skorður að haldi aftur af framförum og verðmætasköpun. Ástandið í gámahöfnunum í Kali- forníu sýnir hvað getur gerst ef þetta jafnvægi fer úr skorðum og sérhags- munahópar fá að ganga allt of langt. Kerfið í gat engu að síður fúnkerað tiltölulega vel, en þegar álagið jókst blasti við hvernig sérhagsmunagæsl- an hafði gert gámaflutningakerfið óskilvirkt og ósveigjanlegt, svo á augabragði skapaðist meiri háttar vandamál sem bandarískir neytendur og atvinnulíf þurfa að súpa seyðið af, með keðjuverkandi áhrifum um allt alþjóðahagkerfið. Lexían er einkum þessi: við meg- um ekki láta það óafskipt ef reglurnar veita einhverjum hópum sérstaka vernd, undanþágur, bætur eða styrki. Við þurfum að vara okkur á því að flókið regluverk, sérskattar og skammtanir fái að draga úr sam- keppni og nýsköpun. Þeir sem hafa völd og áhrif þurfa að þora að taka slaginn, og höggva á hnútana strax frekar en að leyfa þeim að stækka og breiða úr sér. En ef við getum ekki lært þessa lexíu, og fólk vill frekar undirbúa næstu krísu með því að birgja sig upp af helstu nauðþurftum, þá er ágætt að lesendur viti að niðursoðin gæsa- lifrarkæfa endist í nokkur ár við stofuhita. Makindalíf við hafnarbakkann Ásgeir Ingvarsson skrifar frá Playa del Carmen ai@mbl.is Sú teppa sem myndast hefur í mikilvægustu gáma- höfnum Bandaríkjanna skýrist ekki síst af því að voldug stéttarfélög hafa komið í veg fyrir tæknivæð- ingu hafnanna. AFP Það er ekki amalegt hlutskipti að vinna við að stýra gámakrana á Long Beach. Launin eru há og vinnutíminn ákaflega þægilegur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.