Morgunblaðið - 10.12.2021, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 10.12.2021, Blaðsíða 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. DESEMBER 2021 120 OG 200 LJÓSA INNI- OG ÚTISERÍUR Við Fellsmúla | Reykjavík | Sími: 585 2888 | rafmark.is Kíktu á nýju vefverslunina okkar rafmark.is Ragnheiður Birgisdóttir ragnheidurb@mbl.is „Ég er að fara að sýna röð nýrra skúlptúrverka sem eru áframhald af skúlptúriðkun minni,“ segir myndlist- armaðurinn Styrmir Örn Guðmunds- son um sýningu sína UFO. Hún verð- ur opnuð í Y gallery, gömlu bensínstöðinni í Hamraborg, á morg- un, laugardag, kl. 15. Listamaðurinn sýnir þar origamiskúlptúra sem búnir eru til úr messing-málmi. Hann hefur beygt málminn í ýmiss konar skutlur, pílur og fljúgandi loftaflshluti. Skúlp- túrarnir minna því helst á gylltar út- gáfur af þeim skutlum sem maður býr til úr hefðbundnum A4-pappír. „Í rauninni er útgangspunktur þessara skúlptúra að búa til eitthvað fallegt úr hversdagslegum hlut eins og A4-blaði nema þetta er náttúrlega úr málmi svo það er aðeins fallegri bragur yfir því. Ég lít líka á þetta sem brúður í einhvers konar leikhúsi vís- indaskáldskapar, þetta er svolítil sci- fi-sýning.“ Hann hefur áður notað slíka hluti sem brúður í svokölluðum „leikbrúðuslamm“-gjörningum í Pól- landi og Mexíkó. Lærði á hljóðfæri eftir þrítugt Styrmir heldur ekki aðeins mynd- listarsýningu heldur verður hann líka með tónleika í galleríinu á sunnudag- inn, 12. desember, kl. 17. „Það eru tónleikar með framandi hljóðfæri sem nefnist stálpanna og er upp- runnið á eyjunum Trínídad og Tóbagí í Karabíska hafinu. Ég er búinn að vera að spila á þetta hljóðfæri síðan ég var síðast á eyjunni Aruba. Þang- að fer ég oft til að kenna í listaskóla. Ég kynntist þar fólki sem spilar á svona hljóðfæri og datt einhvern veg- inn alveg í það.“ Styrmir mun leika vel valin jólalög, bæði íslensk og erlend, en tónleikarn- ir verða frumraun hans í að flytja tón- list á stáltrommuna fyrir framan áhorfendur. Tónlistarferill Styrmis byrjaði eftir þrítugt. Hann lærði ekki á hljóðfæri sem barn heldur fór að kynnast þeim heimi á fullorðinsárum. „Síðustu tvö ár hef ég mikið verið að spila á þessa pönnu heima hjá mér og æfa mig. Ég féll fyrir tónfræði og tónlistariðkun á síðustu árum,“ segir hann. Eitthvað splunkunýtt Þótt hljóðfæraleikur sé nokkuð nýr fyrir Styrmi er sýning af þessu tagi nokkuð lýsandi fyrir hans feril. „Ég held að týpískt fyrir mig sé ein- mitt að skeyta saman fjölbreytta miðla og form. Ég er eiginlega alltaf að reyna eftir bestu getu að prófa eitthvað nýtt, ýta sjálfum mér út í eitthvað nýtt. Frekar hefðbundnir tónleikar á órafmagnað hljóðfæri er splunkunýtt fyrir mig. Ég hef haldið tónlistargjörninga áður, en þá er ég meira að nota röddina, syngja eða rappa, en í þetta skiptið er það bara hljóðfærið sem syngur.“ Það er ekki tilviljun að Styrmir skuli skeyta þetta tvennt saman, stál- pönnuna og messingskúlptúrana. „Skúlptúrarnir eru svolítið búnir til með tileinkun til þessa hljóðfæris. Hljóðfærið er úr stáli og er krómhúð- að, þannig að það er rosa fallegt. Þetta er upphaflega olíutunna sem er barin í þetta form og úr verður þetta hljóðfæri. Skúlptúrarnir eru líka svona glitrandi málmur svo það rím- ar svolítið við estetíkina á hljóðfær- inu.“ Leikur á olíutunnu á bensínstöð Á sýningunni verður líka olíu- málverk til sýnis. Sá miðill er líka nýr fyrir Styrmi, hann hefur ekki málað með olíumálningu áður. „Þetta eru þrír strigar, eitt verk, sem sýna út- sýni yfir bæði himingeim og landslag sem minnir á jörðina en gæti verið einhver framandi pláneta líka.“ Þar kemur tengingin við vísindaskáld- skapinn einnig fram. „Innblásturinn er kannski svolítið staða náttúrunnar og umhverfisins og hvernig við mannfólkið og náttúr- an eigum í reiptogi. Mér finnst sú krísa og sci-fi ljóðrænt spila vel sam- an,“ segir hann og bætir við að stál- pannan tengist líka því þema. „Hljóðfærið er búið til úr olíutunnu svo mér finnst eiga vel við að flytja tóna á þetta olíutunnuhljóðfæri inni í bensínstöðinni. Við erum hægt og bítandi að fara að kveðja olíuna sem einhvers konar kraft í okkar lífi.“ Styrmir er búsettur í Berlín ásamt konu sinni og dóttur. Þar segist hann „fást við myndlistina og öll þau æv- intýri“. Fjölhæfur Innblástur sýningarinnar segir Styrmir vera „hvernig við mannfólkið og náttúran eigum í reiptogi“. Jólalög eða ómur af olíu - Styrmir Örn Guðmundsson opnar myndlistarsýninguna UFO í Y gallery - Leikur jólalög á stálpönnu frá Karíbahafi á tónleikum á sunnudag Hollensk stjórnvöld hyggjast festa kaup á einni af þekktustu sjálfs- myndunum sem hollenski meist- arinn Rembrandt van Rijn málaði, Merkisberanum frá árinu 1636, en verkið er sagt afar mikilvægt fyrir hollenska menningu og sögu. Þarf hollenska þingið að samþykkja kaupin áður en af þeim verður en hlutur ríksins er, samkvæmt frétt BBC, 150 milljónir evra, rúmlega 22 milljarðar króna. Ríkislistasafn Hollands greiðir 10 milljónir evra til og félagsskapurinn Rembrandt Association aðrar 15 milljónir evra. Á löngum ferli málaði Rem- brandt meira en fjörutíu sjálfs- myndir. Voru þær mikilvægur hluti listsköpunar hans og þykja skrá- setja með einstökum hætti sýn lista- mannsins á sjálfan sig á ólíkum tímabilum. Langflest verkanna eru í eigu safna en Merkisberinn hefur um aldir verið í einkaeigu. „Merkis- berinn er nú á heimleið eftir að hafa verið á nokkurra alda ferða- lagi,“ segir menningarmálaráð- herra Hollands í yfirlýsingu. Frá árinu 1844 hefur verkið verið í eigu franskrar greinar Rothschild- bankafjölskyldunnar og hafa frönsk stjórnvöld valið það „franska þjóðargersemi“. Þau setja sig þó ekki upp á móti sölu mál- verksins til Hollands. Verkið var lánað á sýningu í Rijksmuseum áður 2019 og vakti mikla athygli. Rembrandt málar sig þar í búningi merkisbera sem leiddi herdeildir fram á vígvöllinn í Átta ára stríðinu sem lauk með sjálf- stæði Hollands árið 1648. Meistaraverk Rembrandt van Rijn málaði sig sem Merkisberann árið 1636. Hollenska ríkið kaupir Merkisbera Endurgerð Stevens Spielbergs á dans- og söngvamyndinni West Side Story hefur verið bönnuð í ýmsum Austurlöndum nær, þeirra á meðal Sádi-Arabíu, Kúveit, Barein, Óman, Katar og Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Þessu greinir tímaritið Variety frá. Þar kemur fram að í sumum landanna hafi Disney, sem framleiðir myndina, hreinlega ekki fengið dreifingar- leyfi en í öðrum hafi Disney ekki sætt sig við ritskoðunarkröfu þar- lendra stjórnvalda. Ekki hefur fengist staðfest hvað nákvæmlega veldur banninu, en talið er líklegt að persónan Any- bodys fari fyrir brjóstið á ritskoð- urum. Í myndinni er Anybodys trans manneskja og leikin af Iris Menas sem er kynsegið (e. non- binary). Kvikmyndir sem innihalda hvers kyns hinsegin málefni eða vísanir hafa löngum verið ritskoð- aðar í Austurlöndum nær sem og Kína. West Side Story var frumsýnd í liðinni viku og hefur víða hlotið afar góðar viðtökur. Þannig hrós- aði Owen Gleiberman, aðalgagn- rýnandi Variety, Spielberg fyrir vandratað einstigi milli þess að vera trúr ástarsögunni frægu og setja persónulegt mark sitt á efnið. Peter Bradshaw, rýnir The Guardi- an, gefur myndinni fullt hús og hrósar Spielberg fyrir listræna nálgun sína sem sé einstök og eng- inn hefði getað leikið eftir. Nanna Frank Rasmussen, rýnir Politiken, deilir ekki ofurhrifningu kollega sinna og gefur myndinni þrjú hjörtu af sex mögulegum. Seg- ist hún ekki skilja hvers vegna Spielberg hafi viljað skapa endur- gerð á klassískri mynd þar sem henni finnist hann litlu bæta við. Hún segir virðingarvert að vilja endurgera myndina með leikurum af suðuramerískum uppruna, en á sama tíma og Spielberg sé aug- ljóslega upptekin af rasismanum sem í sögunni birtist skauti hann léttilega fram hjá vandanum sem skapist af feðraveldinu. Söngvamynd bönnuð í Austurlöndum nær - Ritskoðun vegna trans manneskju Par Ansel Elgort og Rachel Zegler sem elskendurnir Tony og María í myndinni West Side Story.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.