Morgunblaðið - 10.12.2021, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 10.12.2021, Qupperneq 1
F Ö S T U D A G U R 1 0. D E S E M B E R 2 0 2 1 .Stofnað 1913 . 290. tölublað . 109. árgangur . 14 dagar til jóla Jólasveinalitabókin er á jolamjolk.is EKKI HORFINN AF SJÓNAR- SVIÐINU STYRMIR ÖRN Í Y GALLERÍI MINKAMÁLIÐ HELDUR ÁFRAM AÐ HRELLA METTE MENNING 28 ERLENT 13TIGER WOODS 27 Tvö ný skautasvell verða opnuð næstu daga. Bæði eru með gervisvelli, það er að segja lögð sérhönnuðum ísplötum sem hafa sömu eiginleika til skautaiðkana og venjulegur ís. Unnið er að því í Hafnarfirði að útbúa Hjartasvellið, 200 fer- metra stórt skautasvell, á bak við Bæjarbíó, og verður það opnað við athöfn á morgun. Plöt- unum var raðað saman í gær. Byrjað er að selja aðgöngumiða á tix.is. Svellið verður opið fram í janúar og eftir það verður því pakkað saman aft- ur og sett í geymslu til næsta árs. Verið er að undirbúa uppsetningu sams konar skautasvells í Reykjanesbæ. Það verður í skrúð- garðinum í Keflavík og áætlað er að hefja rekst- ur þess um næstu helgi. Bæði þessi svell eru sett upp til að auka afþreyingu á aðventu, í tengslum við jólamarkaði og jólaþorp, eins og vel er þekkt í nágrannlöndunum. Skautasvellið á Ingólfstorgi í Reykjavík hefur verið starfrækt fyrir jólin í allmörg ár. Það er með vélfrystum ís og mun minna en nýju svellin í Hafnarfirði og Reykjanesbæ. Þá var útbúið skautasvell á Dalvík á síðasta ári og Flateyr- ingar hafa steypt plötu til að geta búið til svell með náttúrulegum aðferðum þegar aðstæður eru réttar. Öll eru þessi skautasvell vinsæl af- þreying í svartasta skammdeginu. helgi@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Hafnfirðingar útbúa Hjartasvell í miðbæ _ Ragnar Árna- son, prófessor emeritus í hag- fræði við Há- skóla Íslands, tel- ur teflt á tæpasta vað í nýju fjár- lagafrumvarpi. Hann bendir á að skuldir ríkissjóðs muni aukast, þrátt fyrir að þær hækki ekki sem hlutfall af vergri landsframleiðslu. Skuldabyrðin sé áhyggjuefni, ekki síst með hliðsjón af því að vextir fari nú hækkandi. Með hærri vöxtum aukist vaxtagreiðslur ríkis- sjóðs en þá fjármuni sé þá ekki hægt að nota til að reka hið opin- bera. Gert er ráð fyrir miklum hallarekstri næstu ár og óvissa sögð um þróun efnahagsmála. »12 Teflt á tæpasta vað í ríkisfjármálum Ragnar Árnason _ Samkvæmt samantekt Sjúkra- trygginga Íslands dagsett 10. nóv- ember sl. er gert ráð fyrir að kostn- aður vegna almennra lyfja stefni í 14.676 milljónir króna fyrir árið 2021 og mun það vera í samræmi við áætlun stofnunarinnar. Fjárlög þessa árs gerðu aftur á móti ráð fyrir aðeins 11.926 milljónum og stefnir því hallinn í um 2.750 m.kr. Frummat SÍ fyrir næsta ár gerir ráð fyrir að þörf næsta árs vegna almennra lyfja sé 15.024 m.kr en fjárlögin gera ráð fyrir aðeins 12.694 m.kr. árið 2022 og stefnir því í svipaðan halla á næsta ári. Í umsögn Félags atvinnurekenda, Frumtaka og Samtaka verslunar og þjónustu um fjárlagafrumvarpið segir að samtökin þrjú telji einkar varasamt að vanáætla útgjöld til lyfja í fjármálaáætlun og fjár- lögum. Samtökin telja því að auka þurfi framlög vegna almennra lyfja til samræmis við mat Sjúkratrygg- inga Íslands, annars sé fyrir- sjáanlegt að kostnaður muni fara langt fram úr fjárframlögum með óæskilegum afleiðingum. Hallinn stefni í tæpa þrjá milljarða Isavia hefur fengið níu tilkynningar á undanförnum tveimur árum um að drónum hafi verið flogið innan skil- greindra bannsvæða í nálægð við flugvelli, flugvélar eða í stjórnuðu loftrými. Samgöngustofa hefur vakið athygli á þessu og minnir á að við al- þjóðaflugvelli er tveggja kílómetra nálægðartakmörkun en 1,5 km við aðra áætlunarflugvelli. Það er gert vegna mikillar slysahættu. Samgöngustofa segir að almennt séu drónaflugmenn til fyrirmyndar en þrátt fyrir það komu fyrrgreind tilvik upp. Drónaflugmenn eru hvattir til að uppfæra hugbúnað drónans fyrir hvert flug og upplýs- ingar um takmarkanir á flugi. Skapa hættu fyrir flugvélar „Ég hef orðið fyrir því að sjá dróna á Keflavíkurflugvelli og við höfum fengið skýrslur um að drónar hafi flogið í veg fyrir flugvélar á Reykjavíkurflugvelli, Keflavíkur- flugvelli, Selfossflugvelli og víðar,“ sagði Óskar Pétur Sævarsson, flug- kennari og öryggisstjóri hjá Flug- akademíu Íslands. Hann sagði að ekki sé tilkynnt um öll drónatilvik. En hvers vegna veldur dróni hættu fyrir flugvél? „Það er vegna hættu á að fljúga á þá. Það er erfitt að sjá dróna og forð- ast þá. En ef flugvél flýgur á dróna þá getur hann farið t.d. inn í væng- enda og mögulega spillt flughæfni vélarinnar,“ sagði Óskar. Hann sagði að ef flugvél flygi á þriggja kílóa þungan fugl splundrist fuglinn en jafn þungur dróni fari inn í vænginn. Fari dróni í mótor getur það valdið hættu. „Drónar eru ekki mjög hollir fyrir flugvélar. Þess vegna viljum við ekki að drónum sé flogið í kringum flugvelli. Við viljum ekki fljúga á hluti og öryggið er alltaf númer 1, 2 og 3,“ sagði Óskar. gudni@mbl.is Drónar hættulegir flugvélum - Isavia hefur fengið níu tilkynningar um dróna nærri flugvöllum á tveimur árum - Flugmaður segir að flughæfni flugvélar geti skerst lendi hún í árekstri við dróna Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Dróni Ekki má fljúga drónum við flugvelli vegna hættu á árekstrum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.