Morgunblaðið - 17.12.2021, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 17.12.2021, Qupperneq 16
16 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. DESEMBER 2021 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Sveitarfélög- um landsins hefur á und- anförnum árum gengið sérlega illa að gæta fjárhags- legra hagsmuna íbúanna. Þetta á ekki við um öll sveitarfélögin, en býsna mörg þeirra og þeg- ar horft er yfir sveitarfélögin í heild. Þessi slæma heildar- mynd stafar líka af því að langstærsta sveitarfélagið, Reykjavíkurborg, hefur stað- ið sig hörmulega. Borgin safnar skuldum á sama tíma og útsvar er í lögleyfðu há- marki og gjöld hækka mjög. Nýjasta dæmið þar um eru bílastæðagjöld sem meirihlut- inn ákvað í vikunni að tvö- falda, hvorki meira né minna. Borgarfulltrúar Viðreisnar, Samfylkingar og Pírata, sem samþykktu hækkunina í skipulags- og samgönguráði, segja í bókun að um sé „að ræða einfaldar tilfærslur á gjaldskyldu og gjaldsvæðum í samræmi við samþykktar reglur.“ Og því er bætt við að í næsta áfanga sé „rétt að skoða sérstaklega bílastæða- nýtingu á jöðrum núverandi gjaldsvæðis.“ Þetta þýðir á mannamáli að yfirvofandi sé frekari útvíkkun gjaldsvæð- anna og hækkun bílastæða- kostnaðar borgarbúa. Fulltúar Sjálfstæðisflokks- ins bókuðu að um væri að ræða „gríðarlega hækkun á gjaldskrá fyrir bílastæði í borgarlandinu“. Í bókuninni var bent á að rökin fyrir hækkuninni væri aukin eftir- spurn eftir stæðum. Þar var einnig bent á að borgarstjóri hefði í síðasta mánuði sagt að „ekki verði gripið til gjald- skrárhækkana“, en að þessi hækkun stangaðist á við þau orð. Þetta misræmi orða og gjörða reynir meirihlutinn að skýra með því að einungis hafi verið um að ræða til- færslu á svæðum, en allir sjá að þar er um útúrsnúning að ræða. Sé svæði skilgreint upp á nýtt og sett í hærri gjald- flokk er vitaskuld um hækkun að ræða. Borgarfulltrúi Miðflokksins mótmælti hækkuninni einnig harðlega og benti á að hún miðaði að því „að hindra för fjölskyldubílsins í miðbæinn og gera verslun og þjónustu erfiða fyrir rekstraraðila eins og það sé nú ekki nóg fyrir“. Fulltrúi Flokks fólksins tók í svipaðan streng. Bílastæðahækkunin snýst vissulega að hluta til um að gera fólki erfiðara fyrir að vera á eigin bíl. En hún er líka hluti af hækkunaráráttu sveitarstjórna. Því er ítrekað haldið fram að skattar og gjöld standi ekki undir fjárútlátum og að þess vegna verði að hækka skatta og gjöld enn frekar en orðið er. Þetta er þekkt stef úr um- ræðunni og svo virðist því miður sem lítill skilningur sé á því í sveitarstjórnum hér á landi að til að ná endum sam- an þarf að draga úr umsvifum og spara en ekki fara sífellt dýpra í vasa almennings. Útsvarsprósenta sveitarfé- laganna hefur hækkað hratt á liðnum árum, um aldamót var hún innan við 12% að meðal- tali en er nú um 14,5%. Al- menning munar um minna. Þegar til þess er horft að á sama tímabili hafa skuldir sveitarfélaganna um það bil fjórfaldast þá er ljóst að hækkun útsvars er ekki lausnin á rekstrarvandanum og skuldasöfnuninni. Fáein sveitarfélög hafa skorið sig úr og haldið út- svarshlutfallinu mun lægra en flest þeirra gera. Langstærst þessara eru Garðabær og Sel- tjarnarnes, þar sem hlutfallið er 13,7%. Þetta er vissulega ekki lágt skatthlutfall, en þó til dæmis töluvert lægra en þau 14,52% sem Reykvíkingar þurfa að borga. Og þetta lægra útsvarshlutfall er með- al þess sem íbúar þessara sveitarfélaga eru ánægðir með og sækjast eftir, enda munar launamenn um 0,82% í skattgreiðslu. Það hefur verið metnaðar- mál meirihluta Sjálfstæðis- flokksins í þessum bæjar- félögum að halda skatthlut- fallinu sem lægstu og að vera til fyrirmyndar í þeim efnum á landsvísu. Þess vegna kem- ur verulega á óvart að einn bæjarfulltrúi flokksins á Sel- tjarnarnesi skyldi við af- greiðslu fjárhagsáætlunar næsta árs ákveða að styðja tillögu Viðreisnar um hækkun útsvars. Viðreisn líður vel með skatta- og gjaldahækk- anir eins og sjá má í meiri- hlutasamstarfinu í Reykjavík. Segja má að sá flokkur komi kjósendum ekki á óvart með tilllögum um hærri skatta. Kjósendum meirihlutans á Seltjarnarnesi hlýtur hins vegar að vera verulega brugð- ið að einn af fulltrúum þeirra hafi gengið svo langt að greiða atkvæði með minni- hlutanum um að hækka skatta. Augljóst er að það er ekki sú stefna sem kjósendur völdu í síðustu sveitarstjórn- arkosningum. Sveitarstjórnar- mönnum er mörgum illa treystandi fyrir hagsmunum íbúanna} Skattahækkanir V ið erum enn að átta okkur á því hvert hið raunverulega hlutverk ríkisvaldsins á að vera – og um leið hvaða hlutverki ríkisvaldið á ekki að gegna. Síðustu 200 ár eða svo hafa verið eitt mesta hagsældarskeið mann- kynssögunnar, sem í stuttu máli skýrist af auk- inni tæknivæðingu og auknum alþjóðaviðskipt- um. Það mætti með ákveðnum rökum segja að ríkisvaldið hafi stækkað samhliða aukinni hag- sæld og vegna hennar, en ekki öfugt. Það er einmitt það sem stór hluti stjórnmála- umræðunnar snýst um, hvert hlutverki ríkisins eigi að vera. Flest erum við sammála um að ríkisvaldinu beri að tryggja öryggi borgaranna. Það einskorðast ekki lengur við her, lögreglu og almannavarnir heldur horfum við nú einnig til fjarskipta, samgangna, loftslagsmála, fjár- málastöðugleika og svo framvegis. Í því hag- sældarsamfélagi sem við búum í ríkir almenn sátt um að hið opinbera tryggi landsmönnum heilbrigði og menntun, þó að hægt sé að hafa ólíkar skoðanir á því hver veiti þá þjónustu sem hið opinbera vill tryggja fólki. Það þótti á sínum tíma eðlilegt að ríkið ætti og ræki hér fjölmiðil, póst- og símafyrirtæki, áfengisverslun, banka og fleiri fyrirtæki sem veita það sem kalla má almannaþjón- ustu. Það má öllum vera ljóst að nú þegar við erum að hefja þriðja áratug 21. aldar er engin þörf á því að ríkis- fyrirtæki veiti þessa þjónustu enda gera einkafyrirtæki það nú þegar og að flestu leyti betur en ríkisfyrirtækin gera. Hér gefst ekki pláss til að rekja það nán- ar, en lesendur geta, eftir að hafa lesið þennan pistil, pantað sér áfengi á netinu, nýtt sér ótelj- andi fjölmiðla hvort sem er íslenska eða er- lenda, greitt fyrir vöru og þjónustu eða tekið lán í gegnum símann með fjölbreyttum hætti og þannig mætti lengi áfram telja. Það er ekki hlutverk ríkisins að reka fyrir- tæki í samkeppni við einkaaðila. Ef við tökum dæmi af fjármála- og fjarskiptafyrirtækjum, þá hefur orðið gífurleg þróun á þeim mörk- uðum á liðnum árum og sú þróun mun halda áfram. Það er og verður ólíklegt að ríkisrekin fyrirtæki leiði þá þróun og við vitum satt best að segja ekki hvernig þessir markaðir munu líta út eftir örfá ár. Það eina sem við vitum er að væntanlega verður þjónustan betri og ein- faldari en hún er í dag. Ríkinu ber fyrst og fremst að tryggja al- mennar leikreglur og hóflega skattheimtu þannig að einkafyrirtæki geti starfað, vaxið og þjónustað sína við- skiptavini í heilbrigðu samkeppnisumhverfi. Daglegar þarfir okkar kalla á að við getum átt örugg samskipti, greitt fyrir vöru og þjónustu, að við komumst leiðar okkar og þannig má áfram telja. Samfélagið gengur þegar ríkið tryggir öryggi og býr til rammann sem einkaaðilar geta starfað innan. Ríkið þarf samt ekki að mála myndina í rammanum. aslaugs@althingi.is Áslaug Arna Sigurbjörns- dóttir Pistill Ríkisramminn Höfundur er háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen FRÉTTASKÝRING Andrés Magnússon andres@mbl.is S veitarstjórnarkosningar fara fram 14. maí 2022 og stjórn- málaflokkarnir farnir að huga að framboðum. Spenn- an nú er sjálfsagt mest meðal sjálf- stæðismanna í Reykjavík, en Hildur Björnsdóttir í 2. sæti tilkynnti í liðinni viku að hún vildi leiða listann og skor- aði þannig Eyþór Arnalds á hólm, oddvita og sigurvegara í leiðtogapróf- kjöri fyrir tæpum fjórum árum. Það gerði hún þótt þá lægi ekk- ert fyrir um hvernig valið yrði á listann, en raunar hafði kvisast út að stjórn Varðar – fulltrúaráðs sjálf- stæðisfélaganna í Reykjavík hefði þá þegar ákveðið að gera tillögu um próf- kjör hinn 26. febrúar og myndi boða til fundar í fulltrúaráðinu til þess að taka ákvörðun þar um. Óvænt tíðindi úr Valhöll Það kom því mjög á óvart í fyrra- kvöld þegar stjórn Varðar ákvað á öðrum fundi, að leggja til að haldið yrði leiðtogaprófkjör líkt og síðast, en uppstillingarnefnd falið að gera til- lögu um önnur sæti á lista. Nokkurrar óánægju gætti með störf uppstillingarnefndar síðast, bæði hvernig var valið og hverjir völd- ust, eins og viðbúið var, en einnig efast um umboð annarra frambjóð- enda en Eyþórs, sem sigraði með lið- lega 60% atkvæða í leiðtogapróf- kjörinu. Fallkandídatarnir komust ekki á lista uppstillingarnefndar þá, en allmargir nýgræðingar í bland við fólk, sem áður hafði reynt fyrir sér í prófkjörum án teljandi árangurs. Í ljósi þess og fyrri ákvörðunar stjórnar Varðar, sem flestir skildu sem halda ætti venjulegt prófkjör, er óhætt að segja að mikill kurr hafi ver- ið með þessa nýju og óvæntu ákvörð- un um leiðtogaprófkjör. Ekki síst raunar innan úr stjórn- inni, því síðari fundurinn var ekki ákaflega vel sóttur og tillagan um leiðtogaprófkjör ekki boðuð. Hún mun hafa komið formanninum Jóni Karli Ólafssyni í opna skjöldu. Þrátt fyrir fortölur hans og fleiri var til- lagan samþykkt með 11 atkvæðum gegn 7 í stjórninni, samkvæmt heim- ildum Morgunblaðsins. Á félagsmiðlum lögðu margir orð í belg um það í gær og lögðust nær all- ir á móti leiðtogaprófkjöri. Þar komu og fram ýmsar kenningar um hvað byggi að baki. Óhrædd við lýðræðið Sumir stuðningsmenn Hildar Björnsdóttur, sem Morgunblaðið ræddi við í gær, vilja rekja þá hug- mynd lóðbeint til Eyþórs. Hann vísar því eindregið á bug og segist engan ávinning hafa af leiðtogaprófkjöri; hann þurfi eftir sem áður að berjast fyrir 1. sætinu í prófkjöri, hvor að- ferðin sem valin væri. Eyþór minnir á að öll hans póli- tíska þátttaka hafi byggst á próf- kjörum; hann hafi tekið þátt í sæg prófkjöra og ævinlega haft sigur. „Við sjálfstæðismenn erum óhræddir við lýðræðið og alltaf til- búnir í kosningar. Sjálfur tel ég rétt að halda prófkjör og vil fá skýrt um- boð sjálfstæðismanna í Reykjavík til þess að leiða listann, alveg burtséð frá því hvaða háttur er hafður á.“ Hildur Björnsdóttir sagði einnig í gær, að þessi tillaga hreyfði ekki við áformum sínum, en taldi rétt að kosið yrði um fleiri sæti en hið efsta. Eftir stendur spurningin um hverj- um tillagan um leið- togaframboð komi til góða með óyggjandi hætti. Við blasir að það hentar helst óbreyttum borgarfulltrúum, sem síður kæra sig um að þurfa að spyrja almenna sjálfstæðismenn um er- indi sitt á lista og inn í borgar- stjórnarsal Ráðhússins. Lýðræðisveisla eða baktjaldamakk Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík ákveður framboðs- lista og þarf að samþykkja hann á sérstökum fundi með einföld- um meirihluta byggi hann á úr- slitum prófkjörs. Aukinn meiri- hluta fundar fulltrúaráðs þarf til að samþykkja lista, sem valinn er með öllum aðferðum öðrum. Aðferðirnar eru eftirfarandi: Aukinn meirihluti á fulltrúa- ráðsfundi getur ákveðið að kjósa uppstillingarnefnd. Um tillögu uppstillingarnefndar þarf að ganga til atkvæða á fundi full- trúaráðs. Fulltrúaráðið má boða til sér- staks fundar þar sem raðað er upp framboðslista. Fulltrúaráðið getur efnt til prófkjörs samkvæmt samræmdum fram- kvæmdareglum mið- stjórnar flokksins. Fulltrúaráðið getur efnt til prófkjörs með afbrigðum líkt og að viðhafa aðeins leiðtogaprófkjör, en til þess þarf 2/3 hluta atkvæða á fulltrúaráðsfundi. Sá á kvölina sem á völina SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Framboð Eyþór Arnalds og Hildur Björnsdóttir, sem vilja leiða lista sjálf- stæðismanna í Reykjavík, á fulltrúaráðsfundi í Valhöll fyrir tæpum 4 árum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.