Morgunblaðið - 10.12.2021, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 10.12.2021, Blaðsíða 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. DESEMBER 2021 ✝ Hulda Hatle- mark fæddist í Sykkylven í Noregi 8. janúar 1938. Hún lést á heimili sínu, Sóltúni, 14. nóv- ember 2021. Foreldrar Huldu voru Konrad Hilm- ar Hatlemark hús- gagnasmiður, f. 1904, d. 1991, og Margrét Guð- mundsdóttir saumakona, f. 1907, d. 1999. Systur Huldu eru Anna Hatlemark, f. 1935, d. 2007, Lyndís Gunnhild Hatle- mark, f. 1939, og Erla Kristín Hatlemark, f. 1942, d. 2013. Fjölskyldan flutti frá Noregi 1945 og bjó sér heimili í Reykja- vík þar sem Hulda kynntist síðar verðandi eiginmanni sínum, Olav Öyahals, f. 1938 í Indre Næröy, Noregi, d. 2015. For- Þór Marsý Hild, f. 1988. 4) Guð- rún Øyahals, f. 1964, sonur hennar er Osvald, f. 1979. 5) Konráð Hatlemark Olavsson, f. 1968, börn hans eru Kristófer, f. 1998, Karolína Ásta, f. 2006, og Konráð Snær, f. 2008. 6) Haukur Hatlemark Olavsson, f. 1970, kvæntur Láru Ómarsdóttur, f. 1971. Börn þeirra eru Lilja Sól- ey, f. 1990, Iðunn Hulda, f. 1994, Helga Rut, f. 1996, Hekla Sól, f. 1999, og Haukur Lár, f. 2004. Barnabarnabörnin eru sex. Hulda starfaði sem húsmóðir og síðan við ýmis störf í umönn- un og hússtjórn. Hún var list- hneigð og stundaði nám við Myndlistaskólann í Reykjavík, í módelteikningu, málun og höggmyndalist, og liggja eftir hana mörg verk þótt ekki hafi hátt farið. Hún söng með Kór Trésmiðafélags Reykjavíkur og fleiri kórum um árabil. Útför Huldu fer fram frá Kirkju Óháða safnaðarins, Há- teigsvegi 56, í dag, 10. desember 2021, klukkan 15. eldrar Olavs voru Osvald Öiahals, f. 1904, d. 1974, og Magnhild Elise Öia- hals, f. 1916, d. 2000, bændur í Noregi. Hulda og Olav gengu í hjónaband árið 1962. Börn þeirra eru: 1) Hörð- ur Grétar, f. 1958, kvæntur Kristínu Björnsdóttur, f. 1957. Börn þeirra eru Björn Óli, f. 1989, Há- kon, f. 1992, Hulda Elísabet, f. 1994, og Elísabet Sesselja, f. 1998. 2) Gunnhild Hatlemark Øyahals, f. 1961, Börn hennar eru Rubin, f. 1990, og Ólafur Jarl, f. 1994. 3) Þór Rúnar Øya- hals, f. 1962, kvæntur Jakobínu Sigurgeirsdóttur, f. 1968. Börn þeirra eru Þinur Geir, f. 1997, og Íris Þöll, f. 1999. Fyrir átti Með nokkrum góðum minning- um langar mig að kveðja móður mína. Mamma fæddist í Noregi rétt fyrir seinna stríð og flutti til Reykjavíkur 1945. Það voru erfiðir tímar fyrir marga og dvölin fyrstu árin í bragganum á Fort Knox hef- ur ekki verið dans á rósum. Þessi tími hefur eflaust litað framtíð mömmu því hún hugsaði ávallt vel um börnin sín sex og aðalatriðin voru að þau fengju alltaf nóg að borða og föt utan á sig þótt efnin væru takmörkuð. Við bjuggum við mikið frelsi í uppeldinu en hún hikaði ekki við að grípa inn í ef óréttlæti knúði dyra einhvers staðar og blés okkur byr í brjóst að berjast fyrir rétt- lætinu. Oft var kátt í höllinni þegar sex grislingar bjuggu í lítilli þriggja herbergja íbúð með foreldrum sín- um og ótrúlegt hvað mamma gat haldið ró sinni og einangrað sig frá hávaðanum þótt allt ætlaði um koll að keyra. Þá var oft flett í dönsku blaði eða lesið í bók. Mamma elskaði náttúruna, ber- jatínslu og gönguferðir og miklaði aldrei fyrir sér að drífa sig af stað, jafnvel með fullan bíl af börnum. Ég á því óteljandi góðar minning- ar af útilegum þar sem við fórum átta saman á fimm manna Peugeot með tjald og annan farangur. Seinna, þegar mömmu tæmdist örlítill arfur, keypti hún sér tjald- vagn fyrir „sína peninga“ og ferð- aðist með hann vítt og breitt um landið. Pabbi kallaði hann „Gull- vagninn“ og ferðaðist auðvitað með. Ég smitaðist svo sannarlega af þessari ástríðu mömmu því hvergi líður mér betur en úti í náttúrunni. Mamma smitaði mig af áhuga á myndlist og við fórum saman á námskeið í módelteikningu í Myndlistaskólanum í Reykjavík. Hún hélt síðan áfram og nam mál- aralist og höggmyndalist og skap- aði mörg verk sér til mikillar ánægju. Mamma hafði einnig mik- inn áhuga á tónlist, sérstaklega söng, og nokkur barnabörnin hafa erft þann áhuga og lagt stund á tónlist. Mig langaði að vita hvað Krist- ín mín og börnin myndu eftir varð- andi mömmu og það fyrsta sem Kristín sagði var: „Það er morg- unmaturinn. Ég hafði aldrei feng- ið svona flottan morgunmat nema á norska hótelinu sem ég vann á. Hlaðborð með brauði og kexi, alls konar álegg og auðvitað stór kanna af tei.“ Björn Óli sagði að þægilegt og létt andrúmsloft hefði verið í kringum ömmu: „Manni leið vel og gat verið maður sjálfur. Heima hjá henni sem barn var maður frjáls til að grúska og vera, engin hræðsla við skammir eða fuss, þótt það kæmi fyrir. Hún var góð- hjörtuð alvöruamma.“ Það fyrsta sem Hákon sagði var: „Það er fiskurinn, það var svo góður fiskur hjá ömmu.“ Hulda Beta man að það var allt- af svo gaman og yndislegt að vera með ömmu úti í garði í Mosó: „Amma að dytta að í garðinum og við krakkarnir að leika úti í sól- inni.“ Þá bætti Ella Setta við: „Og við að hjálpa ömmu að gróðursetja og að vaða í læknum sem rann við lóðamörkin.“ Já, við eigum margar ljúfar minningar um mömmu, minningar sem munu lifa áfram með okkur og eru okkur gott veganesti. Fyrir hönd okkar allra kveð ég þig móðir mín og þakka allar góðu samverustundirnar. Hörður Grétar Olavson. Að kveðja einhvern í hinsta sinn verður líklega aldrei eðlileg upp- lifun þó svo öll munum við standa í þeim sporum einn daginn að kveðja þessa jarðvist og því í raun ekkert eðlilegra en að kveðja þá sem hafa verið svo lánsamir að fá að verða gamlir. Ég er búin að vera lengi að kveðja mína mömmu, en hún lifði síðustu árin með alz- heimer sem er óvæginn sjúkdóm- ur þar sem fólk smátt og smátt hverfur inn í eigin heim, hættir að þekkja fólkið sitt og sameiginlegar minningar virðast flestar hverfa. Enginn veit hvað er að finna í þessum heimi, en ég held í vonina að hann hafi sinn sjarma. Alla vega sagði mamma oft sögur af því sem hún upplifði í þessum heimi og voru þær oft ævintýralegar og margar stórskemmtilegar. Líklegt er að sögurnar hafi orðið til í draumi en voru ekki síðri fyrir það og hver segir að upplifun í vöku- ástandi sé betri eða merkilegri en í svefnrofunum. Síðustu árin bjó mamma á Sóltúni þar sem vel var hugsað um hana af frábærum starfsmönnum sem eiga miklar þakkir skilið. Mamma var að mörgu leyti göldrótt og virtist geta allt, saum- aði, prjónaði, bakaði, súrsaði, sult- aði, saftaði og eldaði margar mál- tíðir á dag sem byrjaði með hlaðborði á morgnana og lauk með kvöldkaffi fyrir svefninn. Það skyldi enginn fara svangur út í daginn eða í bólið á hennar heimili. Hún galdraði fram veislur á engum tíma með fallega skreyttum borð- um þar sem allt passaði saman og maturinn meira að segja í réttum litasetteringum. Nú þegar jólahá- tíðin nálgast eru mér ofarlega í huga jólin sem barn sem mömmu tókst ætíð að gera hátíðleg og fal- leg. Hún lagði sig fram við und- irbúninginn með föndri með okkur börnum sínum, saumaði falleg föt á allan hópinn, meira að segja nátt- fötin voru heimasaumuð með hnappagötum og líningum eins og þau gerðust í fínustu verslunum. Sagði hún sögur og hræddi nánast úr okkur líftóruna er hún klæddi sig upp sem grýla eða einhver jóla- sveinanna sem í þá daga voru hvorki rauðir né nokkur ljúfmenni. Mamma var ákveðin kona og skapmikil. Hún var hæfileikarík, listræn og gat á stundum verið dásamlega dramatísk. Hún hafði gaman af því að segja sögur og minntu tilþrifin stundum á bestu leiksýningu. Hafði hún mikinn húmor fyrir sjálfri sér og átti auð- velt með að setja sig í spor annarra og hló innilega þegar henni voru sagðar sögur af hverslags vand- ræðagangi, var líklega með því skemmtilegra sem hún gerði, að hlusta á, segja sögur og hlæja sín- um innilega og smitandi hlátri. Að hlæja með mömmu var alltaf gam- an og líklega það sem ég mun sakna mest. Gæti ég skrifað heila bók um konuna sem ég var svo lánsöm að fá að kalla mömmu en stafafjöldi í minningargrein leyfir ekki meira. Verð ég ævinlega þakklát þeirri gæfu að hafa fengið að vera við hlið móður minnar hennar síðustu sundir í þessu lífi, fengið að halda í hönd hennar, hlýju öruggu hönd- ina sem leiddi mig lítið barn, hönd- ina sem var orðin svo lítil og grönn, en þó svo sterk. Sterk eins og móð- ir mín var og þannig mun ég minn- ast hennar. Takk fyrir allt elsku mamma. Þín dóttir, Gunnhild. Tengdamamma. Konan sem kenndi mér svo margt, konan sem kom inn í líf mitt og breytti því og mér til hins betra, konan sem vann verk sín hljóð. Nú er hún fallin frá. Hulda Hatlemark var ótrúleg kona. Hún lifði tímana tvenna, þurfti að takast á við alls konar áföll og áskoranir í lífinu sem við flest könnumst ekki við. Hún upp- lifði fátækt, hungur og niðurlæg- ingu sem barn í hernumdum Nor- egi. Þá gat eitt epli verið dýrmæt máltíð. Síðar, þegar hún flutti til Ís- lands, þá var eina húsnæðið sem móður hennar bauðst braggi í Kamp Knox. Hún upplifði fordóma, það var litið niður á fólkið í Kamp Knox. Þetta mótaði Huldu, sem var einstaklega lagin við að nýta hluti. Hún sagði sem dæmi eitt sinn við mig: „Ef þú átt kartöflur, egg og lauk þá er nóg til að borða.“ Svo sönn voru þau orð sem gögnuðust mér mikið þegar fjölskyldan mín glímdi við fátækt. Hjá Huldu borðaði ég brauð- súpu fyrst. Hélt það væri grín að súpan væri búin til úr brauði en það var þannig. Hjá Huldu tók ég líka slátur í fyrsta sinn og saumaði keppi. Hjá Huldu setti ég eitt álegg á brauðið. Hjá Huldu var stoppað í sokka og gert við slitnar buxur. En Hulda var örlát. Þetta var ekki níska heldur meira arfleifð frá gömlum tíma. Hún var alltaf boðin og búin að hjálpa. Hvort sem var með peninga, passa börnin eða vera til staðar í kjaftagang og kaffi. Það var gaman að sitja með Huldu við eldhúsborðið og ræða um allt milli himins og jarðar. Hún átti erfitt með ójöfnuð, skildi hann ekki. Sagði oft: „Fólk getur aðeins setið í einum stól í einu, sofið í einu rúmi í einu.“ Hún vildi að öll hefðu jöfn tækifæri og öll hefðu nóg að bíta og brenna. Við hlógum líka oft saman. Að alls konar. Hulda gat hlegið svo mikið að það lá við að hún missti í buxurnar. Hulda var ekki bara tengda- mamma mín. Hulda var vinkona mín. Við gátum setið tímunum saman og spjallað. Hún kenndi mér svo ótal margt. Hún kenndi mér að við erum öll merkileg og við skipt- um öll máli. Hún kenndi mér að baka. Hún kenndi mér að þvo þvott og stoppa í sokka. Hún kenndi með þolinmæði og æðruleysi. Og hún kenndi mér að bamba börnin mín og vera þakklát fyrir líf mitt. Hún kenndi mér að hugsa um blóm og hún kenndi mér að rækta garðinn. Ekki bara garðinn úti fyr- ir heimilinu heldur líka garðinn heima fyrir. Hulda kenndi mér að biturð gagnast engum. Ég var svo einstaklega heppin með tengda- mömmu. Fyrir utan allt sem Hulda gerði fyrir mig þá var hún enn meira fyr- ir börnin mín, ömmubörnin sín. Þeim var hún einstök. Hún vildi verja tíma sínum með þeim, fara með þeim í fjallgöngu eða berjamó, gefa þeim sultubrauð eða prjóna fyrir þau sokka. Hún var amma eins og þær gerast bestar. Lífið verður ekki samt án Huldu. Ég á eftir að sakna hennar óheyri- lega. Ég á eftir að sakna þess að drekka með henni kaffi og slúðra. Ég á eftir að sakna að sitja með henni úti í garði og tala um blómin. Og ég á eftir að sakna þess að knúsa hana og segja henni að ég elski hana. Kyssa hana á ennið. Hvíl í friði, elsku Hulda, ég get aldrei þakkað þér nógsamlega það sem þú gafst mér. Lára Ómarsdóttir. Minningarorð frá fimm barna- börnum: Hún elsku besta amma mín, ég veit hreinlega ekki hvar ég á að byrja. Amma Hulda var alveg svona ekta amma, amma sem gaf manni alltaf að borða, amma sem spurði hvort manni væri nú ekki kalt, amma sem laumaði að manni pening, amma sem bakaði góðar kökur og bjó til sultur, amma sem litaði alla staka sokka bláa svo þeir urðu að pari, amma sem kvartaði undan því að maður gekk á hæl- unum á buxunum, amma sem bambaði mann í svefn, amma sem stoppaði í götin á fötunum manns, þó svo þau ættu nú að vera þar. Mér fannst alltaf gaman hjá ömmu minni, fór sjálf oft ein í heim- sókn til hennar, hjólaði til dæmis úr Grafarvoginum alla leið upp í Mosó bara til þess að fá mér brauð með osti eða mysuosti með rifflaða osta- skeranum og te með sykurmola og/ eða vatnsblandað diet-kók. Það var líka alltaf gaman í garð- inum hjá ömmu, hvort sem það var á Skeggjagötunni eða Furubyggð- inni. Hún var með mjög græna fingur og moltaði sem dæmi löngu áður en fólk byrjaði að flokka rusl. Hún var alltaf að brasa eitthvað, brasa í blómabeðunum á meðan við lékum okkur í garðinum, klifruðum í trénu á Skeggjagötu eða sulluð- um í læknum í Furubyggðinni. Hún var líka með rabarbara og rifsber sem við börnin máttum borða að vild. Já og graslauk. Þegar ég rifja upp gamla tíma með henni stendur mest upp úr maturinn sem ég borðaði hjá henni en það var margt sem ég borðaði aðeins heima hjá henni. Hjá henni fengum við ætíð hrísmjölsgraut, frosin ber með rjóma og sykri, diet-kók sem geymt var í eldhús- glugganum (helst vatnsblandað), ribena-þykkni, ávaxtagraut úr fernu og að sjálfsögðu soðinn fisk með kartöflum og gulrótum en soðnar gulrætur voru aðeins góðar ef hún eldaði þær. Amma átti líka listaverk sem hún hafði gert sjálf. Hún málaði. Hún bjó til styttur og við máttum leika okkur á stóru styttunni af manninum sem var í stofunni. Amma litaði líka með okkur og kenndi okkur að teikna rétt. Einnig þótti henni ömmu af- skaplega gaman að fara í göngu- túra og tók hún okkur oft með út að labba hvort sem það var bara í hverfinu eða einhvers staðar út fyrir bæjarmörkin. Voru þá oft tínd ber og blóm í leiðinni. Elsku amma, þín verður sárt saknað og við erum viss um að hvar sem þú ert þá ertu einhvers staðar úti í góðu veðri að rölta um, tína ber og róta í görðum eins og þér einni var lagið. Lilja Sóley, Iðunn Hulda, Helga Rut, Hekla Sól og Haukur Lár Hauksbörn. Við Hulda hittumst fyrst fyrir 72 árum og höfum verið vinkonur síðan. Við bjuggum báðar í Kamp Knox, braggahverfinu í Vesturbæ Reykjavíkur. Hulda var 11 ára og ég 9. Við brölluðum margt eins og börn gerðu í þann tíð. Eitt það skemmtilegasta var að leika með dúkkulísur og teikna, lita og klippa út föt á þær. Þá kom vel í ljós list- fengi Huldu, sem braust út í ýmiss konar list og handverki það sem eftir var ævinnar. Það hefur margt verið rætt og ritað um aðstæður í braggahverfunum. Víst er að þar höfðu það ekki allir gott. En við ól- umst upp við kærleika og ham- ingju. Húsakostur í Kamp Knox var vissulega ekki sérlega glæsi- legur, frekar en í braggahverfun- um almennt. En hinn norski Kon- rad, faðir Huldu, var listasmiður og bragginn þeirra bar af öðrum. Við Hulda urðum fljótt sammála um og staðráðnar í að skapa okkur eigin framtíð. Við ákváðum ungar stúlkur að fara til Noregs og upp- lifa ævintýri. Við fórum til Sykkyl- ven, smábæjar suður af Álasundi, þar bjó föðurfólk Huldu. Þetta var gaman og lærdómsríkt. Hulda fór þó heim nokkru fyrr en til stóð, Hörður reyndist vera á leiðinni. Við tókumst síðan báðar á við móð- urhlutverkið, mín börn urðu 4 og Huldu urðu 6. Eftir að hún flutti á Flateyri dvaldi ég hjá henni þar með eldri börnin mín, lengst sum- arlangt. Við prjónuðum og saum- uðum á börnin allt sumarið. Þegar hún kom aftur suður með 6 börn urðu tengslin sterk sem aldrei fyrr. Það sannaðist á okkur Huldu að það tekur andartak að verða vinur, en alla ævina að vera vinur. Við varðveittum og ræktuðum vinátt- una allan daginn og veginn. Ég sakna vinkonu minnar, en minnist hennar með gleði. Sterku, ákveðnu, hreinskiptnu vinkonu minnar sem sló öllum við, þegar rétt þurfti að vera rétt; var skemmtileg og hláturmild, hrein- skilin, skorinort og skýr, falleg og heillandi. Afkomendum og ástvin- um Huldu Hatlemark votta ég dýpstu samúð mína og minna. Far vel, elsku vina mín, takk fyrir allt og allt. Greta Bjarnadóttir. Hulda Hatlemark ✝ Jónas Sigurður Steinþórsson fæddist á Breiðabóls- stað í Vatnsdal 21. desember 1928. Hann lést á Hlévangi Hrafnistu 1. desem- ber 2021. Foreldrar hans voru hjónin Ingibjörg Jónasdóttir, f, 1899, d. 1978, og Steinþór Björn Björnsson, f. 1900, d. 1986. Jónas ólst upp á Breiðabólsstað hesta alveg þar til fyrir þremur árum. Um 1970 flutti hann til Reykja- víkur. Hann hóf fljótlega störf sem málari og starfaði sjálfstætt sem slíkur langt fram á áttræð- isaldur. Árið 1975 kynntist hann Jó- hönnu Rósu Guðmundsdóttur úr Sandgerði, f. 1925, d. 2000. Börn Jóhönnu eru Guðmundur, f. 1947, næstur er Sigurður, f. 1948, þriðji er Sæmundur, f. 1949, þá Einar Kristinn, f. 1951, d. 2008, fimmti er Erlendur, f. 1953, sjötta er Guðlaug, f. 1958, og yngst er Hafdís Hulda, f. 1962. Jónas flutti til Sandgerðis árið 2000 og bjó þar síðustu æviárin. Útförin fer fram frá Sandgerð- iskirkju í dag, 10. desember 2021, klukkan 15. við hefðbundin sveitastörf. Hann var næstyngstur fjögurra systkina. Hin eru í aldursröð Ingibjörg Helga, f. 1926, Jóhanna, f. 1927, og Sigurlaug Jósefína, f, 1931. Þær eru allar látn- ar. Fram til 1970 bjó hann á Breiðabóls- stað með foreldrum sínum. Jónas lagði stund á hrossarækt og átti Jónas á Breiðabólstað var fæddur þar í svartasta skamm- deginu 21. desember 1928. Hann var snemma duglegur til vinnu og eftirsóttur í heyskap strax á unglingsaldri. Þá var hestatíma- bilið á blómaskeiðinu. Jónas eignaðist kindur, tölu- vert margar, upp úr 1950. Hafði þær í húsum á Breiðabólstað en heyjaði fram á engjum á Hjalla- landi. Heyið flutti hann heim á hestasleða þegar Flóðið og kvíslarnar voru komnar á ís. Þetta var mikil elja hjá ungum manni rúmlega 20 ára. Aldrei að kvarta eða gefast upp. Það var eins og hann vissi ekki hvað það var. Upp úr búskaparsögunni fór hann að stunda málningarvinnu, mest í Reykjavík. Var hann eft- irsóttur í slíka vinnu. Nálega 80 ára var hann að mála fyrir mig þök hér í Miðhúsum, hreint eins og hrafninn í klifrinu. Jónas hafði mikið yndi af hest- um, tamdi hesta og ól þá upp hér fyrir norðan og seldi svo þessa vini sína tamda til brúkunar. Ég veit að stundum fann þessi duli maður tilfinningu sem ekki var borin á torg þegar góður foli var seldur. Jónas var einhleypur fram um fimmtíu ára aldur. Þá hóf hann sambúð með Jóhönnu Rósu Guð- mundsdóttur. Sú sambúð var með ágætum enda bæði fullorðið fólk. Hann reyndist konu sinni afburðavel, annaðist hana síðustu ár hennar. Jóhanna Rósa lést ár- ið 2000. Oft kom ég til þeirra á Jörfabakkann til gistingar, eða bara í heimsókn. Þar var mér æv- inlega tekið vel og velgjörðir eins og hjá foreldrum Jónasar á Breiðabólstað í gamla daga. Á fullorðinsárum þegar hann var hættur að temja hesta hleypti hann upp þónokkuð mörgu stóði á Breiðabólstað, sem hann var þá búinn að eignast ásamt systrum sínum eftir for- eldra þeirra gengna. Hrossin veittu honum marga ánægju- stund. Sat hann í miðjum hópn- um talaði við þau og gaf þeim brauð. Þetta var annars styggt stóð og margar erfiðar hryssur í smölun og þessháttar. Með Jónasi Steinþórssyni er genginn sérstæður og sérstakur maður, sem alinn er upp á fyrri hluta tuttugustu aldar í takmörk- uðum efnum en nægjusemi og umvafinn mikilli móðurhlýju. Hafðu mitt þakklæti fyrir ára- tuga samfylgd. Magnús Pétursson, Miðhúsum. Jónas Sigurður Steinþórsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.