Morgunblaðið - 10.12.2021, Side 13

Morgunblaðið - 10.12.2021, Side 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. DESEMBER 2021 Tveggja daga alþjóðlegum netfundi Bandaríkjastjórnar um lýðræði lýk- ur í dag. Til fundarins er boðið um eitt hundrað ríkjum víðs vegar um heim, en mesta athygli hefur vakið að Kína og Rússland eru ekki í þeim hópi. Telur Joe Biden forseti, sem á frumkvæði að fundinum, að stjórn- arfar í ríkjunum tveimur dæmi þau úr leik. Hugmyndin að fundinum er talin vera sú að marka Bandaríkj- unum stöðu sem forysturíki lýðræð- isþjóða á tímum þegar sótt er að lýð- ræði og mannréttindum um allan heim. Leiðtogar Kína og Rússlands hafa fordæmt að ríki þeirra séu sniðgeng- in og eru Kínverjar sérstaklega reið- ir yfir því að Taívan sé boðið til fund- arins. Þá hefur vakið athygli að hvorki Ungverjum né Tyrkjum er boðið og er þó Ungverjaland í ESB og Tyrkir í NATO. Hins vegar er Pakistan, Fillipseyjum og Brasilíu boðið þótt lýðræði þyki standa mjög höllum fæti í þessum löndum. Er ljóst að pólitískir hagsmunir Banda- ríkjanna hafa ráðið valinu. Sjálfir glíma Bandaríkjamenn við alvarlegar lýðræðisdeilur heima við þar sem Trump, fyrrum forseti landsins, neitar enn að viðurkenna úrslit forsetakosninganna á síðasta ári og hefur uppi stöðug ósannindi um kosningarnar. Þá eru hörð átök í einstökum ríkjum um kosninga- tilhögun og kosningarétt stórra þjóðfélagshópa og ásakanir uppi um að verið sé að gera tilraunir til að svipta fólk lýðræðislegum rétt- indum. Þykir þetta ekki styrkja um- boð Bandaríkjamanna til að kalla sig forystuþjóð lýðræðis í heiminum. AFP Lýðræði Joe Biden forseti stendur fyrir fundi um eitt hundrað ríkja. Tyrkjum og Ung- verjum ekki boðið - Hundrað ríki funda um lýðræði Stjórnvöld á Nýja-Sjálandi hyggast setja lög sem smám saman eiga að útrýma með öllu tóbaks- notkun í landinu. Í dag eru kaup á tóbaki bundin við 18 ára aldur en takmarkanirnar sem settar verða í áföngum miða að því að þeir sem nú eru 14 ára og yngri muni aldrei geta keypt tóbak. Heilbrigðisráðherra landsins sagði í gær að í lögunum yrðu einn- ig takmarkanir á því hvar hægt verður að nálgast tóbak meðan það er enn löglegt. Þá verður aðeins leyft að selja tóbak með litlu níkót- íninnihaldi til að draga úr hættu á að fólk ánetjist því. Nýsjálendingar hafa lengi verið í fararbroddi í baráttu gegn tóbaki. Árið 1990 bönnuðu þeir tóbaks- framleiðendum að styrkja íþrótta- starf og frá árinu 2004 hefur verið bannað að reykja á veitingastöðum í landinu. „Þetta er sögulegur dag- ur í baráttunni við tóbakið,“ sagði heilbrigðisráðherrann þegar ákvörðunin var tilkynnt í gær. NÝJA-SJÁLAND Vilja skapa tóbaks- laust samfélag Skaðsemi tóbaks er óumdeild. Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Kínversk stjórnvöld vöruðu í gær vestræn ríki við því að þau myndi „gjalda þess dýru verði“, ef þau fet- uðu í fótspor Bandaríkjastjórnar, sem hyggst sniðganga Vetrarólymp- íuleikana í Peking á næsta ári að hluta til. Bandaríkjastjórn tilkynnti fyrr í vikunni að hún myndi ekki senda op- inbera sendinefnd til leikanna, og var ástæða sniðgöngunnar sögð vera víð- tæk mannréttindabrot kínverskra stjórnvalda, þar á meðal gegn úíg- úrum í Xinjiang-héraði, en Banda- ríkjastjórn hefur skilgreint meðferð- ina á þeim sem „þjóðarmorð“. Ástralía, Bretland og Kanada hafa þegar lýst því yfir að þau hyggist feta í fótspor Bandaríkjamanna í þessum efnum, en Antonio Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóð- anna, lýsti því yfir í gær að hann hygðist sækja leikana. Ákvörðun enskumælandi ríkjanna fjögurra um sniðgöngu nær ekki til íþróttamanna þeirra sem áfram mega keppa á leik- unum. Frakkar ekki með Wang Wenbin, talsmaður kín- verska utanríkisráðuneytisins, sagði í gær að ákvörðun Bandaríkjanna, Ástralíu, Bretlands og Kanada um að blanda saman íþróttum og stjórn- málum væri bæði „óvinsæl og ein- angrandi“ fyrir ríkin, og að þau myndu á endanum þurfa að gjalda fyrir misgjörðir sínar. Síðar um daginn tilkynnti Jean- Michel Blanquer, íþrótta- og menntamálaráðherra Frakklands, að Frakkar myndu ekki taka þátt í sniðgöngunni. Bætti Blanquer við að Frakkar myndu áfram fordæma mannréttindabrot í Kína þrátt fyrir það. Heimildir AFP-fréttastofunnar hermdu þó að enn væri verið að ræða afstöðu Frakka til sniðgöngu, og að endanleg ákvörðun hefði ekki verið tekin. Rússar hafa hins vegar gagnrýnt ákvörðun Bandaríkjanna, og sögðu þeir að Ólympíuleikarnir ættu að vera „lausir við stjórnmál“. Hefur Vladimír Pútín Rússlandsforseti þegar þekkst boð Xi Jinpings um að mæta til leikanna. Öll ríkin fjögur, sem þegar hafa ákveðið að sniðganga Ólympíuleik- ana, hafa átt í stirðum samskiptum við Kínverja síðustu misseri. Bretar hafa gagnrýnt framferði kínverskra stjórnvalda í Hong Kong og Kanada- menn lentu upp á kant við Kínverja vegna framsalsmáls Meng Wanzhou, stjórnarmanns í Huawei, sem hand- tekin var í Kanada og beið framsals til Bandaríkjanna. Þá kölluðu Ástr- alar eftir rannsókn á upphafi heims- faraldursins og uppskáru reiði Kín- verja. Vara við sniðgöngunni - Kínverjar segja að þau ríki sem sniðgangi Ólympíuleikana í Peking muni þurfa að gjalda þess - Frakkar ætla að senda opinbera sendinefnd á leikana í febrúar AFP Sniðganga Undirbúningur Vetrarólympíuleikanna er í fullum gangi. Þú finnur jólagjöfina hjá okkur Garðatorg 6 | sími 551 5021 | www.aprilskor.is Vefverslun | aprilskor.is Audley 37.990 kr. Sam Edelman 27.990 kr. Ten Points 34.990 kr. Ten Points 28.990 kr. Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, kom í gær fyrir sérstaka rannsóknarnefnd þingsins til að svara spurningum um minkamálið svonefnda sem valdið hefur henni miklum pólitískum óþægindum á undanförnum mánuðum. Málið snýst um ákvörðun rík- isstjórnarinnar fyrir ári að fyrirskipa að allir minkar í landinu skyldu aflífaðir vegna hættu á að stökkbreytt kórónuveira bærist úr þeim í menn. Í ljós kom að eng- in lagaheimild var fyrir ákvörðuninni sem olli minka- bændum gífurlegu fjárhagstjóni. Þingnefndin reynir að varpa ljósi á ábyrgð forsætisráðherrans í málinu og bað m.a. um aðgang að öllum SMS-skilaboðum í síma hennar frá þessum tíma, en þeim hafði þá verið eytt. Minkamálið heldur áfram að valda forsætisráðherra Dana óþægindum Mette yfirheyrð af þingnefnd AFP

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.