Morgunblaðið - 10.12.2021, Síða 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. DESEMBER 2021
30 ÁRA Svanhvít ólst upp að mestu í Hafnar-
firði en býr í Búðardal. Hún er með B.Sc.-gráðu
í náttúru- og umhverfisfræði frá Landbún-
aðarháskólanum á Hvanneyri og er í fæðingar-
orlofi. Svanhvít er formaður Slysavarnadeildar
Dalasýslu. „Áhugamálin eru náttúran, útivist og
börnin. Svo er ég í námi til kennsluréttinda.“
FJÖLSKYLDA Kristján Ingi Arnarsson, f.
1988, byggingatæknifræðingur og umsjónar-
maður framkvæmda hjá Dalabyggð. Börn
þeirra eru Viðar Örn, f. 2015, Katla Dís, f. 2018,
og Óðinn Sær, f. 2021. Foreldrar Svanhvítar eru
Viðar Karlsson, f. 1968, rekstrarhagfræðingur
og vinnur hjá Eimskipafélaginu, bús. í Reykja-
vík, og Bryndís Jóna Jónsdóttir, f. 1971, lektor
við HÍ og núvitundarkennari hjá Núvitundar-
setrinu, bús. í Hafnarfirði.
Svanhvít Lilja Viðarsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Flas er ekki til fagnaðar og það á
svo sannarlega við um þá aðstöðu sem
þú ert í núna. Brostu og ekki hlusta á
neinn sem reynir að draga þig niður.
20. apríl - 20. maí +
Naut Það hefur verið mikið álag á þér að
undanförnu svo þú hefðir gott af því að
komast út úr bænum um helgina. Trúin
flytur fjöll.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Þér sárna ummæli sem falla í
samtali innan fjölskyldunnar. Þú ert á
leið á stefnumót næstu daga. Það á eftir
að hafa meiri áhrif á líf þitt en þig grun-
ar.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Þetta er ekki rétti tíminn til að
efast um eigið ágæti. Einn dagur úti í
náttúrunni gæti verið nóg til að byggja
þig upp.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Láttu ekki neikvæðan samstarfs-
félaga draga þig niður. Taktu þátt í ein-
hvers konar hópstarfi um helgina.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Sýndu sjálfsöryggi og þá munu
aðrir sjá þig í jákvæðu ljósi. Þú getur
ekki breytt fortíðinni. Þú færð mörg prik
fyrir hjálpsemi þína við nágrannann.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Notaðu daginn til þess að vera með
vinum þínum. Þú þarft líklega að brjóta
odd af oflæti þínu í dag.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Ferðalög og frekara nám er
ekki ólíklegt á næstu mánuðum. Þú þarft
ekki alltaf að eiga síðasta orðið.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Næg hreyfing heldur andlegu
hliðinni í jafnvægi. Flestir þurfa að byrja
smátt, og það á einnig við um þig. Ekki
vinna myrkranna á milli.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Hlutir hverfa oft fyrirvaralaust
svo þú skalt hafa auga á þeim sem þér
er sárt um. Það er alger óþarfi að verða
mosavaxinn á einum stað.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Það er mikil kúnst að bregð-
ast rétt við óvæntum tíðindum. Það lifir
enginn á loftinu, þú ættir kannski að fara
að líta í kringum þig.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Metnaður þinn er mikill og það
sér fólk. Passaðu þig að springa ekki á
limminu. Það rennur upp fyrir þér ljós
varðandi gamalt leyndarmál.
Fyrst var ég mikið í að vinna í ný-
sköpunarumhverfinu og bæta það.
Svo kom CRI-tíminn og þá var ég að
vinna innan sprotafyrirtækis og
byggja það upp. Núna er ég síðan að
vinna fjárfestamegin, eða eigenda-
megin, þar sem við erum að fjárfesta
í sprotafyrirtækjum. Ég er mjög
hefur ætíð verið verðmætasköpun
hvort sem er á sviði vöruþróunar,
fjármögnunar, sölu, tækni, sjálf-
bærni eða stjórnarhátta til hagsbóta
fyrir umhverfið, atvinnulíf og starfs-
fólk til jafns. Frá því að ég kom í
sprotageirann árið 2011 hef ég unnið
að þrenns konar meginþemum.
M
argrét Ormslev Ás-
geirsdóttir fæddist
10. desember 1981 í
Reykjavík. „Ég
fæddist í Vestur-
bænum og bjó fyrstu árin á Kvist-
haga 5, sem var byggt af Páli afa
mínum og Björgu ömmu, og var
nokkurs konar fjölskylduhús en þar
bjuggu nokkur systkina pabba.
Mamma og pabbi byggðu hús í
Beykihlíð 11 og var frábær sam-
gangur milli granna. Við lékum okk-
ur í körfubolta, einni krónu, vorum
með sumargrill og svo var „lakkrís-
tré“ í garði nágrannans. Það var mik-
ið leikið í Nauthólsvík og Öskjuhlíð
löngu áður en Perlan eða sund-
aðstaða varð til.“ Margrét æfði hand-
bolta með Val og dans.
Margrét, sem er nú oftast kölluð
einfaldlega Magga, gekk í Hlíðaskóla
þar sem hún varð dúx og lauk stúd-
entsprófi frá náttúrufræðibraut frá
Menntaskólanum í Reykjavík 2001
þar sem hún hlaut ágætiseinkunn og
ýmsar viðurkenningar. „Í MR kynnt-
ist ég manninum mínum. Svo fór ég
til Vestmannaeyja, en hann er þaðan,
að vinna í Vinnslustöðinni það sum-
arið og eignaðist þar góða vini. Mér
hefur alla tíð síðan þótt einkar vænt
um Eyjar og farið á nokkrar Þjóð-
hátíðir áður en við eignuðumst börn-
in og síðan einnig farið með börnin á
Þjóðhátíð þar sem þau skemmtu sér
konunglega.“ Margrét er með B.Sc.-
gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla
Íslands 2005, M.Sc.-gráðu í hagfræði
frá Háskóla Íslands 2011 og M.Sc.-
gráðu í orkukerfum og orkustjórnun
frá School of Renewable Energy
Science 2010 þar sem hún fékk full
skólagjöld í styrk og styrk úr orku-
sjóði Landsvirkjunar.
Margrét vann á leikskólanum Sól-
borg 2000-2002, Verkfræðistofu Guð-
mundar og Kristjáns (nú Mannviti)
2003-2007, Landsbankanum 2007-
2014, var fjármálastjóri og síðan
framkvæmdastjóri fjármála, rekst-
urs og mannauðs hjá Carbon Recycl-
ing International (CRI) frá 2015, síð-
an aðstoðarforstjóri þar frá 2019.
Frá 2021 hefur Margrét verið fjár-
festingastjóri hjá Brunni Ventures.
„Rauður þráður í mínu námi og starfi
þakklát og stolt yfir öllum þessum
verkefnum og samstarfsfólki mínu
gegnum árin.“
Margrét hefur komið fram víða til
að tala um nýsköpun og grænar
lausnir. „Mér er í mun að vel sé að
umhverfinu staðið og finnst fátt
skemmtilegra en að vinna að því að
þoka málum áfram og vinna með
sprotafyrirtækjum. Mér finnst sér-
staklega frábært hversu mikla at-
hygli grænar lausnir eru loks að fá
eftir margra ára baráttu fyrir mis-
daufum eyrum: Má segja að ég sé
einstaklega lánsöm að fá að vinna við
nýsköpun sem mér þykir skemmtileg
og er í raun einnig eins konar áhuga-
mál mitt.
Meðfram starfi í fyrirtækjum hef
ég lagt mitt af mörkum í samtökum,
nefndastarfi, viðburðum og verk-
efnum í atvinnulífinu til að breyta
rekstrarumhverfi fyrirtækja til að
þau geti vaxið og dafnað frá Íslandi.“
Margrét sat í fjárfestingaráði Frum-
taks 2011-2014, var stjórnarmaður í
Samtökum sprotafyrirtækja á vegum
Samtaka iðnaðarins (SI) 2015-2020,
hún hefur setið í framleiðsluráði SI
frá 2017, sat í stjórn SI 2020 og há-
skólaráði HR 2020, hefur setið í
stjórn Nýsköpunarsjóðs námsmanna
frá 2020 og verið stjórnarformaður
Tækniseturs frá 2021. Hún situr
Margrét Ormslev Ásgeirsdóttir fjárfestingastjóri – 40 ára
Fjölskyldan „Við erum þarna á Siglufirði, en þaðan er tengdapabbi ættaður
og hluti fjölskyldu hans býr þar enn. Reynum að fara reglulega þangað.“
Bæði ævistarf og áhugamál
Afmælisbarnið Margrét á Iðnþingi 2020.Hjónin Stödd á Þjóðhátíð árið 2019.
Til hamingju með daginn
Búðardalur Óðinn Sær Krist-
jánsson fæddist 18. apríl 2021
kl. 02.07 á Landspítalanum.
Hann vó 4.260 g og var 51 cm
langur. Foreldrar hans eru
Svanhvít Lilja Viðarsdóttir og
Kristján Ingi Arnarsson.
Nýr borgari
Laugavegi 178, 105 Reykjavík | Sími 551 3366 | misty.is
Opið virka daga kl. 11-18, laugardaga kl.11-16
TILVALIÐ Í
JÓLAPAKKANN
Vanilla sett
teg: 3721
Stærðir S-4XL
Verð 13.990kr