Morgunblaðið - 10.12.2021, Page 32
DURANCE
JÓLAILMUR
2021
MODULAX
HÆGINDA-
STÓLAR
RAFSTILLANLEGIR
HLEÐSLUSTÓLAR
– FALLEG HÖNNUN
OG ÞÆGINDI
STILLANLEG
HJÓNARÚM
MEÐ BODYPRINT DÝNU
EIN ALLRA BESTA HEILSUDÝNA Í HEIMI
FULLKOMIN
ÞÆGINDI
um jólin
Allt fyrir góðan svefn
og betri heilsu
Menningarhópurinn Druslubækur og doðrantar býður
til aðventukvölds með upplestrum og tónlist í sam-
komusal kvennaheimilisins Hallveigarstaða á Túngötu
14 í kvöld kl. 20. Hópurinn hefur áður skipulagt bók-
menntaupplestra í aðdraganda jóla en að þessu sinni
verður sjónum eingöngu beint að verkum kvenna. Fram
koma höfundarnir Arndís Þórarinsdóttir, Erla E. Völu-
dóttir, Eva Rún Snorradóttir, Fríða Ísberg, Hildur Knúts-
dóttir, Kamilla Einarsdóttir, Kristín Svava Tómasdóttir
og Sigrún Pálsdóttir. Auk þess leika tónlistarkonurnar
Stína Ágústsdóttir og Sunna Gunnlaugs nokkur lög.
Menningarhópurinn Druslubækur
og doðrantar með aðventukvöld
FÖSTUDAGUR 10. DESEMBER 344. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 739 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
ÍR-ingar lyftu sér af fallsvæðinu í Subway-deild karla í
körfuknattleik með sigri á Grindvíkingum, 79:72, í Selja-
skóla. Eftir erfiða byrjun á tímabilinu hefur ÍR unnið tvo
leiki á heimavelli að undanförnu og er nú í 9. sæti. Ís-
landsmeistararnir í Þór Þorlákshöfn fóru upp að hlið
Keflavíkur á toppi deildarinnar með 14 stig með örugg-
um sigri á KR, 101:85. Keflavík á leik til góða. Grindavík
gat einnig jafnað með Keflavík en tókst ekki. »26
ÍR lyfti sér af fallsvæðinu og Þór fór
upp að hlið Keflavíkur á toppnum
ÍÞRÓTTIR MENNING
mér finnst ég alltaf þurfa að koma
góðum hlutum á framfæri.“
Sannleikurinn er sagna bestur er
ekki aðeins orðatiltæki heldur
skiptir þetta alla alltaf miklu máli.
„Unglingurinn vinnur virðingu og
traust foreldranna ef hann segir
alltaf sannleikann og þeir meta það
þegar mistök eiga sér stað,“ segir
Þorgrímur. Hann hefur nú gefið út
44 bækur og haldið fyrirlestra fyrir
um 62.000 unglinga í 10. bekk auk
fjölda krakka í 5.-7. bekk. Hann
segist alltaf ná vel til nemenda, því
hann sé ekki aðeins nýr gestur í
skólanum hverju sinni heldur kunni
nemendur að meta uppbrot annað
slagið. „Ungmenni á þessum aldri
skynja heiðarleika og ég lít á mig
sem jafningja þeirra. Ekkert fals er
í gangi og þess vegna meðtaka þau
það sem ég hef fram að færa.“
Fyrirlestrarnir hafa verið skólum
að kostnaðarlausu. Þorgrímur seg-
ist halda áfram að boða fagnaðar-
erindið á meðan fyrirtæki styrki
framtakið, en N1 og Brim hafi
styrkt sig um árabil og þannig sýnt
samfélagslega ábyrgð. „Það er gott
að blanda fyrirlestrum og bóka-
skrifum saman með það að leiðar-
ljósi að þú skapar þína eigin vel-
gengni með því að lifa lífinu núna og
vanda þig.“
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Lífið getur verið dásamlegt og í fyr-
irlestrum sínum fyrir grunnskóla-
krakka um allt land hefur Þor-
grímur Þráinsson lagt áherslu á
mikilvægi þess að þeir efli sjálfs-
traustið til þess að njóta lífsins sem
best og að hver sé sinnar gæfu
smiður. „Þú færð ekki sjálfstraust í
jólagjöf heldur byggir það upp á
litlu hlutunum dags daglega,“ segir
hann. „Litlu hlutirnir og að koma
fallega fram við alla eru lykilatriði.“
Jákvæði boðskapurinn er aldrei
fjarri þegar Þorgrímur er annars
vegar og nýlega sendi hann frá sér
tvær bækur um málefnið sem er
honum svo kært. Tunglið, tunglið
taktu mig er hugsuð fyrir 12 ára og
yngri og lífsleikni- og sjálfstyrking-
arbókin Verum ástfangin af lífinu er
byggð á fyrirlestrum sem höfundur
hefur haldið fyrir 10. bekkinga um
allt land undanfarin 13 ár, höfðar til
þeirra og ekki síður til þeirra sem
eldri eru, því góð vísa er aldrei of
oft kveðin.
Endurtekningin mikilvæg
„Ég endurnýja mig stöðugt sem
fyrirlesara og því er ekki allt í bók-
inni sem ég hef fjallað um, en þar er
líka annað mikilvægt sem ég tala
ekki lengur um,“ segir Þorgrímur.
Sömu heilræðin komi samt fyrir aft-
ur og aftur og það sé meðvitað.
„Endurtekningin skapar meist-
arann,“ útskýrir Þorgrímur í for-
mála og áréttar í spjalli. „Litlir hlut-
ir skapa stóra sigra.“ Undir það falli
til dæmis að vakna fyrr á morgn-
ana, búa um rúmið, vaska upp, fara
út með ruslið, fara á æfingu, lesa tíu
blaðsíður í bók, sýna náungakær-
leik. „Þegar þessu er sinnt líður
manni betur, sjálfstraustið eykst og
gengið verður betra,“ leggur hann
enn og aftur áherslu á.
„Þemað í fyrrnefndu bókinni er
svipað og það sem ég hef verið að
tala um við yngri nemendur,“ segir
Þorgrímur og vísar til mikilvægis
vináttunnar, að taka tillit til ann-
arra, hjálpa minnimáttar, njóta
náttúrunnar og bera virðingu fyrir
eldri kynslóðum. „Það er mjög ríkt í
mér að fjalla um þessi málefni og
Lífið og sjálfstraustið
- Þorgrímur sendir frá sér tvær jákvæðar og hvetjandi
bækur - Sannleikurinn eflir traust og virðingu
Morgunblaðið/Eggert
Afkastamikill Þorgrímur Þráinsson hefur gefið út 44 bækur.