Morgunblaðið - 17.12.2021, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 17.12.2021, Blaðsíða 35
ÍÞRÓTTIR 35 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. DESEMBER 2021 _ Jóhanna Elín Guðmundsdóttir er eini íslenski keppandinn á heims- meistaramótinu í sundi í 25 metra laug sem hófst í Abu Dhabi í gær. Hún keppir í fyrri grein sinni, 100 metra skriðsundinu, í dag og í þeirri sinni, 50 metra skriðsundi, á mánudaginn. Jó- hanna hefur ekki áður keppt á HM. Anton Sveinn McKee og Snæfríður Sól Jórunnardóttir unnu sér einnig inn keppnisrétt á mótinu en ákváðu að taka ekki þátt vegna annarra verkefna. _ Sveindís Jane Jónsdóttir, leik- maður Kristianstad í ár og Wolfsburg frá áramótum, var í gær útnefnd knattspyrnukona ársins 2021 hjá KSÍ og Kári Árnason, landsliðsmaður úr Víkingi, var útnefndur knatt- spyrnumaður ársins. Glódís Perla Viggósdóttir og Dagný Brynjarsdóttir voru í öðru og þriðja sæti hjá konunum og þeir Birkir Bjarnason og Jóhann Berg Guðmundsson í öðru og þriðja sæti hjá körlunum. _ Aldís Kara Bergsdóttir fer fyrir hópi fimm íslenskra stúlkna sem hafa verið valdar til keppni á Norð- urlandamótinu á listskautum sem fer fram í Hörsholm í Danmörku í janúar. Þangað mætir Aldís beint af Evr- ópumeistaramótinu. Hún er sú eina í fullorðinsflokki en í yngri flokkum keppa Júlía Rós Viðarsdóttir, Júlía Sylvía Gunnarsdóttir, Freydís Jóna Jing Bergsveinsdóttir og Sædís Heba Guðmundsdóttir. _ Rúnar Alex Rúnarsson, landsliðs- markvörður í knattspyrnu, var borinn af velli undir lok fyrri hálfleiks þegar lið hans, OH Leuven, tók á móti Club Brugge í belgísku A-deildinni í fyrra- kvöld. Hann fékk högg á andlitið í sam- stuði við mót- herja og stóran skurð sem blæddi mikið úr. Rún- ar sagði á In- stagram að hann væri í lagi og yrði mættur aftur á völlinn fljótlega. Eitt ogannað ÞJÓÐADEILD Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Seint verður hægt að segja að karla- landslið Íslands í fótbolta hafi fengið spennandi andstæðinga í gær þegar dregið var í riðla fyrir Þjóðadeild UEFA sem leikin verður á næsta ári. Ísland var í efsta styrkleikaflokki B-deildar og fékk með sér í riðil Rússland úr öðrum flokki, Ísrael úr þriðja flokki og Albaníu úr fjórða flokki. Þrjú löng ferðalög en á móti kemur að þessi riðill gæti hæglega orðið jafn og stigin dreifst talsvert á milli liðanna. Ef litið er á heimslista FIFA eins og hann var í gær eiga Rússar að vera sterkastir í riðlinum en þeir eru í 34. sæti. Ísland er í 62. sæti, Alban- ía í 66. sæti og Ísrael í 79. sæti. Sigurlið riðilsins fer upp í A-deild en neðsta liðið fellur niður í C-deild. Leikirnir fara fram næsta sumar og haust, fjórar umferðir eru leiknar fyrri hluta júnímánaðar en tvær síð- ustu umferðirnar í lok september. Fyrstu mótsleikir við Ísrael Ísland mætir Ísrael í fyrsta skipti í mótsleik og þjóðirnar hafa aðeins þrisvar áður mæst í vináttulands- leikjum, árin 1992 og 2010. Fyrst gerðu liðin jafntefli 2:2 í Tel Aviv árið 1992 þar sem bræðurnir Sigurður og Arnar Grétarssynir skoruðu mörk Íslands. Seinna sama ár léku liðin á Laug- ardalsvellinum en þá unnu Ísr- aelsmenn 2:0. Loks mættust þjóðirnar í vináttu- leik í Tel Aviv í nóvember 2010. Ísr- aelsmenn unnu 3:2 þar sem Alfreð Finnbogason og Kolbeinn Sigþórs- son skoruðu fyrir Ísland. Rússar ekki unnið á Íslandi Ísland hefur sex sinnum mætt Rússum, fjórum sinnum í móts- leikjum. Ísland vann Rússland, 1:0, árið 1998 í undankeppni EM á Laug- ardalsvellinum, á sjálfsmarki, og þjóðirnar gerðu jafntefli, 1:1, í und- ankeppni HM árið 1993 þar sem Eyjólfur Sverrisson skoraði fyrir Ís- land. Rússar hafa unnið hina fjóra leikina en aldrei sótt sigur til Ís- lands. Mættu Albönum tvisvar 2019 Albanía var mótherji Íslands í síð- ustu undankeppni EM árið 2019. Ís- land vann heimaleikinn 1:0 þar sem Jóhann Berg Guðmundsson skoraði en tapaði 2:4 í seinni leiknum í El- basan þar sem Gylfi Þór Sigurðsson og Kolbeinn Sigþórsson skoruðu mörkin. Ísland og Albanía hafa mæst sjö sinnum og Ísland hefur unnið fjóra leikjanna en Albanía þrjá. Rússar gætu komist á HM Rússar eru eina þjóðin í riðlinum sem gæti leikið á HM í Katar í árs- lok 2022. Rússar urðu í öðru sæti í sínum riðli, stigi á eftir Króötum, en þeir unnu sjö leiki af tíu í und- ankeppninni og töpuðu útileikjunum gegn Króatíu og Slóvakíu. Albanar stóðu sig vel í und- ankeppninni og unnu sex leiki af tíu. Þeir lögðu Ungverja bæði heima og heiman, 1:0 í bæði skiptin, og voru líka með fullt hús gegn Andorra og San Marínó, en töpuðu fjórum leikj- um sínum gegn Englandi og Pól- landi. Ísrael varð í þriðja sæti í sínum riðli, á eftir Danmörku og Skotlandi, en á undan Austurríki (á markatölu), Færeyjum og Moldóvu. Ísrael vann heimaleikina við Austurríki (5:2), Færeyjar (3:2) og Moldóvu (2:1) og útileikina við Færeyjar (4:0) og Mol- dóvu (4:1). Þá gerðu Ísraelsmenn jafntefli heima við Skota, 1:1, en töp- uðu 2:3 í Skotlandi og það réð úrslit- um um að Skotar fóru í umspilið. Riðillinn gæti orðið tvísýnn - Ísland mætir Rússlandi, Ísrael og Albaníu í Þjóðadeildinni árið 2022 Morgunblaðið/Eggert Sigurmark Jóhann Berg Guðmundsson í þann veginn að skora markið sem réð úrslitum í síðasta leik Íslands og Albaníu sumarið 2019. Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is „Á Íslandi spilum við sextán til tutt- ugu leiki á hverri leiktíð sem er svo dreift yfir sjö til átta mánaða tímabil og mér finnst þessi uppsetning ekki alveg sú hentugasta,“ sagði Úlfar Jón Andrésson, leikmaður Fjölnis og landsliðsmaður í íshokkí, í Dag- málum, frétta- og menningarlífs- þætti Morgunblaðsins. Úlfar Jón, sem er 33 ára, byrjaði að æfa íshokkí með Skautafélagi Reykjavíkur þegar hann var sex ára gamall en alla sína tíð hefur hann verið búsettur í Hveragerði. Hann lék sinn fyrsta landsleik þegar hann var sextán ára gamall og hefur verið lykilmaður í íslenska landsliðinu undanfarinn áratug. Þá hefur hann þrívegis orðið Íslandsmeistari. „Við eigum leik á laugardaginn en það er sirka mánuður síðan við spil- uðum síðast,“ sagði Úlfar. „Næsti leikur eftir það er svo í lok janúar þannig að það segir sig sjálft að það er erfitt að vera í góðu leikformi þegar tímabilið er sett upp svona. Þetta kemur líka niður á landsliðinu því við erum í raun aldrei í leikformi þegar kemur að landsliðsverk- efnum. Ég myndi vilja sjá róttækar breytingar á fyrirkomulaginu þar sem leikjunum væri til dæmis þjapp- að saman yfir þriggja mánaða tíma- bil,“ sagði Úlfar meðal annars. Vill sjá róttækar breytingar Ljósmynd/Stefán Örn Sigurðsson 108 Úlfar Jón er á meðal reynslu- mestu landsliðsmanna Íslands. Olísdeild karla Selfoss – Fram...................................... 28:27 Staðan: FH 12 8 2 2 340:305 18 Haukar 12 8 2 2 358:324 18 ÍBV 12 8 1 3 367:355 17 Stjarnan 12 7 2 3 356:349 16 Valur 11 7 2 2 312:280 16 Selfoss 13 7 1 5 342:335 15 Afturelding 12 4 4 4 342:335 12 KA 12 5 0 7 336:353 10 Fram 12 4 2 6 339:343 10 Grótta 11 3 1 7 293:301 7 Víkingur 12 1 0 11 271:338 2 HK 11 0 1 10 289:327 1 Þýskaland Flensburg – Lemgo ............................. 27:19 - Teitur Örn Einarsson skoraði 4 mörk fyrir Flensburg. - Bjarki Már Elísson skoraði 3 mörk fyrir Lemgo. Svíþjóð Ystad IF – Skövde ............................... 28:24 - Bjarni Ófeigur Valdimarsson skoraði 2 mörk fyrir Skövde. .$0-!)49,MEISTARADEILD Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Breiðablik lauk keppni í Meist- aradeild kvenna í fótbolta í París í gærkvöld og náði ekki að skora mark frekar en í fimm fyrstu leikj- unum. Hið firnasterka lið París SG vann stórsigur, 6:0, og vann þar með rið- ilinn með fullu húsi stiga og marka- tölunni 25:0. Það lá ljóst fyrir áður en kom að lokaumferðinni í gær að PSG og Real Madrid færu í átta liða úrslitin úr B-riðlinum en fyrir Breiðablikskonur lá helsti metn- aðurinn í því að reyna að skora sitt fyrsta mark. Eins og í fleiri leikjum í keppninni fengu þær færi til þess. Agla María Albertsdóttir hefði getað jafnað metin seint í fyrri hálfleik þegar hún skallaði beint á markvörð PSG úr opnu færi á markteig eftir fyrirgjöf Ástu Eirar Árnadóttur. Þá slapp Ramona Bachmann vel í byrjun síðari hálfleiks þegar hún sló til Selmu Sólar Magnúsdóttur. Ein- hver hefði lyft rauðu spjaldi í stað þess gula sem sú svissneska fékk og þá er eins víst að seinni hálfleikurinn hefði orðið aðeins jafnari. Jordyn Huitema skoraði tvö marka PSG, Ramona Bachmann, Kadidiatou Diani, Sandy Baltimore og Luana eitt hver en tvö markanna komu á lokamínútunum þegar Breiðablikskonur voru að þrotum komnar eftir að hafa varist og elt leikmenn PSG í níutíu mínútur. Þar með er Breiðablik komið í vetrarfrí, þremur mánuðum eftir að Íslandsmótinu lauk, og lengsta keppnistímabili íslensks félagsliðs er því lokið. Riðlakeppninni er lokið og það eru Wolfsburg, Juventus, París SG, Real Madrid, Barcelona, Arsenal, Lyon og Bayern München sem eru komin í átta liða úrslit og slást um Evr- ópumeistaratitilinn í útsláttarkeppn- inni á vormánuðum. Morgunblaðið/Árni Sæberg Annríki Telma Ívarsdóttir hafði í nógu að snúast í marki Breiðabliks í París því lið PSG átti tuttugu skot sem hittu á markið hjá henni í leiknum. Leitin að marki bar ekki árangur - PSG vann Breiðablik 6:0 í lokaleik

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.