Morgunblaðið - 21.12.2021, Side 6
6 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 2021
U
M
H
V
ER
FI
S
V
Æ
N
ÍS
LE
N
S
K
H
Ö
N
N
U
N
GARÐASTRÆTI 2
ASWEGROW.IS
Loðnuskipin komu hvert af öðru
til hafna frá Þórshöfn til
Vestmannaeyja um helgina og eru
sjómenn í jólaleyfi til og með 2.
janúar. Líklegt er að verksmiðj-
urnar verði í gangi fram undir jól
þar sem talsverðum afla var land-
að síðustu daga. Heildaraflinn á
vertíðinni, sem hófst í síðasta
mánuði, er orðinn um 60 þúsund
tonn.
Íslensku skipin mega veiða alls
662 þúsund tonn á vertíðinni og til
viðbótar mega erlend skip veiða
240 þúsund tonn. Hlutur Norð-
manna er alls rúmlega 145 þúsund
tonn og síðasta vetur komu um 60
norsk skip hingað til veiða. Mest
mega 30 norsk skip vera að veið-
um í einu og þau mega aðeins
veiða með nót. Norðmenn hafa
ekki heimild til veiða við landið
lengur en til og með 22. febrúar
og mega ekki veiða fyrir sunnan
línu, sem er dregin beint í austur
frá punkti sunnan Álftafjarðar.
Líklegt er að norsku skipin birt-
ist á miðunum undir lok janúar, en
eftir er að koma í ljós hvort afli
þeirra verði unnin í íslenskum
verksmiðjum eða í Noregi. Þá
eiga Grænlendingar og Fær-
eyingar dágóða kvóta, og einnig
skip frá löndum Evrópusambands-
ins, og ljóst er að líf og fjör verður
á loðnumiðum eftir áramót.
Um tólf þúsund tonnum var
landað í fiskimjölsverksmiðjur
Síldarvinnslunnar í Neskaupstað
og á Seyðisfirði um nýliðna helgi,
um sex þúsund tonnum í hvora
þeirra. Á heimasíðu Síldarvinnsl-
unnar er haft eftir verksmiðju-
stjórunum, Hafþóri Eiríkssyni í
Neskaupstað og Eggert Ólafi Ein-
arssyni á Seyðisfirði, að ljómandi
vel gangi að vinna loðnuna. Gert
er ráð fyrir að vinnslu verði lokið
í báðum verksmiðjum fyrir jólahá-
tíðina og engin vinnsla fari fram á
milli hátíða. Samtals hafa verk-
smiðjur Síldarvinnslunnar tekið á
móti 21.700 tonnum. aij@mbl.is
Loðna brædd í verksmiðjunum fram undir jól
Líf og fjör á
loðnumiðum
eftir áramót
Ljósmynd/Smári Geirsson
Annir Bjarni Ólafsson, Barði, Blængur og Beitir við bryggju í Neskaupstað í gær. Blængur var nýkominn úr túr í Barentshafið, en hin skipin voru á loðnu-
veiðum. Við bryggju verksmiðjunnar má sjá mjölskip. Sólin kitlar fjallstoppana í veðurblíðunni fyrir austan en geislar hennar sjást í bænum seint í janúar.
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Ýmsar breytingar þarf að gera á fjár-
lagafrumvarpi næsta árs við aðra um-
ræðu samkvæmt tillögum sem fjár-
málaráðherra hefur sent fjárlaga-
nefnd fyrir hönd ríkisstjórnarinnar.
Þær þýða að afkoma ríkissjóðs versn-
ar um 9,9 milljarða frá því sem lagt
var upp með þegar frumvarpið var
lagt fram í lok nóvember. Í stað 169
milljarða halla mun hann aukast í 178
milljarða kr. eða 5% af vergri lands-
framleiðslu.
Þetta kemur fram í minnisblöðum
ráðuneytisins til fjárlaganefndar.
Bent er á að ráðherranefnd um rík-
isfjármál hefur í umfjöllun sinni sett
sér það markmið að breyting á af-
komu ríkissjóðs við aðra umræðu um
fjárlagafrumvarpið verði í heild ekki
umfram tíu milljarða kr. Er nefndinni
bent á að lítið svigrúm sé til að taka
upp ný og aukin útgjöld eða veita
ívilnanir á tekjuhlið án þess að það
valdi marktækri röskun á markmið-
um um afkomu ríkissjóðs.
Tillögur ríkisstjórnarinnar um
breytingar á fjárlagafrumvarpinu
fela í sér að heildarútgjöldin hækki
um 13,1 milljarð kr. og endurmetin
tekjuáætlun fyrir ríkissjóð hækkar
um 3,2 milljarða. Í þeirri hækkun er
m.a. hækkun áætlaðra veiðigjalda um
1,3 milljarða kr. á næsta ári sem er
sögð tilkomin vegna uppfærslu á út-
reikningi veiðigjalds og í samræmi
við tillögur skattsins um álagningu
veiðigjalda og uppfærða spá um
heildarafla á næsta ári. Gert er ráð
fyrir um tveggja milljarða kr. hækk-
un vaxtatekna vegna greiðslna frá
nýju félagi um fasteignir Háskóla
Íslands, en þessar tekjur munu
vega á móti samsvarandi breytingu á
útgjöldum vegna framlaga til félags-
ins og því ekki hafa áhrif á afkomu
ríkissjóðs. Tekjur lækka um 700
milljónir vegna niðurfellingar á gisti-
náttagjaldi en tekjur af jöfnunar-
gjaldi við dreifingu raforku í dreifbýli
hækka um 200 milljónir.
1,2 milljarðar vegna vinnutíma
Útgjaldatillögurnar fela m.a. í sér
3,4 milljarða kr. hækkun til atvinnu-
leysistryggingasjóðs vegna ráðning-
arstyrkja í tengslum við átakið Hefj-
um störf. Útgjaldaheimild fæðingar-
orlofssjóðs hækkar frá upphaflegu
frumvarpi um 1.627 milljónir kr.
vegna fjölda fæðinga og aukinnar
fæðingarorlofstöku feðra. Áætluð út-
gjöld til endurgreiðslna vegna rann-
sóknar- og þróunarkostnaðar aukast
um 1,3 milljarða og gera þarf ráð fyrir
1,2 milljörðum kr. hærri útgjöldum
vegna styttingar vinnutíma vakta-
vinnufólks en lagt var til í upphaflegu
fjárlagafrumvarpi. Þá er gert ráð fyr-
ir eins milljarðs kr. hækkun til að
styrkja rekstrargrunn hjúkrunar-
heimila og einum milljarði kr. til
stuðnings rekstraraðilum í veitinga-
þjónustu.
200 milljónir í aðgerðir
gegn kynferðisbrotum
Lagðar eru til 200 milljónir kr. sem
verja á í aðgerðir gegn kynferðisbrot-
um, 450 milljóna kr. hækkun vegna
breyttrar skipunar Stjórnarráðsins
og 700 milljóna kr. í stuðning til
bænda vegna verðhækkunar á
áburði.
Horfur eru nú á að skuldir ríkis-
sjóðs verði um tólf milljörðum kr.
hærri en skv frumvarpinu og muni þá
nema 34% af vergri landsframleiðslu í
lok næsta árs.
Hallinn verði 9,9 milljörðum meiri
Morgunblaðið/Eggert
Við störf Útgjöld aukast um 3,4 milljarða vegna átaks í atvinnumálum.
- Útgjöld í fjárlagafrumvarpi aukast um 13,1 milljarð og tekjurnar um 3,2 milljarða skv. tillögum ríkis-
stjórnarinnar til fjárlaganefndar - 1,3 milljörðum hærri veiðigjöld - 3,4 milljarðar vegna atvinnuátaks