Morgunblaðið - 10.12.2021, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 10.12.2021, Blaðsíða 12
Advania hefur fest kaup á breska upplýsingatæknifyrirtækinu Con- tent+Cloud. Fyrirtækið býr yfir mikilli sérþekkingu á skýjaþjónust- um Microsoft og er stærsti sjálf- stæði þjónustuaðili Microsoft í Bretlandi. Sameinað fyrirtæki mun velta yf- ir 150 milljörðum íslenskra króna á ári. Þá verða starfsmenn þess 3.500 talsins. Segir í tilkynningu frá Advania í tengslum við kaupin, sem vonast er að gangi endanlega í gegn um ára- mótin, að ætlunin sé að sameinað félag verði eftirsóknarverðasti þjón- ustuaðili fyrirtækja í Norður-- Evrópu á leið til stafræns veru- leika. Goldman Sachs Bank Europe SE, Sweden Bankfilial og Stephens Europe Limited voru ráðgjafar Ad- vania við kaupin á fyrirtækinu. Arma Partners veittu Con- tent+Cloud ráðgjöf í ferlinu. Gold- man Sachs Asset Management- sjóðurinn er meirihlutaeigandi í Advania. Forstjóri Advania er Mikael Noaksson. Morgunblaðið/Ómar Við Sæbraut Advania er með um- fangsmikla starfsemi hér á landi. Gerir strandhögg í Bretlandi - Advania kaupir tæknifyrirtækið Content+Cloud BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Mér sýnist sem teflt sé á tæpasta vað í ríkisfjármálum,“ segir Ragnar Árnason, prófessor emeritus í hag- fræði við Háskóla Íslands, spurður um nýja fjárlagafrumvarpið. Samkvæmt kynningu fjármála- ráðherra er áætlað að 288 milljarða króna halli verði af ríkissjóði 2021 og 169 milljarða króna halli á næsta ári. Vaxta- kostnaður ríkis- sjóðs á næsta ári er áætlaður 140 milljarðar sem verður þá fjórði hæsti útgjaldalið- ur ríkissjóðs. Þetta gerist þrátt fyrir að tekjur ríkissjóðs verði 66 milljörðum króna hærri árið 2022 en gert var ráð fyrir í fjármálaáætlun síðastliðið vor. Óvissan er sögð mikil Tekið er fram í frumvarpinu að efnahagsframvindan sé mikilli óvissu háð. Meðal annars er vakin at- hygli á því að sú spá Hagstofunnar að hingað komi 1.430 þúsund erlend- ir ferðamenn á næsta ári megi teljast bjartsýn, í ljósi óvissu um faraldur- inn. Þar við bætist að samkvæmt fjár- málaáætlun 2022-26 er gert ráð fyrir áframhaldandi miklum halla í opin- berum rekstri, ríki og sveitarfélaga, á hverju ári fram til ársins 2026. Ragnar segir þennan hallarekstur munu þýða að hreinar skuldir ríkis- sjóðs aukist, jafnvel þótt vera kunni að þær hækki ekki sem hlutfall af vergri landsframleiðslu, gangi fremur bjartsýnar forsendur fjár- laga og fjármálaáætlunar um hag- vöxt á komandi árum eftir. Vaxtastigið á uppleið Þessi aukna skuldabyrði sé áhyggjuefni. Þá ekki síst með hlið- sjón af því að vextir hafi verið sögu- lega lágir um heim allan en fari nú hækkandi. Ef vextir hækki muni vaxtagreiðslur ríkissjóðs aukast að sama skapi. Þær fjárhæðir sé þá ekki unnt að nota til að reka hið opinbera. Samkvæmt kynningu fjármála- ráðherra á fjárlagafrumvarpinu hafa efnahagsaðgerðir og hjöðnun heims- faraldursins leitt til meiri hagvaxtar en búist var við fyrir ári. Þá sé lands- framleiðsla jafnvel meiri en í bjart- sýnni sviðsmynd úr fjármálaáætlun 2021-2025. Nú sé gert ráð fyrir að hagkerfið vaxi um alls 20% á árunum 2021 til 2026. Líkur á niðursveiflu Ragnar segir ekki hægt að ræða um efnahagshorfur á Íslandi án sam- hengis við þróunina á alþjóðamörk- uðum. Blikur séu á lofti í heims- hagkerfinu og þó nokkrar líkur á niðursveiflu á næstu árum, sem aftur geti haft áhrif á hagvaxtarhorfur á Íslandi. Með það í huga séu vænt- ingar um hagvöxt á Íslandi á næstu árum nokkuð bjartsýnar. Í fjárlagafrumvarpinu er boðuð sala á eignarhlut ríkisins í Íslands- banka (65%) og í Landsbankanum umfram 70% eignarhlut í þeim síð- arnefnda. Jafnframt á að selja fast- eignir og aðrar ríkiseignir. Fjallað var um nokkrar þessara fasteigna í Morgunblaðinu fyrr í þessari viku. Meðal annars stendur til að selja lögreglustöðina við Hverfisgötu, byggingar Héraðs- dóms Reykjavíkur og Landsréttar, hús Ríkisskattstjóra á Laugavegi 166 og Tollhúsið á Tryggvagötu. Lagi útgjöld að tekjum Spurður hvort slík eignasala geti mildað höggið af kreppunni segir Ragnar þetta skammgóðan vermi. Þessu megi líkja við að fjölskylda selji heimilisbílinn til að fjármagna aðra neyslu. Hún skuldi þá vissulega minna en sé bílnum fátækari. „Skynsamlegast væri auðvitað að laga eyðslu að tekjum og lækka ríkisútgjöldin jafn snarlega og þau voru hækkuð í upphafi kórónuveiru- faraldursins í fyrra,“ segir Ragnar. Í fjárlagafrumvarpinu er einnig fjallað um vaxtarmöguleika í ein- staka atvinnugreinum, ekki síst í út- flutningi lyfja og fiskeldi, sem aukið geti gjaldeyristekjur þjóðarinnar. Spurður hvort vöxtur í umrædd- um greinum muni milda höggið af kórónukreppunni segir Ragnar var- hugavert að binda slíkar væntingar við einstaka atvinnugreinar. Hag- vöxtur sé ekki aðeins til kominn vegna tækifæra í einstaka greinum heldur vegna almennrar samkeppn- ishæfni hagkerfisins. Samkeppnis- staða Íslands hafi gefið eftir, m.a. með hækkun launa hér á landi um- fram launaþróun í helstu viðskipta- löndum, en einnig með æ þungbærara regluverki sem væri í veigamiklum atriðum vanhugsað. Prófessor telur teflt á tæp- asta vað í ríkisfjármálum - Ragnar Árnason segir eignasölu til að lækka ríkisskuldir skammgóðan vermi Ragnar Árnason Afkoma ríkissjóðs og hins opinbera Áætlun um heildarafkomu hins opinbera 2022-2026, ma.kr.* Afkoma ríkissjóðs 2019-2022 sem hlutfall af vergri þjóðarframleiðslu Afkoma 2019 Afkoma 2020 Fjárlög 2021 Áætlun 2021 Frumvarp 2022 -1,4% -7,9% -10,6% -8,9% -4,7% +0,3% -6,2% -8,8% -7,0% -3,1% 2022 2023 2024 2025 2026 Heimild: Fjármála- áætlun 2022-2026 -251 -168 -104 -62 -63 *A-hluti ríkis og A-hluti sveitarfélaga,með ráðstöfunum að teknu tilliti til lækkunar vaxtagjalda vegna minni lántöku. Frumjöfnuður Heildarjöfnuður 12 FRÉTTIR Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. DESEMBER 2021 10. desember 2021 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 130.45 Sterlingspund 172.19 Kanadadalur 103.21 Dönsk króna 19.822 Norsk króna 14.6 Sænsk króna 14.379 Svissn. franki 141.3 Japanskt jen 1.1465 SDR 182.34 Evra 147.4 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 180.1158 Sveinn Sölvason hefur verið ráðinn forstjóri stoðtækjarisans Össurar. Tekur hann við starfinu af Jóni Sig- urðssyni sem gegnt hefur því frá árinu 1996 eða í aldarfjórðung. Sveinn hefur starfað hjá Össuri frá árinu 2009 og frá árinu 2013 sem framkvæmdastjóri fjármálasviðs. Sveinn mun taka við stöðunni þann 1. apríl á næsta ári en fyrirtækið hefur nú þegar hafið leit að eft- irmanni hans í starfi fram- kvæmdastjóra. Í tilkynningu frá fyrirtækinu þakkar Niels Jacobsen, stjórn- arformaður Össurar, Jóni fyrir langt og gjöfult samstarf. Er það gert fyrir hönd 4.000 starfsmanna fyrirtækisins. „Undir hans stjórn hafa tekjur Össurar vaxið úr 5 milljónum bandaríkjadala í 700 milljónir og starfsmannafjöldinn hefur hundr- aðfaldast,“ segir Niels og þakkar um leið Sveini fyrir að taka að sér að leiða fyrirtækið við þessi tíma- mót. „Ég þakka traustið sem mér hef- ur verið sýnt og hlakka til að takast á við nýtt hlutverk innan Össurar,“ segir Sveinn í sömu tilkynningu. Hann er með meistaragráðu í fjár- málum fyrirtækja frá Copenhagen Business School og starfaði áður hjá Marel og Kaupþingi. Sveinn er kvæntur Birtu Björnsdóttur frétta- manni á Ríkisútvarpinu. Sveinn tekur við Össuri Sveinn Sölvason Jón Sigurðsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.