Morgunblaðið - 10.12.2021, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 10.12.2021, Blaðsíða 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. DESEMBER 2021 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ @CliffordMovie CliffordMovie.com #CliffordMovie ÞVÍ MEIRA SEM ÞÚ ELSKAR HANN ÞVÍ STÆRRI VERÐUR HANN. KEMUR Í BÍÓ MEÐ ÍSLENSKU TALI 10. DESEMBER 94% Frábær ný Fjölskyldumynd frá Disney sýnd með Íslensku og Ensku tali SÝNDMEÐ ÍSLENSKU, ENSKU OG PÓLSKU TALI JÓLAMYND Í dalverpinu í miðju Seljahverfi og við hlið Ölduselsskóla er reisuleg vinnustofa og heimili Hallsteins Sig- urðssonar myndhöggvara. Um- hverfis vinnustofuna, sem er við enda Ystasels, sitja margir skúlptúr- ar hans á stöplum og setja mikinn svip á umhverfið. Hallsteini fellur sjaldan verk úr hendi og áhugavert er að heimsækja hann á vinustofuna og fræðast um myndverkin sem hann vinnur að. Þótt hann hafi undanfarið glímt við vanheilsu og búi nú í Seljahlíð, skammt þar frá, þá er Hallsteinn á vinnustofunni alla daga og þegar blaðamaður lítur inn er hann að leggja lokahönd á afsteypur nokk- urra sinna helstu verka. „Þetta er Ægir,“ segir Hallsteinn og klappar á koll eins verksins. „Og hér er Óðinn,“ bætir hann við og snýr einu steypta verkinu svo guð- inn eineygði sjái komumann. Hallsteinn segist síðan hafa lengi smíðað skúlptúra úr járni og sýnir nokkur nýjustu járnverkin sem eru þar á gólfinu. Eitt þeirra byggist á tékkneskri dráttarvél sem Hall- steinn kynntist þegar hann var strákur í sveit hjá föðurbræðrum sínum í Borgarfirði en þeir og faðir Hallsteins voru bræður Ásmundar Sveinssonar myndhöggvara. „Þeir gáfu þessum traktor nú ekki háa ein- kunn,“ segir Hallsteinn og hlær. „Þessi verk hér,“ segir hann svo og rennir hendi eftir bogamynduðu formi járnskúlptúra þar við hliðina, „byggjast á formum þekkts óperu- húss sem ég hef sjálfur bara séð á ljósmynd.“ Og ekki fer á milli mála að þar á hann við Óperuhúsið í Sydney sem Jørn Utzon teiknaði. Þegar við ræðum svo fjölbreytileg verkin sem sitja hátt á vegg bendir hann á eitt og segir það hafa verið tillögu að altaristöflu fyrir Kópa- vogskirkju en hafi ekki verið valin. „Þó að mér hafi nú verið bannað að gera ýmislegt vegna heilsuleysis, eins og að keyra bíl, þá held ég alltaf áfram að vinna hér,“ segir Hall- steinn svo. „Og ég hef sannreynt það, eins og ég vissi vel áður, að járnsmiðir eru afskaplega greiðvikn- ir menn og ég hef fengið góða aðstoð nokkurra þeirra við þessi nýju verk. En galvaniseringin kostar sitt.“ Og til að ná endum saman við þann verkþátt hefur Hallsteinn ákveðið að reyna að selja nýju afsteypurnar, sem hann hefur raðað á langt borð. Allir sem áhuga hafa á eru velkomn- ir að skoða en Hallsteinn er alltaf á vinnustofunni eftir hádegi. „Þessi þarna er til dæmis á Keldnaholti, fjögurra metra há, og annað eintak er á svæðinu mínu í Gufunesi,“ segir hann og bendir á eina afsteypuna. „Og þessi er þriggja metra há í Gufunesi. Þetta eru afsteypur af upphaflegu verk- unum sem ég gerði áður en ég gerði stóru útgáfurnar.“ efi@mbl.is Morgunblaðið/Einar Falur Myndhöggvarinn Hallsteinn Sigurðsson sýnir gestum nýjar afsteypur verka sinna á vinnustofunni. „Járnsmiðir eru afskap- lega greiðviknir menn“ - Nýjar afsteypur Hallsteins Sigurðssonar myndhöggvara Tónskáldið Anna Þorvaldsdóttir hlaut hin virtu Ivors-tónskálda- verðlaun fyrir viðamikið tónverk en tilkynnt var um val dómnefndar þessara árlegu verðlauna við at- höfn í British Museum í London í gær. Verðlaunin hlýtur Anna fyrir tónverkið Catamorphosis. Það var frumflutt í janúar síðastliðnum af Berlínarfílharmóníunni undir stjórn Kirills Petrenkos en verkið var pantað í sameiningu af Berl- ínarsveitinni, Sinfóníuhljómsveit Ís- lands, Fílharmóníuhljómsveit New York-borgar og Sinfóníuhljóm- sveitinni í Birmingham. Þetta verk Önnu hefur hlotið mikið lof, meðal annars í dagblaðinu The Guardian þar sem sagt er að í því sé skapaður „algjörlega sannfærandi tónlistar- heimur“. Eva Ollikainen stjórnaði frumflutningi Sinfóníuhljómsveitar Íslands á tónverkinu í júní. Morgunblaðið/Hari Tónskáldið Verk Önnu Þorvaldsdóttur vekja athygli víða um lönd. Anna hreppti hin virtu Ivors-tónskáldaverðlaun Hinn áhrifamikli reggíbassaleikari frá Jamaíku, Robbie Shakespeare – helmingur hryndúettsins Sly & Robbie – er látinn, 68 ára gamall. Ferill Shakespeares spannaði nær hálfa öld en hann sló í gegn í samstarfi við trymbil- inn Sly Dunbar og léku þeir saman á fjölda upptaka með ólíkum tónlistarmönnum í mörgum löndum. Í nýlegri samantekt Rolling Stone-tímaritsins er Shakespeare í 17. sæti yfir bestu rafbassaleikarana. Meðal listamanna sem Shakespeare vann með má nefna Madonnu, Bob Dylan, No Doubt, Peter Tosh, Rolling Stones og Grace Jones. Þá var hann einnig eftirsóttur upptökustjóri. Bassaleikarinn Robbie Shakespeare allur Robbie Shakespeare Frumsýningu Þjóðleikhússins á Framúrskarandi vin- konu í leikstjórn Yael Farber, sem vera átti jólasýning leikhússins, hefur verið frestað fram í miðjan janúar. Í tilkynningu frá leikhúsinu er haft eftir Magnúsi Geir Þórðarsyni leikhússtjóra að frumsýningunni sé frestað vegna gildandi sóttvarnareglna. „Gerð verða tvö hlé á sýningunni og við höfum orðið vör við mikinn áhuga leikhúsgesta á að gera enn meira úr leikhúsheimsókn- inni með því að njóta ljúffengra ítalskra veitinga í hléum, en slíkt er ekki heimilt nú. Við viljum gera gest- um okkar kleift að njóta þessarar einstöku leikhúsveislu til fulls, og höfum því ákveðið að fresta frumsýningu í þeirri von og trú að sóttvarnareglur verði ekki jafn íþyngjandi í upphafi nýs árs.“ Framúrskarandi vinkonu frestað Magnús Geir Þórðarson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.