Morgunblaðið - 03.11.2021, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 03.11.2021, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 2021 11VIÐTAL Fallegar vörur fyrir heimilið Sendum um land allt Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is Calia Pier Ítalskt, gegnlitað nautsleður Stakir sófar: 3ja sæta sófi (226 cm) 339.000 kr. 2,5 sæta sófi (206 cm) 319.000 kr. 2ja sæta sófi (186 cm) 299.000 kr. Tungusófi með rafmagni í sæti 615.000 kr. Vatnagörðum 14 104 Reykjavík litrof@litrof.is 563 6000 Sterkari saman í sátt við umhverfið Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Eydís Rós er með marga bolta á lofti. Nýlega settist hún í stjórn FKA og sinnir félagsstörfunum samhliða því að reka Vélsmiðju Ingvars Guðna og Kjúklingabúið Vor með manni sínum Ingvari Guðna Ingimundarsyni. Vélsmiðjan fagnar 20 ára af- mæli á þessu ári og í sumar voru tvö ný eldishús tekin í notkun á kjúklingabúinu, hvort um sig tæplega 900 fermetrar að stærð. Hverjar eru helstu áskor- anirnar í rekstrinum þessi misserin? Í járninu er það fyrst og fremst gífurlega hátt verð á hrá- efni sem lætur á sér kræla núna og svo hefur einnig borið á hrá- efnisskorti hérlendis sem má að einhverju leyti rekja til kórónuveirufaraldursins. Verð á galvanhúðun hérlendis er einnig hátt sem hefur auðvitað áhrif á samkeppnismöguleika okkar við innflutta vörur af svip- uðum toga. Við höfum heyrt að þetta sé farið að valda því að smíðaverkefni séu nú þegar farin að færast úr landi, þá bæði smíð- in og galvanhúðunin. Í kjúklingabúskapnum hefur reglugerð um velferð alifugla verið til endurskoðunar í ráðu- neyti í nokkur ár sem er haml- andi fyrir nýjustu húsin okkar sem við tókum í notkun í sumar. Núgildandi reglugerð kveður á um að í nýjum húsum megi vera með mun minni framleiðslu á hvern fermetra en í eldri og lak- ari húsum. Reglugerðin sem við vinnum nú eftir er mun strangari og kostnaðarsamari heldur en kollegar okkar í Evrópu vinna eftir. Í ljósi þess má öllum vera ljóst hvað samkeppnisstaða okk- ar er erfið við innflutning á kjúk- lingakjöti en sá innflutningur er orðinn mjög mikill. Hver var síðasta ráðstefnan sem þú sóttir? Síðasta ráðstefna sem ég sótti var 14. október sl. en það var Jafnvægisvogin sem haldin var í RÚV. Jafnvægisvogin er hreyfi- aflsverkefni unnið í samstarfi með forsætisráðuneytinu, Sjóvá, Deloitte, RÚV og Pipar\TBWA. Mjög fróðleg erindi sem voru flutt þar úr mismunandi áttum úr atvinnulífinu. VIG ehf. var einnig í hópi viðurkenningahafa þetta árið og erum við mjög stolt að því að leggja okkar af mörkum í verkefnið. Hugsarðu vel um líkamann? Ég reyni að fara þrisvar í viku í ræktina á Selfossi. Það er allur gangur á því hvernig gengur að standa við það loforð. Þá fer ég í hópatíma í Kraftbrennslunni og æfingin er blanda af lyftingum, þoli og liðleika. Það gefur mér aukna orku að stunda líkams- rækt svo ég reyni mitt besta að sinna því vel. Við hjónin höfum líka verið að hjóla svolítið saman bæði á malbikinu og svo utan vegar – það er hrikalega skemmtilegt. Hvernig heldurðu þekkingu þinni við? Ég er dugleg að lesa greinar héðan og þaðan sem tengjast bú- skapnum. Svo er ég að fara til Noregs á norræna ráðstefnu um málefni alifugla í næstu viku. Norðurlöndin hafa átt í mark- vissu samstarfi til þó nokkuð margra ára og skiptast á að halda þessa ráðstefnu og skipu- leggja fróðleg og fjölbreytt er- indi. Einnig hefur starf FKA fært mér alls konar tækifæri sem hafa klárlega bætt þekkingu mína. Þegar maður er í eigin rekstri er svo mikilvægt að eiga samtal við aðila sem fást við sambærileg verkefni þó þau geti kannski ver- ið á allt öðru sviði. Hvaða lögum myndirðu breyta ef þú værir einráð í einn dag? Ég hugsa að ég myndi kíkja á lög um gjaldmiðil Íslands – það þarf eitthvað endurskoða þau mál. Eins og hugmyndin um sér- íslenska krónu er falleg þá er það því miður staðan að með til- komu allrar þeirrar tækni og framfara sem hafa orðið í heim- inum þarf að endurskoða gjald- miðilinn okkar og hvað hann er í raun að kosta okkur. Því til rök- stuðnings má benda á að all- nokkur stór fyrirtæki hér á landi kjósa að gera upp í erlendum gjaldmiðli. Hvert væri draumastarfið ef þú þyrftir að finna þér nýjan starfa? Ég held að það væri innan tölvu- og tæknigeirans í einhvers konar forritun. Ég hef alltaf ver- ið smá tölvu- og tækninörd í mér og almennt pínu „tækjasjúk“. Held að það sé alveg ljóst að framtíðin mun fela í sér gífur- legar breytingar og þróun í þess- um geira og það væri gaman að vera með í ævintýrinu. Hvað myndirðu læra ef þú feng- ir að bæta við þig nýrri gráðu? Ég hugsa að ég myndi láta verða af því að skella mér í MBA-nám í Háskólanum í Reykjavík. Ég hafði alltaf séð það fyrir mér að kýla á það eftir viðskiptafræðina. Námið er mjög praktískt fyrir fyrirtækja- eigendur og stjórnendur. Ég tel að það myndi færa mér ný tæki- færi í reksturinn og mögulega frekari vöxt. SVIPMYND Eydís Rós Eyglóardóttir, kjúklingabóndi og vélsmiðjustjórnandi Með ströngustu kröfum í Evrópu NÁM: Menntaskólinn í Kópavogi 2011; nám til viðurkenningar bókara hjá Endurmenntun Háskóla Íslands 2014; BS í við- skiptafræði frá Háskólanum á Akureyri 2018; förðunarfræðingur frá Reykjavík Makeup School 2019; hóf árið 2020 fjarnám í skrúðgarðyrkju við Landbúnaðarháskólann. STÖRF: Fjármálastjóri VIG ehf. frá 2005; skrifstofustjóri Netparta ehf. 2010 til 2017; fjármála- og framkvæmdastjóri Kjúklingabús- ins Vor frá 2016. ÁHUGAMÁL: Öll útivist, hjólreiðar, garðyrkja, förðun svo eitt- hvað sé nefnt. En tíminn til að sinna áhugamálunum mætti vera meiri og skipulagðari. FJÖLSKYLDUHAGIR: Gift Ingvari Guðna Ingimundarsyni, vél- virkjameistara og bónda. Saman eigum við þrjú börn: Þórunni Evu, Eyþór Bergmann og Gretu Sóleyju. HIN HLIÐIN Atvinna Eydís Rós myndi vilja taka lög um gjaldmiðil Íslands til endurskoð- unar, m.a. í ljósi tæknibreytinga. Ljósmynd/Hákon Davíð

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.