Morgunblaðið - 10.12.2021, Qupperneq 2
2 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. DESEMBER 2021
MANNDÝRIÐ
EINAR
ÞORGRÍMSSON
MANN
DÝRIÐ
liggur í
hryllingssögu
ævintýra
Fæst í Eymundsson
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Viðgerðir á miðbrúnni yfir Öxará á
Þingvöllum eru langt komnar, en síð-
asta vor grófu vatnavextir undan
eystri enda göngubrúar yfir í Öxarár-
hólma, sem varð fyrir vikið verulega
óstöðug og féll að endingu niður í ána.
Burðarbitar og brúargólf hafa nú ver-
ið lengd og brúarstólpa var fundinn
staður á landi sem enn er talið tryggt.
Síðustu ár hefur Öxará nagað í bakka
sína á þessum slóðum þannig að haft-
ið yfir í næsta ál er nú aðeins nokkrir
metrar.
Einar Á.E. Sæmundsen, þjóð-
garðsvörður á Þingvöllum, segir að í
aldaraðir hafi farvegur Öxarár oft
breyst. Það hafi haft áhrif á þing-
störfin og meðal annars hafi Lögrétta
flust af austurbakkanum og út á
hólma í Öxará og síðar yfir á vest-
urbakkann undir Lögberg. Þar var
lítið hús reist fyrir störf Lögréttu árið
1594.
Bólgnar og ólmast
Síðustu ár hafi Öxará minnt á sig í
þinghelginni neðan Öxarárfoss,
bólgnað að vetrum og ólmast í leys-
ingum á vorin. Í vor hafi tekið undan
brúarstólpa á miðbrúnni, en brýrnar
eru þrjár, settar niður 1994, og tengja
leiðina milli Lögbergs og Flosagjár.
Gert hafi verið við brúna til bráða-
birgða með sliskju, en einnig hafi ver-
ið reynt að takmarka umferð gang-
andi vegfarenda. Síðustu vikur hafi
verktaki unnið við lagfæringar og er
reiknað með að þeim ljúki fyrir jól.
Einar segir að farvegir Öxarár hafi
breyst á síðustu árum og nú sé þung-
ur straumur í miðálnum. Þessar
breytingar geti haft áhrif á stíga og
brýr yfir álana. Einnig sé ljóst að rof
árinnar til lengri tíma geti haft
óafturkræf áhrif á fornleifar sem
margar eru fram á bakka Öxarár.
Ekki hafi komið fram að við þetta rof
séu fornleifar í hættu en vel hefur
verið fylgst með. Þetta sé þó hluti af
náttúrulegu ferli þar sem úrkoma og
landsig hafa áhrif.
Ljósmynd/Andri Þór Gestsson
Við Öxará Friðrik Einarsson vinnur að viðgerð á göngubrúnni yfir miðálinn, en farvegir árinnar hafa breyst.
Öxará minnir á sig og
hefur nagað í bakkana
- Gert við göngubrú sem féll í vatnavöxtum síðasta vor
Alvarleg bilun kom í ljós við reglu-
bundið viðhald og prófanir á vél 2 í
Nesjavallavirkjun. Í framhaldinu
kom upp bilun í strengmúffu á sömu
vél. Hefur vélin ekki verið í rekstri
að neinu gagni frá 5. ágúst en stefnt
er að því að ljúka viðgerð fyrir jól.
Gangi það eftir hefur vélin ekki verið
í rekstri í hálfan fimmta mánuð en
áætlað viðhaldsstopp var tæpir tveir
mánuðir.
Til að bæta upp þá framleiðslu
sem vantað hefur upp á vegna vélar 2
á Nesjavöllum ákvað Orka náttúr-
unnar að færa áður skipulagt við-
hald, sem átti að taka þrjár vikur,
yfir á næsta ár.
Vegna þessa hefur orkuvinnsla á
Nesjavöllum verið lakari en gert var
ráð fyrir í áætlunum og vantar rúm
5% upp á, samkvæmt upplýsingum
frá Orku náttúrunnar. Orkuvinnsla á
Hellisheiði hefur hins vegar verið á
áætlun og vel það. Tekið er fram í
skriflegu svari fyrirtækisins við fyr-
irspurn Morgunblaðsins um bilunina
að nú í sumar var ástandið þannig að
umframgeta var boðin á heildsölu-
markaði en sú orka hafi ekki selst.
Vél 2 í lamasessi í
rúma fjóra mánuði
- Vél á Nesjavöllum bilaði tvisvar
Morgunblaðið/RAX
Nesjavellir Unnið hefur verið að
viðhaldi og viðgerðum vélar 2.
Nýjar tölur benda til þess að aðstæð-
ur ungs fólks hér á landi séu að batna
hratt og færast í það horf sem var
fyrir heimsfaraldur kórónuveirunn-
ar. Þetta kemur fram í greiningu
Karls Sigurðs-
sonar, sérfræð-
ings hjá BSRB, á
upplýsingum um
stöðu ungs fólks á
vinnumarkaði.
Karl bendir á í
grein sem birt er
á vefsíðu BSRB
að heimsfaraldur-
inn hafi haft nei-
kvæð áhrif á
ýmsa þætti í lífi
ungs fólks og rannsóknir sýni að
fleiri flosnuðu upp úr námi, atvinnu-
tækifærum fækkaði og atvinnuleysi
jókst.
Bendir hann á að vísbendingar um
virkni ungs fólks hér á landi megi fá í
vinnumarkaðskönnun Hagstofunnar
um aldurshópinn 16 til 24 ára. „Þeim
fækkaði milli áranna 2019 og 2020
sem voru í fullu starfi og hlutfastarfi,
en fjölgað bæði hópi atvinnulausra
og þeirra sem eru í hlutastarfi en
vilja vinna meira. Einnig þeim sem
eru tilbúnir til vinnu ef þeir teldu
vinnu að fá og þeim sem eru utan
vinnumarkaðar og ekki í atvinnuleit,
en þar getur bæði verið um að ræða
skólafólk og fólk sem ekki telst í
neinni virkni,“ segir í grein Karls.
Ráða megi af mánaðarlegum töl-
um um atvinnuástandið að staða
ungs fólks á vinnumarkaði hélt
áfram að versna fram í maí á þessu
ári. Þegar horft er hins vegar á
næstu fimm mánuði frá júní og fram
í október megi sjá að mikill viðsnún-
ingur hefur orðið á aðstæðum ungs
fólks á vinnumarkaði. „Staðan á
sumar- og haustmánuðum í ár er
svipuð og hún var sömu mánuði 2019
og mun betri en sömu mánuði árið
2020 hvað þessa þætti varðar, það er
fjölda starfandi, atvinnulausa og
fjölda utan vinnumarkaðar,“ segir
enn fremur í greininni.
Aðstæður ungs fólks virðast því
vera að færast í það horf sem var fyr-
ir faraldurinn, ,,verði ekki bakslag í
glímunni við faraldurinn á komandi
mánuðum“.
Staða ungs fólks
virðist batna hratt
- Viðsnúningur á vinnumarkaðinum
Morgunblaðið/Eggert
Ungt fólk Veruleg fjölgun varð á
vinnumarkaði í júní til október.
Karl
Sigurðsson
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Borgarráð samþykkti á fundi sínum
á mánudaginn viljayfirlýsingu Há-
skóla Íslands og Reykjavíkurborgar
um að lóðinni að Sturlugötu 9 verði
ráðstafað til húss Stofnunar Ólafs
Ragnars Grímssonar, en þar á að
rísa framtíðarheimili Hringborðs
norðurslóða, öðru nafni Arctic
Circle, en það hefur fengið heitið
Norðurslóð.
Í bókun meirihlutaflokkanna í
Borgarráði kemur fram að úthlut-
unin sé í samræmi við niðurstöðu
undirbúningsnefndar sem Katrín
Jakobsdóttir forsætisráðherra skip-
aði, en í henni sátu fulltrúar frá for-
sætisráðuneytinu, fjármála- og
efnahagsráðuneytinu, utanríkis-
ráðuneytinu, mennta- og
menningarmálaráðuneytinu, um-
hverfis- og auðlindaráðuneytinu,
Reykjavíkurborg, Háskóla Íslands,
Háskólanum á Akureyri, Háskól-
anum í Reykjavík og Hringborði
norðurslóða.
Lóðinni var úthlutað til Listahá-
skóla Íslands árið 2007, en ljóst er
að hann hefur ekki þörf fyrir hana,
og á því að úthluta lóðinni til Há-
skóla Íslands. Er í viljayfirlýsing-
unni samþykkt að þegar lóðinni
Sturlugötu 9 verði úthlutað til HÍ sé
háskólanum heimilt að ráðstafa lóð-
inni til byggingar norðurslóðar,
húss Stofnunar Ólafs Ragnars
Grímssonar.
10 milljónir í undirbúning
Greint var frá því í maí síðast-
liðnum að ríkisstjórnin hefði sam-
þykkt tillögu Katrínar Jakobsdóttur
forsætisráðherra um stuðning við að
setja á fót sjálfseignarstofnun Ólafs
Ragnars Grímssonar um málefni
norðurslóða í Reykjavík.
Sagði í tilkynningu Stjórnarráðs-
ins að Hringborði norðurslóða yrðu
lagðar til 10 milljónir króna af sam-
eiginlegu ráðstöfunarfé ríkisstjórn-
arinnar til að standa straum af frek-
ari undirbúningi verkefnisins.
Sagði þar einnig að markmiðið
með stofnuninni sé að tryggja Ís-
landi til langframa þá sterku stöðu
sem það hefur áunnið sér sem
þungamiðja í alþjóðlegri umræðu
um norðurslóðir, en gert er ráð fyrir
því að fjáröflun fyrir bygginguna
verði á höndum Hringborðs norð-
urslóða og stjórnar hinnar nýju
stofnunar.
Sturlugötu 9 ráðstafað til
stofnunar Ólafs Ragnars
- Norðurslóð verði framtíðarheimili Arctic Circle
Morgunblaðið/Eggert
Arctic Circle Fjöldi gesta sótti ráðstefnu Arctic Circle í Hörpu í haust.