Morgunblaðið - 21.12.2021, Blaðsíða 1
Glerið endurvarpaði sólargeislunum sem skinu svo fallega á turninn á Höfðatorgi að Reykjavík fékk
annan svip eitt stundarkorn. Í dag, 21. desember, ganga nýir tímar í garð með vetrarsólstöðum. Þá
kemur sólin í Reykjavík upp kl. 10:03 og sest kl. 15:30. Norðanlands er birtutíminn raunar skemmri.
Hinar eiginlegu sólstöður eru svo klukkan 15:59 sem þýðir að frá þeirri stundu fer jörðin aftur að
hallast í sólarátt. Lítið þó til að byrja með, en birtu nýtur þó sjö sekúndum lengur á morgun en í dag.
Svo fer að herða á – og blessuð sólin elskar allt!
Fallega glitrar á vetrarsólstöðum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
jolamjolk.is
Gáttaþefur
kemur í kvöld
dagar til jóla
3
BYGGIR Á
ATBURÐUM
ÚR EIGIN LÍFI GÆTI BREYTT STÖÐUNNI
SVEINDÍS STÍGUR
Á STÓRA SVIÐIÐ
Í ÞÝSKALANDI
NÝTT BÓLUEFNI NOVAVAX SAMÞYKKT 18 HRÆÐIST EKKI SAMKEPPNI 30FYRSTA SKÁLDSAGA ÁSDÍSAR 33
Veronika Steinunn Magnúsdóttir
veronika@mbl.is
Sigurður Ingi Jóhannsson innvið-
aráðherra segir ríkisstjórnina líta
svo á að skynsamlegt sé að fara
varlega á meðan kórónuveirufar-
aldurinn er í vexti hér á landi. Seg-
ir hann að þrátt fyrir að staðan sé
almennt góð verði að líta til Ómík-
ron-afbrigðisins, sem er meira
smitandi, og reynslunnar í ná-
grannalöndum.
„Ef við horfum á reynsluna, sér-
staklega í Danmörku, þá segir það
okkur að skynsamlegt sé að fara
varlega. Það er í því ljósi sem við
förum á þennan ríkisstjórnarfund
og tökumst á við þetta verkefni
sem virðist engan enda ætla að
taka,“ segir hann.
Sóttvarnalæknir hefur afhent
heilbrigðisráðherra minnisblað þar
sem hann leggur til 20 manna sam-
komutakmarkanir og að tveggja
metra regla verði tekin upp í stað
eins metra reglu. Úr þessu má
ráða að líklegt sé að samkomutak-
markanir verði hertar um jólin.
Minnisblað sóttvarnalæknis
verður tekið fyrir á ríkisstjórnar-
fundi í dag og mun heilbrigðisráðu-
neytið gefa út reglugerð í fram-
haldinu eins og vant er.
Sjötugur karlmaður lést á Land-
spítala á laugardaginn vegna Co-
vid-19 en alls liggja 11 sjúklingar á
spítalanum með smit og er með-
alaldur þeirra 64 ár. Tveir eru á
gjörgæslu og annar þeirra er í
öndunarvél. Frá upphafi fjórðu
bylgju hafa 233 verið lagðir inn á
Landspítala vegna smits.
Alls greindust 220 smit innan-
lands í fyrradag en tekin voru
3.845 sýni.
Hertar aðgerðir fyrir jól
- Innviðaráðherra vill stíga varlega til jarðar - 20 manna fjöldatakmörk og
tveggja metra regla - Minnisblað sóttvarnalæknis rætt á ríkisstjórnarfundi í dag
Fjöldi innanlands-
smita frá 4. des.
200
150
100
50
4. 7. 10. 13. 16. 19.
Heimild: covid.is81
220
220 ný smit greindust
sl. sólarhring
MLeggur til 20 manna »4
_ „Ef ekkert
verður gert má
búast við að eft-
irspurn raforku
verði meiri en
framboð, sem í
viðskiptum kall-
ast skortur.
Fyrirtæki munu
ekki fá þá orku
sem þau telja
sig þurfa, raforkuverð mun
hækka og orkuskipti munu ganga
hægar en ella,“ segir Hörður
Arnarson, forstjóri Landsvirkj-
unar, m.a. í aðsendri grein í
blaðinu í dag.
Kallar hann eftir því að ákvarð-
anir verði teknar um auknar fjár-
festingar í innviðum, styrkingu
flutningskerfis raforku og auk-
inni orkuþörf. Allir séu sammála
um mikilvægi þess að vanda til
verka en það þurfi líka að taka
ákvarðanir. » 19
Orkuskortur ef ekk-
ert verður að gert
Hörður Arnarson
_ „Foreldrarnir áttu ekki von á að
sjá barnið sitt fyrr en jafnvel eftir
mörg ár, þannig að þetta eru mikil
gleðitíðindi. Arsalan er jólabarnið í
ár! Það er sannarlega á leiðinni,“
segir Irma Erlingsdóttir, forstöðu-
maður Jafnréttisskólans, sem hjálp-
að hefur fyrrverandi nemendum
sínum frá Afganistan að komast til
landins.
Arsalan varð eftir þegar for-
eldrar hans, Zeba Sultani og Khai-
rullah Yosufi, komu í ágúst en fjöl-
skyldan sameinist nú loks. »2
Lítið jólabarn
kemur til landsins
Heimferð Arsalan kemur frá Afganistan.
.Stofnað 1913 . 299. tölublað . 109. árgangur .
Þ R I Ð J U D A G U R 2 1. D E S E M B E R 2 0 2 1
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
„Þetta hafa verið erilsöm ár í borgarstjórninni og
það er ekki minni nauðsyn nú en 2018 að koma frá
þessum meirihluta með minnihluta atkvæða að baki
sér. En ég veit að það verður
gríðarlega hörð barátta, sem
maður verður að gefa sig allan í.
Að vel athuguðu máli komst að
því að það er einfaldlega meira
en ég hef að gefa. Ég hef fjöl-
skyldu að sinna, ég er með fyrir-
tæki sem ég þarf að gefa mig
meira að en ég get meðan ég er í
stjórnmálum,“ segir Eyþór
Laxdal Arnalds, oddviti
sjálfstæðismanna í borgarstjórn
Reykjavíkur.
Eyþór tilkynnti í gærkvöldi að hann hefði ákveð-
ið að gefa ekki kost á sér á framboðslista flokksins í
borgarstjórnarkosningunum í vor. Eyþór segir í yf-
irlýsingu sinni að ákvörðunin sé tekin af persónu-
legum ástæðum, ekki pólitískum. Hann kveðst vera
fullviss að Sjálfstæðisflokkurinn muni vinna góðan
sigur í vor. Þá vill hann árétta að ákvörðun þessi sé
algjörlega óháð því hvaða fyrirkomulag verði við
val á framboðslista flokksins eða hvaða ein-
staklingar muni gefa kost á sér í því vali.
- Er neistinn farinn?
„Nei, alls ekki. Ég hef ástríðu fyrir stjórnmálum
og ég hef brennandi ástríðu fyrir því að gera
Reykjavík að þeirri borg sem Reykvíkingar eiga
skilið. Þess vegna rennur manni til rifja að sjá
hvernig borgarstjóri og hans fólk vanrækir borgina
og sólundar milljörðum til þess að fóðra eigin gælu-
verkefni meðan grunnverkefni sitja á hakanum,“
segir Eyþór. „En ég verð að hugsa um það sem
stendur mér næst: börnin mín, konuna og heimilið,
atvinnureksturinn og fólkið sem er að vinna fyrir
mig. Þar kemur enginn í minn stað, en í pólitíkinni
er enginn ómissandi. Í Sjálfstæðisflokknum er nóg
til af fólki sem getur tekið við.“
Eyþór
gefur ekki
kost á sér
- Einbeitir sér að fjöl-
skyldunni og fyrirtækjum
Eyþór
Arnalds