Morgunblaðið - 10.11.2021, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. NÓVEMBER 2021 11VIÐTAL
augavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | verslun@brynja.is
Vefverslun brynja.is
L
Opið virka
daga frá 9-18
lau frá 10-16
Vandaðir brennipennar og fræsarar
frá PG mini og Pebaro
Brennipenni PG
Verð 8.880
Brennipenni
30w stiglaus
Verð 27.500
Brennipenni 20w
Verð 16.790
Fræsari 350st
Verð 19.490
Fræsari gler
Verð 10.490
Brennipenni
20 aukahlutir
Verð 6.450
Brennipenni
Pebaro
Verð 5.490
Vatnagörðum 14 104 Reykjavík
litrof@litrof.is 563 6000
Sterkari
saman
í sátt við
umhverfið
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Gaman hefur verið að fylgjast með íslenska
tölvuleikjageiranum vaxa og dafna. Eitt af
þeim fyrirtækjum sem hafa náð að komast á
kortið er Porcelain Fortress og gengur fyrir-
tækinu vel að nema land í leikjamarkaði
PlayStation, Nintendo Switch, PC og Mac.
Diðrik Steinsson framkvæmdastjóri segir
framtíðina bjarta og standa vonir til að sækja
aukið fjármagn inn í reksturinn til að gull-
tryggja starfsemina næstu þrjú til fjögur ár-
in.
Hverjar eru helstu áskoranirnar
í rekstrinum þessi misserin?
Helstu áskoranir í rekstri Porcelain For-
tress tengjast því hversu erfitt er að fá fólk
með réttu reynsluna í störf hjá fyrirtækinu,
en við vorum að enda við að ná að fylla þar í
skarðið. Gerð tölvuleikja krefst þess að
teymi séu sett saman af fólki með breiða sér-
þekkingu og ef ekki væri fyrir tengsl starfs-
manna værum við örugglega enn þá að kljást
við að ná þeirri þekkingu inn sem upp á vant-
aði.
Eins og gengur og gerist er fjármagns-
hliðin alltaf stór áskorun í rekstri ungra
fyrirtækja. Fyrsti leikur fyrirtækisins náði
nægum vinsældum til að við þurfum minna
að reiða okkur á utanaðkomandi aðstoð í
gegnum fjármögnun og styrki.
Hver var síðasta ráðstefnan
sem þú sóttir?
Ég fór á Pax East-ráðstefnuna í Boston
árið 2020, en þar ætlaði ég að vera gestur og
skoða önnur leikjafyrirtæki og það sem þau
eru að gera, ásamt öðrum úr teyminu. End-
aði á því að leikurinn okkar var valinn einn af
mest spennandi „indie“-leikjunum árið 2020
á ráðstefnunni og var okkur því úthlutaður
bás. Við enduðum á að sitja á básnum okkar
nánast allan tímann.
Hvaða bók hefur haft mest
áhrif á hvernig þú starfar?
Sjálfsævisaga Arnolds Schwarzeneggers,
Total Recall, hefur haft mikil áhrif á hvernig
ég hugsa. Kenndi mér að hlusta ekki á gagn-
rýnisraddir, og að það sem virðist ómögulegt
er bara hindrun ef maður er nógu þolin-
móður.
Hvernig heldurðu þekkingu þinni við?
Ég umkringi sjálfan mig fólki sem er
klárara en ég sjálfur. Og hlusta, og les bækur.
Hugsarðu vel um líkamann?
Ég stunda yoga þegar ég get en Tómas hjá
Yoga Shala opnaði huga minn í þeim efnum.
Hvert væri draumastarfið ef þú
yrftir að finna þér nýjan starfa?
Myndhöggvari. Það var alltaf draumur hjá
mér að verða myndhöggvari og ef ég hefði
ekki kynnst klárustu mönnum sem ég hef hitt
(sem eru vinnufélagar mínir í dag og með-
stofnendur) sem deildu ástríðunni á tölvu-
leikjagerð væri ég örugglega meira lista-
megin í dag
Hvað myndirðu læra ef þú fengir
að bæta við þig nýrri gráðu?
Ég myndi sækja um að komast að hjá LHÍ
til að læra grafíska hönnun og einbeita mér
að því að sérhæfa mig í UI-hönnun. Finnst
það heillandi.
Hvaða kosti og galla sérðu
við rekstrarumhverfið?
Kostirnir eru hversu mikill eldmóður er
falinn í fólkinu sem við höfum hér en á móti
standa gallarnir líka á því hversu fá við erum
og hversu lítið er af reynslu í greininni.
Það sem helst hefur vantað upp á er fólk
með bakgrunn í hönnun leikja og notenda-
viðmóts en í dag er ekki hægt að stunda slíkt
nám á efri stigum háskóla hér á landi nema
að mjög takmörkuðu marki.
Miðað við að tekjur af sölu tölvuleikja eru
orðnar meiri en heildartekjur kvikmynda,
tónlistar og sjónvarpsþátta virðast fáir átta
sig á tækifærunum í að yfirfæra þekkinguna
sína í þá átt. Það virðist þó eitthvað vera
breytast á næstunni varðandi námið en ég
hef í starfi mínu í stjórn IGI, ásamt góðum
hópi, ýtt á skólana hérlendis að bjóða upp á
frekara nám tengt tölvuleikjagerð á efstu
stigum.
Hvað gerirðu til að fá orku
og innblástur í starfi?
Orkuna fyrir daginn fæ ég frá krökkunum
mínum sem ýta mér líka áfram á erfiðis-
tímum. Drengurinn minn ýtir við mér að
teikna meira en hann er gríðarlega fær á því
sviði, og dóttir mín sýnir mér á hverjum degi
virði þess að vera fimur, í formi og til í allt, en
hún er sterkasta manneskja sem ég þekki.
Ég spila líka tölvuleiki til að fá innblástur
og spila Dungeons and Dragons með góðum
hópi af vinum til að fá til baka þá orku sem
tapast í raunveruleikanum.
Hvaða lögum myndirðu breyta
ef þú værir einráður í einn dag?
Ég myndi setja í lög að launahæsti starfs-
maður fyrirtækis gæti í mesta lagi verið með
20% hærri laun en sá með lægstu launin.
SVIPMYND Diðrik Steinsson framkvæmdastjóri Porcelain Fortress
Vandi að finna fólk með réttu reynsluna
Morgunblaðið/Eggert
Diðrik segir mikla vöntun á fólki með bakgrunn í hönnun leikja og notendaviðmóts.
NÁM: Stúdentspróf frá Menntaskólanum við Hamrahlíð 2005; Háskóli Íslands, BA
í japönsku máli og menningu 2012; diplóma í keramíkhönnun frá Myndlistaskól-
anum í Reykjavík 2012; meistaragráða í verkefnastjórnun frá Háskólanum í
Reykjavík 2015. Í stjórn IGI, Samtaka leikjaframleiðenda, frá 2019.
STÖRF: Stofnaði og rak vinnustofuna Postulínsvirkið 2012 til 2014. Fram-
kvæmdastjóri Mure 2014 til 2017. Framkvæmdastjóri Porcelain Fortress ehf. frá
2018.
ÁHUGAMÁL: Tölvuleikir, leirlist, teikning og að spila með krökkunum.
FJÖLSKYLDUHAGIR: Á tvö tíu ára börn: Huga Stein og Kristrúnu Áróru.
HIN HLIÐIN
Viðskipti