Morgunblaðið - 21.12.2021, Síða 2
2 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 2021
Ásdís Ásgeirsdóttir
asdis@mbl.is
„Ég er mjög glöð. Það er búið að
vera mikið stress undanfarið og ég
hef hvorki getað sofið né borðað
nokkuð að ráði í viku,“ segir Zeba
Sultani, sem beðið hefur í fjóra mán-
uði eftir barni sínu sem varð eftir í
Afganistan þegar hún og eiginmaður
hennar flúðu þaðan í lok ágúst.
Sonurinn kemur í dag
Hjónin Khairullah Yosufi og Zeba
Sultani flúðu ógnarstjórn talíbana
og komu til lands-
ins í sumarlok, en
neyddust til að
skilja tveggja
mánaða son sinn,
Arsalan, eftir í
Afganistan.
Arsalan litli, nú
sex mánaða, er á
leið til landsins í
dag, en von er á
honum með flugi
frá Svíþjóð ásamt fleiri flóttamönn-
um sem Ísland mun veita vernd.
Hann hóf ferðalagið í Kabúl, en það-
an var flogið til Mazar í Afganistan,
því næst til Tblisi í Georgíu, svo til
Svíþjóðar og loks til Íslands í dag.
Svaf ekki dúr nóttina áður
Faðir litla drengsins, Khairullah,
flaug til Tblisi til að taka á móti
drengnum sem hafði þá verið í
umsjá Latifu Hamidi, konu sem var
hér í námi við Alþjóðlega jafnréttis-
skólann við Háskóla Íslands (GRÓ-
GEST) líkt og Zeba, og fær hér hæli
ásamt manni sínum og tveimur
börnum.
„Ég fékk að vita í síðustu viku að
Arsalan kæmist heim, en það var
samt svo mikil óvissa,“ segir Zeba og
segist hafa beðið í ofvæni eftir að
heyra í manni sínum þegar hann
hafði fengið son sinn í fangið í
Georgíu.
„Ég svaf ekki dúr nóttina áður og
það var svo mikill léttir þegar ég
loks fékk skilaboðin. Ég er svo
spennt að hitta barnið mitt!“
„Ég er svo spennt
að hitta barnið mitt“
- Barnið heim frá Afganistan eftir fjögurra mánaða bið
Feðgar Arsalan með föður sínum í Georgíu, en von er á þeim til landsins.
Zeba Sultani
Bifreið sem leitað var að í tengslum
við hvarf Almars Yngva Garðars-
sonar fannst í gær í Hafnarfjarð-
arhöfn og tilkynnti lögregla
skömmu seinna að Almar hefði
fundist látinn. Almar var 29 ára að
aldri og lætur hann eftir sig sam-
býliskonu og einn son.
Í tilkynningu lögreglunnar í gær-
kvöldi kom fram að aðstandandend-
ur Almars vilji koma á framfæri
þakklæti til allra þeirra sem aðstoð-
uðu við leitina. Ekki er talið að and-
látið hafi borið að með saknæmum
hætti.
Lögregla óskaði eftir aðstoð
björgunarsveitarinnar í Hafnarfirði
í gærkvöldi auk þess sem köfunar-
deild Landhelgisgæslunnar var köll-
uð til. Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins var leitinni beint að
höfninni eftir ábendingar sem bár-
ust lögreglunni samhliða leitinni.
Umfangsmikil leit fór fram á
svæðinu að Almari, sem ekkert
hafði spurst til síðan um aðfaranótt
sunnudags.
Hátt í tvö hundruð björgunar-
sveitarmenn tóku þátt í leitinni í
gær ásamt fjölda sjálfboðaliða og
voru björgunarsveitir ræstar út
klukkan eitt. Þyrla Landhelgisgæsl-
unnar kembdi ströndina frá Þor-
lákshöfn að Straumsvík í gær en
varð að stöðva við hafnir vegna lé-
legs skyggnis.
Skúli Jónsson, stöðvarstjóri lög-
reglustöðvarinnar í Hafnarfirði,
sagði í samtali við Morgunblaðið í
gær að leitarsvæðið hafi verið ansi
stórt og að margir komið að málinu,
lögreglumenn, rannsóknarlögreglu-
menn og björgunarsveitarmenn.
rebekka@mbl.is
Umfangsmikil leit
að Almari í gær
- Fannst látinn - Mikill viðbúnaður
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hafnarfjarðarhöfn Mikill viðbúnaður var við höfnina í gærkvöldi.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
ÞG Verk stefndi að því að ljúka
uppsteypu á tvíbreiðri brú yfir
Jökulsá á Sólheimasandi seint í
gærkvöldi. Um 25 manna teymi
hefur unnið að verkinu.
Þorvaldur Gissurarson, for-
stjóri ÞG Verks, segir um 1.300
rúmmetra af steypu fara í brúar-
gólfið. Steypumagnið sé 3.500 tonn
eða á við lítið fjölbýlishús.
„Brúarsmíðin hefur staðið yfir
síðan í sumar og nú er verið að
steypa brúardekkið. Við reiknum
með að það taki 35 klukkustundir.
Sú vinna hófst að morgni sunnu-
dags og stóð yfir í alla nótt [að-
faranótt mánudags]. Það sköp-
uðust einstakar aðstæður þessa
daga. Þurrt var og hlýtt þrjá daga
í röð, sem er afskaplega mikil
heppni á þessum árstíma,“ sagði
Þorvaldur.
Stór á íslenskan mælikvarða
„Það er svo stefnt að því taka
nýja tvíbreiða brú yfir Jökulsá í
notkun í vor. Þetta er dálítið löng
brú. Hún er um 165 metrar, sem
er stórt brúarvirki á íslenskan
mælikvarða,“ sagði Þorvaldur.
Ljósmynd/Vefmyndavél ÞG Verk
Brúarsmíði á Sólheima-
sandi rétt fyrir jólahátíð
- Óvenjuhagstætt tíðarfar hefur unnið með ÞG Verki
Það hefur sýnt sig að íslenska þjóðin stendur
saman, sýnir stuðning og samhug
eftir bestu getu.
Hægt er að leggja framlög inn á reikning
nr. 0101-26-35021, kt. 470269-1119
S. 551 4349, 897 0044, maedur@simnet.is
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur
JÓLASÖFNUN
Söfnum í jólasjóðinn hjá
Fjölskylduhjálp Íslands
fyrir þá fjölmörgu sem lægstu
framfærsluna hafa.
Þeim sem geta lagt
okkur lið er bent á
bankareikning
0546-26-6609,
kt. 660903-2590.
Fjölskylduhjálp Íslands, Iðufelli 14 Breiðholti
og Baldursgötu 14 í Reykjanesbæ.
Jólasöfnun
Guð blessi ykkur öll
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.