Morgunblaðið - 21.12.2021, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 2021
Forstöðumaður farsóttarhúsa telur
að búast megi við miklu álagi næstu
daga og vikur, miðað við þróunina í
nágrannalöndunum. Gylfi Þór Þor-
steinsson vonast þó til að sú aðstaða
sem Rauði krossinn hefur til afnota
dugi fram yfir jól.
Um 180 gestir voru í farsóttarhús-
um landsins í gærmorgun. Gylfi Þór
sagði þá að um 50 herbergi væru
laus og vitað að einhver herbergi til
viðbótar myndu losna síðar um dag-
inn. Aftur á móti væri plássið fljótt
að fyllast og nefndi að 55 gestir
hefðu bæst við um helgina. „Við
sjáum til í kvöld og fyrramálið en
vonandi sleppur þetta fram yfir jól-
in,“ segir Gylfi Þór.
Rauði kross Íslands hefur fjögur
hótel til afnota til að reka farsóttar-
hús. Það eru Fosshótel Lind og
Rauðará, Reykjavík Lights við
Suðurlandsbraut og Hótel Akureyri.
Þungir dagar fram undan
Gylfi Þór segir að smittölur sem
birtar voru í gær bendi til þess að
næstu dagar verði þungir. „Nú verð-
ur hver og einn að gæta sín, eins vel
og hægt er.“ Hann segist stöðugt
vera að meta stöðuna til að geta
haldið stjórnvöld-
um upplýstum,
það er að segja
Sjúkratrygging-
um Íslands og
heilbrigðisráðu-
neytinu.
Búast má við
fjölgun smita
vegna Ómíkron-
afbrigðisins sem
breiðist hratt út
um nágrannalöndin.
„Ef þetta raungerist hér má búast
við enn þyngra ástandi í allri heil-
brigðisþjónustunni. Við erum fyrstu
varðmenn Landspítalans, tökum til
okkar fólk sem annars þyrfti að
leggja þar inn og tökum líka frá þeim
Covid-sjúklinga eins hratt og mögu-
legt er þeirra vegna. Ég tel ljóst að
ef ekki á illa að fara þá þarf að bregð-
ast hratt við, jafnvel harkalega. Þeg-
ar daglegar smittölur fara yfir 200 á
dag, nokkra daga í röð, fer að hrikta
allverulega í kerfunum okkar. Við
erum ekki stórt land og ekki margir
að vinna í þessu allan sólarhringinn
og hafa gert í tvö ár. Við þurfum að
verja það fólk,“ segir Gylfi Þór.
helgi@mbl.is
Ætti að sleppa
fram yfir jól
- Staðan í farsóttarhúsum metin daglega
Gylfi Þór
Þorsteinsson
Veronika Steinunn Magnúsdóttir
Urður Egilsdóttir
Sóttvarnalæknir leggur til 20 manna
samkomutakmarkanir í minnisblaði
sem hann afhenti heilbrigðisráð-
herra í gær. Þetta herma heimildir
Morgunblaðsins. Þá er einnig lagt til
að tveggja metra regla leysi núgild-
andi eins metra reglu af hólmi.
„Virðist engan enda
ætla að taka“
Minnisblaðið verður tekið til um-
ræðu á ríkisstjórnarfundi í dag en
spurður hvernig aðstæður horfi við
ríkisstjórninni segir Sigurður Ingi
Jóhannsson innviðaráðherra:
„Þetta horfir þannig við okkur að
þrátt fyrir að staðan sé almennt góð
hefur smitunum verið að fjölga og
þetta nýja afbrigði greinilega meira
smitandi. Ef við horfum á reynsluna,
sérstaklega í Danmörku, þá segir
það okkur að skynsamlegt sé að fara
varlega. Það er í því ljósi sem við för-
um á þennan ríkisstjórnarfund og
tökumst á við þetta verkefni sem
virðist engan enda ætla að taka.“
Alls greindust 220 smitaðir innan-
lands í fyrradag en tekin voru 3.845
sýni. Thor Aspelund, prófessor í líf-
tölfræði við Háskóla Íslands, sagði
þá í samtali við mbl.is í gær að búast
megi við því að smittölur nái upp í
300 á einum degi fyrir jól. Þá lést
sjötugur karlmaður á Landspítala á
laugardaginn var vegna Covid-19 en
alls liggja 11 sjúklingar á Landspít-
ala og er meðalaldur þeirra 64 ár, en
tveir eru á gjörgæslu og annar
þeirra í öndunarvél.
Þórólfur Guðnason sóttvarna-
læknir sagðist í samtali við mbl.is í
gær taka frekar mið af stöðunni á
Landspítala heldur en smittölum
hvers dags þegar kemur að því að
meta stöðuna í samfélaginu. Mik-
ilvægt sé að fólk láti bólusetja sig
með örvunarskammti til þess að
vinna gegn Ómíkron-afbrigðinu en
ekki sé endilega ástæða til það
stytta tímann milli bólusetninga.
Spurður hvort algengt sé að fólk sé
að smitast aftur af veirunni sagði
Þórólfur að nokkuð sé um það.
„Það er greinilegt að bólusetn-
ingin og fyrri smit eru að vernda
ágætlega gegn Delta-afbrigðinu.
Síðan kemur þetta Ómíkron-afbrigði
með nýtt landslag sem við höfum
fyrir framan okkur. Það virðist vera
að fyrri Covid-sýkingar séu ekki að
vernda neitt sérstaklega vel heldur
gegn þessu afbrigði,“ sagði hann.
Viðburðum hefur þegar verið af-
lýst í einhverjum mæli vegna fjölg-
unar smita í samfélaginu en engar
áramótabrennur verða haldnar á
vegum Akureyrarbæjar þessi ára-
mót. Þá hefur Reykjavíkurborg orð-
ið við beiðni ríkislögreglustjóra þess
efnis að loka götum á Þorláksmessu
til þess að skapa rými vegna mann-
fjölda. Verður Laugavegur lokaður
frá Ingólfsstræti að Barónsstíg auk
kafla af aðliggjandi götum á því
svæði.
Fjöldi innanlandssmita og innlagna á LSH með Covid-19 frá áramótum
150
125
100
75
50
25
0
jan. feb. mars apríl maí júní júlí ágúst sept. okt. nóv. des.
220 ný innan-
landssmit
greindust sl. sólarhring
206
220
179
11
24
154
32
318 eru í
skimunarsóttkví
1.817 erumeð virkt smit
og í einangrun
2.806 einstaklingar
eru í sóttkví
11 einstaklingar eru á sjúkrahúsi,
þar af tveir á gjörgæslu,
annar í öndunarvél
90% landsmanna 12 ára
og eldri eru fullbólusettir
287.229 einstaklingar
hafa fengið
að minnsta kosti einn skammt
H
ei
m
ild
:L
S
H
o
g
co
vi
d
.is
kl
.1
3
.0
0
íg
æ
r20.890 smit hafa
verið staðfest
572 einstaklingar hafa verið lagðir inn á
sjúkrahús, þar af á 96 á gjörgæslu
1,3 milljón sýni hafa
verið tekin
37 einstaklingar eru látnir,
þar af 80% 70 ára og eldri
Heildartölur frá 28. febrúar 2020
Innanlandssýni 60%
Landamærasýni 1 31%
Landamærasýni 2 9%
1.807 einstaklingar
eru undir
eftirliti Covid-göngudeildar
LSH, þar af 654 börn
Leggur til 20 manna fjöldatakmörk
- Sóttvarnalæknir leggur til hertar aðgerðir fyrir jól - 20 manna fjöldatakmörkun og 2 metra reglu
- Sigurður Ingi telur skynsamlegt að fara varlega - Smitin geti hæglega farið upp í 300 á dag
Þórólfur
Guðnason
Sigurður Ingi
Jóhannsson
ÁHRIF KÓRÓNUVEIRUNNAR Á ÍSLANDI