Morgunblaðið - 10.11.2021, Blaðsíða 7
Árni Stefánsson segir að lærdómurinn af far-
aldrinum sé meðal annars sveigjanleiki og að
taka hraðar en vel ígrundaðar ákvarðanir.
hagræða á móti. „Við höfum náð að einfalda
marga ferla og lækka kostnað, en stærri kostn-
aðarverðsbreytingar skila sér óhjákvæmilega á
endanum út í vöruverðið.“
Hann segir að í ákveðnum vöruflokkum hafi
framlegð Húsasmiðjunnar lækkað töluvert þar
sem fyrirtækið hafi haldið í sér með verðhækk-
anir. „Okkur hefur í mörgum tilvikum þótt nóg
um hráefnishækkanirnar og vonast til að far-
aldurinn væri að ganga niður. En það er
áhyggjuefni hvað það er að gerast hægt og í
sumum vöruflokkum alls ekki enn þá.“
Áframhaldandi hækkanir
Hefurðu lagt mat á hversu lengi þessi áhrif
muni vara?
„Í fyrra töldum við að þessu yrði lokið að
mestu í sumar en nú erum við að sjá áfram-
haldandi hækkanir og skort í ákveðnum vöru-
flokkum. Svo hefur það mikil áhrif að hækk-
anir eru miklar á olíu, stáli og áli, sem speglast
í gegnum alla keðjuna.“
Spurður um lærdóm af faraldrinum segir
Árni, sem er sá forstjóri Húsasmiðjunnar sem
hefur verið lengst í starfi á þessari öld, eða í
rúm átta ár, að hann hafi kennt honum margt.
„Faraldurinn hefur kennt manni ýmislegt
varðandi sveigjanleika og að taka hraðar en vel
ígrundaðar ákvarðanir. Svo hefur ástandið
bætt fyrirtækjamenninguna að ýmsu leyti, s.s.
að nú eru fleiri fundir haldnir á netinu og minni
tími fer í ferðalög. Auk þess er búið að rýna
alla öryggis-, mannauðs- og verkferla, sem er
til bóta. Faraldurinn hefur sett okkur öll upp á
tærnar.“
Eins og sagt var frá í ViðskiptaMogganum á
sínum tíma var árið 2020 besta árið á síðasta
tuttugu ára tímabili þar á undan í rekstri
Húsasmiðjunnar. Veltan var tuttugu milljarðar
króna það ár. Árni á von á að árið í ár verði
jafnvel enn betra, enda hefur verið góður gang-
ur á byggingamarkaði og almenningur hefur
haldið áfram framkvæmdum heima við. Þá hafi
atvinnuvegafjárfestingin aukist á ný og álverin
séu komin af bremsunni.
„Það er til dæmis mikið byggt í Vogabyggð-
inni, hér í næsta nágrenni höfuðstöðva okkar í
Kjalarvoginum. Við njótum góðs af því. Það
hefur líka almennt verið meiri söluvöxtur hjá
okkur en við gerðum ráð fyrir á árinu. Við
sjáum t.d. í tölum frá Rannsóknasetri versl-
unarinnar að við höfum í ellefu mánuði af síð-
ustu þrettán bætt meira við okkur í markaðs-
hlutdeild en byggingavörumarkaðurinn í heild.
Við hljótum því að vera að gera eitthvað rétt og
erum mjög þakklát viðskiptavinum okkar.“
Íbúðum á fyrsta byggingarstigi fækkað
Við Árni ræðum nú lóðaskort í borginni, en
mikil umræða hefur verið um hann síðustu vik-
ur og mánuði. „Við heyrum frá byggingar-
verktökum að það standi þeim fyrir þrifum
hvað fáar lóðir séu tilbúnar til byggingar á við-
ráðanlegu verði. Tölurnar tala sínu máli og það
er staðreynd að íbúðum á fyrsta byggingarstigi
hefur verið að fækka töluvert. Akkúrat núna
virðast þær vera of fáar miðað við þörfina á
markaðnum.“
Árni segir að þéttingarstefnan sem er rekin í
Reykjavíkurborg sé kostnaðarsöm og hækki
fermetraverð íbúða. „En svo má vera að til
lengri tíma hafi þetta sína kosti, eins og lægra
kolefnisspor o.fl. En það er óneitanlega mun
dýrara að byggja á þéttingarreitum en í út-
hverfum.“
Líkt og Árni minntist á hér að framan varð-
andi ábyrgð opinberra aðila segir hann að þeg-
ar fasteignaverð hækkar mikið, eins og verið
hefur undanfarin misseri, geti sveitarfélög
lækkað álagsprósentu fasteignagjalda til að
vega á móti kostnaðarhækkunum. „Samkvæmt
nýlegum tölum hafa álögð fasteignagjöld á
verslun og þjónustu hækkað um hátt í sjötíu
prósent á nokkrum árum. Þetta hefur allt áhrif
á verðbólguútreikning. Húsnæðiskostnaður
okkar er sem dæmi á annan milljarð króna á
ári, þannig að þetta hefur mikið að segja fyrir
okkar rekstur.“
Byrja að byggja á Selfossi
Inntur eftir breytingum á næsta ári hjá
fyrirtækinu segir Árni að stórglæsileg fimm
þúsund fermetra verslun Húsasmiðjunnar við
Freyjunes á Akureyri verði opnuð snemma árs
2022. „Við höfum einnig tryggt okkur lóð við
Larsenstræti á Selfossi og áformum að hefja
lóðarframkvæmdir þar á næstunni en Húsa-
smiðjan hefur haft mikla starfsemi á Selfossi
um langt árabil.“
Á móti komi að tveimur útibúum verði lokað,
á Dalvík og Húsavík.
komin með appið
”
Tölurnar tala sínu máli og
það er staðreynd að íbúð-
um á fyrsta byggingarstigi
hefur verið að fækka tölu-
vert. Akkúrat núna virðast
þær vera of fáar miðað við
þörfina á markaðnum.
Morgunblaðið/Eggert
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. NÓVEMBER 2021 7VIÐTAL
Á stuttum tíma hefur sjálfbærni færst frá því
að vera hliðarverkefni í rekstri Húsasmiðj-
unnar í að vera til umræðu alla daga, eins og
Árni útskýrir. Hún sé nú farin að stýra mörg-
um af stærstu rekstrarákvörðunum félags-
ins. „Þetta er mjög áhugavert og krefjandi
viðfangsefni, sem snertir okkur öll,“ segir
Árni.
„Ef við höldum áfram á sömu braut verður
ekki lífvænlegt á jörðinni eftir fimmtíu ár. Við
þurfum því öll að breyta okkar hugsun.“
Húsasmiðjan skrifaði undir loftslagsyfirlýs-
ingu Reykjavíkurborgar og Festu, mið-
stöðvar um samfélagsábyrgð, í nóvember
2015. Bygma-samstæðan hefur gefið út sam-
félags- og umhverfisskýrslu síðan árið 2009.
Umhverfismálin eru því augljóslega ofarlega
á blaði hjá samstæðunni.
Hafa innleitt fjölda aðgerða
„Við höfum markvisst innleitt fjölda að-
gerða í umhverfismálum. T.d. hafa Húsa-
smiðjan og Bygma um árabil boðið upp á
mikið úrval af umhverfisvænum vörum og allt
timbur sem Bygma kaupir og Húsasmiðjan
selur er t.d. FSC- og/eða PEFC-vottað úr
sjálfbærum og umhverfisvottuðum skógum.“
Annað verkefni sem Árni nefnir er flokkun
sorps. „Við höfum ekki haft ruslatunnur við
skrifborðin á skrifstofunni okkar síðan árið
2014. Í staðinn erum við með eina miðlæga
flokkunarstöð og mælum sorplosun á öllum
starfsstöðvum.“
Önnur verkefni eru lágmörkun á útsend-
ingu á pappír, en nær allir reikningar eru í dag
sendir út rafrænt. Þá er fyrirtækið komið
mjög langt að sögn Árna í að taka á móti
flestum reikningum á rafrænan hátt.
Ekki má gleyma því að lokum að minnast á
hið góða fordæmi sem forstjórinn setur með
hjólreiðum sínum, en Árni segist jafnan hjóla
um tíu þúsund kílómetra á ári. „Það nálgast
að vera álíka vegalengd og ég ek á bílnum
mínum árlega. Þetta er hluti af mínu framlagi
til loftslagsmálanna,“ segir hann að lokum og
brosir.
Sjálfbærni stýrir rekstrarákvörðunum