Morgunblaðið - 17.12.2021, Blaðsíða 33
DÆGRADVÖL 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. DESEMBER 2021
fyrir heimilið
Sendum
um
land
allt
Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is
Fallegar vörur
Stóll á snúningsfæti í ítölsku nautsleðri
75 cm á breidd
Verð frá 139.000 kr.
Loksins fáanlegir aftur,
í mörgum litum
„ÞIÐ HIN SEM SPENNTUÐ BELTIN ÞEGAR
LJÓSIN KVIKNUÐU ÞURFIÐ EKKI AÐ
HLUSTA Á ÞESSI SKILABOÐ.“
„ALGERLEGA FULLKOMIÐ, VENNI.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... alheimstungumál.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
HRESSTU ÞIG VIÐ, HEPPNI EDDI! EFTIR
ORUSTU DAGSINS FÆRÐU ALLT Í HEIMINUM!
TILFINNINGAR
KATTA …
FRÁBÆR
HUGMYND
ÉG ER
SVANGUR
SÁLARANGISTOG
LÍKAMLEGA VERKI?
ÞETTA ER
KOMIÐ
RÆÐUM UM
TILFINNINGAR
OKKAR
ÉG ER
SYFJUÐ
eða skreyta of snemma. Frá því að
ég fæddist hefur verið haldið upp á
afmælið mitt þann 17. desember.
Mamma passaði að það yrði alltaf
veisla þó að stutt væri í jól og ég hélt
því svo áfram, þótt veislan hafi nú
verið misstór undanfarin ár. Þess
vegna hlakka ég mikið til að halda
góða veislu fyrir mitt nánasta fólk á
afmælisdaginn. Er ótrúlega fegin að
geta gert það þrátt fyrir ástandið.“
Fjölskylda
Eiginmaður Önnu Rósar er Páll
Þorvaldur Hjarðar, f. 26.4. 1979,
stjórnmálafræðingur, hefur mest
unnið við sjávarútveg í Vestmanna-
eyjum, starfar núna sem sjómaður.
Þau búa í Vestmannaeyjum. For-
eldrar Páls eru hjónin Guðrún Ósk-
arsdóttir, 12.11. 1957, verkakona og
Almar B. Hjarðar, f. 28.12. 1954,
verkstjóri. Þau búa núna á Selfossi.
Börn Önnu Rósar og Páls eru
Almar B. Hjarðar, f. 31.10. 2003,
framhaldsskólanemi; Ásdís Halla
Hjarðar, f. 14.8. 2007, og Ari Páll
Hjarðar, f. 25.6. 2011.
Systkini Önnu Rósar eru Halla
Björk Hallgrímsdóttir, f. 5.9. 1985,
fjármálastjóri, býr í Vestmanna-
eyjum; Sævald Páll Hallgrímsson, f.
27.8. 1986, framkvæmdastjóri, býr í
Vestmannaeyjum; Einar Otto Hall-
grímsson, f. 26.9. 1992, stýrimaður,
býr í Vestmannaeyjum.
Foreldrar Önnu Rósar eru hjónin
Ásdís Sævaldsdóttir, f. 5.8. 1962,
fjármálastjóri, og Hallgrímur
Tryggvason, f. 9.11. 1952, vélvirkja-
og plötusmíðameistari. Þau búa í
Vestmannaeyjum.
Anna Rós
Hallgrímsdóttir
Ólafur Gísli Vigfússon
skipstjóri og útgerðarmaður
í Vestmannaeyjum
Kristín Jónsdóttir
húsfreyja í Vestmannaeyjum
Sigríður Ólafsdóttir
fiskverkakona og húsmóðir
í Vestmannaeyjum
Tryggvi Ágúst Sigurðsson
vélstjóri í Vestmannaeyjum
Hallgrímur Tryggvason
vélvirkja- og
plötusmíðameistari
í Vestmannaeyjum
Klara Tryggvadóttir
húsfreyja í Vestmannaeyjum
og Reykjavík
Jóhann Sigurður Hjálmarsson
húsa- og bifreiðasmíðameistari
í Reykjavík
Elínborg Dagmar Sigurðardóttir
húsfreyja í Vestmannaeyjum
og Kópavogi
Friðgeir Guðmundsson
sjómaður í Vestmannaeyjum
Svava Friðgeirsdóttir
húsmóðir í Vestmannaeyjum
Sævald Pálsson
skipstjóri í Vestmannaeyjum
Þórsteina Jóhannsdóttir
húsfreyja í Vestmannaeyjum
Páll Sigurgeir Jónasson
skipstjóri í Vestmannaeyjum
Ætt Önnu Rósar Hallgrímsdóttur
Ásdís Sævaldsdóttir
fjármálastjóri í
Vestmannaeyjum
Skagfirðingarnir Agnar H.
Gunnarsson á Miklabæ, Páll
Dagbjartsson í Varmahlíð, Jón
Gíslason í Miðhúsum og Ingimar
Jónsson á Flugumýri heimsóttu þau
Ragnheiði Jónu Ingimarsdóttur og
Gunnar Rögnvaldsson á Hvamms-
tanga, eftir að hafa farið með ull í
kaupstað. Gunnar kvaddi vini sína
með þessari vísu:
Með ull í kaupstað ekið var
svo aðeins lengra, vestar.
Þar gengu á milli grundaðar
gamansögur bestar.
Gunnar Rögnvaldsson er ættaður
frá Hrauni á Skaga, þar sem m.a. er
stunduð blómleg æðarrækt. Um
það orti Gunnar:
Þig hefur kannski langað lengi í,
nú leggja skaltu frá þér allan vafa.
Því dúnsængin frá Hrauni er bæði hlý
og hentug mjög til eigin nota og gjafa.
Kári Elísson kvað, þegar Tómas
Tómasson, alþingismaður í Flokki
fólksins, sást dotta í þingsal en
sjálfur segist hann hafa lokað aug-
unum til einbeitingar:
Ég dottaði og dreymdi þar
draumana harla fína.
Hugurinn mig hálfan bar
heim í búlluna mína.
Á feisbók hefur Hólmfríður
Bjartmarsdóttir um skeið birt fal-
legar náttúrulífsmyndir dag hvern.
Svo var sem endranær á miðviku-
daginn. Gylfi Björgvinsson kastaði
þá fram fyrri parti:
Úlfgrátt hafið hleður fald,
hljóðlát eyjan rís í fjarska.
Hólmfríður botnaði:
Þá dró upp élið, dökkgrátt tjald
og drifhvítt löðrið varð sem aska.
Út frá þessu spunnust nokkur
orðaskipti og Gylfi kastaði fram
öðrum fyrriparti:
Blessuð vísan vermir sál
vekur glóð í hverju hjarta.
Hólmfríður botnaði:
Inni gleður óðarmál
úti bylur élið svarta.
Og kastaði síðan fram gátu:
Hana oft við himin ber
hún er í vasa og mundum.
Í sumra munni einnig er
auk þess fellur stundum.
Spurt var hvort þetta væri
kannski sígarettan. Því neitaði
Hólmfríður og kom með lausnina:
Trjá-krónu hátt við himin ber
hef ég krónu í vasa og mundum.
Í sumra munni sómir sér
en synd að krónur falla stundum.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Dúnsængin frá Hrauni
og vel kveðið