Morgunblaðið - 10.12.2021, Síða 4

Morgunblaðið - 10.12.2021, Síða 4
4 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. DESEMBER 2021 JAPANSK IR GÆÐA HNÍFAR EINHVERJIR BEITTUSTU HNÍFAR SEM VÖL ER Á www.bakoisberg.is E L DHÚS A L L RA L ANDSMANNA Það hefur sýnt sig að íslenska þjóðin stendur saman, sýnir stuðning og samhug eftir bestu getu. Hægt er að leggja framlög inn á reikning nr. 0101-26-35021, kt. 470269-1119 S. 551 4349, 897 0044, maedur@simnet.is Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur JÓLASÖFNUN Oddur Þórðarson oddurth@mbl.is Rekstraraðilar í grennd við fram- kvæmdareit á Vatnsstíg í miðbæ Reykjavíkur eru allt annað en sáttir við hávaða sem kemur það- an, sér í lagi vegna stórvirks högg- bors sem notaður er til að grafa fyrir bílakjallara á lóðinni. Framkvæmdir með höggbornum áttu upphaflega að taka 8-10 daga en síðan hafa þrír mánuðir liðið og enn er borað. Heimild er til þess að bora frá því snemma á morgn- ana og þar til rétt fyrir kvöldmat- arleyti. „Þetta er bara ömurlegt,“ segir Hrönn Sveinsdóttir, framkvæmda- stjóri Bíós Paradísar, þar við hlið- ina. Borgin leyfir truflun á sýningum borgarinnar Í Bíó Paradís hefur vegna þessa þurft að aflýsa sýningum í sam- starfi við Reykjavíkurborg fyrir grunnskólanemendur í Reykjavík. „Við höfum þurft að fresta skólasýningunum og af því okkur var alltaf sagt að þetta yrði búið bara í lok vikunnar, þá ætluðum við að halda uppbótarsýningar sem síðan þurfti líka að fresta. Ótrú- lega gaman að gera börnum það,“ segir Hrönn í kaldhæðnistón. Hún segir verktakann á svæð- inu, Leiguíbúðir ehf., þó hafa reynt að koma til móts við rekstr- araðila í nágrenninu með því að bora aðeins á fyrirframákveðnum tímum. Það breyti ekki því að nokkurra daga verkefni hafi teygst upp í marga mánuði. Óvíst um tekjutapsbætur Hrönn segir að Bíó Paradís hafi orðið fyrir tekjutapi vegna hávað- ans, en alls óvíst hvort það verði bætt. Sú hafi ekki verið raunin vegna tekjutaps á meðan fram- kvæmdir á vegum Reykjavíkur- borgar á Hverfisgötu stóðu yfir. „Þetta er heilmikið tekjutap og það virðist enginn bera ábyrgð. Byggingafulltrúi segir bara að þetta sé leyfilegt og að það sé ekk- ert sem hægt sé að gera,“ segir Hrönn. Áhrifa framkvæmdanna og há- vaðans gætir víðar, eins og gler- augnasalar á horni Vatnsstígs og Hverfisgötu geta vitnað um. „Þú getur rétt ímyndað þér hvernig það er að taka sjónpróf, sem verða að vera 100% nákvæm, í þessu ástandi,“ segir Anna Þóra Björnsdóttir í gleraugnaverslun- inni Sjáðu. Hún segist ekki skilja hver geti gefið leyfi fyrir því að starfsemi raskist með þessum hætti og það mun lengur en lofað var í upphafi. „Það er svo ömurlegt að það sé hægt að ráðast svona á lífsvið- urværi manns aftur og aftur. Hver gefur leyfi fyrir því að bisnessnum hjá manni sé rústað svona?“ spyr Anna. Morgunblaðið/sisi Niðurrif Rekstraraðilar segja miklar truflanir fylgja framkvæmdunum. Rekstraraðilar æfir vegna niðurrifs við Vatnsstíg - Höggbor veldur truflun og tekjutapi - Óvíst um verklok Guðni Einarsson gudni@mbl.is Gervihnettir hafa mælt varmaút- streymi í Geldingadölum eftir að sýnilegt hraunrennsli hætti 18. sept- ember. Dagamunur hefur verið á hve mikið varmaútstreymið er, að sögn Ármanns Höskuldssonar, eld- fjallafræðings og rannsóknarpró- fessors við Háskóla Íslands. Fjórir gervihnettir fóru hér yfir á nær hverri nóttu frá því í maí og mældu m.a. hitaútstreymið. „Við sjáum að hitaútslagið í Geld- ingadölum er misjafnlega mikið. Síð- ast var það áberandi mikið 4. desem- ber og þá sást rauð glóð úti um allt,“ sagði Ármann. Sama dag var áber- andi mökkur yfir eldstöðinni. Slíkur mökkur kemur ekki nema eitthvað sé að gerast. Venjulega verða 70- 80% afgösunar nýrrar kviku í sjálf- um gígnum. Því eru 20-30% gassins eftir þegar hún rennur út í hraunið. „Ef þetta væri bara hraun sem er að kólna ætti varmaútstreymið að minnka jafnt og þétt en ekki vera svona breytilegt,“ sagði Ármann. Varmaútstreymið var mjög mikið á meðan hraun sást í gígnum og allt hraunið var meira og minna rauðgló- andi. Síðan hefur það minnkað og stundum næstum horfið. „Svo koma dagar þegar varmaútstreymið bloss- ar upp. Það er svolítið sérkennilegt. Annaðhvort er það vegna þess að hraunbingurinn rennur til eða kvika dælist inn.“ Ármann sagði að eldgosið í Geld- ingadölum hafi aldrei verið kraft- mikið og hraunstreymið verið 5-10 m3/sek. Sé kvika enn að koma upp geti hún farið beint inn í hraun- dyngjuna. Til að ganga úr skugga um hvort svo er þyrfti að bora í hraunið og mæla hitastigið. Hann kvaðst hafa bent á það, líkt og Þorvaldur Þórðarson prófessor hefur einnig gert, að óeðlilega mikil afgösun hafi verið í eldstöðinni eftir að sýnilegri eldvirkni lauk. Sumir hafa bent á Holuhraun í því sam- bandi.„Gosin í Geldingadölum og Holuhrauni eru ekki sambærileg. Þegar krafturinn var mestur í Holu- hrauni komu upp um 600 m3/sek. af kviku. Við fórum niður í gíginn í Holuhrauni þremur dögum eftir að gosinu lauk, en það fer enginn niður í gíginn í Geldingadölum því þar er svo mikið gas.“ Ármann benti á að Geldingadala- gosið sé dyngjugos og menn hafi aldrei áður orðið vitni að slíkum eld- gosum á Íslandi. Síðasta dyngjugos varð hér fyrir um 2.500 árum. „Við vitum að sum dyngjugosanna stóðu í allt að 150 ár. En við vitum ekki hvort það gaus stöðugt eða með hléum. Gosóróinn er horfinn í Geld- ingadölum en hann tengist afgösun- inni. Ef lítil kvika er að dælast neðst inn í hraunbinginn þá verður ekki af- gösun eins og þegar gaus í gígunum. Svo er að bætast við brennisteininn og ýmislegt fleira bendir til þess að eitthvað sé í gangi,“ sagði Ármann. Stundum glæðist glóð- in í Geldingadölum - Gervihnettir hafa greint sveiflukennt varmaútstreymi Varmaútstreymi í Geldingadölum 23.maí 2021 14. nóvember 26. nóvember 4. desember 6. desember Skv.mælingummeð gervihnöttum frá 23.maí til 6. desember 2021 Heimild: Ármann Höskuldsson Ljósmynd/Ásmundur Friðriksson Gosið Myndarlegur mökkur steig upp að morgni 4. desember sl. Olíuflutningaskipið Keilir, skip Olíudreifingar, verður væntanlega tíður gestur næstu vikur á höfnum þar sem eru fiskimjölsverksmiðjur. Hörður Gunnarsson framkvæmda- stjóri Olíudreifingar segir að starfsmenn fyrirtækisins búi sig undir aukna eftirspurn eftir elds- neyti á stórri loðnuvertíð samhliða skerðingu á rafmagni til fiskimjöls- verksmiðjanna. Keilir eigi að ráða við þau verkefni sem fram undan eru, nema umfangið verði enn meira en nú sé miðað við. Olíufélög sem Olíudreifing þjón- ar eru meðal annars með viðskipti við útgerðir í Vestmannaeyjum, Höfn, Neskaupstað, Seyðisfirði, Vopnafirði og Þórshöfn. Keilir muni flytja eldsneyti á þessa staði, að Neskaupstað undanskildum, en þar dælir millilandaskip á vegum Olíudreifingar olíu beint í tanka. aij@mbl.is Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir Vertíð Olíuflutningaskipið Keilir við bryggju á Þórshöfn í gærmorgun, í baksýn er verið að landa loðnu úr skipi Ísfélagsins, Sigurði VE. Annir fram undan í olíuflutningum - Keilir á að anna verkefnunum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.